Morgunblaðið - 22.01.2005, Blaðsíða 28
28 LAUGARDAGUR 22. JANÚAR 2005 MORGUNBLAÐIÐ
FERÐALÖG
www.gisting.dk
sími: 0045 3694 6700
Ódýr og góð gisting
í hjarta Kaupmannahafnar
Góð gisting í Kaupmannahöfn
Hótel í miðbænum. Snyrtileg herbergi. 295 danskar kr.
fyrir manninn í 2ja manna herb. með wc og sturtu.
Løven Hotel, Vesterbrogade 30, DK-1620 Cph. V.
Sími +45 33 79 67 20.
www.loeven.dk • loeven_bb@hotmail.com
Skemmuvegi 48 • Kópavogi • S: 557 6677
www.steinsmidjan.is
Opnunartími:
11-18:30 mán-fös
10-18 lau / 13-17 sun.
Skútuvogi 2, sími 522 9000 • www.expert.is
Samsung SGH-X450
fallegur 3 banda
sími með
hágæða skjá
B Í L D S H Ö F Ð A 2 0 · S M Á R A L I N D · S E L F O S S I
LANDSLIÐSBÚNINGAR OG
FÁST HJÁ OKKUR
STUÐNINGSAÐILI KSÍ OG KKÍ
Íslendingar sem ferðast til Kan-aríeyja fara langflestir á eyjunaGran Canaria og dvelja á
Ensku ströndinni við sólböð. En eyja
þessi hefur upp á margt annað að
bjóða og eftir tíu mínútna akstur frá
Ensku ströndinni eru ferðalangar
komnir út í sveit í allt annað um-
hverfi. Þar er allur taktur rólegri og
mikið um litla fallega bæi þar sem
hægt er að dvelja, ýmist niðri við
strönd eða inn til landsins. Ein-
hverjar íslenskar ferðaskrifstofur
selja til dæmis gistingu í Puerto Rico
sem er lítill strandbær útí sveit með
hótelbyggingum uppi í klettunum.
Fjölmargar frábærar gönguleiðir
liggja um eyjuna enda er hún vinsæll
áfangastaður fyrir göngugarpa frá
öllum heimshornum og ekki amalegt
að fara á tveimur jafnfljótum um
náttúru sem ber merki mikillar eld-
virkni. Eins er heilmikið um að fólk
fari í hjólreiðaferðir um Gran Can-
aria og þar er líka hægt að fara í
skipulagðar hestaferðir, jeppaferðir
og úlfaldaferðir. Golf á sér langa
sögu á Kanarí eða alveg frá því á 19.
öld og þar eru mjög góðir golfvellir
sem golfarar ættu ekki að láta
framhjá sér fara.
Heilsulindir (SPA) eru nokkrar á
Gran Canaria og þar er hægt að
njóta alls þess besta sem vatns-
heilsulindir bjóða upp á og í bænum
San Agustin er að finna eina þá
stærstu í allri Evrópu.
Lítil Paradís
En Kanaríeyjarnar eru fleiri en
Gran Canaria og vert að minna á að
hinar eyjarnar eru líka spennandi
kostur að heimsækja. Tenerife er
nokkuð þekkt meðal Íslendinga, en
færri hafa komið til Lanzarote, El
Hierro, La Gomera, La Palma,
Fuerteventura og La Graciosa.
Pínulitla eyjan La Graciosa er ein
af nyrstu eyjunum í Kanaríeyjaklas-
anum og hún er auglýst sem góður
kostur fyrir „sérstaka og næma
ferðamenn“ sem kunna að njóta
náttúrunnar, þagnarinnar og fegurð-
arinnar. Þessi eyja er minnst þekkta
eyjan í klasanum og sú frumstæð-
asta. Á henni eru engir malbikaðir
vegir og fólkið er sagt ganga berfætt
um sendnar göturnar og lifa af gæð-
um hafsins. Þeir sem hafa áhuga á
köfun ættu ekki að láta þessa litlu
eyju framhjá sér fara, því fegurðin
neðansjávar ku vera einstök á þess-
um slóðum. Strendurnar eru litlar og
fámennar og hægt er að fara í hinar
ýmsu bátaferðir og skoða ósnertar
smáeyjar og stunda fiskveiði svo eitt-
hvað sé nefnt.
Á eyju þessari er fiskiþorp nokk-
urt sem heitir Celeta de Sebo, en þar
er haldin hátíð (carnival) 16. júlí ár
hvert til heiðurs meyjunni og dýr-
lingnum Carmen. Þá er mikil gleði,
strandpartí, leikhús og fleira
skemmtilegt í boði.
Fyrir þá sem hafa áhuga á að
heimsækja þessa litlu eyju, er vert
að benda á að aðeins tekur um hálfa
klukkustund að sigla þangað frá
hafnarbænum Port of Orzola sem er
nyrst á eyjunni Lanzarote, en þang-
að verður hægt að fljúga beint frá Ís-
landi með Sumarferðum þetta árið.
Tónleikar neðanjarðar
Eyjan Lanzarote er sú stærsta í
norðaustri og þar er líka hægt að
gera ýmislegt annað en að liggja í
sólbaði. Þar er til dæmis boðið upp á
kafbátasiglingar, köfun og annað
vatnasport, neðansjávarsafn og önn-
ur forvitnileg söfn. Og ekki má
gleyma tónlistarhátíðinni í október
sem fram fer í Jameos del Agua, sem
er hálfgert eldfjallahús, með sund-
laugum og görðum meira og minna
gerðum af náttúrunnar hendi. Þar er
náttúrulegur tónlistarsalur ofan í
jörðinni, þar sem holrúm hefur
myndast við eldgos, og þar stígur
tónlistarfólkið á svið.
Litla eyjan La Gomera sem er
vestarlega í eyjaklasanum er mikil
náttúruperla og svartar sand-
strendur hennar eru rómaðar fyrir
fegurð. Þar er líka nokkuð um minj-
ar frá fimmtándu öld, kastalar og
aðrar byggingar sem vert er að
heimsækja. Eins geymir þessi eyja
Garajonay-þjóðgarðinn sem er ein-
stakur.
Kajakasiglingar og geitaostur
Eyjan Fuerteventura er sú næst-
stærsta í Kanaríeyjaklasanum og
liggur á milli Gran Canaria og Lanz-
arote. Þetta er eyja vatnasportsins
og þar eru haldnar alþjóðlegar
keppnir í brimbrettabruni, djúpsjáv-
arveiði, kajaksiglingum og sundi
milli eyja, svo eitthvað sé nefnt. Fyr-
ir matgæðinga er vert að gera sér
ferð til þessarar eyjar þó ekki væri
nema fyrir þann einstaka geitaost
sem þar er framleiddur og unnið hef-
ur til fjölda verðlauna fyrir einstök
gæði. Á Fuerteventura er einnig
hægt að skoða eldfornar kirkjur og
þar eru sjö áhugaverð söfn sem eru
dreifð um eyjuna og þeirra á meðal
er hús spænska rithöfundarins
Miguel Unamuno sem og hús dokt-
ors Mena.
KANARÍEYJAR | Fleira en sólböð í boði
Fjallgöngur,
jeppaferðir,
heilsulindir og
hinar eyjarnar Golfvöllur í fallegu umhverfi í Costa Teguise á eyjunni Lanzarote sem flog-
ið verður beint til frá Íslandi í sumar.
Silfraður fiskur er eitt af einkennum litlu Paradísareyjunnar La Graciosa.
www.canary-islands.com
www.turismograncanaria.com
www.turismolanzarote.com
www.fuerteventuraturismo.com
www.gomera-island.com
www.grancanariagolf.org
khk@mbl.is
Slóvenskir dagar í febrúar
Ferðamálaráð Slóveníu hefur í sam-
vinnu við Ferðaskrifstofuna Nonna á
Akureyri og fleiri aðila ákveðið að
halda í febrúar kynningu á Slóveníu í
bænum. Frá Slóveníu koma tveir kokk-
ar og matreiða fyrir Íslendinga ým-
iskonar góðgæti frá landinu og koma
kokkarnir með hluta hráefnisins með
sér. Fara matarkynningarnar fram
þann 18. febrúar á veitingastaðnum
Friðrik V á Akureyri og 20. febrúar á
Kaffi Reykjavík. Með í för verður
harmonikkuleikari sem leikur ljúfa tóna
fyrir matargesti. Á veitingastöðunum
munu liggja frammi bæklingar og upp-
lýsingar um Slóveníu.
Cumberland-hótelið
í London endurnýjað
Hótelið The Cumberland, sem stendur
við Marble Arch í London, hefur verið
endurnýjað frá kjallara og upp í mæni
og er nú vart þekkjanlegt í sinni gömlu
mynd. Margir Íslendingar, sem hafa
dvalið á The Cumberland á undan-
förnum árum, hugsa sér sjálfsagt gott
til glóðarinnar að hótelið skuli nú hafa
verið opnað á ný, enda hefur staðsetn-
ingin löngum þótt heppileg. Að sögn
kunnugra á breytingin eflaust eftir að
koma gömlum viðskiptavinum þægi-
lega á óvart því þar er nú allt mun
glæsilegra en áður var, eða „með því
flottara sem maður hefur séð“, eins
og heimildamaður orðaði það.
Frekari upplýsingar: Nonni Travel
Brekkugötu 5, 600 Akureyri
Sími: 461 1841
Fax: 461 1843
Netfang: nonni@nonnitravel.is
Vefslóð: www.nonnitravel.is
Heimilisfang: Great Cumberland
Place, Central London – W1A 4RF
Vefslóð: www.gouman.co.uk/
cumberland/hotels/
Sími: 00-0870 333 9281
Fax: 00-0870 333 9281
Netfang: enquiries@thecumber-
land.co.uk