Morgunblaðið - 19.03.2005, Qupperneq 11
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 19. MARS 2005 11
FRÉTTIR
FERÐAKLÚBBURINN Heims-
kringla efnir til ferða- og listavöku
á Grand Hóteli í Reykjavík mánu-
dagskvöldið 21. mars kl. 20. Við-
burðurinn er haldinn í tengslum
við 12 daga menningarferð Heims-
kringlu til þriggja borga í Þýska-
landi í sumar, 9.-20. júní. Farið
verður til Berlínar, Dresden og
Leipzig og ber ferðin yfirskriftina
Listaþríhyrningur Þýskalands.
Á Ferða- og listavökunni mun
Ingimundur Sigfússon, fyrrverandi
sendiherra, segja frá Berlín. Árni
Heimir Ingólfsson, tónlistarfræð-
ingur og sérfræðingur í verkum og
ævi Jóns Leifs, ræðir um feril
Jóns í Þýskalandi. Þá segir Bene-
dikt Gunnarsson listmálari frá
safnaheimsóknum í Berlín. Ing-
ólfur Guðbrandsson, stofnandi
Heimskringlu, stýrir umræðum og
sýnir myndir frá borgunum þrem-
ur.
Að sögn Ingólfs er hér um að
ræða ferða- og listkynningu með
nýju sniði. Segir hann fram-
sögumenn gjörþekkja hina spenn-
andi listaborg Berlín sem Ingólfur
kallar best geymda leyndarmálið á
ferðasviðinu.
Berlín mikil framúrstefnuborg
„Berlín er óumdeilanlega mikil
framúrstefnuborg og ein allra ný-
tískulegasta borg heimsins í dag,“
segir hann. „Íslendingar hafa ákaf-
lega margt að sækja til Þýska-
lands og sérstaklega Berlínar. Ís-
lensk menning tengist á margan
hátt hinni þýsku hefð t.d. á sviði
bókmennta, tónlistar og leik-
húsmenningar. Berlín er leiðandi
borg í listum og menningu nú-
tímans. Dagskráin verður fjöl-
breytt og skemmtileg og mun gefa
fólki tækifæri til að skyggnast inn
í Þýskaland nútímans. Að lokinni
ferðavökunni getur fólk pantað sér
sæti í ferðina sem verður farin
undir minni leiðsögn og Ingimund-
ar Sigfússonar. Þetta er einstök
ferð sem ég veit ekki til þess að
hafi verið farin áður.“
Auk Listaþríhyrnings Þýska-
lands 9.-20. júní býður Heims-
kringla upp á nýja 29 daga hnatt-
ferð í haust undir yfirskriftinni:
Það besta á hnettinum norðan mið-
baugs. Ferðin hefst 2. október og
aðalfararstjóri er Ingólfur Guð-
brandsson. Farið verður til Dehli,
Agra og Jaipur á Indlandi, Bang-
kok og Chiang Mai í Tælandi, Bej-
ing og Shanghai í Kína, Tokyo í
Japan, Hawaii og San Francisco í
Bandaríkjunum.
Einnig býður Heimskringla upp
á ferð 2.-16. ágúst sem nefnist
stóra listaferðin um Ítalíu. Ferðin
er í hæsta gæðaflokki að sögn Ing-
ólfs og eru áfangastaðir Milano,
Bologna, Assisi, Sorrento, Róm,
Flórens, og Pisa.
Heimskringla með
ferða- og listavöku
Fuji-fjall í Japan hefur heillað marga ferðamenn í gegnum tíðina.
LYFJAFYRIRTÆKIÐ Actavis
verður aðalstyrktaraðili Umhyggju,
félags til stuðnings langveikum
börnum, á þessu ári og því næsta, en
skrifað var undir samninga þar að
lútandi í gær.
Styrkurinn mun fara í að fjár-
magna stöðugildi sálfélagslegs sér-
fræðings, sem er ný staða hjá Um-
hyggju, segir Ragna K. Marinós-
dóttir, framkvæmdastjóri Um-
hyggju. Sérfræðingnum er ætlað að
veita fjölskyldum barna sálfélagsleg-
an stuðning í því langa og flókna ferli
sem langvinn veikindi eru.
„Það breytir mjög miklu fyrir okk-
ur að fá þennan stuðning og styrk til
þess að geta boðið upp á þessa þjón-
ustu, en það hefur verið markmið
Umhyggju í nokkurn tíma að bjóða
upp á hana,“ segir Ragna. Hún segir
þjónustuna skipta mjög miklu máli
fyrir foreldra langveikra barna, en
það sé ekki ljóst nákvæmlega hversu
margir hafi þörf fyrir þjónustuna.
„Það er alveg ljóst að það eru þó
nokkrir sem myndu vilja nýta sér
þessa þjónustu, sem er mjög mik-
ilvæg í sumum tilvikum. Til dæmis
foreldrar barna sem greinast með
mjög alvarlega eða ólæknandi sjúk-
dóma, eða jafnvel sjúkdóma sem eru
það alvarlegir að þeir leiði til dauða.
Við slíkar aðstæður teljum við að það
sé fjölskyldunni mjög nauðsynlegt
að fá þessa hjálp og þennan stuðn-
ing, ef hún telur sig hafa þörf fyrir
hana,“ segir Ragna.
Actavis verður aðalstyrktaraðili Umhyggju í tvö ár
Ætla að bjóða upp á
sálfélagslegan stuðning
Morgunblaðið/Jim Smart
Harpa Leifsdóttir, markaðsstjóri Actavis á Íslandi (t.h.), og Ragna K. Mar-
inósdóttir, framkvæmdastjóri Umhyggju, undirrita samninginn, ásamt
Jóni Kristni Snæhólm, verkefnisstjóra Umhyggju.
VARAÐ er við því í ályktun
sem samþykkt var á nýaf-
stöðnu þingi Kennarasam-
bands Íslands að samið verði
um afnám réttinda í svonefnd-
um tilraunasamningum. Er
stjórn og samninganefnd Fé-
lags grunnskólakennara hvött
til að gaumgæfa vel innihald til-
raunasamninga við einstaka
skóla eða sveitarfélög.
Í sérstakri ályktun um til-
raunasamninga segir að þingið
fagni samningum sem kveða á
um betri kjör og aukin réttindi
félagsmanna, en þingið varar
við samningum feli þeir í sér af-
nám ýmissa áunninna réttinda
sem hafa náðst með áratuga
baráttu.
Vara við
að samið sé
um afnám
réttinda
GUÐRÚN Guðmundsdóttir, sem á
sæti í samninganefnd Félags grunn-
skólakennara, segir að æskilegt hefði
verið ef bæjarstjórn Garðabæjar
hefði boðið fulltrúum félagsins að
vera með í að undirbúa kjarasamning
fyrir kennara Sjálandsskóla sem tek-
ur til starfa í haust fremur en að
senda hann stjórn og samninganefnd
félagsins til að samþykkja eða hafna.
Betur væri ef félagið hefði getað haft
áhrif á sjálfa samningagerðina.
Greint var frá samningnum í Morg-
unblaðinu á miðvikudag en það er sér-
samningur Sjálandsskóla og Garða-
bæjar sem væntanlegir kennarar
geta gengið inn í. Kveður hann m.a. á
um að laun kennara verði um 290 þús-
und krónur á mánuði og geti síðan
hækkað með aukinni menntun. Samn-
ingurinn er í samræmi við bókun 5 í
nýjum kjarasamningi grunnskóla-
kennara. Fer hann til umfjöllunar hjá
samstarfsnefnd Kennarasambands
Íslands og launanefndar sveitarfélaga
en nefndin hefur ekki tekið hann til
umræðu.
Guðrún Guðmundsdóttir segist
ekki vilja taka afstöðu til þess hvort
samningurinn sé slæmur eða góður,
það sé fyrst og fremst aðferðin við
samningagerðina sem sé gagnrýni
verð. Hvetur hún aðrar bæjarstjórn-
ir, sem hugsanlega vilja fara þessa
leið, til að hafa samband við Félag
grunnskólakennara og hafa fulltrúa
þess með í ráðum. Hún kvaðst jákvæð
fyrir þessari leið ef samráð yrði haft.
Félag grunnskólakennara tekur ekki
afstöðu til samnings í Sjálandsskóla
Hefðu viljað vera
með í ráðum
HÆSTIRÉTTUR hefur dæmt
Lyfjafyrirtækin GlaxoSmithKline og
Líf til að bera skaðabótaábyrgð
gagnvart konu, sem veiktist alvar-
lega vegna aukaverkana af töku
flogaveikilyfsins Lamictal á árinu
2000. Var konunni metinn 50% miski
og 65% varanlega örorka vegna Stev-
en-Johnson heilkenna eftir Lamital
töku. Steven-Johnson er sjúkdómur
sem lýsir sér í alvarlegum ofnæm-
isviðbrögðum. Með dómi sínum stað-
festi Hæstiréttur dóm Héraðsdóms
Reykjavíkur frá 16. júní sl.
Konan krafðist bóta óskiptra úr
hendi lyfjafyrirtækjanna, samtals
um 32 milljóna króna. Við meðferð
málsins í héraði var sakarefni skipt
og var í þessum þætti málsins aðeins
fjallað um ágreining um skaðabóta-
skyldu fyrirtækjanna.
GlaxoSmithKline var handhafi
markaðsleyfis á Íslandi fyrir umrætt
lyf og annaðist að auki tiltekin verk-
efni, sem tengdust verslun með lyfið.
Líf flutti lyfið inn og dreifði því til
smásala samkvæmt samningi við er-
lendan framleiðanda þess. Taldist því
hvort félag um sig hafa annast sinn
þáttinn í innflutningi og sölu lyfsins,
þar sem starfsemi hvors um sig væri
forsenda þess að lyfið væri selt á
markaði.
Aukaverkanir
þekktar og skráðar
Í dómi Hæstaréttar segir að fyrir
hafi legið að aukaverkanir þær sem
konan varð fyrir séu þekktar og
höfðu verið skráðar í sérlyfjaskrá.
Taldi Hæstiréttur að þótt ekki yrði
slegið föstu að allar sömu upplýsing-
arnar hefðu þurft að koma fram á
fylgiseðli með lyfinu og fram kæmu í
sérlyfjaskrá væri ljóst að leiðbein-
ingar á fylgiseðli hefðu átt að vera
auðskildar og ítarlegar um einkenni
allra aukaverkana lyfja til að gera
notendum þeirra unnt að varast
hættuna.
Hæstiréttur taldi að upplýsingar á
fylgiseðli með lamictal, sem konan
fékk í hendur, hafi ekki verið jafn-
ítarlegar og ákvæði reglugerða
gerðu ráð fyrir og hafi að auki ekki
verið á íslensku. Var því talið að
ágalli hefði verið á lyfinu í merkingu
laga. Taldi dómurinn ekki að sýnt
hefði verið fram á að mistök hefðu
orðið við sjúkdómsgreiningu kon-
unnar sem aukið hefðu á tjón hennar.
Þá segir Hæstiréttur að sú fullyrð-
ing konunnar að læknir sá sem ávís-
aði lyfinu til hennar hefði ekki varað
hana við þessum tilteknu aukaverk-
unum hafi ekki verið hrakin og því
hafi ekki verið sýnt fram á að konan
ætti að einhverju leyti sjálf sök á
tjóni sínu. Lyfjafyrirtækin voru því
talin bera óskipta skaðabótaábyrgð á
tjóni konunnar.
Málið dæmdu hæstaréttardómar-
arnir Markús Sigurbjörnsson, Árni
Kolbeinsson, Guðrún Erlendsdóttir,
Gunnlaugur Claessen og Hrafn
Bragason. Gestur Jónsson hrl. flutti
málið fyrir GlaxoSmithKline og Ólaf-
ur Haraldsson hrl. og Kristín Ed-
wald hdl. fyrir Líf. Stefán Geir Þór-
isson hrl. og Sigurður R. Arnalds hdl.
fluttu málið fyrir konuna.
Lyfjafyrirtæki skaða-
bótaskyld vegna auka-
verkana af flogaveikilyfi