Morgunblaðið - 08.02.2005, Blaðsíða 17
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 8. FEBRÚAR 2005 17
MINNSTAÐUR
Eldaskálinn
Brautarholti 3
105 Reykjavík
Sími: 562 1420
www.invita.com
Bílar á
föstudögum
Sérblaðið Bílar fylgir blaðinu
á föstudögum.
Meðal efnis næsta föstudag:
Dótakassinn - ýmsir smáhlutir í bílinn
Nýr Skoda Octavia - reynsluakstur
Vinsælustu jepparnir í Bandaríkjunum
Saga bílsins - fyrsti akstur í kringum
landið
Væntanlegir bílar - Audi Allroad, Opel
Vectra
Sértilboð til áskrifenda á bílaauglýs-
ingum 995 kr. með mynd - Mættu til
okkar í Kringluna 1 og við tökum
myndina frítt -
Einfalt, ódýrt og þægilegt
auglýsingar 569 1111
Auglýsingar:
Sandra - 569 1140 og Ragnheiður -569 1275
AKUREYRI
JAKOB Björnsson, formaður bæj-
arráðs Akureyrar, hefur miklar
efasemdir um þær tölur sem
nefndar hafa verið varðandi rekst-
ur á snjóframleiðslukerfi í Hlíð-
arfjalli. Hann telur nauðsynlegt að
skoða þann þátt enn frekar. Í um-
fjöllun í Morgunblaðinu sl. laug-
ardag kom fram hjá Guðmundi
Karli Jónssyni, forstöðumanni
Skíðastaða, að áætlaður stofn-
kostnaður við snjóframleiðslu í
Hlíðarfjalli væri 80–100 milljónir
og rekstrarkostnaður 2–3 milljónir
króna á ári.
Jakob sagðist ekki útiloka neitt í
þessum efnum og að skoða þyrfti
málið, þar sem þetta sé þriðja eða
fjórða árið í röð sem erfiðleikar
skapast í Hlíðarfjalli vegna snjó-
leysis. Hins vegar ætti eftir að
kynna fyrir bæjarráði skýrslu
þeirra manna sem fóru og kynntu
sér snjóframleiðslu í Austurríki í
síðasta mánuði.
Þeir aðilar sem rætt var við í
umfjöllun á laugardag, töldu mik-
ilvægt að snjóframleiðsla hefjist í
fjallinu sem fyrst. Þórarinn B.
Jónsson, bæjarfulltrúi og formaður
stjórnar Vetraríþróttamiðstöðvar
Íslands, var einn þeirra sem fóru
til Austurríkis í síðasta mánuði.
Hann sagði að þar gengju snjó-
framleiðsluvélar alla daga þegar
frost er, frá byrjun nóvember og
út vertíðina, enda skipti stöð-
ugleikinn öllu máli gagnvart ferða-
þjónustunni.
Skýrsla um ferðina til Austur-
ríkis var kynnt í íþrótta- og tóm-
stundaráði í síðustu viku og þar
lagði Nói Björnsson fram bókun
þess efnis að nú þegar verði tekin
ákvörðun um að hefja snjófram-
leiðslu í Hlíðarfjalli. „Strax verði
hafist handa við undirbúning
framkvæmda svo tryggt sé að
snjóframleiðsla geti hafist á haust-
dögum 2005,“ sagði ennfremur í
bókun Nóa.
Hefur efasemdir um
tölur um rekstrarkostnað
Morgunblaðið/Kristján
Hlíðarfjall Snjóleysi hefur gert skíðafólki lífið leitt að undanförnu, en þar hefur þó verið opið í 24 daga í vetur.
Formaður bæjarráðs um snjóframleiðslu
LÖGREGLAN á Akureyri stöðvaði
þrjá unga menn á bifreið aðfaranótt
sunnudags. Í fórum eins þeirra
fannst smávegis af fíkniefnum, sem
leiddi til handtöku allra mannanna. Í
kjölfarið voru gerðar húsleitir og
heima hjá þessum aðila sem var með
fíkniefnið á sér, fundust meiri fíkni-
efni, þannig að samtals var lagt hald
á 50 grömm af hassi og 27 grömm af
amfetamíni. Maðurinn gekkst við að
eiga fíkniefnin og var mönnunum
þremur sleppt að loknum yfir-
heyrslum.
Hald lagt
á fíkniefni
Lögfræðitorg | Rannveig Þór-
isdóttir félagsfræðingur flytur fyr-
irlestur á lögfræðitorgi í dag,
þriðjudaginn 8. febrúar, kl. 16.30 í
stofu L101 á Sólborg. Þar mun
hún ræða um gagnagrunna lög-
reglu, gildi þeirra, hagnýting-
armöguleika og fyrirvara. Skoðað
er hvað þessi gögn geta sagt okk-
ur en einnig hvernig bæta má upp
annmarka þeirra með öðrum
gögnum. Rannveig hefur starfað
hjá lögreglu frá 1997 og tekið þátt
í fjölmörgum rannsóknum og út-
tektum.
FIMM af þrettán starfsmönnum
Varðar Vátryggingafélags á Akur-
eyri, hefur verið sagt upp störfum, í
kjölfar samkomulags um sameiningu
Íslandstryggingar og Varðar sem
undirritað var í síðasta mánuði. Þá
hefur tveimur starfsmönnum Varðar
í Reykjavík verið sagt upp og einum
starfsmanni Íslandstryggingar, að
sögn Ásgeirs Baldurs, framkvæmda-
stjóra Varðar.
Ásgeir sagði að þessar uppsagnir
væru liður í sameiningu félaganna.
Hann sagði að ekki væru fyrirhug-
aðar frekari uppsagnir, heldur yrði
horft til þess að fjölga starfsfólki á
ný þegar komið væri á jafnvægi í
rekstrinum. „Við horfum á þetta sem
tímabundna aðgerð en þó nauðsyn-
lega því rekstrarkostnaðurinn hafði
verið of mikill.“ Eftir sameininguna
heitir félagið Vörður-Íslandstrygg-
ing og eru höfuðstöðvar þess á Ak-
ureyri og starfstöð í Reykjavík. Vá-
tryggingafélag Íslands, sem keypti
Vörð af Hring (Baugi Group) í nóv-
ember í fyrra, á 58% í hinu nýja fé-
lagi og Íslandstrygging 42%.
Vörður-Íslandstrygging
Starfsfólki fækkað
UNDIRRITAÐUR hefur verið
samningur á milli Atvinnuþró-
unarfélags Eyjafjarðar f.h.
Vaxtarsamnings Eyjafjarðar og
þriggja stofnana Háskólans á
Akureyri um stjórnun og skipu-
lagningu þriggja af fjórum klös-
um í Vaxtarsamningi Eyjafjarð-
ar.
Matvælasetur Háskólans á
Akureyri mun taka að sér um-
sjón með matvælaklasa. Arn-
heiður Eyþórsdóttir hefur verið
ráðin til starfans en forstöðu-
maður Matvælaseturs Háskól-
ans á Akureyri mun m.a. einnig
starfa að þessum málum.
Rannsóknastofnun Háskólans
á Akureyri mun taka að sér
störf er snúa að mennta- og
rannsóknaklasa og mun Heil-
brigðisvísindastofnun Háskólans
á Akureyri sjá um störf er snúa
að heilbrigðisklasa. Bjarni Jón-
asson hefur verið ráðinn for-
stöðumaður Heilbrigðisvísinda-
stofnunar og mun hann sjá um
störf í heilbrigðisklasanum.
Enn er óráðið í starf fyrir
ferðamálaklasa, en Ferðamáls-
etur Íslands og Markaðsskrif-
stofa ferðamála á Norðurlandi
munu hafa yfirumsjón með
störfum í klasanum.
Allir starfsmennirnir munu
hafa starfsaðstöðu hjá sínum
stofnunum hjá Háskólanum á
Akureyri.
Vaxtarsamningur Eyjafjarðar
Verkefnastjórar ráðnir