Morgunblaðið - 19.03.2005, Qupperneq 15

Morgunblaðið - 19.03.2005, Qupperneq 15
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 19. MARS 2005 15 ÚR VERINU 800 7000 - siminn.is Stundum er betra að senda SMS! úr heimasíma Ekki þarf að greiða fyrir SMS sendingar úr heimasíma til 1. apríl 2005 SÍÐASTA ár var ár mikilla umbreyt- inga í starfsemi SÍF hf. Gagnger endurskipulagning hafði í för með sér breyttar og skýrari áherslur í starfseminni en félaginu var skipt í fullvinnslu matvæla annars vegar og sölu og markaðssetningu lítt unninna sjávarafurða hins vegar. Þetta sagði Ólafur Ólafsson, stjórnarformaður SÍF, á aðalfundi félagsins í gær. „Eftir þessar breytingar er SÍF öflugt matvælafyrirtæki með arð- saman rekstur, traustan efnahag og skýr markmið um að verða leiðandi í framleiðslu og sölu á fullunnum mat- vælum í Evrópu,“ sagði Ólafur. Ný fimm manna stjórn var kjörin á aðalfundinum. Tillaga um fækkun stjórnarmanna úr sjö í fimm auk varamanns var samþykkt. Fimm manns voru í framboði til stjórnar og þar sem ekki barst mótframboð var ný stjórn sjálfkjörin. Nýja stjórn SÍF skipa: Ólafur Ólafsson, Aðalsteinn Ingólfsson, Guðmundur Hjaltason, Hartmut M. Krämer, stjórnarmaður Kingfisher plc, Toupargel SA og Herlitz AG, og Nadine Deswasiere, framkvæmdastjóri hjá Nestlé í Frakklandi. Varamaður er Guð- mundur Ásgeirsson. Samþykkt var að breyta reikn- ingsári félagsins frá 1. júlí til 30. júní árið á eftir. Núverandi reikningsár, sem hófst 1. janúar 2005, endar 30. júní næstkomandi. Um framtíðina sagði Ólafur: „Rík áhersla er á að styrkja innviði félags- ins. Í því felst meðal annars að fjár- fest verður frekar í rekstrareining- um sem falla að kjarnastarfsemi félagsins og uppfylla skilyrði um arð- semi, auk þess að ýta undir sókn á þeim mörkuðum sem félagið starfar á. Stefnumörkunin kveður einnig á um að félagið selji frá sér eignir og rekstur sem ekki tilheyrir kjarna- starfsemi þess. Forsendur til sóknar á lykilmörkuðum hafa ekki verið betri í sögu félagsins. SÍF er að feta sig inn á nýjar brautir og gert er ráð fyrir að nýtt félag sýni arðsemi sem standi undir kröfum hluthafa. Jakob Sigurðsson, forstjóri SÍF, gerði grein fyrir reikningum SÍF, af- komu félaga innan samstæðunnar og framtíðarsýn. Jakob lýsti breyttu fé- lagi með 79 milljarða króna veltu, starfsemi í 11 löndum og um 3.900 starfsmenn en SÍF-samstæðan selur sjávarafurðir og sælkerarétti til um 60 landa. Jakob sagði að vörumerki félagsins væru afar sterk og félagið væri í forystu á öllum lykilmörkuðum þess. Jakob sagði rekstur á þessu ári ganga samkvæmt áætlun og horfur á árinu væru góðar. Morgunblaðið/Jim Smart Aðalfundur Jakob Sigurðsson, forstjóri SÍF, er bjartsýnn á framtíðina eft- ir miklar breytingar í rekstrinum á síðasta ári. Hann er hér í ræðustól á að- alfundi félagsins, en við háborðið sitja Ólafur Ólafsson, formaður stjórnar SÍF, Hallfríður Helgadóttir fundarritari og Ragnar Hall fundarstjóri. Ný 5 manna stjórn SÍF kjörin á aðalfundi Markmið að verða leiðandi í sölu á fullunnum matvælum FRYSTISKIP HB Granda hafa hvert af öðru verið að koma inn til löndunar að undanförnu og hafa afla- brögð þeirra verið með ágætum en hækkandi gengi íslensku krónunnar hefur veruleg áhrif á aflaverðmæti þeirra. Þetta kemur fram á heima- síðu HB Granda. Í gær var verið að landa úr frysti- togaranum Höfrungi III AK 250 en skipið kom til hafnar á Akranesi fyrr í vikunni með góðan afla eftir 30 daga á veiðum. Aflinn er 660 tonn upp úr sjó og er uppistaðan í aflanum karfi og grálúða. „Aflaverðmætið er 88 milljónir króna en þess má geta að ef gengi íslensku krónunnar væri svip- að gagnvart helstu viðskiptamyntum okkar og fyrir tæpum tveimur árum hefði aflaverðmætið úr þessari veiði- ferð verið tæpar 110 milljónir króna,“ segir á heimasíðunni. Þerney RE 101 kom til hafnar í Reykjavík á þriðjudaginn, einnig með góðan afla eða 752 tonn upp úr sjó og uppistaðan í aflanum er karfi, aflaverðmætið er 74 milljónir króna Þann 9. mars kom Helga María AK 16 til hafnar með 665 tonn upp úr sjó af blönduðum afla. Aflaverðmætið var 78 milljónir króna. Örfirisey RE 4 kom til hafnar þann 8. mars og var aflinn 906 tonn upp úr sjó og var afla- verðmætið úr veiðiferðinni 80 millj- ónir króna. Uppistaða aflans var karfi. Venus HF 519 kom til hafnar í byrjun vikunnar eftir stuttan túr vegna smávægilegrar bilunar. Afli skipsins er 513 tonn upp úr sjó og aflaverðmætið 48 milljónir Skipið hélt til veiða á ný á fimmtudagskvöld. Frysti- skipin fiska vel SAMHERJI hefur selt nótaveiði- skipið Högaberg aftur til fyrri eig- anda, E.M. Shipping í Færeyjum. Samherji hf. nýtti sér þar með ákvæði í kaupsamningi um endur- sölurétt innan 3ja mánaða frá undir- ritun. Frá þessu er greint á fréttavef Samherja og þar segir ennfremur: „Högaberg veiddi um 10 þúsund tonn af loðnukvóta Samherja á nýlið- inni loðnuvertíð að verðmæti nálægt 50 milljónum króna. Aflinn var fram- an af vertíðinni lagður upp í fiski- mjölsverksmiðju Samherja í Grinda- vík en eftir brunann var lagt upp hjá verksmiðjum Síldarvinnslunnar hf. Skipið kom tvisvar að landi með yfir 2 þúsund tonn, sem telst vera full- fermi. Högaberg veiddi ennfremur um 2.500 tonn af kvóta Ísfélagsins í Vestmannaeyjum og lagði þann afla upp hjá bræðslum þess. Morgunblaðið/Kristján Fiskveiðar Högaberg kemur með fullfermi af loðnu til löndunar í Krossanesi, alls um 2.100 tonn. Högaberg aftur til Færeyja
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.