Morgunblaðið - 07.02.2005, Blaðsíða 4
4 MÁNUDAGUR 7. FEBRÚAR 2005 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Skógarhlíð 18, sími 595 1000
www.heimsferdir.is
Verð kr. 69.990*
Flugsæti báðar leiðir með sköttum. Netverð.
Verð kr. 89.990*
Innifalið í verði: Flug, gisting á Hotel
Arenas Doradas, morgunverðarhlaðborð,
skattar, fararstjórn, ferðir til og frá flugvelli.
Netverð.
* Ekki innifalið í verði: Vegabréfsáritun og
brottfararskattur á Kúbu.
Úrval hótela í boði
Munið Mastercard
ferðaávísunina
Kúbuveisla
6. - 13. mars
frá 69.990
Sérflug Heimsferða
7 nætur – Varadero - Havana
Ótrúlegt tækifæri til að kynnast þessari stórkostlegu eyju Karíbahafsins.
Þú velur hvort þú vilt dvelja viku í Havana, viku á Varadero ströndinni
eða skipta dvölinni á milli beggja staða. Þú velur milli góðra hótela hvort
sem er í Havana eða í Varadero. Ferð til Kúbu er ævintýri sem lætur
engan ósnortinn, því ekki aðeins kynnist maður stórkostlegri náttúrufeg-
urð eyjunnar, heldur einnig þjóð sem er einstök í mörgu tilliti. Gamla
Havana er ein fegursta borg nýlendutímans, lífsgleði eyjaskeggja er ein-
stök og viðmótið heillandi. Að upplifa Kúbu nú er einstakt tækifæri, því
það er ljóst að breytingar munu verða í náinni framtíð.
UNA María Óskarsdóttir, varafor-
maður Freyju, félags framsókn-
arkvenna í Kópavogi, segist fagna
niðurstöðu laganefndar Framsókn-
arflokksins um
að aðalfundur
félagsins í lok
janúar hafi ver-
ið ólöglegur.
„Við Freyju-
konur erum
auðvitað mjög
ánægðar með
þennan úrskurð
laganefndar,
því þar með
hefur tekist að
afstýra valdaráni sem var mjög al-
varlegt, en í því fólust bein af-
skipti þingmanns úr öðru kjör-
dæmi af flokksstarfi
Freyjukvenna í Kópavogi. Slík
vinnubrögð hafa, að því er ég best
veit, ekki tíðkast áður í mínum
ágæta flokki og telja margir að
þau séu ekki líðandi og forsvar-
anleg,“ sagði Una María í samtali
við fréttavef Morgunblaðsins í
gær.
Fagnar nið-
urstöðunni
Una María
Óskarsdóttir
„MÉR finnst úr-
skurðurinn vera
áfellisdómur yfir
stjórn Freyju,“
segir Aðalheiður
Sigursveinsdóttir
um þá niðurstöðu
laganefndar
Framsóknar-
flokksins að aðal-
fundur Freyju,
félags framsókn-
arkvenna í Kópavogi, sem haldinn
var 27. janúar sl., hafi verið ólögleg-
ur.
Aðalheiður er ein þeirra 43 kvenna
sem skráðu sig í félagið, hjá skrif-
stofu flokksins, sama dag og aðal-
fundurinn var haldinn. Hún ásamt
tveimur öðrum af nýju konunum var
síðan kjörin í stjórn Freyju á um-
ræddum fundi.
Laganefnd flokksins hefur hins
vegar komist að þeirri niðurstöðu að
fundurinn hafi verið ólöglegur, eins
og áður sagði, vegna þess að breyt-
ingar á lögum félagsins, sem sam-
þykktar voru á aðalfundi í október sl.
voru ekki sendar kjördæmasam-
bandi flokksins til staðfestingar fyrr
en eftir aðalfundinn nú í lok janúar.
Aðalheiður segir niðurstöðuna
sýna almenna vankunnáttu stjórnar-
innar á lögum flokksins. „Í ljós kem-
ur að fundurinn er ógildur; ekki út af
okkar framgöngu, heldur út af því
sem fyrri stjórn gerði. Sú sem kærir
fundinn [María Marta Einarsdóttir,
formaður Freyju] fær á sig dóminn.
Við erum hins vegar látnar gjalda
fyrir það með einum eða öðrum
hætti,“ segir Aðalheiður og vísar til
kvennanna 43.
„Ég velti því einnig fyrir mér hvað
hefði gerst ef þetta hefði verið tólf
manna aðalfundur og fyrri stjórn
endurkjörin. Hefði formaðurinn
kært sjálfan sig fyrir afglöp í starfi?“
Aðalheiður segir að boða þurfi til
nýs aðalfundar í Freyju í ljósi nið-
urstöðu laganefndarinnar. Hún seg-
ist eiga von á því að sami hópur og
síðast bjóði sig aftur fram í stjórn,
þ.e. hún sjálf, Sigurbjörg Vilmund-
ardóttir og Björg Jónsdóttir. „Við,
sem vorum í meirihluta á fundinum,
höfum þó ekki hist formlega til að
ræða niðurstöðu laganefndarinnar,“
segir hún, en að þær hyggist ráða
ráðum sínum í vikunni. Hún útilokar
heldur ekki að þær bjóði fram á móti
Maríu Mörtu í formannsembættið.
„Konur, sem hafa starfað innan
Freyju í fleiri ár, hafa sagt okkur að
sumar þeirra hafi óskað eftir því að
komast í stjórn, en það hafi aldrei
verið samþykkt. Þær hafa spurt okk-
ur hvort möguleiki sé á því að þær fái
að taka meiri þátt í starfinu, ef við
fáum fleiri inn í stjórnina.“
Aðalfundur Freyju, félags framsóknarkvenna í Kópavogi
Útiloka ekki mót-
framboð til formanns
Aðalheiður
Sigursveinsdóttir
„VIÐ ákváðum að prófa nokkrar
mismunandi leiðir um helgina, sem
eru fullkomlega löglegar samkvæmt
laganna hljóðan og sjá til hvernig
áhorfendur myndu meta það,“ segir
Magnús Ragnarsson, framkvæmda-
stjóri Skjás eins um útsendingar
stöðvarinnar á leikjum ensku úr-
valdsdeildarinnar í knattspyrnu.
„Við sendum út einn leik á laugar-
dag, sem var hljóðlaus, og annan
leik, með íslenskum texta, þar sem
verið var að endursegja það sem
ensku þulirnir voru að segja.“
Í gær var síðan sendur út leikur
frá ensku úrvalsdeildinni með ís-
lenskum þul „sem kom inn með ágrip
annað slagið af því sem var að gerast
eins og menn þekkja úr Júróvisjón,“
segir hann. Magnús segir í raun um
ákveðnar tilraunir að ræða. „Þessi
tilraunastarfsemi bendir kannski að
einhverju leyti á það hvað laganna
bókstafur er sérkennilegur.“
Útvarpsréttarnefnd komst að
þeirri niðurstöðu að beinar útsend-
ingar Skjás eins á knattspyrnuleikj-
um með lýsingu á ensku bryti í bága
við útvarpslög. Beindi nefndin því til
sjónvarpsstöðvarinnar að taka leik-
ina af dagskrá, ef þeim fylgdi ekki tal
eða texti á íslensku.
Magnús sagði í samtali við Morg-
unblaðið á föstudag að Skjár einn
myndi hlíta niðurstöðu nefndarinnar
en jafnframt óska eftir fundi með
henni í þessari viku. Er stefnt að því
að sá fundur verði haldinn á morgun,
þriðjudag. „Við munum fara fram á
að málið verði tekið upp að nýju hjá
nefndinni. Við teljum að útvarpslög
stangist á við Evrópulög.“ Tekur
hann fram að forsvarsmenn Skjás
eins hafi talið að útsendingarnar
brytu ekki í bága við útvarpslög.
Leikir sendir út með
íslenskum texta
„EF ÉG tala fyrir sjálfan mig og þá
klúbbfélaga sem ég hef heyrt viðra
skoðun sína á þessu þá tökum við nú
enska þuli fram yfir þá íslensku, með
fullri virðingu fyrir þeim íslensku,“
segir Karl H. Hillers, formaður Ís-
lenska Chelsea klúbbsins, er hann er
spurður um viðbrögð klúbbsins við
þeirri niðurstöðu útvarpsrétt-
arnefndar
að enskar
íþróttalýs-
ingar á
Skjá einum
samræmist
ekki út-
varps-
lögum.
Hann segir
það því
ljóst að ætti
hann um
það að velja
að hlusta á
enska þuli
eða ís-
lenska lýsa
leikjum hefðu þeir ensku ávallt vinn-
inginn. „Ég fer eins oft og ég get á
fótboltakrána okkar sem er Ölver og
hlusta á þetta á enskum stöðvum.“
Hann segir að krárnar séu vel sóttar
þegar íþróttaleikir séu í sjónvarpinu,
en margir kvarti yfir reykingum á
stöðunum. „Þetta eru miklu færari
þulir og skemmtilegri, þessir
ensku.“ Hann segir að það sé því
langt í frá að klúbbfélagar séu sáttir
við niðurstöðu útvarpsrétt-
arnefndar. „Okkur hefur fundist
mikið vanta upp á hlutlausa umfjöll-
un þessara þula, sérstaklega á Stöð
2 og Sýn.“
Karl segir það skjóta skökku við
að íþróttafréttamaður af Stöð 2, sem
er hluti af 365 samsteypunni, kæri
málið vegna umhyggju fyrir ís-
lenskri tungu, á meðan 365 bjóði upp
á fjölda stöðva sem eingöngu eru á
ensku og alltaf ótextaðar. „Það eru
engir fremri í því að skila inn í stofu
til landsmanna erlendum stöðvum,
ótextuðum, án íslenskra þula, en
hans vinnuveitendur.“
Myndi alltaf
taka enska
þuli fram yfir
þá íslensku
SAMBAND ungra sjálfstæð-
ismanna hefur samið laga-
frumvarp til breytingar á út-
varpslögum sem felur í sér að
heimilað verði að senda út
íþróttaviðburði á öðrum tungu-
málum en íslensku. Mælist sam-
bandið til þess að þingmenn Sjálf-
stæðisflokksins leggi það fram
svo fljótt sem auðið er.
Í frétt frá SUS segir að frum-
varpið sé samið í tilefni af þeirri
niðurstöðu útvarpsréttarnefndar
vegna máls Íslenska útvarps-
félagsins að útsendingar á knatt-
spyrnuleikjum í ensku úrvals-
deildinni með lýsingu á ensku
samrýmdust ekki lögunum. Von-
ast þeir eftir að frumvarpið verði
flutt í þessari eða breyttri mynd.
Vilja breyta
útvarpslögum
ÞAÐ var engu líkara en æðarfuglarnir í Reykjavík-
urhöfn hefðu efnt til keppni um það hver yrði fyrstur
til að hefja sig á loft í rigningarsuddanum í gær.
Það er líka hugsanlegt að snurða hafi hlaupið á
þráðinn í tilhugalífinu. Meðan á því stendur eru blik-
arnir afar hændir að kollunum en hafa hvorki áhuga
á því að liggja á eggjunum né á uppeldi unga og eru
fljótir að hverfa úr varpinu. Kannski voru þeir að
æfa sig í að láta sig hverfa og kollurnar að elta.
Morgunblaðið/Ómar
Keppni í flugtökum hjá æðarfuglinum