Morgunblaðið - 28.01.2005, Side 44
44 FÖSTUDAGUR 28. JANÚAR 2005 MORGUNBLAÐIÐ
Atvinnuauglýsingar
Innflutningsfyrirtæki, á sviði loftræsi-
og hitakerfa, óskar eftir starfskröftum
í eftirtalin störf:
Skrifstofustarf
Óskum eftir starfskrafti til að sjá um erl. pant-
anir, tollskýrslugerð og símsvörun, ásamt
almennum skrifstofustörfum.
Leitað er eftir hressum og jákvæðum einstakl-
ingi með góða þekkingu á innflutningi.
Upplýsingar um menntun og fyrri störf sendist
til auglýsingadeildar Morgunblaðsins eða í
box@mbl.is, merktar: „Skrifstofustarf - 16594“,
fyrir 4. febrúar nk.
Bókari
Óskum eftir að ráða vanan bókara til starfa
í 50% starf.
Leitað er eftir hressum og jákvæðum einstakl-
ingi með góða þekkingu á bókhaldi.
Unnið er í DK.
Upplýsingar um menntun og fyrri störf sendist
til auglýsingadeildar Morgunblaðsins eða
í box@mbl.is, merktar: „Bókari — 16594“,
fyrir 4. febrúar nk.
R A Ð A U G L Ý S I N G A R
Félagsstarf
Félagsvist sjálfstæðis-
félaganna í Kópavogi
Sjálfstæðisfélögin í Kópavogi spila félagsvist
laugardaginn 29. janúar kl. 13.00 í Sjálfstæðis-
húsinu, Hlíðasmára 19 (við hliðina á Sparisjóði
Kópavogs), undir stjórn Arnórs, Braga og
Guðna. Góð verðlaun og 4 skipta keppni.
Spilað verður 29. janúar, 12. febrúar,
26. febrúar og 12. mars.
Allir velkomnir.
Sjálfstæðisfélögin í Kópavogi.
Tilkynningar
Mosfellsbær
Tillaga
að deiliskipulagi fyrir
athafnasvæði á Tungu-
melum í Mosfellsbæ
Á fundi bæjarstjórnar þann 19. janúar
2005 var samþykkt kynning á tillögu að
deiliskipulagi fyrir athafnasvæði á Tungu-
melum í Mosfellsbæ í samræmi við 25.
gr. skipulags- og byggingalaga nr. 73/
1997.
Deiliskipulagssvæðið afmarkast af Vest-
urlandsvegi til vesturs, spildum við Leir-
vogsá til norðurs, spildu úr landi Leir-
vogstungu til austurs og Köldukvísl til
suðurs. Skipulagssvæðið er 58,7 ha að
stærð og gert er ráð fyrir 19 athafnalóð-
um.
Tillagan, ásamt greinargerð, verður til
sýnis í Þjónustuveri Mosfellsbæjar, Þver-
holti 2, í afgreiðslunni á fyrstu hæð, frá
28.janúar til 27. febrúar 2005. Einnig er
hægt að kynna sér hana á heimasíðu
Mosfellsbæjar, www.mos.is .
Athugasemdir, ef einhverjar eru, skulu
hafa borist skipulagsnefnd Mosfellsbæjar
fyrir 12. mars nk.
Þeir, sem ekki gera athugasemdir innan
tilskilins frests, teljast samþykkir tillög-
unni.
Bæjarverkfræðingurinn í Mosfellsbæ.
Uppboð
Uppboð
Framhald uppboðs á eftirfarandi eignum verður háð á þeim
sjálfum sem hér segir:
Bergstaðastræti 46, 0101, Reykjavík, þingl. eig. Úlfar Ingi Þórðarson,
gerðarbeiðandi Sjóvá-Almennar tryggingar hf., þriðjudaginn
1. febrúar 2005 kl. 11:00.
Kaplaskjólsvegur 64, 0001, Reykjavík, þingl. eig. Kolbrún Stefáns-
dóttir, gerðarbeiðandi Bergís ehf., Seltjarnarnesi, þriðjudaginn
1. febrúar 2005 kl. 10:30.
Mjóahlíð 12, 01001, Reykjavík, þingl. eig. Edith Ragna Jónsdóttir,
gerðarbeiðendur Kreditkort hf. og Tollstjóraembættið, þriðjudaginn
1. febrúar 2005 kl. 13:30.
Nýlendugata 18, 0101, Reykjavík, þingl. eig. Hannibal Sigurvinsson,
gerðarbeiðandi Íbúðalánasjóður, þriðjudaginn 1. febrúar 2005
kl. 11:30.
Skaftahlíð 10, 0101, Reykjavík, þingl. eig. Viðar Þórarinsson, gerðar-
beiðendur Íslandsbanki hf., Sameinaði lífeyrissjóðurinn, Skaftahlíð
4-10, húsfélag og Tollstjóraembættið, þriðjudaginn 1. febrúar 2005
kl. 14:00.
Sýslumaðurinn í Reykjavík,
27. janúar 2005.
Uppboð
Framhald uppboðs á eftirfarandi eign verður háð á henni sjálfri
sem hér segir:
Engjaás 1, Borgarbyggð, þingl. eig. Engjar ehf., gerðarbeiðendur
Kaupþing hf., Sparisjóður Mýrasýslu og Tryggingamiðstöðin hf.,
þriðjudaginn 1. febrúar 2005 kl. 11:00.
Sýslumaðurinn í Borgarnesi,
27. janúar 2005.
Stefán Skarphéðinsson, sýslumaður.
Ýmislegt
Frímerki - Mynt - Seðlar
Uppboðsaðili
AVNUMISMATICS & PHILATELY
Kaupi frímerki, umslög, mynt, seðla,
póstkort, minnispeninga, orður,
gömul skjöl o.m.fl.
● Staðgreiðsla strax ●
Opið daglega á Austurströnd 8, 170 Seltjarnarnesi
símar 694 5871 - 561 5871, tashak@mmedia.is
Félagslíf
Í kvöld kl. 20.30 heldur Herdís
Þorvaldsdóttir erindi „Um ævi
og störf H.P. Blavatsky, V. hluti" í
húsi félagsins, Ingólfsstræti 22.
Á laugardag kl. 15-17 er opið
hús með fræðslu og umræðum
kl. 15.30 í umsjón Guðfinns Jak-
obssonar „Kristur með hliðsjón
af öðrum trúarbragðahöfund-
um, II. hluti“.
Á sunnudögum kl. 10 er hug-
leiðing með leiðbeiningum.
Starfsemi félagsins er öllum
opin.
www.gudspekifelagid.is
I.O.O.F. 12 1851288½
I.O.O.F. 1 1851288 8½.O
Atvinnuhúsnæði óskast
Viljum taka á leigu eða kaupa ca 250-300 fm
húsnæði með innkeyrsludyrum og góðri
lofthæð.
Upplýsingar í símum 588 4933 og 660 2930.
Atvinnuhúsnæði
mbl.is
ATVINNA
KYNNINGARFUNDUR um
jarðgöng milli lands og Eyja
verður haldinn í kvöld, föstu-
dagskvöld, á Grand hóteli í
Reykjavík. Hefst hann klukkan
20.30.
Frummælandi á fundinum
verður Árni Johnsen, fyrrver-
andi alþingismaður, sem aflað
hefur upplýsinga um hugsan-
legan kostnað við slík jarðgöng.
Stórð hann fyrir borgarafundi
um málið í Eyjum á miðviku-
dagskvöld. Að lokinni ræðu
hans tala þeir Magnús Krist-
insson, útgerðarmaður í Vest-
mannaeyjum, Ingi Sigurðsson,
útibússtjóri í Eyjum, og Ár-
mann Höskuldsson eldfjalla-
fræðingur.
Fundur
um jarð-
göng milli
lands og
Eyja
FÉLAGAR í Gufubaðsklúbbi Jónas-
ar, sem nú er í gamla Sjónvarpshús-
inu á Laugavegi 176, ætla að minnast
vinar og foringja, Guðlaugs Berg-
manns, á morgun, laugardaginn 29.
janúar, og bjóða gömlum félögum að
líta inn milli fjögur og átta.
Um eitthundrað félagar voru
skráðir á blómaskeiði klúbbsins er
hann var til húsa á Austurströnd 3 og
vart tölu komið á alla þá sem Gulli
bauð með sér í gufuna í lengri eða
skemmri tíma. Synir Gulla, sem flest-
ir voru í bleyju er þeir komu í fyrsta
skipti í gufuna með pabba, verða á
staðnum, segir í fréttatilkynningu.
Gullavaka
í gufunni
FRÉTTIR
ÞEIM sem nýttu sér jólakortavef mbl.is um síðustu jól
bauðst að skrá sig í lukkupott þar sem möguleiki var á
að vinna til glæsilegra vinninga frá Hans Petersen. Alls
voru send um 15.000 jólakort af vefnum út um allan
heim. Það voru Ólafur Sveinsson og Xiang sem voru
þeir heppnu. Á myndinni taka þeir við vinningunum úr
hendi Jóns Ragnarssonar frá Hans Petersen-versl-
ununum.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Dregið í lukkupotti kortavefjar mbl.is
Elegía eftir Puccini
Í umsögn um tónleika á vegum
Kammermúsíkklúbbsins í Bústaða-
kirkju í blaðinu sl. þriðjudag var
rangt farið með nafn höfundar elegí-
unnar sem leikin var. Rétt er að hún
er eftir Giacomo Puccini. Villan er
tilkomin vegna mistaka við tölvu-
vinnslu.
Beðist er velvirðingar á þessu.
LEIÐRÉTT
♦♦♦