Morgunblaðið - 19.03.2005, Page 19
ICELANDIC Iberica, dótturfélag SH á Spáni, hef-
ur undirritað samning um kaup á fyrirtækinu
Ecomsa S.A. í Malaga.
Ecomsa var stofnað árið 1981 og var við kaupin
að 80% hluta í eigu stofnanda fyrirtækisins, Luis
García Parra, en auk þess áttu stjórnendur fyrir-
tækisins 20% hlutafjár. Helstu stjórnendur fyrir-
tækisins munu starfa áfram hjá sameinuðu félagi.
Fyrir hlutafé Ecomsa, að teknu tilliti til handbærs
fjár, greiðir Icelandic Iberica 4,1 milljón evra, um
320 milljónir króna, sem svarar til bókfærðs verðs
eigin fjár. Ecomsa er framleiðslu- og sölufyrirtæki
sem veltir rúmlega 21 milljón evra. Hjá fyrirtækinu
starfa um sextíu manns. Helsti styrkur fyrirtæk-
isins liggur í vinnslu og dreifingu á ýmsum skel-
fisktegundum, smokkfiski, auk hvítfisks, að því er
fram kemur í tilkynningu í Kauphöll Íslands í gær.
Fyrirtækið er staðsett í borginni Málaga á Suð-
ur-Spáni og er þar með vinnslu og dreifingu inn í
veitingahús og verslanir. Auk þess á það dreifi-
stöðvar við Costa del Sol og í Sevilla. Fyrirtækið
hefur verið rekið með hagnaði mörg undanfarin ár.
Haft er eftir Hjörleifi Ásgeirssyni, framkvæmda-
stjóri Icelandic Iberica, í tilkynningunni að með
kaupunum á Ecomsa styrki Icelandic Iberica stöðu
sína á spænska markaðnum, en velta sameinaðs
fyrirtækis mun nema um 90 milljónum evra á þessu
ári. Með kaupunum tryggi Icelandic Iberica annars
vegar aðgengi að mörkuðum og hins vegar aðgang
að mikilvægum afurðaflokkum fyrir markaðina í
Suður-Evrópu. Í Vegvísi Landsbanka Íslands í gær
er bent á að áætluð velta SH samstæðunnar á þessu
ári sé 75-80 milljarðar króna og því muni Ecomsa
hefur lítil áhrif á heildarrekstur SH.
Icelandic Iberica kaupir fram-
leiðslu- og sölufyrirtæki á Spáni
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 19. MARS 2005 19
VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF
Banki allra landsmanna
410 4000 | landsbanki.is
Eyddu í sparnað og fermingargreiðslan vex
jafnt og þétt í framtíðinni. Framtíðargrunnur
Landsbankans er góður kostur til fermingargjafa.
• Hæstu vextir sparireikninga Landsbankans
• Bundinn til 18 ára
• Verðtryggður
Fermingargreiðsla sem vex
iBook
Þau fermingarbörn sem
leggja
ferm
ingarpeningana
inn
á
Fram
tíðargrunn
Landsbankanslendasjálfkrafaílukkupottiþarse
mhæ
gte
ra
ðv
inn
a
gl
æ
si
le
ga
12
”
iB
oo
k
fa
rt
öl
vu
eð
a
fj
öl
da
af
gl
æ
ný
ju
m
iPo
d S
hu
ffle
mp3
spiluru
m.
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
L
BI
2
77
98
03
/2
00
5
BURÐARÁS hefur eignast um
3,5% hlut í sænska tryggingafélag-
inu Skandia. Miðað við gengi
hlutabréfa Skandia á markaði
svarar þessi hlutur til um 10 millj-
arða íslenskra króna. Frá því var
greint í Morgunblaðinu í gær að
KB banki hefði eignast 2,5% í
Skandia.
Samkvæmt upplýsingum frá
Burðarási hóf félagið að festa kaup
á hlutum í Skandia í byrjun janúar
síðastliðins. Almennt séð er talið
að sænskt efnahagslíf sé á nokk-
urri uppleið og því sé það góður
kostur að fjárfesta í öflugu félagi
þar í landi.
Engin barátta
Í frétt á vefmiðli sænska blaðs-
ins Dagens Industri í gær segir að
Íslendingar séu farnir að keppast
um Skandia. Er þar sagt að Björg-
ólfur Thor Björgólfsson, stjórnar-
formaður Burðaráss, hafi verið að
festa kaup á hlutabréfum í félag-
inu á undanförnum mánuðum, auk
þess sem KB banki hafi nú jafn-
framt fjárfest í því. Þess vegna
stefni í slag þeirra í millum.
Í breska blaðinu Financial Tim-
es segir að með yfirtöku KB banka
á Scandia, auk sterkar stöðu á
sænska fjármálamarkaðnu, gæti
KB banki boðið heildar fjármála-
þjónustu.
Samkvæmt upplýsingum frá
Burðarási er það ekki rétt að fé-
lagið og KB banki séu að keppa
um hlutabréf í Skandia. Frá sjón-
arhóli Burðaráss sé einfaldlega um
góðan fjárfestingarkost að ræða.
Hefur DI eftir Friðriki Jóhanns-
syni, forstjóra Burðaráss, að félag-
ið tjái sig ekki um hvort það hygg-
ist kaupa meira í Skandia eða selja
hlut sinn.
Þá hefur DI eftir Christer Vill-
ard, hjá Kaupthing í Svíþjóð, að
engar ákvarðanir hafi verið teknar
um frekari kaup á hlutum í
Skandia, en það komi vel komi til
greina.
Burðarás
með 3,5%
hlut í
Skandia
UM 36% af heildarfjölda hlut-
hafa í Íslandsbanka hafa ósk-
að eftir að fá arð vegna ársins
2004 greiddan út í formi
hlutabréfa í
bankanum.
Sam-
þykkt var á
aðalfundi
Íslandsbanka í síðasta mánuði
að hluthöfum yrði gefinn kost-
ur á að fá allt að helmingi
arðs síns greiddan með hlut-
um í bankanum á verðinu
10,65 á hlut. Frestur til skrán-
ingar rann út á miðnætti síð-
astliðinn sunnudag. Í tilkynn-
ingu frá Íslandsbanka kemur
fram að samtals hafi 3.669
hluthafar í bankanum óskað
eftir því að fá arð í félaginu
greiddan út í formi nýrra
eignarhluta. Heildarfjöldi
hluthafa í Íslandsbanka á síð-
astu áramótum var 10,276.
Fram kemur í tilkynningunni
að tæplega 135 milljón hlutir í
bankanum verði greiddir út í
formi arðs.
Hlutafé Íslandsbanka verð-
ur hækkað í samræmi við það
og mun nema 13.134.816.315
hlutum.
Liðlega
þriðjungur
vill hluta-
bréf í arð