Morgunblaðið - 19.03.2005, Qupperneq 26

Morgunblaðið - 19.03.2005, Qupperneq 26
26 LAUGARDAGUR 19. MARS 2005 MORGUNBLAÐIÐ MINNSTAÐUR AKUREYRI SUÐURNES Stuðningur | Fulltrúar tólf hags- munasamtaka hafa sent frá sér ályktun þar sem þeir lýsa yfir fullum stuðningi við ályktun sem samþykkt var í bæjarstjórn Akureyrar. Jafn- framt er tekið undir áskorun bæj- arstjórnar og skorað á fjár- málaráðherra, dómsmálaráðherra og iðnaðarráðherra að beita sér fyrir því að ákvörðun Ríkiskaupa um að taka hinu pólska tilboði verði endur- skoðuð og tryggja að viðgerðir á varðskipunum Ægi og Tý fari fram í íslenskum skipasmíðastöðvum. Að þessari ályktun standa; Ein- ing-Iðja, Björn Snæbjörnsson, Fé- lag byggingamanna, Eyjafirði, Guð- mundur Ómar Guðmundsson, Félag málmiðnaðarmanna, Akureyri, Há- kon Hákonarson, Félag rafverktaka, Norðurlandi, Jóhann Einarsson, Kjölur, stéttarfélag í almannaþjón- ustu, Arna Jakobína Björnsdóttir, Rafvirkjafélag Norðurlands, Helgi Jónsson, Farmanna- og fiskimanna- samband Íslands, Árni Bjarnason, Félag hárgreiðslu og hárskera- meistara, Norðurlandi, Ívar Sig- urharðarson, Félag verslunar- og skrifstofufólks, Akureyri, Úlfhildur Rögnvaldsdóttir, Kaupmannafélag Akureyrar, Ragnar Sverrisson, Meistarafélag byggingamanna, Norðurlandi, Stefán Jónsson, Vél- stjórafélag Íslands, Helgi Laxdal. Íraksstríð | Mótmæli gegn stríðinu og hernáminu í Írak verða í dag, laugardaginn 19. mars, á alþjóð- legum baráttudegi. Safnast verður saman við veitingastaðinn Karólínu í Kaupvangsstræti á Akureyri kl. 14. Ávörp flytja Kristinn H. Gunn- arsson alþingismaður og Steinunn Rögnvaldsdóttir nemi í MA. Skák | Hraðskákmót Akureyrar fer fram í KEA-salnum í Sunnuhlíð á morgun, sunnudaginn 20. mars, og verður sest að tafli kl. 14. Eyjafjarðarsveit | Konur í Kven- félaginu Hjálpinni í Eyjafjarð- arsveit heimsóttu Birgi Guð- mundsson, umdæmisstjóra Vegagerðarinnar á Norðurlandi, í gær og afhentu honum ályktun um vegamál í firðinum, sem sam- þykkt var samhljóða á aðalfundi félagsins nýlega. Áður höfðu kon- urnar afhent sveitarstjórn Eyja- fjarðar ályktunina. Sigríður Bjarnadóttir í Hólsgerði og for- maður kvenfélagsins sagði að að- eins væri bundið slitlag fram að Sólgarði en þar framan við væri vegurinn slæmur beggja vegna árinnar og hefði verið í allan vet- ur. „Það er í lagi að láta vita af ástandinu og við ekki gerum það, hver þá?“ Í ályktuninni er skorað á sveit- arstjórn Eyjafjarðarsveitar og Vegagerð ríkisins að leggja hið fyrsta ríka áherslu á vegabætur frammi í Eyjafirði. „Vegurinn fremra er oft á tíðum erfiður sakir aurs, bleytu og mikilla holumyndana. Umferð er drjúg, bæði vegna þess að fólk er að sækja vinnu utar í fjörðinn, auk umferðar sem tengist búrekstri. Betri vegur eykur ánægju þess sem um fer, fer betur með öll farartæki og eykur umferð ferða- manna um svæðið,“ segir enn fremur í ályktuninni. Kvenfélagskonur benda jafn- framt á að til að staðfesta um- ferðina sé nauðsynlegt að koma upp teljara yfir lengri tíma, t.d. þyngist umferðin um veginn þeg- ar bílar fara að koma af hálend- inu við opnun fjallvega yfir sum- artímann. Kvenfélagið Hjálpin er 90 ára félag, stofnað 25. október 1914. Starfssvæði þess er hinn gamli Saurbæjarhreppur, fremst í Eyjafirði. Allir eru þó velkomn- ir að starfa í félaginu, óháð bú- setu. Félagar eru 24 og eru þeir búsettir víða í Eyjafjarðarsveit og á Akureyri. Morgunblaðið/Kristján Kvenfélagskonur Sigríður Bjarnadóttir, formaður Kvenfélagsins Hjálp- arinnar, afhenti Birgi Guðmundssyni, umdæmisstjóra Vegagerðarinnar, áskorunina. Birgir tók vel á móti hópnum og bauð upp á kaffi og súkkulaði. Kvenfélagskonur óska úrbóta í vegamálum RÍKISKAUP segja, að það sé ekki hlutverk stofnunarinnar að taka afstöðu til eða hafa skoðun á póli- tískum álitaefnum, eins og hvort verk skuli unnin innanlands eða utan. Ríkiskaupum beri einfald- lega að fara að lögum eins og þau hafa gert í einu og öllu í útboði á endurbótum á varðskipunum Ægi og Tý. Farið að lögum Ríkiskaup benda á að Landhelg- isgæslan hafi mikla reynslu af að sigla skipum sínum til Póllands og halda þar uppi eftirliti við fram- kvæmdir og hafi verið stuðst við útreikninga þeirra. Þegar kostnaði upp á tæpar 6 milljónir króna fyrir flutning skip- anna til Póllands hafi verið bætt við lægsta tilboð muni enn 8 millj- ónum króna á því tilboð og tilboði Slippstöðvarinnar. Það sé líka kostnaður fyrir Gæsluna að halda uppi mannskap við eftirlit á Ak- ureyri og að sá kostnaður sé ekki lægri hér en í Póllandi. Samkvæmt lögum um opinber útboð er það eitt af hlutverkum Ríkiskaupa að láta í té aðstoð og leiðbeiningar við framkvæmd út- boða hjá stofnunum og fyrirtækj- um ríkisins. Við framkvæmd út- boða láta Ríkiskaup í té sérþekkingu á viðskipta- og laga- hlið útboðanna en ákvörðun um út- boð, framsetning tæknilegra krafna til bjóðenda og setning annarra skilyrða er hins vegar á forræði og ábyrgð þeirrar stofn- unar, í þessu tilfelli Landhelgis- gæslunnar, sem kaupir viðkomandi vöru, verk eða þjónustu. Þessi skilyrði eru ráðandi um niðurstöðu útboðsins, segir í fréttatilkynningu Ríkiskaupa. Engar athugasemdir Við gerð útboðsgagna var talið eðlilegt að gefa tilboðum bjóðenda með ISO vottun sérstakt vægi til þess m.a. að tryggja gæði hjá þeim aðilum sem hugsanlega bjóða í verkið en ISO vottun er óumdeil- anlegur alþjóðlegur gæðastaðall sem m.a. Samtök iðnaðarins hafa barist fyrir að íslensk iðnfyrirtæki taki upp hjá sér. Þá benda Ríkiskaup á að í út- boðsferlinu öllu hafi aldrei komið fram athugasemdir frá bjóðendum varðandi þær forsendur sem styðj- ast átti við við úrvinnslu tilboða og komu fram í útboðsgögnum. Ríkiskaup um útboð vegna varðskipa Munar enn átta milljónum króna á tilboðunum Landhelgisgæslan hefur mikla reynslu af framkvæmdum í Póllandi       Vakin er athygli á nýlegri samþykkt umhverfisráðs, sem kveður á um að frá og með 1. apríl nk. verði byggingar- frestir skv. 5. gr. í almennum byggingarskilmálum ekki framlengdir. Sjá nánar: http://www.akureyri.is/stjornkerfid/reglur sam- thykktir/byggingamal/byggingarskilmálar Skipulags- og byggingarfulltrúi. Orðsending frá skipulags- og byggingarfulltrúa Reykjanes | Orkuverið Jörð er heiti orkusýningar sem lögð hafa verið drög að í stöðvarhúsi Reykjanes- virkjunar sem verið er að reisa. Hönnuðir sýningarinnar kynntu hugmyndir sínar á aðalfundi Hita- veitu Suðurnesja í Svartsengi í fyrradag en ákvarðanir hafa ekki verið teknar um að ráðast í verk- efnið. Reykjanesvirkjun tekur til starfa á næsta ári og hefur raforkusölu til Norðuráls á Grundartanga 1. maí. Í stöðvarhúsi hennar er gert ráð fyrir aðstöðu til að taka á móti ferðafólki, fræðsluferðaaðstaða, eins og Albert Albertsson, aðstoðarforstjóri Hita- veitu Suðurnesja, orðaði það þegar hann kynnti fyrst hugmyndir um notkun rýmisins á ferðamálaráð- stefnu fyrir nokkru. Fyrirtækið Gagn og gaman hefur nú í hálft ár unnið að þróun sýn- ingar um orkuna í samvinnu við stjórnendur Hitaveitunnar. Að því standa List og saga og enska fyr- irtækið Janvs International Ltd. Björn G. Björnsson hönnunarstjóri hjá List og sögu hefur lengi hannað sýningar. Hann kynntist stjórn- endum enska fyrirtækisins fyrir fá- einum árum en þeir hafa unnið að fjölda sýninga, meðal annars hinu þekkta víkingasetri í York á Eng- landi. „Við vorum að velta því fyrir okkur hvað við gætum gert í sam- einingu hér á landi og langaði að gera eitthvað stórfenglegt. Ég var með hugann við söguna en þeir höfðu mestan áhuga á að vinna með náttúruna. Við vorum að henda á milli okkar hugmyndum að stórum verkefnum,“ segir Björn. Í nóv- ember kynntu þeir hugmyndir um orkusýningu og stofnuðu samstarfs- fyrirtækið. Hugsanleg orkusýning í Reykjanesvirkjun er afrakstur þess starfs. Björn segir að hugmyndin hafi í upphafi verið mun þrengri og mið- ast við að sýna jarðfræðina og starf- semi virkjunarinnar en þróast út í það að sýna orkuna í sem víðtæk- ustu samhengi, Orkuverið Jörð. Sýningin mun hefjast fyrir utan orkuverið, til að kynna sýninguna sjálfa og leiða gesti að henni. Við bílastæðin er ætlunin að setja upp líkan af sólinni en það verður þrír metrar í þvermál, upphitað. Út frá sólinni verður sólkerfið sett upp í réttum hlutföllum og gangstígar gerðir til innri pláneta kerfisins. Þannig verður jörðin álíka stór og borðtenniskúla og fjarlægasta stjarnan, Plútó, verður að líkindum nærri Bláa lóninu svo dæmi séu tek- in. Upplýsingar verða við sólarlík- anið og pláneturnar. Gagnvirkur búnaður Í móttökusal orkuversins verður reynt að útskýra á gagnvirkan hátt fyrstu sekúnduna í sköpun alheims- ins, Miklahvell, og þar með uppruna orkunnar. Í aðal sýningarrýminu, á annarri hæð gestahússins, verður sagt frá orkunni frá mörgum sjónarhornum. Björn G. Björnsson segir að sýn- ingin verði að mestu byggð upp á gagnvirkum búnaði þar sem gestir geti sjálfir prófað sig áfram til að komast að margvíslegum fróðleik. Segir hann að erlendu samstarfs- aðilarnir hafi mikla kunnáttu og reynslu á því sviði sem muni nýtast vel í þessu verkefni. Segja má að sýningin, sem hófst með Miklahvelli, ljúki með því að fólki gefst kostur á að líta yfir véla- sal virkjunarinnar og sjá hvað þar fer fram og verði jafnframt vakið til umhugsunar um framtíðina í orku- málum. Björn G. Björnsson, Simon I. Hill og Jonothan Potter kynntu vinnu sína á fundinum í fyrradag. Fram kom að hönnun og uppsetning sýn- ingarinnar muni kosta 125 milljónir kr. Stjórn Hitaveitu Suðurnesja hef- ur ekki ákveðið hvort í verkefnið verður ráðist. Sýning um Mikla- hvell og orkuna Sólkerfið Líkan af sólinni hefur verið sett inn á teikningu af útliti stöðv- arhússins. Gestamóttakan verður í hliðarhúsi orkuversins. Morgunblaðið/Helgi Bjarnason Miklihvellur Björn G. Björnsson og Simon I. Hill kynna hugmyndir sínar að orkusýningu í Reykjanesvirkjun.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.