Morgunblaðið - 20.02.2005, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 20.02.2005, Blaðsíða 2
2 SUNNUDAGUR 20. FEBRÚAR 2005 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Vika í Danmörku hertzerlendis@hertz.is ÍS LE N SK A A U G LÝ SI N G A ST O FA N /S IA .I S H ER 2 72 20 02 /2 00 5 19.350 50 50 600 1000 Vildarpunktar til 12. mars kr. - ótakmarkaður akstur, kaskó, þjófavörn, flugvallargjald og skattar. *Verð á viku miðað við 14 daga leigu. * Fiat Punto eða sambærilegur ÓÞARFI AÐ HÆKKA MEIR Stýrivextir Seðlabankans eru orðnir það háir að frekari vaxta- hækkanir ættu ekki að vera nauð- synlegar að mati Halldórs Ásgríms- sonar forsætisráðherra. Seðlabankinn sendi ríkisstjórninni greinargerð sl. föstudag í tilefni þess að verðbólgan fór yfir þolmörkin. Halldóri finnst greinargerðin geyma bæði góð og slæm tíðindi. Vill opna Surtsey Hjálmar Árnason, þingmaður Framsóknarflokks, hefur beint þeirri fyrirspurn til umhverf- isráðherra hvort til standi að heimila ferðamönnum að stíga á land í Surtsey. Telur hann að það mundi hafa jákvæð áhrif á ferðamennsku í Eyjum. Ekki er þó ætlast til að ferðamenn séu þar án eftirlits. Vissu ekki um breytingar Viljayfirlýsing fulltrúa eigenda Landsvirkjunar sl. fimmtudag um breytt eignarhald á fyrirtækinu kom þeim Álfheiði Ingadóttur og Helga Hjörvar í opna skjöldu. Þau sitja í stjórn Landsvirkjunar fyrir hönd Reykjavíkurborgar, auk Vilhjálms Þ. Vilhjálmssonar. Þetta kom fram í máli Álfheiðar á flokksráðsfundi VG í gær. Farsímaveira Farsímaveira, sem búin var til á Filippseyjum fyrir átta mánuðum, er nú komin til Bandaríkjanna og til tólf landa alls. Kallast hún Cabir og veldur því, að rafhlöðurnar tæmast. Smitast hún um síma, sem búnir eru blátannarbúnaði og ekki með virkar öryggisstillingar. Óttast er, að aðrar og skaðlegri farsímaveirur kunni að koma fram á næstunni. Refsað fyrir spillingu Þýska stjórnin hefur farið að dæmi Bandaríkjastjórnar og dregið úr stuðningi við Kenýastjórn vegna gífurlegrar spillingar. Er hún sökuð um að hafa ekkert gert til að koma í veg fyrir „stórkostlegan þjófnað“ úr opinberum sjóðum. Talið er, að um fimmtungur þjóðarframleiðslunnar hafi farið í spillingarhítina frá 2002. Y f i r l i t Í dag Sigmund 8 Hugvekja 47 Fréttaskýring 8 Auðlesið efni 44 Hugsað upphátt 19 Myndasögur 48/51 Stangveiði 23 Dagbók 50/51 Listir 27/29, 51/57 Staður og stund 50 Sjónspegill 28/29 Af listum 52 Forystugrein 30 Leikhús 52 Reykjavíkurbréf 30 Bíó 54/57 Umræðan 32/38 Sjónvarp 58/59 Bréf 38 Veður 59 Minningar 39/43 Staksteinar 59 * * * Morgunblaðið Kringlunni 1, 103 Reykjavík. Sími 5691100 Innlendar fréttir frett@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson, aðstoðarfréttaritstjóri, aij@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, aðstoðarfréttaritstjóri, sisi@mbl.is Erlendar fréttir Ásgeir Sverrisson, fréttastjóri, asv@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Agnes Bragadóttir, fréttastjóri, agnes@mbl.is Úr verinu Hjörtur Gíslason, fréttastjóri, hjgi@mbl.is Daglegt líf Guðbjörg Guðmundsdóttir, gudbjorg@mbl.is Menning menning@mbl.is Orri Páll Ormarsson, ritstjórnarfulltrúi, orri@mbl.is Skarp- héðinn Guðmundsson, skarpi@mbl.is Umræðan|Bréf til blaðsins Magnús Finnsson, fulltrúi ritstjóra, magnus@mbl.is Guðlaug Sigurðardóttir, gudlaug@mbl.is Hallur Þorsteinsson, hallur@mbl.is Minningar minning@mbl.is Hilmar P. Þormóðsson, Stefán Ólafsson Dagbók|Kirkjustarf Ellý H. Gunnarsdóttir, elly@mbl.is Íþróttir sport@mbl.is Sigmundur Ó. Steinarsson, fréttastjóri, sos@mbl.is Útvarp|Sjónvarp Auður Jónsdóttir, dagskra@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is SUMIR þeirra sem eru nýbúnir að kaupa fasteign hafa að undanförnu fengið sendan markpóst frá bygg- ingavöruversluninni BYKO og fylgja honum hamingjuóskir með íbúðar- kaupin, viðskiptakort og inneignar- nóta fyrir loftljósi. Húsasmiðjan hef- ur einnig sent slíkan markpóst, þó ekki nýverið, og fylgdi þá pensill með póstinum. Lesandi Morgunblaðsins sem fékk slíkan póst frá BYKO hafði samband við blaðið og velti því fyrir sér hvern- ig BYKO vissi að hann hefði keypt íbúð. Að sögn Ívars Sigurjónssonar, markaðsstjóra Norvíkur hf., móður- félags BYKO, er hægt að fá upplýs- ingar um þá sem hafa undirritað nýja kaupsamninga hjá Fasteigna- mati ríkisins (FMR) gegn ákveðnu gjaldi. Þær upplýsingar eru síðan notaðar til að senda út fyrrnefndan markpóst. Ívar segir að viðskiptavin- ir hafi almennt verið ánægðir með markpóstinn og sárafáir gert at- hugasemdir. Nokkrir hafi hringt til að forvitnast um hvernig BYKO fékk upplýsingar um íbúðarkaupin. Eftir að athugasemdirnar bárust hafði Ívar samband við Fasteigna- matið sem óskaði eftir því að í mark- póstinum kæmi fram hvaðan upplýs- ingarnar væru fengnar og hefur póstinum nú verið breytt í þá veru. „Þetta eru í raun opinber gögn og ekkert óeðlilegt við þetta,“ segir Ív- ar Sigurjónsson. Í samræmi við lög Haukur Ingibergsson, forstjóri Fasteignamats ríkisins, segir að skv. lögum veiti stofnunin upplýsingar úr landskrá fasteigna, þ.á m. upplýs- ingar um hverjir hafi gert nýja kaup- samninga, að uppfylltum ákveðnum skilyrðum. Tilgangur þess sem biður um slíkar upplýsingar verði að vera „yfirlýstur, skýr, málefnalegur og lögmætur“ í samræmi við lög um persónuvernd og meðferð persónu- upplýsinga. Engar upplýsingar séu veittar um kaupverð, greiðslutilhög- un o.þ.h. Hann segir að upplýsingar um slíka vinnslu séu tilkynntar til Per- sónuverndar en þó nokkuð sé um að slíkar upplýsingar séu veittar. Haukur bendir á að Fasteignamat ríkisins veiti ekki upplýsingar um þá sem hafi óskað eftir því að vera á bannlista, annaðhvort hjá þjóðskrá eða landskrá fasteigna, vegna upp- lýsinga sem notaðar eru í markaðs- skyni. Kvartað til Persónuverndar „Persónuvernd hafa borist all- nokkrar kvartanir. Enn sem komið er er ekki fyllilega úr því leyst hvort í gildandi reglum eða útgefnum starfsreglum hafi verið veitt leyfi til slíks. FMR hefur verið gefinn kostur á að tjá sig og við munum væntanlega gefa út formlegt álit þegar allar upp- lýsingar í málinu liggja fyrir,“ segir Sigrún Jóhannesdóttir, forstjóri Persónuverndar, spurð um aðgang að þessum upplýsingum. Nýir íbúðareigendur fá markpóst FMR veitir upplýsingar um nýja samninga Morgunblaðið/ÞÖK SELTIRNINGAR söfnuðust saman á Hrólfs- skálamel á Seltjarnarnesi í gær til þess að sýna stuðning í verki vegna gerðar nýs gervigrasvall- ar á svæðinu. Þetta var gert að undirlagi íþrótta- félagsins Gróttu á Seltjarnarnesi, en félagið sendi áskorun til íbúa á Nesinu og voru þeir hvattir til að sýna málefninu stuðning. Markaði fólkið útlínur vallarins þar sem ungir íþrótta- menn munu hugsanlega æfa og keppa. Morgunblaðið/Árni Sæberg Styðja gerð nýs gervigrasvallar á Nesinu FULLTRÚAR tuttugu þjóðlanda, auk ýmissa sem starfa að málefnum innflytjenda, tóku þátt í Þjóðahátíð Alþjóðahússins sem haldin var í Perlunni í gær. Hátíðin, sem er liður í Vetrarhátíð Reykjavíkur, var tileinkuð minningu Snjólaugar Stefánsdóttur sem lést í fyrra en hún starfaði ötullega að málefnum innflytjenda ásamt því að eiga þátt í stofnun Alþjóðahússins. Markmið Þjóðahátíðarinnar er að kynna það fjölmenningarlega sam- félag sem er að finna á Íslandi í dag, og hvaða áhrif fólk af erlendum upp- runa hefur á samfélagið. Þátt- tökuþjóðirnar í ár voru: Angóla, Ástralía, Búlgaría, Filippseyjar, Grænland, Ítalía, Japan, Kanada, Kenýa, Kína, Níkaragva, Palestína, Pólland, Rússland, Slóvenía, Sri Lanka, Svíþjóð, Túnis, Taíland og Víetnam. Samhliða ýmsum menn- ingarkynningum var boðið upp á fjölmenningarleg skemmtiatriði á sviði. Morgunblaðið/Árni Sæberg Stefán Þór Herbertsson og Benedikte Thorsteinsson koma fyrir munum. Þjóðahátíð í Perlunni
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.