Morgunblaðið - 26.01.2005, Qupperneq 41
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 26. JANÚAR 2005 41
MENNING
Bílar á
föstudögum
Sérblaðið Bílar fylgir blaðinu
á föstudögum.
Meðal efnis næsta föstudag:
Dísilbílar
Reynsluakstur
Formúla 1
Fyrstu vörubílarnir á Íslandi
Hefur bensínverð áhrif á bílakaupin?
Land Rover Discovery 3, Corvette,
Audi Allroad, Skoda Octavia,
Opel Vectra
Sértilboð til áskrifenda á bílaauglýs-
ingum 995 kr. með mynd - Mættu til
okkar í Kringluna 1 og við tökum
myndina frítt -
Einfalt, ódýrt og þægilegt
auglýsingar 569 1111
Auglýsingar:
Sandra - 569 1140 og Ragnheiður -569 1275
Nýkomin falleg og vel skipulögð 86,3
fm íbúð á efri hæð í litlu fjölb. rétt við
mjög góða þjónustu í Spönginni. Sér-
inngangur. Góðar svalir. Fráb. stað-
setning. Góðar innréttingar. Íbúðin get-
ur losnað 15. feb. 2005. V. 15,3 m.
Ingólfur G. Gissurarson, logg. fast.
www.valholl.is
Opið virka daga frá kl. 9-17.30.
Sími 588 4477
Grænakinn - Hafnarfirði
Vorum að fá góða vel staðsetta 132,5
fm hæð á tveimur hæðum í góðu tví-
býlishúsi á mjög góðum stað. Fjögur
svefnherbergi. Parket og flísar á flest-
um gólfum. Laus fljótlega. V. 21,9 m.
Laufengi - Laus fljótlega
HALLVEIG Thorlacius hefur rekið
brúðuleikhús sitt Sögusvuntuna í
tuttugu ár. Hún hefur sýnt í skól-
um og leikskólum um land allt en
einnig farið víða um heim. Í leik-
skrá segir Hallveig tilgang leik-
hússins vera að matreiða gamlar
sögur sem hún gleypti í sig með
hafragrautnum í eldhúsi ömmu
sinnar. Til þess að segja sögurnar
eru notaðar brúður og leikmyndir
sýninganna eru einfaldar og þægi-
legar að ferðast með. Talað er til
áhorfenda og þeir jafnvel látnir
hjálpa til á ýmsan hátt. Brúðurnar
eru í seilingarfjarlægð frá börn-
unum og heilla þau inn í heim sagn-
anna. Í þetta sinn er það hinn ódæli
Egill Skallagrímsson sem lifnar á
leiksviðinu.
Listin að koma hinum forna bók-
mennta- og menningararfi okkar í
einfaldri mynd til barnanna hefur
vaxið og dafnað margvíslega síð-
ustu árin. En hvað getur verið
áhrifaríkara en að segja söguna
beint með hjálp hins aldagamla
brúðuleikhúss sem þó er ekki svo
gamalt hér á landi? Sögusvuntunni
tekst mjög vel að segja Egilssögu
eftir að hafa „látið hann bíða lengi í
dyragættinni“ eins og segir í leik-
skrá en það var ekki fyrr en „sögu-
maðurinn“ setti upp rauða nefið og
fór að skoða þessa blóðugu vík-
ingasögu með hreinum huga trúðs-
ins sem aldrei dæmir – hvorki sjálf-
an sig né aðra – sem sagan lifnaði.
Trúðaleikur er vandasöm listgrein í
leikhúsinu og ekki á allra færi.
Hallveigu tekst ágætlega að búa til
trúverðuga og saklausa stelpukonu
sem segir söguna með sínu nefi.
Hún er lífsglöð og fyndin þegar
hún kynnir söguna og brúðurnar,
leggur út af og spjallar við áhorf-
endur. Það er skýrt hvar samúðin
liggur og eins kemst ágætlega til
skila hvað trúðurinn er hissa á hvað
Egill var ofbeldisfullur en dæmir
hann þó ekki heldur vorkennir hon-
um frekar. Ramminn í leikstjórn og
leikgerð er skýr; trúðurinn kemur
með töskuna sína til að segja sög-
una og kemur helstu og frægustu
atriðum Egilssögu til skila þó að
áherslan sé mest á mótun Egils í
bernsku. Brúðurnar eru stórsnið-
ugar; raunverulegar, lifandi og fjöl-
breytilegar að stærð og gerð. Egill
sjálfur er einstaklega stór og gróf-
ur með annað augað uppi í hár-
sverðinum en aðrar persónur fín-
legri. Sniðugt er líka að nota
puttabrúður til að sýna Egil lítinn í
slagsmálum við jafnaldra sinn og
áhrifamikið hvernig hann heggur af
honum höfuðið.
Sagan lifnar við hjá Hallveigu og
listafólkinu sem leggur henni lið
þegar Egla er sögð í þessum nýja
spegli; með augum trúðsins með
brúðurnar. Í ljósi þess hvað brúðu-
leikhús er þakklátt og lifandi form
er í rauninni einkennilegt hvað fáir
hafa stundað þessa listgrein hér á
landi. Þar hafa aðstandendur þess-
arar sýningar verið með þeim
fremstu um langa hríð og er fram-
lag þeirra þakkarvert.
Egill með augum trúðsins
LEIKLIST
Sögusvuntan
Leikgerð: Hallveig Thorlacius og Þórhall-
ur Sigurðsson. Leikstjórn: Þórhallur Sig-
urðsson. Leikmynd og brúður: Helga Arn-
alds. Leikari og brúðustjórnandi: Hallveig
Thorlacius.
Frumsýning 22. janúar 2005.
Egla í nýjum spegli
Brúðuleikur um Egil Skallagrímsson
„Sagan lifnar við hjá Hallveigu og listafólkinu sem leggur henni lið þegar
Egla er sögð í þessum nýja spegli; með augum trúðsins með brúðurnar.“
Hrund Ólafsdóttir
FRÆGÐ í listum segir vart mikið
um gæði, en netmiðilinn Artfacts-
.net, þar sem myndlistarmönnum er
raðað niður eftir vinsældum, fær
daglega heimsóknir þúsunda manna
sem vilja forvitnast um nýjustu
hreyfingar á listanum. Vinsældirnar
byggjast ekki á sölu verka eða dóm-
um sérfræðinga, heldur fjölda sýn-
inga og því hversu hátt sýning-
arstaðirnir, þar sem verk lista-
mannanna eru sýnd, eru metnir af
miðlinum. Mannanna hendur koma
ekki að röðuninni á listann, heldur
reiknar tölva út einskonar vinsælda-
vísitölu útfrá þeirri athygli sem
listamennirnir njóta; þeir 100 fræg-
ustu komast á úrvalslistann.
Ólafur Elíasson í 17. sæti
Á listanum eru nöfn um 16.000
samtímalistamanna og reiknað er
útfrá upplýsingum á þriðja þúsund
sýningarsala, listasafna og lista-
messa. Listamennirnir verða að
starfa á alþjóðlegum vettvangi, þ.e.
starfa með galleríum eða sýna reglu-
lega í a.m.k. þremur löndum. Síðan
Artnet.net byrjaði árið 1999 að gefa
út upplýsingar um vinsældir lista-
manna, hefur Pablo Picasso einokað
toppsætið og Andy Warhol fylgt
honum fast eftir. En eins og sjá má á
grafi um hvern einstaka listamann,
sem hægt er að kalla upp á vefnum,
hafa vinsældir flestra annarra verið
sveiflukenndar. Ólafur Elíasson sit-
ur nú í 17. sæti listans og tveir aðrir
myndlistarmenn sem hafa átt frjó
tengsl við Ísland í verkum sínum,
Dieter Roth og Roni Horn, eru í 38.
og 66. sæti á lista yfir 100 vinsælustu
myndlistarmennina. Þá má geta
þess að þýska myndlistarkonan
Rosemarie Trockel, sem sýnir þessa
dagana í Gerðubergi, er í 39. sæti.
Myndlist | Listi yfir vinsælustu myndlistar-
mennina endurnýjaður daglega á Netinu
Picasso og Warhol vinsælastir
!"
#!$ !"!&"' ( "#
()!*
%!+
,!)'
- ''
-#!
.!/0
!!,"
)!12'' 2
"!% !#'1
34!50
/ &-"'' (44
+
%
,
-
.
/
+0
1
+%
%%
++
+-
&
2
+&
+.
+1
,%
.+
%,
+&&+3+2/,
+2%&3+2&/
+&/23+2.0
+2.+3
+2,%3
+2%+3+2&-
+&2,3+2&,
+2.+3
+&-23+21.
+2%&3
+2++3
+20.3+2&2
+2-%3
+2-03
+21.3
+2,&3
+2-/3
+2.%3
+2%,3+22/
+2.-3
%00, !
Reuters
Þetta verk eftir Pablo Picasso, Skyttan með pípuna, frá 1968, var selt á
uppboði hjá Christie’s í fyrra. Hann var vinsælasti listamaður ársins 2004.