Morgunblaðið - 19.03.2005, Síða 23
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 19. MARS 2005 23
ERLENT
Stekkjarbakka 4-6 - 109 Reykjavík - Sími 540 3300 - Fax 540 3301 - gardheimar@gardheimar.is - www.gardheimar.is
Opnunart ími
yf ir páskana
Skírdagur: 10 - 21
Föstudagurinn langi: lokað
Laugardagur: 10 - 21
Páskadagur: lokað
Annar í páskum: 10 - 21
FALLEGT FYRIR
PÁSKANA
Sendum blóm
heimshorna milli!
sem mörkuð var með gerð þess. Hefur Gerry
Adams sjálfur sagt að IRA muni farga öllum
vopnum sínum áður en yfir lýkur, í samræmi
við ákvæði samkomulagsins, og að samtökin
munu á einhverjum tímapunkti hætta starf-
semi fyrir fullt og allt.
Þykir mörgum sem bankaránið fyrir jól og
morðið á McCartney bendi hins vegar til að
IRA sé alls ekki að undirbúa brotthvarf sitt af
sviðinu, að ekkert sé þar af leiðandi að marka
yfirlýsingar Adams. Honum sé í reynd ekki
treystandi er hann tali um frið.
Er þetta skýringin á því að Bush Banda-
ríkjaforseti er sagður telja að Adams hafi
brugðist trausti hans. „Forsetinn telur Adams
ekki lengur traustan bandamann í baráttunni
fyrir friði. Hann vill ekki eiga neitt saman að
sælda við hann,“ hafði The Sunday Telegraph
eftir embættismanni í Hvíta húsinu.
Vakti athygli að í stað þess að bjóða Adams í
Gerry Adams hefur verið settur ískammarkrókinn vestur í Banda-ríkjunum. Árleg heimsókn hans tilBandaríkjanna um þetta leyti árs
reyndist hálfendaslepp og hann kom víðast
hvar að luktum dyrum, eftir að hafa um árabil
átt greiðan aðgang að Hvíta húsinu og ýmsum
áhrifamönnum í bandarísku þjóðlífi. Var
Adams jafnvel meinað að safna fé fyrir samtök
lýðveldissinna á Norður-Írlandi að þessu sinni
en hann hefur í gegnum tíðina getað sótt digra
sjóði í djúpa vasa Bandaríkjamanna sem eiga
ættir að rekja til Írlands.
Hefur þeirri staðhæfingu verið kastað fram
að embættismenn í Hvíta húsinu líti Adams nú
sömu augum og þeir litu Yasser Arafat, leið-
toga Palestínumanna, undir það síðasta en
sem kunnugt er hafnaði George W. Bush
Bandaríkjaforseti því að eiga frekari samskipti
við Arafat um mitt ár 2002 og hvatti Palest-
ínumenn þá raunar til að skipta um leiðtoga.
Var Bush þá kominn á þá skoðun að Arafat
væri þröskuldur á veginum til friðar, hluti
vandans. Arafat væri ekki treystandi og að allt
tal hans um frið væri ótrúverðugt.
McCartney-systur í Hvíta húsið
Ástæða þess að Adams er nú orðinn persona
non grata í Hvíta húsinu, eins konar úrhrak í
augum embættismanna þar, tengist risastóru
bankaráni í Belfast fyrir sl. jól en þó ekki síður
morðinu á kaþólikkanum Robert McCartney
30. janúar sl.
Írska lýðveldishernum (IRA) hefur verið
kennt um hvort tveggja, bankaránið og morð-
ið, en Sinn Féin er sem kunnugt er stjórn-
málaarmur IRA.
Svo á að heita að IRA sé í vopnahléi og frið-
arsamkomulag var gert á Norður-Írlandi 1998.
Ekki hefur gengið snurðulaust að hrinda sam-
komulaginu í framkvæmd en flestir eru sam-
mála um að ekki megi hverfa af þeirri braut,
Hvíta húsið í tilefni dags heilags Patreks 17.
mars tók Bush á móti fimm systrum Roberts
McCartneys og unnustu hans; en þær hafa
undanfarnar vikur barist fyrir því að morð-
ingjar McCartneys – þ.e. tilteknir liðsmenn
IRA – verði handteknir og sæti réttarhöldum.
Systur McCartneys hafa beint spjótum sín-
um að IRA, segja samtökin hafa haft í hót-
unum við vitni í málinu, en þær hafa einnig
gagnrýnt forystu Sinn Féin. Er ljóst að mála-
rekstur þeirra veldur Adams og flokki hans
miklum vandræðum.
Ekki tímabær samanburður
Lengi hefur verið pískrað um það að Adams
ætti sæti í herráði IRA – en hafa ber í huga að
samtökin voru í eina tíð umtalaðasti hryðju-
verkahópur í gjörvallri Evrópu og þó að víðar
væri leitað. Það hefur hins vegar að mörgu
leyti verið heppilegt í friðarferlinu á Norður-
Írlandi að nokkuð væri óljóst hvernig sam-
bandi Sinn Féin og IRA er í raun háttað.
Adams hefur þannig verið álitinn „tengilið-
urinn“ við IRA og sem slíkur haft mikilvægt
hlutverk að rækja, enda útilokað að stilla til
friðar á Norður-Írlandi nema með því að
þagga niður í sprengjum IRA.
Segja má að þolinmæði manna gagnvart
þessari tvöföldu, tvíræðu stöðu Adams sé þrot-
in. Menn vilja að hann ákveði hvort hann sé
raunverulega boðberi friðar eður ei.
Samanburðurinn við Arafat er í þessum
skilningi ekki fjarstæðukenndur. Hann er þó
sennilega ótímabær, Adams hefur ekki end-
anlega verið tekinn út af sakramentinu, til
sönnunar um það má benda á að Adams hitti
Mitchell Reiss, sendifulltrúa Bandaríkjanna á
Norður-Írlandi, að máli í heimsókn sinni nú.
Adams hefur aftur á móti verið gert ljóst að
hann og Sinn Féin séu á skilorði.
Í þessu ljósi ber vísast að skilja ummælin
sem Richard Haass, fyrrverandi sendifulltrúi
Bandaríkjaforseta á Norður-Írlandi, lét falla á
fundi með Adams í New York. „Hættan er sú
að þeir [leiðtogar Sinn Féin] mæti með tíð og
tíma sömu örlögum og menn eins og Yasser
Arafat, þ.e. að þeim verði útskúfað,“ sagði
Haass. „Gerry Adams ætti að varast að verða
eins og Yasser Arafat. Hann vill ekki vera
maður sem reynist ófær um að velja á milli ol-
íuviðargreinarinnar [þ.e. leið friðar] og byss-
unnar, líkt og Arafat.“
Kennedy orðinn langþreyttur
Verstu tíðindin fyrir Adams voru kannski
ekki þau að Bush bauð honum ekki heim. Hitt
var að mörgu leyti alvarlegra að Edward
Kennedy, öldungadeildarþingmaður frá
Massachusetts, vildi ekki hitta hann að máli.
Edward Kennedy er eins konar leiðtogi
Bandaríkjamanna er rekja ættir sínar til Ír-
lands og sé Adams nú litinn hornauga í þeim
kreðsum telst það meiriháttar vandamál fyrir
hann og flokk hans.
Mun staðreyndin vera sú að jafnvel þeir
Bandaríkjamenn sem með einum eða öðrum
hætti studdu baráttu IRA, eða höfðu a.m.k.
samúð með málstaðnum, eiga erfitt með að
skilja hvers vegna IRA er enn á kreiki. Bent er
á að meira en áratugur sé nú liðinn síðan frið-
arferlið fór af stað, friðarsamkomulag var gert
1998 og umkvörtunarefnum kaþólikka að
mörgu leyti verið mætt.
Hafa ber líka í huga að andrúmsloft er mjög
breytt í Bandaríkjunum, hryðjuverkastríðið
svonefnda hefur þau áhrif að Bandaríkjamenn
hafa alls ekki sama umburðarlyndi gagnvart
IRA og þeir hugsanlega höfðu á árum áður.
IRA yrðu fljótt flokkað með al-Qaeda og öðr-
um alþjóðlegum hryðjuverkahópum ef sam-
tökin tækju upp fyrri hætti, byrjuðu sprengju-
herferð að nýju í nafni sameiningar Írlands.
Fréttaskýring | Getur verið að bandarískir ráðamenn líti Gerry Adams, leiðtoga Sinn Féin, nú sömu augum og þeir litu
Yasser Arafat síðustu æviár hans, þ.e. telji hann nú þröskuld í vegi friðar? Davíð Logi Sigurðsson kannaði málið.
Adams settur í sama flokk og Arafat?
Reuters
Gerry Adams talar á fundi í New York sl.
mánudag. Hann segir sjálfur að samlíkingin
við Yasser Arafat eigi ekki við.
david@mbl.is
BANDARÍSKA sjónvarpsstjarnan
Robert Blake var á miðvikudag
sýknaður af ákæru um að hafa
myrt eiginkonu sína fyrir utan veit-
ingastað í Hollywood í maí 2001.
Ákæru um að Blake hefði ráðið
leigumorðingja
var vísað frá þar
sem kviðdómur
gat ekki komið
sér saman um
niðurstöðu.
Þar með er
fjögurra ára rétt-
arhöldum yfir
Blake lokið.
Hann þakkaði
lögfræðingum
sínum eftir rétt-
arhöldin og lét
fyrrum vini sína og kunningja sem
höfðu talað illa um hann í fjöl-
miðlum hafa það óþvegið. „Þetta
eru allt lygarar og margir hverjir
algjör úrhrök,“ sagði Blake.
Blake hafði kvænst Bonny Lee
Bakley 6 mánuðum fyrir morðið
eftir að DNA-próf leiddi í ljós að
hann væri faðir dóttur hennar.
„Fórnarlambið í málinu var myrt
vegna þess að ákærði vildi forræði
yfir barninu,“ sagði Shellie Samu-
els, saksóknari í málinu.
Verjendur í málinu vöktu athygli
á vafasömum bakgrunni Bakley.
Þeir sögðu hana hafa sóst eftir
kynnum við fræga menn og hafa
gifst allt að hundrað sinnum til fjár.
Því gætu margir átt harma að
hefna.
Rúmlega hundrað vitni voru köll-
uð fyrir við réttarhöldin, þar á með-
al tveir fyrrum áhættuleikarar,
smábófi og leikari sem sagðist hafa
snúið baki við glæpum eftir að hafa
frelsast. Ef Blake hefði verið
dæmdur sekur hefði hann hlotið
lífstíðardóm.
„Þetta eru
allt lygarar
og úrhrök“
Los Angeles. AFP.
Robert Blake
bregst við niður-
stöðu dómsins.