Morgunblaðið - 19.03.2005, Síða 24
Akureyri | Gera má ráð fyrir að
líflegt verði í Hlíðarfjalli næstu
daga, páskarnir á næsta leiti og
þá er jafnan margt um manninn
á skíðasvæði Akureyringa.
Fjöldi fólks leggur leið sína
norður og setja ferðalangar svip
sinn á bæinn. Töluvert snjóaði í
fyrrinótt, 30 til 60 sentímetra
snjóalag er nú yfir öll og skíða-
færi ágætt. Grunnt er þó niður á
grjót utan hefðbundinna skíða-
leiða þannig að fólk ætti að hafa
varann á sér. Skíðafólkið sem
varð á vegi ljósmyndara var
hins vegar að fá sér smá yl í
kroppinn, sötraði kakó í mak-
indum.
Morgunblaðið/Kristján
Skemmta sér á skíðum
Hressing
Akureyri | Suðurnes | Árborg | Landið
Minnstaður
Höfuðborgarsvæðið Brjánn Jónasson, brjann@mbl.is, sími 569-1100. Suðurnes Helgi
Bjarnason, helgi@mbl.is, sími 569-1310 og 669-1310. Akureyri Margrét Þóra Þórsdóttir,
maggath@mbl.is og Kristján Kristjánson, krkr@mbl.is, sími 461-1600. Vesturland Ásdís
Haraldsdóttir, asdish@mbl.is, sími 898-5258. Austurland Steinunn Ásmundsdóttir, aust-
urland@mbl.is, sími 669-1115. Árborgarsvæðið og Landið Helgi Bjarnason, helgi@mbl.is,
sími 569-1310 og 669-1310 og Guðrún Aðalsteinsdóttir, frett@mbl.is, sími 569-1290.
Mínstund frett@mbl.is
Borgnesingar voru ósköp hnuggnir eftir
að Skallagrímur tapaði með naumindum
fyrir Fjölni 72–70 í oddaleik liðanna sem
haldinn var í Grafarvogi í vikunni. Þeir
höfðu fjölmennt á leikinn til að hvetja sína
menn, án þess að upplifa margþráðan sig-
ur. Svo langt gekk í sorginni, að ein eig-
inkonan lýsti heimkomu mannsins síns
eins og hann hefði verið að koma úr jarð-
arför. Skallagrími hefur annars gengið
mjög vel í körfuboltanum í vetur.
Árið 2005 má kalla ár tilfæringanna í
atvinnuhúsnæði fyrirtækja og stofnana.
Sparisjóðurinn fer í nýtt húsnæði við
Borgarfjarðarbrúna, Borgarbyggð í hús
sparisjóðsins, Bónus flytur um set, Borg-
arnes kjötvörur byggir upp á Sólbakka og
rýmir húsin í Brákareyju og Eðalfiskur er
með í byggingu nýtt hús.
Enn fremur er bæjarstjórinn okkar
bjartsýnn á nýbyggingar nýs íbúðahverfis
við Rauðatorgið, þar sem áður var at-
hafnasvæði KB byggingarvörudeildar. Á
þessu ári býst hann við að þar verði byrj-
að á 50–60 íbúðum. Nýja byggingarsvæðið
hefur verið kynnt fyrir öllum bygginga-
verktökum í Borgarfirði og fleirum og
margir hafa sýnt áhuga. Fyrir utan þessar
fyrirætlanir stendur til að þétta byggðina í
Borgarnesi og byggja 10 íbúðir í stað
gamla VÍS hússins, sem var rifið og fjar-
lægt í vetur.
Það er einlæg ósk smábarnaforeldra í
Borgarbyggð að sveitarfélagið taki nú
önnur sveitarfélög til fyrirmyndar og setji
á áætlun að bjóða upp á gjaldfrjálsan leik-
skóla. Ef takast á að laða fleira fjöl-
skyldufólk til búsetu hér, þarf sveitarfé-
lagið að marka fjölskylduvænni stefnu.
Niðurgreiðsla á gjaldi til dagmæðra var
skref í rétta átt og sýnir að allt er hægt ef
viljinn er fyrir hendi.
Unglingarnir í félagsmiðstöðinni Óðali
hafa nýlega lokið sýningum á söngleiknum
Bugsy Malone en sýningin er í leiðinni
árshátíð þeirra. Um fimmtíu krakkar tóku
þátt í sýningunni sem heppnaðist vel. Um
leið er þessi sýning ein helsta tekjuöfl-
unarleið fyrir nemendafélagið. Krakkanir
eru að safna fyrir vorferðalagi, en 10.
bekkur stefnir að því að heimsækja Vest-
mannaeyjar og er mikil spenna ríkjandi í
hópnum.
Krakkarnir í 9. bekk eiga eftir að fá sitt
árlega skíðaferðalag en 8. bekkingar eru
þessa dagana með hugann við fermingar
sem eru framundan nú um páskana.
Úr
bæjarlífinu
BORGARNES
EFTIR GUÐRÚNU VÖLU ELÍSDÓTTUR
FRÉTTARITARA
Bæjarráði Bolung-arvíkur finnstráðstefnuhald-
arar ekki tileinka sér nú-
tímatækni nægilega mik-
ið við ráðstefnuhald því
enn þá sé íbúum lands-
byggðar stefnt hugs-
unarlaust til Reykjavíkur
þegar hægt væri að spara
umtalsverðar fjárhæðir
með notkun fjarfunda-
búnaðar. Á fundi ráðsins í
vikunni var tekið fyrir
bréf frá menntamála-
ráðuneytinu þar sem boð-
að var til málþings um
fljótandi skil leik- og
grunnskóla. Í bókun bæj-
arráðs Bolungarvíkur
segir: „Bæjarráð harmar
að ekki skuli boðið upp á
ráðstefnuna í fjar-
fundabúnaði frá Vest-
fjörðum.“
Nútímatækni
Stofnað hefur verið áBlönduósi Textíl-setur Íslands. Páll
Pétursson fyrrverandi al-
þingismaður og ráðherra
var aðalhvatamaður að
stofnun setursins. Á
stofnfundinum afhenti
hann formanni stjórnar,
Jónu Fanneyju Friðriks-
dóttur bæjarstjóra, pen-
ingagjöf frá systkinunum
frá Höllustöðum til minn-
ingar um móður þeirra.
Setrið fékk fleiri gjafir.
Markmiðið er að koma
upp rannsókna- og fræða-
setri á sviði textílrann-
sókna og lista. Stefnt er
að því að skapa fræði-
mönnum og listafólki
starfsaðstöðu og að há-
skólanemar geti stundað
þar vettvangsnám.
Textílsetur stofnað
Jón Ingvar Jónssonyrkir um gleymdarvísur:
Er gekk ég vestur Grandaveg
af gömlum leiðum vana
eina vísu orti ég.
Ekki man ég hana.
Gekk ég niður Gnoðarvog
gneypur mjög og þagði
góða vísu gerði og
gleymdi henni að bragði.
Sigurður Sigurðarson
sendi fyrripart til Stein-
dórs Andersens á fundi
Iðunnar:
Steindór hér með stirnað bros
stendur í honum vísan.
Steindór svaraði:
Í hans kjafti er úldið tros
eða frosin ýsa.
Og Bjargey Arnórs-
dóttir ræður heilt:
Það að drekka dug frá sér
dæmist ekki mátinn,
þú veist ekki hvers virði er
að vera hress og státinn.
Gleymdar vísur
pebl@mbl.is
Húsavík | Mikill floti fugla eða um það bil
60 hrafnar og 170 til 200 mávar höfðu nóg
æti í svokölluðum gorgryfjum sem eru í
landi jarðarinnar Saltvíkur sunnan Húsa-
víkur dag einn í vikunni þegar fréttaritari
var þar á ferð. Fuglarnir rifu í sig kjöt-
flyksur af úrbeinuðum kindaskrokkum. Í
vetur hefur verið mikill mávur á svæðinu
sem og hrafnar og er ljóst að oft kemst
fuglinn í eitthvað matarkyns.
Bændur í Þingeyjarsýslu hafa á undan-
förnum árum ekki alltaf verið ánægðir með
það hvernig að urðun úrgangs er staðið í
Húsavíkurbæ og ljóst að vargfuglinn hefur
úr ýmsu að moða á svæðinu. Menn er að
velta fyrir sér hvers vegna ekki sé grafið
yfir þetta jafnóðum sem skiptir mjög miklu
máli.
Ljóst er að fuglar sem þessir geta borið
með sér ýmsar gerðir af salmonellu sem og
listeríu sem er mjög hættuleg og ýmislegt
fleira. Þess má einnig geta að refir hafa
sést leggja leið sína að gorgryfjunum til
þess að draga björg í bú.
Urðun úr-
gangs ábóta-
vant á Húsavík
Óþrif Beinahrúgan í Saltvíkurgryfjum.
Suðurnes | Tvær konur voru kjörnar í
stjórn Hitaveitu Suðurnesja hf. (HS) á að-
alfundi fyrirtækisins sem haldinn var í
Eldborg í Svartsengi í fyrradag. Ellert Ei-
ríksson var endurkjörinn formaður.
Þrír nýir fulltrúar voru kjörnir í stjórn.
Það eru Sigmar Eðvarðsson, formaður
bæjarráðs Grindavíkur, sem kemur í
stjórnina í stað Ómars Jónssonar, fyrrver-
andi bæjarfulltrúa í Grindavík. Ómar sat í
stjórninni í tólf ár og var tvívegis formað-
ur. Ólöf K. Sveinsdóttir úr Keflavík var
kosinn í stjórn sem fulltrúi iðnaðarráð-
herra og Elsa Valgeirsdóttir, bæjarfulltrúi
í Vestmannaeyjum, er einnig nýr fulltrúi í
stjórn. Fyrir eru fulltrúar Reykjanesbæj-
ar, þeir Ellert Eiríksson, Árni Sigfússon og
Björn H. Guðbjörnsson, sem og Gunnar
Svavarsson formaður bæjarráðs Hafnar-
fjarðar sem er nú varaformaður stjórnar.
Tvær konur
í stjórn HS hf.
♦♦♦
SEXTÁN ferðamálafrömuðir hafa
lokið hagnýtu námi, ferðaþjón-
ustunáminu „Grannar græða“ þar
sem m.a. er fjallað um samkennd,
samvinnu og samkeppni. Meg-
ináherslan var lögð á að skapa
samkennd og stuðla að samvinnu
meðal samkeppnisfyrirtækja í
ferðaþjónustu með það að mark-
miði að auka rekstrarhagnað.
Einnig var í náminu fjallað um
gæði og fagmennsku innan grein-
arinnar. Þótti námskeiðið takast
vel og unnu þátttakendur mark-
aðsáætlun sem þeir svo kynntu í
lok þess. Kennsla fór fram á þrem-
ur stöðum, fyrsta lotan var á
Húsavík, önnur að Hólum í Hjalta-
dal og sú þriðja og síðasta í Eyja-
firði.
Námslok Ferðamálafrömuðir sem luku námskeiðinu „Grannar græða“.
Grannar græða