Morgunblaðið - 23.01.2005, Blaðsíða 1
STOFNAÐ 1913 21. TBL. 93. ÁRG. SUNNUDAGUR 23. JANÚAR 2005 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS mbl.is
Börn eru
síyrkjandi
Leikgerð byggð á barnaljóðum
Þórarins Eldjárns frumsýnd | Menning
Tímarit og Atvinna í dag
Tímarit | Bíóbúð Ólviers Steins Kossar, bros og ilmvatn
Matur Vín Kona eins og ég Krossgáta Atvinna | Flestir
vilja til Akureyrar Atvinnuleysi Mannabreytingar
5 6 9 0 9 0 0 0 0 0 9 0 0
SUNNUDAGUR VERÐ KR. 350
Í stríð gegn
drykkjuskapnum
BRESKA stjórnin hefur skorið
upp herör gegn vaxandi
drykkjuskap og þeim vandræð-
um, sem honum fylgja. Hefur
meðal annars verið ákveðið, að
hafi lögreglan þurft að hafa af-
skipti af einhverjum í þrígang
vegna drykkjuláta, verði hann
settur í tímabundið bann á veit-
ingastöðum.
Að því er fram kemur í
breskum fjölmiðlum verða
mestu „drykkjusvæðin“ í mið-
borgunum skilgreind sér-
staklega og kráar- og veitinga-
húsaeigendur þar fá tveggja
mánaða frest til að koma hlut-
unum í lag. Að öðrum kosti
verða þeir að greiða sér-
staklega fyrir aukna löggæslu
og hreinsunarstarf.
Hafa þessar ráðstafanir vak-
ið litla hrifningu meðal veit-
ingamanna og þá ekki sú
ákvörðun að 200-falda kostnað
við veitingaleyfi stóru staðanna
í miðborgunum, úr 10 pundum í
tæplega 2.000. Þá hefur lög-
reglan nú heimild til að loka
umsvifalaust þeim stöðum, sem
eru staðnir að því að selja fólki
undir lögaldri áfengi.
ÁTTA Kínverjum, sem verið hafa í
haldi hjá mannræningjum í Írak,
var sleppt í gær. Skýrði Al-Ara-
biya-sjónvarpsstöðin frá því í gær
og vitnaði í yfirlýsingu frá ræningj-
unum.
„Kínverjunum átta hefur verið
sleppt þar sem kínversk stjórnvöld
hafa samþykkt að banna þegnum
sínum að fara til Íraks,“ sagði í yf-
irlýsingunni en Kínastjórn gerði
raunar ekki annað en að ítreka, að
hún hefði alltaf varað kínverska
borgara við því að fara til Íraks.
Talsmaður kínverska utanríkisráðu-
neytisins benti líka á, að mönn-
unum átta hefði verið rænt er þeir
voru á leið út úr landinu. Kínverjar
voru andvígir innrás Bandaríkja-
manna í Írak en ýmis kínversk fyr-
irtæki hafa hins vegar fengið verk-
samninga þar. Kínverska sendiráðið
í Írak staðfesti í gær, að mönn-
unum hefði verið sleppt og þeir af-
hentir ráði múslímskra fræði-
manna.
Átta
Kínverjum
sleppt
Reuters
Þessi mynd var birt í gær og sýnir hún Kínverjana með ræningjum sínum.
Dubai. AFP.
Forystumenn verkalýðshreyfing-
arinnar, sem stutt hafa Samfylk-
inguna, gagnrýndu Össur harðlega
fyrir að leggja blessun sína yfir
frumvarp um eftirlaun ráðherra og
alþingismanna. Halldór Björnsson,
fyrrverandi formaður Starfs-
greinasambands Íslands, og Krist-
ján Gunnarsson, núverandi for-
maður sambandsins, sögðu sig úr
flokknum í kjölfarið.
Gylfi Arnbjörnsson, fram-
kvæmdastjóri ASÍ, segir ekki of-
mælt að orðið hafi trúnaðarbrestur
milli verkalýðsarms Samfylkingar-
innar og formanns flokksins vegna
eftirlaunamálsins. Flokkurinn hafi
að vísu breytt afstöðu sinni til
málsins eftir að gagnrýnin kom
upp, en málið hafi eftir sem áður
haft varanlegar afleiðingar.
Beita sér að öllum líkindum
fyrir kjöri Ingibjargar
Gylfi segir að hann og fleiri for-
ystumenn verkalýðshreyfingarinn-
ar sem starfa innan Samfylking-
arinnar muni að öllum líkindum
beita sér fyrir kjöri Ingibjargar
Sólrúnar. Fyrirhugaður sé fundur
þar sem þessi mál verði rædd.
Hann segist vera þeirrar skoðunar
að það sé mikilvægt fyrir Samfylk-
inguna að hún verði formaður með
sama hætti og það hafi verið mik-
ilvægt að Samfylkingin yrði til, en
forystumenn í verkalýðshreyfing-
unni beittu sér mjög ákveðið fyrir
stofnun hennar á sínum tíma þeg-
ar tvísýnt var um að samkomulag
tækist um myndun kosninga-
bandalags undir merkjum Sam-
fylkingarinnar.
Gagnrýna frammi-
stöðu Ingibjargar
Útlit er fyrir harða kosninga-
baráttu um formannssætið. Stuðn-
ingsmenn Össurar leggja áherslu á
að flokkurinn standi vel; honum
hafi tekist að efla flokksstarfið,
skoðanakannanir sýni gott fylgi
við flokkinn og búið sé að koma
fjármálum hans í gott horf. Það sé
því engin ástæða til að skipta um
formann. Þeir gagnrýna einnig
frammistöðu Ingibjargar Sólrúnar
í kosningabaráttunni fyrir síðustu
þingkosningar og segja að hún hafi
fengið tækifæri en hún hafi klúðr-
að því.
Stuðningsmenn Ingibjargar Sól-
rúnar gagnrýna á móti undirbún-
ing Össurar fyrir síðustu kosning-
ar. Kosningastefnuskráin hafi í
veigamiklum atriðum verið ómótuð
í upphafi kosningabaráttunnar og
frambjóðendur hafi verið að móta
hana aðeins nokkrum vikum fyrir
kosningar.
Eftirlaunamál
Össuri erfið í
formannskjöri
Össur eða Ingibjörg/10-11
Forystumenn í verkalýðshreyfingu
sem styðja Samfylkinguna ræða um
að beita sér fyrir kjöri Ingibjargar
FORYSTUMENN í verkalýðshreyfingunni sem starfa innan Sam-
fylkingarinnar ætla á næstu dögum að halda fund til að ræða hvort
þeir eigi að beita sér í þágu Ingibjargar Sólrúnar Gísladóttur í vænt-
anlegu formannskjöri í Samfylkingunni. Margir í verkalýðsarmi
flokksins eru mjög óánægðir með framgöngu Össurar Skarphéð-
inssonar, formanns flokksins, í svokölluðu eftirlaunamáli.
ÁBYRGIR ökumenn telja það ekki eftir sér að skafa hélu og snjó af bílrúð-
um þótt sá starfi sé oft kalsamur og unninn með krókloppnum höndum í
morgunsárið. Veðurstofan spáir hlýnandi veðri víða um land í dag en um
allt land næstu daga. Því má ætla að rúðusköfurnar fái einhverja hvíld á
næstunni líkt og snjómoksturstæki og önnur vetrarverkfæri. Líklega
sakna fáir þess að þurfa að hefja ökuferðir með því að beita rúðusköfunni.
Morgunblaðið/Golli
Horfur á hlýnandi veðri
Nýr listi
„hinna
viljugu“
BANDARÍSK stjórnvöld hafa lagt
fyrir róða listann yfir hinar 45 „vilj-
ugu þjóðir“ en hann var á sínum tíma
notaður til að réttlæta innrásina í
Írak sem fjölþjóðlega aðgerð. Í stað
hans er kominn nýr listi með 28 ríkj-
um, sem eru með herlið í landinu.
Hefur Reuters-fréttastofan þetta
eftir ónefndum, bandarískum emb-
ættismanni, sem segist þó ekki vita
hvenær eða hvers vegna þetta hafi
verið ákveðið. Á upphaflega listanum
voru raunar ekki nema 30 ríki beint
en önnur 15 studdu innrásina án þess
að vilja fá sitt nafn á listann. Eitt
ríkjanna 30, Costa Rica, dró stuðning
sinn til baka í september síðastliðnum
vegna mikilla mótmæla kjósenda.
Í Reuters-fréttinni er þess einnig
getið, að íslensk samtök hafi verið
með heilsíðuauglýsingu í New York
Times þar sem hvatt var til að nafn Ís-
lands yrði tekið af listanum og afsök-
unar beðist á stuðningi íslenskra
stjórnvalda við stefnu Bandaríkja-
stjórnar.
♦♦♦
LIÐSMENN Al Aqsa-herdeildanna
í Palestínu tilkynntu í gær, að þeir
væru reiðubúnir að lýsa yfir vopna-
hléi við Ísraela.
Kom þetta fram á fréttamanna-
fundi í Gazaborg en ekki er ljóst
hvort þeir, sem hann héldu, mæltu
fyrir munn allra samtakanna en þau
skiptast í ótal fylkingar án eiginlegr-
ar miðstjórnar.
Mahmoud Abbas, nýjum leiðtoga
Palestínumanna, hefur orðið mikið
ágengt við að fá ýmis herská samtök
til að fallast á að hætta árásum á Ísr-
ael og nú gæta þess um 3.000 palest-
ínskir lögreglumenn, að ekki séu
gerðar flugskeytaárásir á Ísrael frá
Gaza. Hefur þessu verið fagnað í Ísr-
ael en stjórnvöld þar höfðu hótað
meiriháttar hernaðaraðgerðum.
Fallast á
vopnahlé
Gazaborg. AP.