Morgunblaðið - 26.01.2005, Side 1
Sporlétt
tímamót
Helgi Tómasson fagnar 20 ára
starfsafmæli í dag | Miðopna
Flugkappinn
flýgur hæst
The Aviator tilnefnd til 11 Ósk-
arsverðlauna | Menning 44
Íþróttir í dag
Skelfilegt að klára þetta ekki
Viggó átti að breyta um vörn Alsír
og Grikkland komu á óvart á HM
STOFNAÐ 1913 25. TBL. 93. ÁRG. MIÐVIKUDAGUR 26. JANÚAR 2005 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS mbl.is
BÆJARYFIRVÖLD í Garðabæ vinna nú að því
að gera sérsamning sem væntanlegir starfsmenn
við hinn nýja Sjálandsskóla geta gengið inn í í stað
þess að fara eftir samningi sem launanefnd sveit-
arfélaganna gerði við Kennarasamband Íslands.
Sjálandsskóli á að taka til starfa í haust og segir
Ásdís Halla Bragadóttir, bæjarstjóri í Garðabæ,
að stefnt sé að því að gera sérsamning við alla
starfsmenn hins nýja skóla og miða skipulag hans
og starfsemi við það. Til að það megi verða þarf þó
samráðshópur launanefndarinnar að samþykkja
gerð samningsins.
Samningar af þessu tagi falla undir bókun við
kjarasamninginn sem gerður var við grunnskóla-
kennara sl. haust. Þar kemur fram að samningsað-
ilar séu sammála um að skapa tækifæri fyrir
grunnskóla að taka upp í tilraunaskyni hliðstæð
vinnutímaákvæði og gilda hjá öðrum háskóla-
menntuðum starfsmönnum sveitarfélaga, tíma-
bundið í eitt ár. Vinnutími verði milli kl. 8 og 17 og
innan þess tíma sé öll vinnuskylda kennara;
kennsla, undirbúningstími, verkstjórnartími og sí-
menntun.
„Bæjarritari og forstöðumaður fræðslu- og
menningarsviðs eru að undirbúa þennan samning
í samvinnu við skólastjóra skólans. Við ætlum að
reyna að ljúka samningnum og fá leyfi til þess að
gera hann áður en starfsmenn Sjálandsskóla
verða ráðnir nú á næstu mánuðum.“
Ásdís Halla segir að þessi samningur í þessum
skóla geti hugsanlega sýnt fram á nýja möguleika.
„Það er ekkert því til fyrirstöðu að skoða þetta
gagnvart öðrum starfsmönnum líka. Þetta er
fyrsta skrefið, ef þetta gengur vel þá finnst okkur
þetta áhugaverður möguleiki. En forsendan fyrir
því að gera svona samning er að starfsmennirnir
hafi áhuga á því og vilji gera svona samning. Það
er ágætt að gera þetta núna með þennan nýja
skóla, starfsfólk þar veit þá að hverju það gengur.“
Bæjaryfirvöld í Garðabæ vilja gera sérsamning við kennara í Sjálandsskóla
Vinnutíminn eins og hjá
öðrum háskólastéttum
VAXANDI áhyggjur eru af hækkunum á verði
fasteigna á meginlandi Evrópu og varaði Seðla-
banki Evrópu nýverið við því að hætta væri á því
að verðbólan spryngi í nokkrum löndum Evrópu-
sambandsins með tilheyrandi neikvæðum áhrifum
fyrir fjárhag heimilanna og banka sem tekið hafa
veð í fasteignum fólks. Miklar verðhækkanir hafa
verið að undanförnu í Frakklandi, á Spáni og á
Ítalíu, þar tvöfaldaðist verð fasteigna á árunum
1995 og 2003, rétt eins og á Írlandi og í Hollandi.
Bent er á að verðhækkanir í mörgum löndum
ESB – sem skýrast af miklu framboði af lánsfé á
lágum vöxtum – séu ekki í tengslum við raunveru-
legt virði fasteigna og vísbendingar eru sagðar um
að stjórnendur Seðlabanka Evrópu fylgist nú
grannt með þróuninni. „Hækkandi húsnæðisverð
og tilheyrandi skuldaaukning hafa þegar haft um-
talsverð áhrif á peningastefnu enska seðlabank-
ans og þess norska,“ segir Edward Teather, hag-
fræðingur hjá UBS-fjárfestingabankanum.
Spænsk stjórnvöld bregðast við
Þróunin á meginlandinu hefur ekki alls staðar
verið sú sama, í Þýskalandi hefur verð fasteigna til
að mynda haldist nokkuð lágt. Og sumir sérfræð-
ingar segja enn enga ástæðu til að hafa áhyggjur
af því að verðbólan springi. Engu að síður til-
kynntu spænsk stjórnvöld í síðustu viku að þau
hygðust gera tilraun til að koma í veg fyrir frekari
verðhækkanir með því að setja á markað níu millj-
ónir fermetra fasteignarýmis sem spænski herinn
hefur nýtt og er meiningin sú að nota það undir
nýbyggingar.
Verðhækkanir á Íslandi hafa verið jafnvel enn
meiri en á meginlandinu því eins og fram kom í
Morgunblaðinu í gær urðu methækkanir á íbúða-
verði í sérbýli á höfuðborgarsvæðinu á árinu 2004,
eða um 35%. Tvöföldun hefur orðið á verði fast-
eigna á fimm árum, þ.e. frá árinu 1999.
Fasteignaverð hefur hækkað mikið á meginlandi Evrópu eins og á Íslandi
Vaxandi áhyggjur af því
að verðbólan springi
Frankfurt. AFP.
GERHARD Schröder, kanslari
Þýskalands, segir að þjóðin muni
aldrei láta minningu fórnarlamba
Helfararinnar falla í gleymsku. Á
morgun eru rétt sextíu ár síðan sov-
éski herinn frelsaði útrýmingar-
búðir nasista í Auschwitz og var
haldin minningarsamkoma af því
tilefni í Berlín. Á myndinni má sjá
Schröder fyrir framan ljósmynd
sem sýnir aðstæður í Auschwitz.
Um sex milljónir gyðinga létu líf-
ið í ofsóknum nasista, þar af um
hálf önnur milljón í gasklefum
Auschwitz. Schröder sagði að aldr-
ei yrði bætt fyrir hrylling nasism-
ans og minningin um þjóðarmorð
þeirra væri hluti af þjóðarvitund
landsmanna. Þjóðverjum bæri sið-
ferðisleg skylda til að gleyma ekki
þessum atburðum. „Við skuldum
það ekki einvörðungu fórnarlömb-
unum, þeim sem komust af og ætt-
ingjum þeirra heldur okkur sjálf-
um,“ sagði kanslarinn./15
Helförin
gleymist
ekki
AP
VIKTOR Jústsjenko, nýr forseti
Úkraínu, segist enn ekki hafa van-
ist því andliti sem blasir við honum
er hann horfir í spegil – en sem
kunnugt er var Jústsjenko byrlað
eitur í aðdraganda forsetakosning-
anna í Úkraínu með þeim afleið-
ingum að andlit hans afmyndaðist.
„Í hreinskilni sagt þá get ég ekki
vanist þessari ásjónu og held ég
muni aldrei gera það,“ sagði
Jústsjenko á fréttamannafundi í
Strassborg í gær en hann sótti þar
fund Evrópuráðsþingsins. „En,“
bætti Jústsjenko við, „ég er karl-
maður og við gerum ekki mikið úr
þeim örum sem við berum.“/11
Reuters
„Get ekki
vanist þessari
ásjónu“
BRESKIR fjölmiðlar segja að
málarekstur lögreglunnar í
norðurhluta Englands gegn
konu, sem stöðvuð var í um-
ferðinni og sektuð fyrir að
borða epli undir stýri, hafi kost-
að skattborgara tíu þúsund
pund, um 1,2 milljónir íslenskra
króna. Afraksturinn var rýr,
hin 23 ára gamla Sarah
McCaffrey var sektuð um 60
pund fyrir rétti á mánudag og
látin greiða 100 pund í kostnað.
Lögreglumaðurinn sem
stöðvaði McCaffrey mun hafa
haldið að hún væri að tala í far-
síma samtímis og hún stýrði bíl
sínum. Er hann áttaði sig á að
hún hafði verið að borða epli
sektaði hann hana um 30 pund á
staðnum. McCaffrey ákvað að
áfrýja þeim úrskurði og endaði
málið því fyrir dómstólum.
Í réttarsal lagði ákæruvaldið
fram ýmis gögn, m.a. loftmynd-
ir sem náðst höfðu af McCaffr-
ey, myndband sem tekið var af
þyrlu lögreglunnar og mynd-
band sem tekið var úr lögreglu-
bíl. Sagði lögmaður McCaffrey
framgöngu lögreglunnar „fjar-
stæðukennda“, furðulegt væri
hversu mikil áhersla hefði verið
lögð á að góma bílstjóra sem að-
eins hefði gerst sekur um það,
að gæða sér á epli undir stýri.
Sagan af
eplinu dýra
London. AFP.