Morgunblaðið - 23.01.2005, Blaðsíða 50
Mímí og Máni
Kalvin & Hobbes
ÉG VAR AÐ KAUPA NÝJU
PLÖTUNA MEÐ
GRAFAR-
RÆNINGJUNUM
ÞEIR ERU HLJÓMSVEIT SEM
RAPPA UM HUGSANALAUST
OFBELDI OG KYNLÍF, AUK
ÞESS SEM ÞEIR FJALLA
MIKIÐ UM NEYSLU
EITURLYFJA Í LÖGUM SÍNUM
MAMMA ÞÍN Á EFTIR
AÐ VERÐA BRJÁLUÐ ÞEGAR
HÚN SÉR ÞESSA PLÖTU Í
HERBERGINU ÞÍNU
ÞAÐ ER EINS GOTT!
ÉG ÞOLI EKKI
LÖGIN ÞEIRRA
Risaeðlugrín
© DARGAUD
framhald ...
TRASHOPTERIS ER ÁN EFA
EINN AF ÓGEÐSLEGUSTU
FUGLUM OKKAR TÍMAR
HANN ER JAFN LJÓTUR OG
HEMIPTERUS APTERUS OG VIRÐIST HAFA
ALLA GALLA VERALDAR
...HANN
LYKTAR
LÍKA ILLA
HANN ER GRIMMUR OG BLÓÐÞYRSTUR.
HANN HRÆÐIR ALLA SEM Á VEGI HANS VERÐA
HANN ER ILLA UPP ALINN OG SKAÐR FÓRNARLÖMB SÍN
MEÐ VILLIMANSLEGUM MUNNSÖFÐNUÐI SÍNUM SEM VIÐ
KJÓSUM AÐ FARA EKKI NÁNAR ÚT Í.
TRASHOPTERIS ER SEM SAGT
ALGJÖRT ÚRÞVÆTTI
?
HEYRÐU,
ÞÚ ÞARNA
UPPI!
LJÓTI FUGL!!
HJÁLP!
RITSKOÐAÐ
Dagbók
Í dag er sunnudagur 23. janúar, 23. dagur ársins 2005
Aldrei er kvenna-stjórn affaragóð,
sá flytur gott hlass í
garð sem góða konu
fær, kona er karl-
manns fylgja og
þrætugjörn kona er
sem sífelldur leki, eru
dæmi um málshætti
sem finna mátti í dag-
bók frá Odda. Við-
skiptavinir kvörtuðu
og fannst málshætt-
irnir niðrandi og ákvað
Oddi í kjölfarið að
stöðva dreifingu, inn-
kalla bækurnar og
henda þeim á haugana.
Fjárhagslegt tjón
hljóðar upp á margar milljónir þó
Oddamenn vilji ekki gera mikið úr því.
Víkverji hefur verið að velta fyrir
sér hvort einhverjir aðrir hafi orðið
fyrir tjóni vegna þessa. T.d. hvort ein-
hverjar konur hafi í raun og veru
móðgast, sárnað, fundist talað niður
til sín. Víkverji á einhvern veginn bágt
með að trúa því. Heldur einhver virki-
lega að Oddi hafi verið að senda skila-
boð til kvenna? Hvenær komumst við
á það stig í jafnréttisbaráttunni að
geta tekið gríni?
Í dagbókinni var að finna forna
málshætti. Heimskur er jafnan höf-
uðstór, er málsháttur sem Víkverji
notar stundum. Vík-
verji segir þetta ekkert
endilega við höf-
uðstærstu vini sína.
Málsháttur sem þessi
er auðvitað fyrst og
fremst til að hafa gam-
an af og höfuðstóru
fólki virðist lítið sem
ekkert sárna þegar
málshátturinn er sagð-
ur.
Víkverji telur það
hafa verið algjöran
óþarfa að henda öllum
dagbókunum. Var ekki
hægt að setja miða
fremst í bókina sem á
stóð að málshætti ætti
að lesa sem dægradvöl en ekki taka
alvarlega? Þeir væru frá ákveðnum
tímum og spegluðu þau gildi sem þá
voru við lýði?
Uppi á vegg heima hjá Víkverja
hafa lengi hangið eftirfarandi „spak-
mæli“: „Að rökræða við konu er eins
og að lesa dagblað úti í hvassviðri.“
Víkverji fékk þetta að gjöf frá vinum
sínum. Hann hefur boðskapinn þó
ekki að leiðarljósi í lífinu eða brýnir
hann fyrir syni sínum, heldur hefur
hann til áminningar um að skoðanir
eru skiptar, gildi eru mismunandi í
tíma og rúmi og það er hægt að hlæja
að öllu saman.
Víkverji skrifar... | vikverji@mbl.is
Grandi | Þótt Íslendingar hafi gaman af því að blóta þorrann standast fáir
ásatrúarmönnum snúning þegar kemur að innilegum og hátíðlegum fögnuði.
Þessi hópur áhugamanna um forna siði Íslendinga hefur löngum haft mikið
dálæti á þorranum og er jafnan glatt á hjalla við þessi tækifæri.
Ásatrúarmenn hittust á föstudagskvöld og gerðu sér glaðan dag. Það var
Allsherjargoðinn sjálfur, Hilmar Örn Hilmarsson tónlistarmaður, sem helg-
aði mjöðinn, sem menn gerðu síðan síðan góð skil að þjóðlegum sið.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Þorri blótaður að heiðnum sið
MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍMAR: Skiptiborð: 569 1100. Aug-
lýsingar: 569 1111. Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329, fréttir 569
1181, íþróttir 569 1156, sérblöð 569 1222, auglýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811,
gjaldkeri 569 1115. NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.400 kr. á mánuði
innanlands. Í lausasölu 220 kr. eintakið mánudaga til laugardaga. Sunnudaga 350 kr.
Trúin er fullvissa um það, sem menn vona, sannfæring um þá hluti,
sem eigi er auðið að sjá. (Hebr. 11, 1.)