Morgunblaðið - 28.01.2005, Qupperneq 21
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 28. JANÚAR 2005 21
MINNSTAÐUR
Morgunblaðið/Albert Kemp
Fáskrúðsfjörður | Veður hefur verið
gott og sólin að byrja að sýna sig í
fjallaskörðum í Fáskrúðsfirði, en
hún breiðir sig yfir bæinn í dag,
verði veður bjart. Mjög mikil svella-
lög eru um þessar mundir bæði á
vegum, á láglendi og túnum.
Börn og fullorðnir hafa leikið sér
á skautum og þotum á knatt-
spyrnuvellinum á Fáskrúðsfirði í
góða veðrinu, en á vellinum er
ágætt skautasvell þessa dagana þó
eitthvað sé það að bráðna í hlýind-
unum.
Sólin kemur
í bæinn
„VERÐI starf-
semi Samherja
hér hætt getum
ég og hugs-
anlega fleiri leit-
að eftir vinnu á
næstu firði, en
eldri konur og
konur með börn,
svo dæmi sé tek-
ið, geta átt erfitt
með að sækja
vinnu út fyrir plássið,“ segir Margeir
Margeirsson, starfsmaður Samherja
á Stöðvarfirði. Hann hefur starfað í
vinnslunni í yfir tuttugu ár; fyrst hjá
Hraðfrystihúsi Stöðvarfjarðar síðar
Snæfelli og nú Samherja. Hann
ber fyrirtækinu góða sögu og segir
að mjög gott sé að vinna hjá Sam-
herjamönnum. Margeir er jafnframt
sveitarstjórnarmaður í sveitarfé-
laginu Austurbyggð.
„Ég tel að það verði að finna vinnu
á staðnum fyrir það fólk sem ekki er
í aðstöðu til að sækja hana í önnur
pláss,“ segir Margeir. „Fiskvinnsla
með því sniði sem nú er verður ekki
áfram, en það væri hægt að reka hér
saltfiskvinnslu og það hlýtur að
verða skoðað.“ Hann telur að þar
gætu unnið um 10 til 12 manns og að
það væri kostur fyrir þá sem ekki
ættu kost á því að fara burtu af
staðnum.
Margeir varpar því einnig fram að
þar sem Búðahreppur og Stöðv-
arhreppur eru eitt sveitarfélag gæti
það komið að málum með ein-
hverjum hætti, svo sem með því að
bjóða upp á áætlunarferðir á milli
staðanna til að gera fólki kleift að
fara á milli fyrirtækja til vinnu. Mar-
geir tekur fram að Samherji hafi
haldið úti fullri vinnu í húsinu á
Stöðvarfirði síðan þeir tóku við
rekstri þess og að mjög góður starfs-
andi ríki þar.
Verður að finna
vinnu á staðnum
Margeir
Margeirsson
Laugardalur | Bygging íþrótta- og sýningarhallar í
Laugardal gengur vel, uppsteypu er lokið og verið að
setja þak á bygginguna og loka henni fyrir veðri og
vindum. Gunnar Steingrímsson, byggingarstjóri hjá
Eykt, segir að verkið sé svo til á áætlun og stefnt sé að
því að ljúka framkvæmdum við bygginguna í júní. Þá
tekur við uppsetning á íþróttagólfi og tækjum áður en
hægt verður að taka höllina í notkun.
Framkvæmdir við íþróttahöll á áætlun
Morgunblaðið/Þorkell
Reykjavík | Framkvæmdir við nýja
bensín- og þjónustustöð Olíufélags-
ins ESSO í Fossvogi eru nú hafnar,
og verður stöðin færð nær Kringlu-
mýrarbrautinni og stækkuð mikið.
Gamla stöðin, sem tekin var í notkun
árið 1957, verður rifin og er reiknað
með því að nýja stöðin verði tekin í
notkun í júní í sumar.
Fullbyggð verður stöðin tæplega
400 fermetrar, og segir Heimir Sig-
urðsson, framkvæmdastjóri Neyt-
endasviðs Olíufélagsins ehf., að hún
verði um mjög margt lík nýjustu
ESSO-stöðinni í Háholti í Mos-
fellsbæ. Byggingarefni er þau sömu;
burðarvirki úr stáli og veggklæðn-
ingar úr áli og flísum, en það var
arkitektastofan Ask sem teiknaði
stöðina.
Auk þess að selja eldsneyti verður
Nesti til húsa í stöðinni, ásamt Burg-
er King, og verða bílalúgur fyrir þá
sem ekki kjósa að setjast inn. Heim-
ir segir að að- og fráreinar að stöð-
inni verði bættar samhliða end-
urbótunum. Bak við stöðina verður
útivistarsvæði eða torg þar sem gos-
brunnurinn, sem verið hefur ein-
kennandi fyrir stöðina, fær að njóta
sín.
Heimir segir mikla möguleika
fylgja þessari uppbyggingu. „Þetta
er stöð sem hefur verið þarna mjög
lengi, og stendur við mjög fjölfarna
leið. Það fara trúlega um ein milljón
bíla framhjá í þessa áttina á hverju
ári. Við værum ekki að þessu nema
vegna þess að við sjáum þarna mikil
tækifæri.“
Milljón bifreiðar aka
framhjá á hverju ári
Morgunblaðið/Þorkell
Framkvæmdir hafnar Færa á ESSO-stöðina í Fossvogi nær Kringlumýr-
arbraut og stækka. Ráðgert er að framkvæmdum ljúki með sumrinu.
Ný þjónustustöð ESSO í Fossvogi
HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ