Morgunblaðið - 19.03.2005, Qupperneq 1
Mun Terri Schiavo deyja?
Pinellas Park í Flórída. AP.
LÆKNAR í Pinellas Park í Flórída
tóku í gærkvöldi úr sambandi tæki
sem í 15 ár hafa haldið á lífi Terri
Schiavo, 41 árs gamalli konu með al-
varlegar heilaskemmdir. Dómari
hafði fyrr um daginn úrskurðað að
fara bæri að óskum eiginmanns
hennar, Michaels Schiavos, um að
leyfa konunni að deyja. Er talið að
það muni gerast eftir eina eða tvær
vikur.
Mál Schiavos hefur verið mjög
umdeilt í rúman áratug og reyndu
fulltrúar repúblikana á þingi í gær
að beita sér á síðustu stundu til að fá
hrundið úrskurði dómarans. Sagði
Tom DeLay, talsmaður repúblikana
í fulltrúadeildinni, það vera „villi-
mennsku“ að aftengja tækin.
Foreldrar Schiavos, sem eru kaþ-
ólskir og mjög trúræknir, vildu ekki
samþykkja að tækin, sem hafa séð
um að dæla næringu í æðar hennar,
yrðu aftengd. Tækin hafa tvisvar
áður verið aftengd en síðan tengd á
ný eftir nýjan dómaraúrskurð.
Michael Schiavo segir að eigin-
konan hafi á sínum tíma tjáð sér að
hún vildi ekki að sér yrði haldið á lífi
með aðstoð tækja. Hún andar án
tækja en varð fyrir miklum heila-
skaða árið 1990 vegna breytinga á
efnaskiptum í tengslum við átrösk-
un sem þjakaði hana. Foreldrarnir
bera brigður á þá fullyrðingu hans
og segja að dótturinni geti batnað.
Hún hafi hlegið, grátið, brosað og
sýnt viðbrögð þegar talað var við
hana.
FORMAÐUR stuðnings-
mannahóps Bobbys Fischers í
Japan, John Bosnitch, og unn-
usta skákmeistarans, Miyako
Watai, fagna þeirri ákvörðun
allsherjarnefndar Alþingis
frá í gær að mælast til þess að
Fischer verði veittur íslensk-
ur ríkisborgararéttur. Hið
sama á við um góðvin Fisc-
hers hér á landi, Sæmund
Pálsson, sem vonast til að
geta farið til Japans og fylgt
félaga sínum til Íslands.
eiga stjórnvöld sem hlustuðu
vel á þegna sína. Bæði vildu
þau koma á framfæri þakk-
læti til Íslendinga og sér í lagi
til Sæmundar Pálssonar og
sendinefndarinnar sem komið
hefði til Japans á dögunum.
Watai sagði Bobby vera í
slæmu líkamlegu ástandi,
hann hefði grennst mikið og
hlakkaði verulega til að borða
góðan, íslenskan mat. Bosn-
itch vonaðist til að Fischer
yrði fagnað vel á Íslandi og
eftir það gæti hann hvílst vel
og náð fyrri styrk.
Varð glöð að heyra fréttirnar
Unnusta Bobbys Fischers fagnar ákvörðun um íslenskt ríkisfang
„Ég varð svo glöð að heyra
fréttirnar,“ sagði Watai við
Morgunblaðið í gær og von-
aðist hún til þess að geta flutt
unnusta sínum tíðindin í dag.
Þegar fundi allsherj-
arnefndar lauk í gær var orð-
ið það áliðið í Japan að búið
var að loka á allt síma-
samband við Fischer þar sem
hann hefur verið í haldi síð-
ustu mánuði. Frumvarp um
ríkisborgararéttinn verður
lagt fram á Alþingi á mánu-
dag og væntanlega afgreitt
fyrir páskaleyfi þingmanna.
Bæði Bosnitch og Watai lof-
uðu íslenska þjóð og hérlend
stjórnvöld. Sagðist Bosnitch
öfunda Íslendinga af því að
Miyoko Watai
Sæmundur Pálsson vonast til að
geta sótt hann næstu daga
Ummæli/38–39
STOFNAÐ 1913 76. TBL. 93. ÁRG. LAUGARDAGUR 19. MARS 2005 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS mbl.is
Íþróttir, Enska knattspyrnan,
Lesbók , Börn og Lifun
Morgunblaðið er 152 síður í dag
Til samanburðar má geta þess að
fyrirhugað álver Alcoa í Reyðarfirði
mun framleiða um 320 þúsund tonn
og verið er að stækka álver Norður-
áls úr 80 þúsund tonnum í 212 þús-
und tonn.
Þau svæði sem hafa verið til
skoðunar fyrir minni álver eru ann-
ars vegar Húsavík og hins vegar
Skagafjörður eða Skagaströnd.
Ragnar Guðmundsson, fram-
kvæmdastjóri fjármála- og stjórn-
unarsviðs Norðuráls, staðfesti í
samtali við Morgunblaðið að þetta
væri einn þeirra möguleika sem
heimamenn hefðu nefnt í könnunar-
viðræðum. Málið væri enn á frum-
stigi og margt væri óljóst varðandi
orkuvinnslu og þá hver myndi út-
vega rafmagn til nýs álvers eða ál-
vera.
Eitt af því sem verið er að skoða
er hagkvæmni þess að leggja raf-
magnslínur til tveggja álvera í stað
eins og þá hvort hagræði af því geti
vegið upp á móti óhagræði af því að
reisa tvö álver, með tilheyrandi
stofnkostnaði við t.d. skautsmiðju,
steypuskála og hafnarmannvirki.
Með því að hafa eitt stórt álver við
Dysnes í Eyjafirði þyrfti að fá raf-
magn bæði austan og vestan frá.
Getur þarna munað allt að fimm
milljörðum króna í stofnkostnaði,
sem það yrði dýrara að draga raf-
orkuna langar leiðir á einn stað.
Hafa Þingeyingar talið sig geta
útvegað næga orku á svæðinu, t.d.
með vatnsafli úr fyrirhugaðri
Hrafnabjargavirkjun í Skjálfanda-
fljóti og gufuafli frá Þeistareykjum,
Kröflu og Bjarnarflagi. Skagfirð-
ingar hafa haft þá kröfu uppi að ef
virkjað yrði við Skatastaði og Vill-
inganes þá yrði sú raforka nýtt í
heimahéraði og hafa sett sig upp á
móti hugmyndum um að orkan færi
austur yfir Tröllaskagann.
Svæðin vestan megin skagans
sem hafa verið til skoðunar eru
annars vegar skammt sunnan
Skagastrandar, þar sem Þverár-
fjallsvegur kemur niður, og hins
vegar við Brimnes í Skagafirði.
Tvö minni
álver til
skoðunar
FIMM álfyrirtæki hafa sýnt því áhuga að reisa álver á Norðurlandi og sam-
kvæmt upplýsingum Morgunblaðsins eru það Norðurál, Alcoa, BHP-Billiton,
Rio Tinto og Russal. Til þessa hefur verið reiknað með einu stóru álveri, með
350-400 þúsund tonna framleiðslugetu, en samkvæmt heimildum blaðsins er
einnig verið að skoða möguleika á því að reisa tvö minni álver, með 150-200
þúsund tonna afkastagetu á ári.
Fimm álfyrirtæki hafa sýnt áhuga
á að reisa álver á Norðurlandi
Morgunblaðið/Golli
Morgunblaðið/Sverrir
JAKOB Jóhann Sveinsson úr Sundfélaginu Ægi er hér á fleygiferð í 50 metra bringusundi á Íslandsmótinu í sundi
í Laugardal í gær þar sem hann kom fyrstur í mark á nýju Íslandsmeti, 28,86 sekúndum. Jón Oddur Sigurðsson
veitti honum harða keppni. Sjö Íslandsmet féllu á fyrsta keppnisdegi en mótinu verður framhaldið í dag./Íþróttir
Synt til sigurs
ÍTÖLSK slökkviliðssjóflugvél af gerðinni Canadair hrapaði á
mannlaust hús nálægt strönd Toscana í gær og fórust flug-
maðurinn og aðstoðarflugmaður hans. Eldur kom upp í vél-
inni að sögn sjónarvotta og flugmaðurinn reyndi án árangurs
að lenda á sjónum. Talið er að vélin hafi rekist á raflínu.
Reuters
Slökkviliðsvél fórst á Ítalíu