Morgunblaðið - 28.01.2005, Blaðsíða 54
NÝJASTA mynd leikstjórans Mart-
ins Scorsese ber nafnið Flugmað-
urinn (The Aviator). Myndin hefur
hlotið góða dóma og umtal en hún er
tilnefnd til ellefu Óskarsverðlauna og
14 BAFTA-verðlauna.
Í myndinni er farið aftur á gullöld
Hollywood og saga Howards Hughes
sögð en hann er einn af helstu frum-
kvöðlum 20. aldarinnar í Bandaríkj-
unum. Leonardo DiCaprio er í hlut-
verki þessa sérvitra milljónamærings
en í myndinni er lögð áhersla á ævi
hans á áratugunum milli 1920 og
1950. Á þessum tíma var Hughes
hvað framtakssamastur í flug- og
kvikmyndaheimi. Hughes leikstýrði
dýrustu mynd er nokkru sinni hafði
verið gerð þegar hann var aðeins 25
ára gamall en myndin er frá árinu
1930 og ber nafnið Hell’s Angels. Á
sama tíma verður Hughes þekktur
sem mikill kvennabósi og leggur lag
sitt við ekki ómerkari konur en Jean
Harlow (Gwen Stefani), Ava Gardner
(Kate Beckinsale) og Katharine
Hepburn (Cate Blanchett).
Um miðjan fjórða áratuginn fór
Hughes að einbeita sér að flugiðn-
aðinum þar sem hann varð fljótt
þekktur fyrir að brjóta bæði hraða-
og lengdarmet. Á sama tíma þurfti
hann að kljást við áráttusjúkdóm en
Hughes gekk ekki heill til skógar og
fór versnandi eftir lífshættulegt flug-
slys.
Myndin endar á því að Hughes er
kallaður fyrir öldungadeildina á
Bandaríkjaþingi. Þar þarf hann að
verjast ásökunum þingmannsins
Owen Brewster (Alan Alda), sem
ásakaði Hughes fyrir að hafa tekið
peninga frá Bandaríkjastjórn á
stríðstímum.
Robert Richardson er aðaltöku-
maður myndarinnar og þykir hafa
tekist vel upp í þessu nærri þriggja
tíma langa drama. DiCaprio þykir
líka sýna snilldarleik en hann er líka
titlaður framleiðandi í myndinni.
Þrátt fyrir að Blanchett komi fyrir í
minna en þriðjungi myndarinnar hef-
ur hún fest sig enn betur í sessi sem
ein besta leikkona samtímans í þessu
hlutverki. Ekki ætti að koma á óvart
að DiCaprio og Blanchett eru bæði
tilnefnd til Óskarsverðlauna fyrir leik
sinn í myndinni.
Frumsýning | The Aviator
Flugmaður og
kvennabósi
DiCaprio og Blanchett sem Howard Hughes og Katharine Hepburn.
ERLENDIR DÓMAR
Metacritic.com 77/100
Roger Ebert Hollywood Reporter 80/100
New York Times 80/100
Variety 60/100 (metacritic)
54 FÖSTUDAGUR 28. JANÚAR 2005 MORGUNBLAÐIÐ
Miðasala opnar kl. 15.30
EINI THX LÚXUSSALUR LANDSINS
ÍSLANDSBANKI
Sýnd kl. 4, 6, 8. 10 og 12 á miðnætti. kl. 3.45 og 8. B.i. 10 ára
VIÐSKIPTAVINIR
ÍSLANDSBANKA FÁ 20%
AFSLÁTT AF MIÐAVERÐI
I I I I
Í
I I
ÍSLANDSBANKI
VIÐSKIPTAVINIR
ÍSLANDSBANKA FÁ 20%
AFSLÁTT AF MIÐAVERÐI
I I I I
Í
I I
... „séríslenskt
Fönn, fönn, fönn!“
SV MBL
... í l
, , !
"...bráðvel heppnuð
skemmtun, grín og fjör..."
ÓHT rás 2
... l
t , rí fj r...
r
SIDEWAYS
kl. 5.20, 8 og 10.40.
Sýnd kl. 5.20, 8 og 10.40. B.i. 14 ára
WWW.BORGARBIO.IS
„Sideways er eins og
eðalvín með góðri
fyllingu. Hún er
bragðgóð, þægileg og
skilur eftir sig fínt
eftirbragð“ Þ.Þ. FBL
Tilnefningar til
Óskarsverðlauna
þ.á.m. besta mynd,
leikstjóri og handrit
il f i r til
. . . t ,
l i tj ri rit
Óskarsverðlauna
„Fullkomlega
ómissandi mynd“
S.V. MBL.
5 T.V. Kvikmyndir.is
Ó.Ö.H. DV
“Þetta er stórkostleg
kvikmynd sem virkar
fyrir alla…”
tilnefningar til
óskarsverðlauna
þ.á.m. Besta mynd, besti
leikstjóri, besti
leikari-Leonardo
Dicaprio, bestu
aukaleikarar-Cate
Blanchett og
Alan Alda.
11
"...bráðvel heppnuð
skemmtun, grín og fjör..."
ÓHT rás 2
... l
t , rí fj r...
r
tilnefningar til
Óskarsverðlauna
þ.á.m. besta mynd, leikari
og handrit7
Sýnd kl. 8 og 11.10.
Sýnd kl. 6, 8, 10 og powersýning
12 á miðnætti B.i. 14 ára
Áður en hún finnur frið
verður hún að heyja stríð
Frá þeim sem færðu
okkur X-Men kemur
fyrsta stórmynd ársins
Svakalega flott
ævintýraspennumynd
með hinni sjóðheitu
og sexý Jennifer
Garner
l l
i
i i j i
i
Fædd til að berjast þjálfuð
til að drepa
Sýnd kl. 6.
Áður en hún finnur frið verður hún að heyja stríð
Fædd til að berjast þjálfuð til að drepa
Frá þeim
sem færðu
okkur X-
Men
kemur
fyrsta
stórmynd
ársins
i
f
-
f
i
Svakalega
flott
ævintýraspen
numynd með
hinni
sjóðheitu og
sexý Jennifer
Garner
Sýnd kl. 3.40, 5.50, 8, 10.10 og 12.20. B.i. 14 ára
POWERSÝNING
KL. 12.20 eftir
MIÐNÆTTI
POWERSÝNING
KL. 12 á
MIÐNÆTTI
Sýnd kl. 5.50 og 10.15.
MMJ kvikmyndir.com
Ó.Ö.H. DV
„Ein snjallasta mynd ársins...
Ógleymanleg...ljúf kvikmyndaperla“
SV Mbl.
JENNIFER Garner lék hetjuna
Elektru í fyrsta sinn í myndinni
Daredevil en núna er hún komin með
sína eigin hasarmynd. Elektra er
byggð á teiknimyndasögu frá Marv-
el og fjallar um baráttu góðs og ills.
Það leit út fyrir að Elektra væri búin
að syngja sitt síðasta en hún jafnar
sig á ótrúlegan hátt af því sem virt-
ust vera lífshættuleg meiðsl. Hún
hefur slitið öll tengsl við umheiminn
og lifir aðeins fyrir næsta verkefni.
Blindur bardagameistari, Stick,
spilar stórt hlutverk í því að Elektra
jafnar sig af sárum sínum. Aðrir sem
koma við sögu í lífi hennar eru feðg-
inin Mark (Goran Visnjic) og Abby
Miller (Kirsten Prout). Þau eru á
flótta frá öflugum glæpasamtökum,
Höndinni, en meðlimir samtakanna
leggja stund á hina hættulegu bar-
dagalist, ninjitsu.
Garner æfði lengi og mikið til að
geta barist eins og Elektru sæmir.
Þetta þurfti hún að gera þrátt fyrir
að vera æfð í ýmsum bardagaaðferð-
um vegna sjónvarpsþáttar síns,
Launráð (Alias).
Elektra á sér áreiðanlega marga
aðdáendur sem verða fegnir að vita
að í myndinni klæðist Garner rauð-
um búningi, líkt og í sögunni.
Frumsýning | Elektra
Garner er hasarhetja
Hún er rauðklædd og hættuleg.
ERLENDIR DÓMAR
Metacritic.com 34/100
Roger Ebert 1/2 Hollywood Reporter 30/100
New York Times 40/100
Variety 50/100 (metacritic)
Í GAMANSÖMU ádeilumyndinni Team America: World
Police eru brúður í aðalhlutverkum en ekki teiknimynda-
fígúrur eins og áður hjá Trey Parker og Matt Stone, höf-
undum South Park. Myndin segir sögu nokkurra hetja
sem fara um heiminn til að vernda lýðræði og frelsi gegn
hryðjuverkum. Í leiðinni eyðileggja þær fræga staði og
minnismerki á borð við Eiffelturninn í París, Sfinxinn í
Egyptaland og Panama-skurðinn. Þetta er sumsé sann-
kallað fyrirmyndarfólk og sambönd þeirra einkennast af
ást, afbrýði og svikum.
Helsta verkefni þeirra er að stöðva friðarráðstefnu
norður-kóreska leiðtogans Kim Jong Il. Ráðstefnan á að
vera kænskubragð hans til að fá tækifæri til að ráðast á
heiminn með gereyðingarvopnum. Hetjuklíkan verður
síðan að fara gegn samtökum leikara, sem styðja ráð-
stefnuna en þar eru framarlega Alec Baldwin, Tim Robb-
ins, Susan Sarandon, Sean Penn og George Clooney.
Eins og þekkt er úr öðrum myndum þeirra einkennist
Team America af lögum með djörfum textum þar sem
farið er á ystu mörk velsæmis í nafni húmorsins. Meðal
annars má sjá Kim Jong Il taka sóló.
Það tók á höfundana Parker og Stone að gera myndina
en mikil vinna fólst í þessari brúðumynd, meiri en þeir
Frumsýning | Team America: World Police
Brjálaðar brúður
Enginn er óhultur fyrir hetjuklíkunni sem vill verja
lýðræðið gegn hryðjuverkum.
ERLENDIR DÓMAR
Metacritic.com 64/100
Roger Ebert Hollywood Reporter 70/100
New York Times 80/100
Variety 70/100 (metacritic)
gerðu sér grein fyrir. Það sauð upp úr í samskiptum
þeirra og hafa þeir í kjölfarið heitið því að vinna aldrei
aftur saman.