Morgunblaðið - 20.02.2005, Blaðsíða 40

Morgunblaðið - 20.02.2005, Blaðsíða 40
40 SUNNUDAGUR 20. FEBRÚAR 2005 MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR ✝ Haraldur Magn-ússon fæddist á Syðra-Álandi í Sval- barðshreppi 14. mars 1939. Hann lést á sjúkrahúsinu á Húsavík hinn 23. janúar síðastliðinn. Foreldrar hans voru hjónin Signý Guð- björnsdóttir, f. í Þingeyjarsýslu 23. október 1917, d. 21. janúar 1997, og Magnús Jónsson, f. á Læknisstöðum á Langanesi 23. des- ember 1894, d. 1. nóvember 1989. Haraldur átti sjö systkini. Þau eru: Birgir, f. 25. febrúar 1949, lést á Seyðisfirði 14. des- ember 1966; Helga, f. 14. mars 1939; Ólöf, f. 15. janúar 1942, gift Reyni Guðmannssyni og eiga þau saman þrjú börn; Guðbjörn, f. 12. febrúar 1946, í sambúð með Guðrúnu Lilju Norð- dahl og eiga þau saman eitt barn en fyrir á Guðbjörn tvö; Jón, f. 20. jan- úar 1952, kvæntur Steinunni Gísladótt- ur og eiga þau sam- an þrjú börn, fyrir á Jón tvo börn; Magn- ús Sigurnýjas, f. 26. maí 1956, í sambúð með Sigurlínu Sig- urjónsdóttur og eiga þau saman fjögur börn; Matth- ías, f. 11. nóvember 1957, kvæntur Þórunni Ragnars- dóttur og eiga þau saman þrjú börn. Haraldur bjó og starfaði alla sína ævi á Þórshöfn og vann hann þar meðal annars við beit- ingar og róður. Útför Haraldar var gerð frá Þórshafnarkirkju 29. janúar. Ég man eftir Halla síðan ég var lítil í heimsókn hjá ömmu, alltaf í minni minningu er Ebbi með hon- um. Þegar ég fór til hans niður á höfn og fékk að sitja hjá honum í beituskúrnum, var Ebbi þar og hélt honum félagsskap. Ég man hvað ég var stolt af því að eiga frænda sem átti svona ekta ,,lassý- hund“ og vildi fá að vera sem mest með hann. Mér fannst líka svo merkilegt að hann skyldi aldrei þurfa að vera í ól heldur hlýddi hann öllu því sem Halli sagði við hann. Ég fór líka reglulega heim til Halla, í gamla húsið hennar ömmu, til að færa honum afgang- inn af matnum, sem við vorum með, handa Ebba. Ég man einnig hvað ég varð leið þegar amma sagði mér að Ebbi væri orðinn slappur og væri farinn að sjá illa. Ég hafði miklar áhyggjur af að það væri kannski vegna þess að ég hafði stolist til að gefa honum syk- urmola þegar enginn sá til en amma sagði að hann væri bara orðinn gamall. Mér fannst þetta mjög leitt því ég var alveg viss um það að Halli yrði mjög einmana ef Ebbi dæi. Ég var mikið niðri á höfn að veiða þegar ég var hjá ömmu og þá fór ég stundum til Halla til að fá lánaða stöng eða nýjan öngul því að það var ósjaldan sem minn varð eftir í höfninni. Halli kom af og til í heimsókn til ömmu þegar ég var þar og við sát- um við borðið inni í eldhúsi og fengum okkur kökur og kleinur og hann sagði mér fréttir af róðrinum og Ebba og ég fékk leyfi til að fara í fjöruna hjá honum til að tína bobba og skeljar og geyma það bak við húsið. Halli var góður maður og ég sakna hans þó að ég hafi ekki ver- ið í miklu sambandi við hann síð- ustu ár. Það var ósjaldan, Halli minn, sem ég leiddi hugann að því að heimsækja þig á Þórshöfn og fara að huga að leiðinu hjá ömmu og afa en því miður þá er það svo oft að maður dregur hlutina of lengi. En ég get þó alltaf huggað mig við það að nú ertu kominn á betri stað með Ebba þér við hlið og ég veit að amma á eftir að gæta þín vel og þið hvort annars. Vertu blessaður, Halli minn. Signý. Guð, gef mér æðruleysi til að sætta mig við það sem ég fæ ekki breytt, kjark til að breyta því sem ég get breytt og vit til að greina þar á milli. (Æðruleysisbænin.) Ég sendi þér kæra kveðju, nú komin er lífsins nótt. Þig umvefji blessun og bænir, ég bið að þú sofir rótt. Þó svíði sorg mitt hjarta þá sælt er að vita af því þú laus ert úr veikinda viðjum, þín veröld er björt á ný. (Þórunn Sig.) Elsku frændi minn. Þakka þér fyrir öll gömlu góðu árin þegar ég var fyrir norðan hjá ömmu. Guð geymi þig. Þín bróðurdóttir Valdís Guðbjörnsdóttir. HARALDUR MAGNÚSSON Sími 551 3485 • Fax 551 3645 Áratuga reynsla í umsjón útfara Önnumst alla þætti Davíð Osvaldsson útfararstjóri Sími 896 8284 Eyþór Eðvarðsson útfararstjóri Sími 892 5057 Vaktsími allan sólarhringinn Símar 581 3300 - 896 8242 Allan sólarhringinn - Áratuga reynsla Suðurhlíð 35 — Fossvogi — www.utforin.is ÚTFARARSTOFA HAFNARFJARÐAR Flatahrauni 5A, sími 565 5892 Kistur - Krossar Prestur - Kirkja Kistulagning Blóm - Fáni Val á sálmum Tónlistarfólk Sálmaskrá Tilk. í fjölmiðla Erfisdrykkja Gestabók Legstaður Flutningur kistu á milli landa og landshluta Landsbyggðar- þjónusta ÚTFARARSTOFA ÍSLANDS Komum heim til aðstandenda ef óskað er Sverrir Einarsson Sverrir Olsen Bryndís Valbjarnardóttir Oddur Bragason Guðmundur Þór Gíslason Helluhrauni 10, 220 Hfj. Sími 565 2566 www.englasteinar.is Fallegir legsteinar á góðu verði Englasteinar Fósturmóðir mín, tengdamóðir og amma, SIGRÍÐUR JÓNSDÓTTIR TRAMPE frá Litla Dal, sem lést á dvalarheimilinu Hlíð á Akureyri laugardaginn 12. febrúar, verður jarðsungin frá Akureyrarkirkju fimmtudaginn 24. ferbrúar kl. 13.30. Franz Árnason, Katrín Friðriksdóttir, Sigríður Rut Franzdóttir, Leifur Reynisson, Davíð Brynjar Franzson, Alexandra C. Suppes. Minningarathöfn um elskulega eiginkonu mína, móður okkar, tengdamóður, systur og ömmu, SIGURBJÖRGU BJARNADÓTTUR, Bakkabakka 4a, Neskaupstað, sem lést fimmtudaginn 10. febrúar síðast- liðinn, fer fram í Fella- og Hólakirkju þriðju- daginn 22. febrúar kl. 16.00. Jarðsett verður frá Norðfjarðarkirkju laugardaginn 26. febrúar kl. 14.00. Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir. Þeim, sem vilja minnast henn- ar, er bent á Fjórðungssjúkrahúsið í Neskaupstað. Hjörtur Árnason, Bjarni Jóhannsson, Ingigerður Sæmundsdóttir, Gyða María Hjartardóttir, Jóhann G. Kristinsson, Lára Hjartardóttir, Sigurður Indriðason, Birna Bjarnadóttir, Guðmundur Bjarnason og barnabörn. Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma, langamma og langalangamma, INGIBJÖRG RAGNHEIÐUR JÓHANNSDÓTTIR, sem lést á Hrafnistu í Reykjavík föstudaginn 11. febrúar, verður jarðsungin frá Fossvogs- kapellu þriðjudaginn 22. febrúar kl. 13.00. Fyrir hönd fjölskyldunnar, Hermann Þórðarson, Sirrý Hulda Jóhannsdóttir, Sigríður Borg Harðardóttir, Ragnar Harðarson. Ástkær faðir okkar, bróðir og ástvinur, BOGI BRYNJAR JÓNSSON, Ljósheimum 20, Reykjavík, lést á heimili sínu sunnudaginn 23. janúar. Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hins látna. Jón Brynjar Bogason, Elísabet Bogadóttir Gréta Jónsdóttir, Guðbjörg Jónsdóttir, Sólveig Berndsen. Hjartans þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlý- hug við andlát og útför elskulegrar móður minnar, tengdamóður, ömmu, langömmu og langalangömmu, SVEINBJARGAR PÁLÍNU VIGFÚSDÓTTUR frá Flögu í Skaftártungu, Sóltúni 2, Reykjavík. Sérstakar þakkir til starfsfólks og íbúa í Sóltúni 2 fyrir frábæra umönnun og velvild. Einnig þökkum við ættingjum og vinum alla þeirra tryggð og vináttu. Guð blessi ykkur öll. Sigrún Þuríður Runólfsdóttir, Leifur Kristinn Guðmundsson, Runólfur Birgir Leifsson, langömmubörn og langalangömmubarn. Hjartans þakkir til allra þeirra, sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför ástkærrar móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu, JÓNU JÚLÍU VALSTEINSDÓTTUR. Sérstakar þakkir til starfsfólks á 4. hæð á Sól- vangi fyrir hlýhug og frábæra umönnun. Henning Þorvaldsson, J. Steinunn Alfreðsdóttir, Birna Friðrika Þorvaldsdóttir, Jón Ragnar Jónsson, Valdís Ólöf Þorvaldsdóttir, Steinar Harðarson, Sigurbjartur Á. Þorvaldsson, Sveinsína Björg Jónsdóttir, Guðmundur Páll Þorvaldsson, Helga Aðalbjörg Þórðardóttir, barnabörn og barnabarnabörn. Kársnesbraut 98 • Kópavogi 564 4566 • www.solsteinar.is 10-40% afsláttur af legsteinum gegn staðgreiðslu út febrúar
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.