Morgunblaðið - 31.01.2005, Síða 1

Morgunblaðið - 31.01.2005, Síða 1
Morgunblaðið/Helgi Garðarsson Varðskipin tvö, Ægir og Týr, sjást hér ýta Dettifossi upp að bryggjunni á Eskifirði laust eftir miðnætti í nótt. DETTIFOSS kom til hafnar á Eskifirði laust eftir miðnætti í nótt. Varðskipin Týr og Ægir drógu skipið til hafnar. „Ef þessi sterki vindur og þungi sjór hefði verið í hina áttina [þ.e. að landi] er ég í miklum vafa að við hefðum náð að halda skipinu frá landi, þá hefði það bara farið upp í fjöru,“ segir Georg Lárusson, forstjóri Landhelgisgæsl- unnar, aðspurður hvort varð- skipin tvö hefðu getað valdið því að halda Dettifossi frá landi, hefði vindur verið að landi en ekki frá því eins og svo heppilega vildi til að hann var um helgina. „Þetta sýnir okkur skýrt að það er algjörlega bráðnauð- synlegt að við höfum yfir að ráða skipi sem getur ráðið við svona aðstæður.“ Georg segir að varðskipin Týr og Ægir séu um 1⁄10 af þyngd Dettifoss. Hann bendir á að hér á landi séu engin stór drátt- arbátafyrirtæki og því ekki hægt að leita til slíkra aðila í erfiðum aðstæðum sem þess- um. „Ef vindur hefði verið að landi hefðum við reynt að fá skip erlendis frá en það er ekki víst að tíminn hefði dug- að.“ Það er ekki aðeins stærð varðskipsins sem skiptir máli að sögn Georgs, heldur fyrir- komulag á spil- og dráttar- búnaði. Hann segir spilin ekki nógu sterk til að ráða al- mennilega við að draga stórt skip á borð við Dettifoss, það komi rykkur á taugina vegna staðsetningar dráttarbún- aðarins sem verði til þess að hún slitnar. En myndi einhverju máli skipta að hafa sterkari togvír? „Nei,“ svarar Georg. „Það þyrfti að vera svo miklu stærri vír sem myndi ekki slitna, en fyrst og fremst er þetta búnaður skipanna, afl- leysi þeirra og smæð.“ Georg minnir á að báðum varðskipunum verður breytt á næstunni. „Það verður kom- ið upp haganlegri spilbúnaði, en lögun skipanna verður ekki breytt þannig að þetta verður alltaf aftur úr skip- inu.“ Georg segir að Landhelg- isgæslan sé að kanna mögu- leika á nýju varðskipi. T.d. sé verið að kanna hvort mögu- legt sé að leigja skip í stað þess að kaupa það. Ákvörð- unarvaldið liggi hins vegar ekki hjá Gæslunni. Dettifoss Eimskipafélagsins kom til hafnar á Eskifirði laust eftir miðnætti í nótt Aðstoð varðskipanna hæpin í álandsvindi  Dráttartaug/4 STOFNAÐ 1913 29. TBL. 93. ÁRG. MÁNUDAGUR 31. JANÚAR 2005 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS mbl.is Harpa, fiðla og kórsöngur Myrkum músíkdögum fram haldið í Seltjarnarneskirkju | Menning Íþróttir | Ólafur gefur kost á sér áfram  Lukum keppni með reisn  Enn sigra Fjölnismenn Fasteignir | Úthlutun í Vallahverfi  Nýbygg- ingar á Reyðarfirði  Fjölbýlishús við Lækjargötu í Hafnarfirði Íþróttir og Fasteignir í dag NORSKA stjórnin vill að refsilöggjöf verði breytt þannig að fólk sem dæmt er fyrir líknarmorð og fólk sem drepur til að hefna fyrir kynferðislegt ofbeldi geti framvegis sloppið við refsingu, að sögn Aften- posten. Talið er að þrjú systkin, sem myrtu föð- ur sinn í Arendal árið 2002 vegna kynferðis- legs ofbeldis, hefðu ef til vill ekki ekki hlotið neina refsingu ef tillög- urnar hefðu verið orðn- ar að veruleika. Tillögurnar eru nú til meðhöndlunar í dómsmálanefnd Stór- þingsins en þær eru afar umdeildar í stjórnarflokkunum. Margir í Kristilega þjóðarflokknum, flokki Kjell Magne Bondeviks forsætisráðherra, efast um að rétt sé að setja lög sem geti leyft fólki að komast upp með að myrða. Ef lögin verði samþykkt sé a.m.k. brýnt að þau séu þannig orðuð að fólk fari ekki að misnota þau og tíðni morða hækki í kjölfarið. Drepið án refsingar? Norska Stórþingið. FJÖLDI leiðtoga um allan heim fagnaði í gær að þingkosningarnar í Írak skyldu ganga betur fyrir sig en margir höfðu þorað að vona. Bráðabirgðatölur benda til þess að um 60% skráðra kjósenda hafi neytt atkvæðisréttar síns, þrátt fyrir hótanir hermdarverkamanna sem sögðust fyrir kjördag ætla að drepa alla sem kysu. Talsmaður yf- irkjörstjórnar Íraks, sem er óháð bráðabirgðastjórninni, tók þó fram að þessar tölur væru enn ótraustar. George W. Bush Bandaríkjafor- seti sagði kosningarnar hafa verið „stórkostlega“ vel heppnaðar. Bush sagði að leiðin til lýðræðis væri enn löng en Írakar hefðu sýnt að þeir rötuðu hana. „Írakar hafa í dag tjáð veröldinni hug sinn og veröldin heyrir rödd frelsisins frá kjarna Mið-Austurlanda,“ sagði forsetinn. Fulltrúi Kofi Annans, fram- kvæmdastjóra Sameinuðu þjóð- anna, í Írak, Ashraf Qazi, sagðist telja að kosningarnar hefðu farið vel fram og sanngirni verið gætt. Carlos Valenzuela, ráðgjafi SÞ vegna kosninganna, sagði kjör- sóknina hafa verið framar vonum. Andlegur leiðtogi sjíta í Írak, hinn áhrifamikli ajatollah Ali al-Sistani, óskaði í gær Írökum til hamingju með kjörsóknina en sjálfur gat hann ekki kosið vegna þess að hann er fæddur í Íran. Kofi Annan, framkvæmdastjóri SÞ, hyllti hugrekki Íraka í gær. „Við verðum að hvetja þá og styðja þá í viðleitninni til að ná tökum á eigin örlögum,“ sagði Annan. Tony Blair, forsætisráðherra Bretlands, sagði að niðurstaðan væri áfall fyrir hryðjuverkamenn „sem hóta eyðileggingu ekki aðeins í Írak og Bretlandi heldur einnig flestum stærri ríkjum heims“. Talið er að allt að 15 manns hafi farist þegar bresk Hercules-flutn- ingavél hrapaði af óljósum orsökum nálægt Bagdad í gær. Ljóst er að yfir 40 manns féllu í allmörgum til- ræðum hermdarverkamanna, eink- um í Bagdad, en þeir höfðu hins vegar hótað að koma í veg fyrir að hægt yrði að kjósa. Hótanir þeirra urðu þó til þess, ásamt andúð margra súnní-araba á hernáms- veldunum, að mjög fáir kusu í sum- um borgum um miðbik landsins þar sem uppreisnin hefur átt mestu fylgi að fagna. Kjörsóknin talin hafa verið um 60% Kosningarnar í Írak sagðar hafa tekist vel og lítið var um árás- ir á kjörstaði Bagdad, London, Washington. AFP, AP. Reuters Hópur kvenna í borginni Najaf í Írak bíður við dyr kjörstaðar í gær. Flestir íbúar Najaf eru sjítar.  Minna um/13 VIÐSKIPTAVINIR stórmarkaðar í Cardiff í Bretlandi urðu hissa á laug- ardag þegar Hjaltlands-smáhestur birtist skyndilega við hillurnar og fór að hnusa af vörunum. Hann tölti fljót- lega yfir að grænmetinu. Gesturinn óboðni mun hafa sloppið úr hesthúsi. Furðu lostið starfsfólkið reyndi að reka hestinn á brott úr gul- rótunum og öðru freistandi fóðri en þá tók ekki betra við; hann gerði harða atlögu að morgunkorninu. „Hann hneggjaði þrisvar þegar hann kom inn og brokkaði svo yfir að búðarhillunum,“ sagði Luke Hart, einn af viðskiptavinunum. Taumlaus neysla London. AFP.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.