Morgunblaðið - 07.02.2005, Page 7
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 7. FEBRÚAR 2005 7
FRÉTTIR
HÉRAÐSDÓMUR Reykjavíkur
hefur fellt úr gildi fjárnám sem
sýslumaðurinn í Reykjavík gerði
hjá konu sem skrifaði undir
ábyrgð á láni hjá syni sínum,
vegna þess að við gerð skulda-
bréfsins gætti Íslandsbanki ekki
að samkomulagi um notkun
ábyrgða á skuldum einstaklinga
frá árinu 2001.
Skylt að meta greiðslugetu
Samkvæmt samkomulaginu er
skylt að meta greiðslugetu lántak-
anda, og gera þeim sem gengst í
ábyrgðir fyrir hann ljóst hver
greiðslugeta hans er. Það var ekki
gert í þessu tilfelli.
Málið snerist um þriggja millj-
óna króna lán sem konan skrifaði
upp á fyrir son sinn. Hann stóð
ekki í skilum og því féll ábyrgðin á
móður hans. Að kröfu Íslands-
banka gerði sýslumaðurinn fjár-
nám en það reyndist árangurslaust
þar sem móðir hans var eignalaus.
Tekist var á um ýmis atriði í
málinu en fyrrnefnt samkomulag
réð úrslitum um að fjárnámsgerðin
var felld úr gildi.
Samkomulagið sem átt er við
var gert árið 2001 milli Samtaka
banka og verðbréfafyrirtækja,
Sambands íslenskra sparisjóða,
Neytendasamtakanna og við-
skiptaráðherra. Í úrskurði héraðs-
dóms segir að markmið samkomu-
lagsins hafi verið að draga úr vægi
ábyrgða sem einstaklingar gengj-
ust í fyrir aðra, og að lánveitingar
væru miðaðar við greiðslugetu
greiðanda og eigin tryggingar
hans. Þá bæri að tryggja að
ábyrgðarmenn gerðu sér grein
fyrir þeirri áhættu sem fælist í því
að skrifa upp á lán. Ekki er hægt
að gera undantekningar á þessu ef
upphæðin er hærri en ein milljón
króna.
Úrskurðurinn
ekki kærður
Dómurinn taldi að bankinn hefði
ekki staðið við samkomulagið og
skipti þá ekki máli að konan hafði
áður gengið í ábyrgð fyrir son
sinn. Var fjárnámsgerðin því felld
úr gildi.
Frestur til að skjóta úrskurð-
inum til Hæstaréttar rann út í síð-
ustu viku, án þess að hann væri
kærður þangað, samkvæmt upp-
lýsingum frá Magnúsi Birni Brynj-
ólfssyni hdl. sem var lögmaður
konunnar.
Jón Finnbjörnsson kvað upp
dóminn. Ólafur Eiríksson hdl.
flutti málið f.h. Íslandsbanka.
Héraðsdómur felldi fjárnám sýslumanns úr gildi
Samkomulag um greiðslu-
mat lántakenda ekki virt
ÍSLANDSMÁLNING • Sími 517 1500 • Vöruhús / verslun Sætúni 4
ÍSLANDS MÁLNING
STÆRSTA MÁLNINGARVERSLUN LANDSINS
BIORA INNIMÁLNING FRÁ TEKNOS
Ný tegund almattrar veggjamáln-
ingar sem hefur mikla þvottheldni
Þolir yfir 10000 burstastrokur
skv. SFS 3755 staðlinum
Gæðastöðluð vara á góðu verði
Ábyrgð tekin á öllum vörum
M
IX
A
•
fí
t
•
2
0
0
-0
4
8
3
5
Í febrúar koma tveir af viðskiptafulltrúum VUR hingað til lands til
funda með fyrirtækjum, þeir Benedikt Höskuldsson frá sendiráði
Íslands í Tókýó og Pétur Yang Li frá sendiráði Íslands í Peking
Tilgangur heimsóknanna er að hitta íslensk fyrirtæki sem óska
liðveislu sendiráðanna.
Fundirnir verða á skrifstofu Útflutningsráðs, Borgartúni 35 og
má bóka fundi hjá Útflutningsráði í síma 511 4000 eða með
tölvupósti á utflutningsrad@utflutningsrad.is
Viðskiptafulltrúarnir verða með viðtalstíma hjá
Útflutningsráði sem hér segir:
Benedikt Höskuldsson, viðskiptafulltrúi í sendiráðinu
í Tókýó verður með viðtalstíma 9. og 10. febrúar frá
kl. 9-17 báða dagana.
Auk Japans er umdæmi sendiráðsins Austur-Tímor og
Filippseyjar.
Petur Yang Li, viðskiptafulltrúi í sendiráðinu í Peking
verður með viðtalstíma 22. og 24. febrúar n.k. frá
kl. 9-17 báða dagana.
Auk Kína er umdæmi sendiráðsins Ástralía, Mongólía,
Norður-Kórea, Nýja-Sjáland, Suður-Kórea og Víetnam.
Viðskiptafulltrúar VUR
í Tókýó og Peking
frá sendiráðunum
MIKLAR sviptingar hafa verið í
veðri og snjóalögum fyrir vestan
undanfarið en leysingarnar hafa
eyðilagt brú sem liggur yfir ána
upp á 7. teig á golfvellinum í Vest-
urbotni ásamt því að fletta fjölum
af brú sem liggur ofar yfir ána.
Þetta kemur fram á vefnum pat-
reksfjordur.is og þar er haft eftir
Gústaf Gústafssyni, félagsmanni í
Golfklúbbi Patreksfjarðar, að um
töluverðan skaða sé að ræða fyrir
klúbbinn. Brúin var með stöplana
niðurgrafna og steypta fasta og
töluverð vinna verður að smíða
nýja. Gústaf sagði í samtali við
fréttamann Tíðis: ,,Brúin hefur
staðið í fjölda ára og þurft að þola
ýmislegt í formi leysinga, en þegar
snjórinn er svona þykkur hlýtur
eitthvað að láta undan þegar áin
ryður sig.“ Brúin var ekki það eina
sem eyðilagðist þar sem ný raf-
magnsgirðing litlu neðar skemmd-
ist einnig. Ljóst sé því að áin hafi
rutt sig ansi hressilega.
Golfklúbbur Patreksfjarðar
Tjón á golfvelli
í leysingum
Fréttir í tölvupósti