Morgunblaðið - 28.01.2005, Síða 53
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 28. JANÚAR 2005 53
EIN AF gróða-
leiðunum sem
þeir hafa dottið
ofan á Disney-
herrar er að gera
ódýra útgáfu af
vinsælum mynd-
um og gefa út á
sölu- og leigu-
myndbandi og nú
-diski. Það gaf góða raun með fram-
haldi af Aladdin og Lion King og nú
er komið framhaldið af Mulan.
Útkoman er eftirbátur fyrri
myndar í alla staði. Öll vinnubrögð
ódýrari og síðri. Það sem verst er
að svo virðist sem höfundar fram-
haldsins hafi bara ekki horft á fyrri
myndina, því persónurnar eru gjör-
breyttar. Mulan sjálf er ekki sami
prakkarinn og ef eitthvað barna-
legri og einfaldari – þótt sagan eigi
bara að gerast einum mánuði eftir
að hinni lauk. Þá er smádrekinn
hundtryggi Mushu skyndilega orð-
inn illkvittinn og sjálfselskur.
Sagan er í sjálfu sér góðra gjalda
vert; togstreitan milli hefðarinnar
og frelsi kínverskra kvenna til að
velja sér lífsförunaut. En úrvinnsl-
an er klaufaleg og ósannfærandi.
Aðfinnslur sem þessar hafa samt
ekkert með skemmtun hina yngstu
að gera. Þeir hafa gaman að söngv-
unum, „fallega“ útfærðum bardaga-
atriðum og röflinu í drekanum
Mushu. Og íslenska útgáfan er betri
en sú enska því við fáum að halda
sömu röddum; Laddi talar áfram
fyrir Mushu á meðan Eddie
Murphy hafði greinilega í öðru að
snúast.
Mulan
á sig sjálf
KVIKMYNDIR
Myndbönd
Bandaríkin 2004. Leikstjórn: Darrell
Rooney, Lynne Southerland. Leikraddir:
Laddi, Hilmir Snær Guðnason o.fl. Sam-
film VHS. 79 mín. Öllum leyfð
Mulan 2
Skarphéðinn Guðmundsson
Fótboltabullur
eru einhverjar
ömurlegustu og
sorglegustu
manneskjur sem
fyrir finnast í
mannflóru sam-
tímans. Aumk-
unarverðir full-
orðnir
einstaklingar – hálfvitar sem líður
svo illa, eru svo skemmdir á sál og
heila að þeir finna sér ekkert þarfara
að gera á laugardegi en að leita uppi
slagsmál í algjöru tilgangsleysi – und-
ir fölsku flaggi fótboltafylgjenda.
Fótboltaverksmiðjan er ný bresk
mynd sem byggð er á metsölubók
sem vakti mikla athygli og ennþá
meiri deilur er hún var gefin út fyrir
liðlega áratug. Bókin gat af sér fleiri
slíkar; afdráttarlausar og hrotta-
fengnar sögur úr lífi fótboltabullna.
Snerust deilurnar að hluta um hvort
verið væri að gera sér mat úr slíkum
óskapnaði, búa til óæskilega afþrey-
ingu. Sömu rök gilda um myndina;
það er ekkert „grátbroslegt“ við hana
eins og lýst er á kápunni heldur er
hún einfaldlega grátleg. Þótt ég hafi
ekkert á móti því að reynt sé að taka
á slíku viðfangsefni á hlutlausan máta
þá hlýtur að vera hægt að gera það á
áhrifaríkari máta. Hún ristir m.ö.o.
ekki nægilega djúpt, þessi mynd, en
maður hefur samt á tilfinningunni að
það eigi eftir að vera gerð mynd um
svipað viðfangsefni sem muni vekja
hjá manni sterkari viðbrögð.
Hálfvitar!
KVIKMYNDIR
Myndbönd
Leikstjórn Nick Love. Aðalhlutverk
Danny Dyer, Frank Harper, Neil Maskell.
Bretland 2004. (93 mín.) Myndform
VHS. Bönnuð innan 16 ára.
Fótboltaverksmiðjan
(The Football Factory)
Skarphéðinn Guðmundsson
ÞESSI nýjasta kvikmynd leikstjór-
ans Chéreau er jafn tilgerðarleg og
köld og mynd hans þar á undan,
enska myndin Intimacy sem byggði
lauslega á samnefndri bók Hanifs
Kureshi.
Hér segir frá tveimur bræðrum,
Thomas og Luc, sem kynnast aftur
og betur þegar sá eldri og fyrrnefndi
fær hræðilegan blóðsjúkdóm sem er
við það að draga hann til dauða. Luc,
sem er samkynhneigður kennari,
situr mikið hjá honum á sjúkrabeð-
inum þar sem mest öll myndin ger-
ist.
Líkt og í Intimacy veit ég ekki al-
veg um hvað myndin á að vera. Það
að kynvísi bróðirinn skuli vera að
berjast fyrir lífinu, er öfugt við það
sem við erum vön úr sjúkratragedí-
um nútímans, en það er lítil saga í
því einu. Þótt myndin sé öll hin raun-
sæjasta (með 10 mínútna atriði þar
sem máttfarinn líkami Thomasar er
rakaður fyrir aðgerð) er okkur ekki
hleypt inn í huga og tilfinningar per-
sónanna, svo varla er myndin heldur
um viðbrögð fólks í erfiðri lífs-
reynslu, um fólk andstætt dauð-
anum. Mann fer að gruna að löng-
unin til að mynda veika líkama í
grálitu og köldu sjúkrahúsinu hafi
ráðið för, enda er það allsráðandi í
myndinni. Þannig tekst höfundi að
gera einstaklega kalda og fráhrind-
andi mynd, sem einnig er ljót, hálf
dýrsleg og lætur mann alveg ósnert-
an, nema helst að hún veki hjá
manni velgju.
Að lokum er vert að taka fram að
leikstjórinn fékk silfurbjörninn í
Berlín fyrir leikstjórnina, og að aðal-
leikararnir Bruno Todeschini og Er-
ic Caravaca standa sig vel í erfiðum
hlutverkum. En hvað er að gerast í
mynd þegar áhorfandinn óskar þess
að aðalpersónan deyi til að geta losn-
að við hana?
Tilgerð dauðans
KVIKMYNDIR
Frönsk kvikmyndahátíð
í Háskólabíói
Leikstjórn: Patrice Chéreau. Handrit:
Patrice Chéreau og Anne-Louise Trividic
eftir skáldsögu Philippe Besson. Kvik-
myndataka: Eric Gautier. Aðalhlutverk:
Bruno Todeschini, Eric Caravaca, Nathal-
ie Boutefeu, Maurice Garrel, Catherine
Ferran, Antoinette Moya, Sylvain Jacq-
ues og Fred Ulysse. 95 mín. Frakkland
2003.
Bróðirinn (Son frère)
Hildur Loftsdóttir