Morgunblaðið - 19.03.2005, Qupperneq 36
36 LAUGARDAGUR 19. MARS 2005 MORGUNBLAÐIÐ
ÚR VESTURHEIMI
M
ikill kraftur einkenn-
ir þetta rúmlega 500
manna félag sem er
með aðsetur í Van-
couver. Fyrir um 15
árum eignaðist það sitt eigið hús-
næði, Hús Íslands (Iceland House),
þar sem er íslenskt bókasafn og her-
bergi í útleigu.
Félagið heldur úti viðamikilli
starfsemi. Í Húsi Íslands geta fé-
lagsmenn fengið aðstoð við að kanna
upprunann í sérstöku ættfræðisetri
og boðið er upp á íslenskukennslu.
Félagið gefur út átta síðna frétta-
bréf 10 sinnum á ári og fá fé-
lagsmenn það sent í pósti. Sérstakar
veislur eru haldnar í tengslum við ís-
lenska hátíðisdaga og önnur tæki-
færi. „Um 130 manns sækja þorra-
blótið okkar, eitthvað fleiri koma á
sumarhátíðina, sem við höldum sam-
eiginlega með félaginu í Blaine í
Washingtonríki, og örlítið færri á
barnajólaballið,“ segir Irene Finn-
son, formaður félagsins.
Lestrarfélagið Ingólfur var stofn-
að í Vancouver 1908. 1946 samein-
aðist það félaginu Ísafold og var
nýja félagið nefnt Ströndin. 1967 var
nafninu breytt í Íslensk kanadíska
félagið í Bresku Kólumbíu (ICCBC).
Markmið félagsins er meðal annars
að efla áhuga á íslenskri menningu
og íslenskum hefðum, að vekja at-
hygli á íslenskum hátíðisdögum og
taka á móti gestum frá öðrum svæð-
um í Norður-Ameríku og frá Íslandi.
,,Félagsmenn koma víða að og fé-
lagsstarfið er öflugt,“ segir Irene.
,,Þetta er eins og að hafa eignast
aðra fjölskyldu,“ bætir hún við, en
Irene var áður formaður 1989 til
1991.
Irene er frá Víðir í Manitoba en
hefur búið í Bresku Kólumbíu síðan
1971. Hún segir að það sé mun erf-
iðara að fylgjast með „íslenskum“
málefnum í BC en í Manitoba. ,,Þeg-
ar ég bjó í Manitoba bjó ég í „ís-
lensku“ umhverfi og komst ekki hjá
því að heyra um málefni líðandi
stundar. Þar fór ekkert framhjá
manni en hérna er eiginlega nauð-
synlegt að vera meðlimur í félaginu
til að vita hvað er að gerast hverju
sinni. Þegar ég var að ala upp börn-
in var enginn tími til að standa í fé-
lagsstarfi. Á stundum fannst mér ég
vera mjög einangruð og það var sem
himnasending þegar ég var fyrst
beðin um að koma í stjórnina. Ég
hef hitt margt áhugavert fólk í félag-
inu og hér ríkir mjög gott andrúms-
loft.“
Þjónusta á íslensku
Ritari félagsins er Gerri McDon-
ald, fyrrverandi formaður. Hún kom
ættfræðiþjónustunni á laggirnar
2003 og hefur haldið utan um það
síðan. ,,Það er mikill ættfræðiáhugi í
félaginu og það er ánægjulegt að
geta aðstoðað fólk við að afla sér
upplýsinga um upprunann,“ segir
hún.
Ættfræðiáhugi Norður-
Ameríkumanna af íslenskum ættum
virðist mikill um þessar mundir.
Gerri segir að áhugamenn um þessi
efni séu í reglulegu sambandi og
skiptist á upplýsingum. ,,Ættfræðin
er áhugamál margra og Netið hefur
auðveldað alla upplýsingaleit,“ segir
hún.
Þeim fer fækkandi sem tala reip-
rennandi íslensku í Vesturheimi en
málið þvælist ekki fyrir Gerri. ,,Ég
bjó á Íslandi 1973 til 1977, var stúd-
ent við Háskóla Íslands og lærði þá
málið,“ segir hún og bætir við að
ættfræðiáhuginn hafi vaknað þegar
hún fór fyrst til Íslands. ,,Ég vildi
afla mér upplýsinga um ömmu mína,
Halldóru Jónsdóttur, sem flutti til
Kanada fimm ára gömul. Eftir því
sem ég lærði meira vildi ég vita
meira og þannig hefur þetta hlaðið
utan á sig.“
Gerri starfar hjá útlendingaeft-
irlitinu og vann lengi við vegabréfa-
skoðun. ,,Íslendingar voru hissa
þegar ég spurði þá á íslensku. Þeir
svöruðu mér þegar á íslensku en síð-
an kom þessi undarlegi svipur. Þeir
áttu ekki von á því að fá afgreiðslu á
þeirra eigin máli en það hentaði fólki
sem ekki kunni ensku.“
Íslenskara en á Íslandi
Erlendur Óli Leifsson flutti frá
Íslandi til BC 1956 og hefur verið öt-
ull liðsmaður félagsins síðan. Hann
er heiðursfélagi INL og stjórn-
armaður í ICCBC en undir hann
heyra meðal annars störf í þágu
Húss Íslands og Hafnar, íslensks
dvalarheimilis aldraðra í Vancouver.
,,Mér hefur alltaf liðið vel innan um
Íslendinga og á meðal fólks af ís-
lenskum ættum,“ segir Óli. ,,Ég er
hluti af félaginu hérna og það hefur
verið sérstaklega áhugavert að hitta
karla og konur af annarri og þriðju
kynslóð Kanadamanna af íslenskum
ættum, fólk sem hefur flutt hingað
frá Manitoba. Þetta fólk er ís-
lenskara en margir vinir mínir á Ís-
landi.“
Fjölmennasta
deildin í Þjóð-
ræknisfélaginu
Morgunblaðið/Steinþór
Erlendur Óli Leifsson fyrir utan Hús Íslands í Vancouver.
Irene Finnson, formaður Íslensk kanadíska félagsins í
Bresku Kólumbíu.
Gerri McDonald blaðar í ættfræðibók í Húsi Íslands í
Vancouver.
Kanadamenn af íslenskum ættum eru hvergi fleiri
en í Manitoba. Fjölmennasta deild Þjóðrækn-
isfélags Íslendinga í Norður-Ameríku er hins vegar
í Bresku Kólumbíu. Steinþór Guðbjartsson kynnti
sér málið í Vancouver.
steg@mbl.is
ROBERT Ásgeirsson er að mestu
hættur launaðri vinnu en hefur
samt nóg að gera í þágu íslensk-
kanadíska samfélagsins vestra.
Hann er meðal annars vefstjóri
Þjóðræknisfélagsins í Norður-
Ameríku, safnvörður íslenska
skjalasafnsins í Bresku Kólumbíu
og sér um netútvarpsstöðina
Ströndin Internet Radio frá heimili
sínu í White Rock.
Eins og margir aðrir flutti Ro-
bert frá Manitoba til vesturstrand-
arinnar. Hann fæddist í Winnipeg,
en foreldrar hans voru Jochum og
Ingibjörg Lillian Ásgeirsson. Faðir
hans fæddist á Arngerðareyri við
Ísafjarðardjúp en móðir hans var
frá Víðir í Manitoba. ,,Eftir að hafa
unnið hjá sjónvarpsstöðinni CTV í
Winnipeg í fimm ár 1969 stóð valið
um að fara til Toronto eða
Vancouver og ég valdi Vancouver
sem sagt var að yrði Hollywood
norðursins,“ segir hann.
Fljótlega eftir komuna til Van-
couver gekk Robert í Íslensk kan-
adíska félagið í BC, sá um frétta-
blaðið og var þrisvar formaður,
samtals í átta ár.
Fyrir um 20 árum skipulagði
hann íslenskt skjalasafn í Vancou-
ver og hefur séð um það síðan, en
safnið hefur að geyma aragrúa
mynda, bréfa og ýmis gögn um fólk
af íslenskum ættum í BC. ,,Þetta
byrjaði sem söfnun gagna vegna
heimildarmyndar sem ég vildi gera
um Nýja Ísland í Manitoba skömmu
eftir að ég flutti til BC og varð að
þessu safni sem varðveitir sögu
fólks af íslenskum ættum hér við
vesturströndina,“ segir Robert.
Í fyrrasumar hleypti Robert net-
útvarpsstöðinni Ströndin Internet
Radio (www.pennan.ca/SIR/) af
stokkunum. Hann sé um dagskrána
og Gus Kristjansson, kunnur út-
varpsmaður vestra á eftirlaunum,
aðstoðar við kynningu og ýmsir
leggja hönd á plóg varðandi efni.
,,Útvarpið er í beinu framhaldi af
safninu og kemur efninu áfram,“
segir Robert.
Á næst ári gerir Robert ráð fyrir
að minnka við sig vinnu. Þá hyggst
hann hætta sem vefstjóri Þjóðrækn-
isfélagsins, en hann hefur séð um
vef félagsins (www.inlofna.org/)
frá byrjun eða síðan 1996. ,,Hug-
myndin var að allar deildir INL
kæmu sér upp vefsíðu og það hefur
gengið svo vel að ég get hætt með
góðri samvisku,“ segir þessi önnum
kafni eftirlaunamaður.
Safnvörður,
vefstjóri og
útvarpsstjóri
Morgunblaðið/Steinþór
Robert Ásgeirsson í skjalasafninu í
Húsi Íslands í Vancouver.
20
05
fia› er vor í lofti í Flugstö› Leifs Eiríkssonar.
Dagana frá 15. til 28. mars ver›a verslanir á
svæ›inu me› spennandi tilbo› á ‡msum vörum.
Allir farflegar, sem mæta í innritun fyrir kl. 6
a› morgni, fá páskagjöf og njóta sértilbo›a í
verslunum flugstö›varinnar.
– sérstakur gla›ningur fyrir árrisula
tilbo›sdagarí Leifsstö›
fieim sem mæta á einkabílum fyrir kl. 6 b‡›st a› geyma bílinn
frítt í tvo sólarhringa á bílastæ›i Securitas.
fieir sem taka rútu Kynnisfer›a kl. 5.00 fá 15% afslátt.
Páskagjöfin er afhent í innritunarsal
og í afgrei›slu Securitas á bílastæ›um.
Athugi› a› innritun hefst kl. 5.00.