Morgunblaðið - 19.03.2005, Síða 40
40 LAUGARDAGUR 19. MARS 2005 MORGUNBLAÐIÐ
UMRÆÐAN
RICHARD M. Scruchy, stjórn-
arformaður og eigandi Health
South, gengur um með staðsetning-
artæki fast um ökklann.
Honum var nýlega sleppt úr fang-
elsi á reynslulausn
gegn milljóna króna
tryggingargjaldi.
„Það er liðin tíð að
þessir gæjar komist
undan. Þeir hafa
stundað alvarlegar
bókhaldsfalsanir um
langa hríð, en nú er því
lokið,“ segir Lawence
Michell, prófessor í
George Washington-
lögfræðiháskólanum.
„Ef menn stunda bók-
haldsglæpi eiga þeir
heima í fangelsi.“
Bandarísk stjórnvöld hafa tekið á
afbrotum viðskiptalífsins af hörku
með nýju og áhrifameira eftirliti.
Hraði viðskiptalífsins, arðsem-
iskröfur og rafræn viðskipti kalla á
hratt og skilvirkt eftirlit eins og
stjórnvöld í Bandaríkjunum sanna.
Fjórtán fyrrum forstjórar stórfyr-
irtækisins Health South hafa játað
sig seka og vinna núna með ákæru-
valdinu. Fjölmiðlar segja ákærurnar
í líkingu við Enron, WorldCom og
Tyco og að forstjórinn eigi ekki eftir
að getað sannað sakleysi sitt.
Síðan FBI fór inn í höfðustöðv-
arnar í mars í fyrra hafa fundist fald-
ar skuldir upp á 3 billjónir dollara.
Scrushy var rekinn strax úr fyr-
irtækinu eftir handtökuna, af minni
hluthöfum, og neitað um aðgang að
fundum og fundargögnum. Hinn 5.
janúar sl. ákvað dómstóllinn í Birm-
ingham Alabama að fangelsa einn yf-
irmann Health South og halda hon-
um í fimm mánaði og fjórir aðrir
fengu líka dóm strax þrátt fyrir að
rannsókn málsins standi enn yfir.
Alvarlegar ákærur eru einnig á
hendur fjárfestingarbanka félagsins
og endurskoðendum þess auk 15 lyk-
ilstarfsmanna.
Stjórnarformaðurinn hefur verið
ákærður fyrir 85 glæpsamlegar að-
ferðir í viðskiptum.
UBS-bankinn, banki fyrirtæk-
isins, stóð fyrir hlutabréfaútboði fyr-
irtækisins, en áður hafði endurskoð-
andi þess falsað bókhaldið þannig að
tap upp á milljarða var falið. Auk
þess keyptu þeir nýtt fyrirtæki sem
var sprengt upp í verði og efnahagur
móðurfélagsins lagaður.
Þeir keyrðu síðan sjálfir upp verð-
ið á hlutabréfunum í nýja félaginu
áður en tilkynnt var um stöðu félags-
ins á Wall Street.
Persónulegir hags-
munir bankamanna og
endurskoðendanna
voru gríðarlegir og
hljóðuðu upp á millj-
arðatugi.
Lögmenn Scrushy
gáfu út tilkynningu ný-
verið:
„Mr. Scrushy vissi
ekki af þessu fjármála-
svindli sem fyrirtækið
stóð í fyrr en FBI réðst
inn í fyrirtækið síðasta
vor. Þessir glæpir voru
framkvæmdir af fólki
án þess að hann vissi af þeim eða
leiðbeindi þeim um þá.“
Millistjórnendur segja að síðan
1996 hafi hann haft það að markmiði
að stækka fyrirtækið og þenja af ein-
hverjum sérstökum hvötum.
Hann fór að stunda samráð um að
falsa eignir og uppgjör sem og reikn-
inga í bókum félagsins.
Í bókunum má sjá að Scrushy
sjálfur fékk árangurstengd laun og
bónusa í samræmi við logið bókhald
sem og hlutabréf upp á milljarða.
Kaupréttarsamningarnir voru svim-
andi háir þannig að athygli vakti í
fjölmiðlum.
Á nokkrum árum breyttist ímynd
Scrushy úr því að vera brautryðj-
andi á sviði endurhæfingar í að vera
fyrirtækjamógúll og glaumgosi.
Hann samdi við starfsmenn um
hlut í félaginu og fékk þá um leið til
þess að „kokka“ uppgjör til þess að
hlutur þeirra hækkaði í verði. Hann
lét vini sína kaupa bréf á upp-
sprengdu verði til þess eins að fegra
uppgjörið á gríðarlegum taprekstri.
Scrushy á ekki aðeins yfir höfði
sér ákæru fyrir að standa í ólög-
mætum uppgjörum á bókhaldi
fyrirtækisins, samráði, peninga-
þvætti, samsæri, hlerunum á tölvu-
pósti sem og símahlerunum, heldur
hefur hann dregið til sín sjálfur
hlutabréf og eignir upp á milljarða.
Þar á meðal snekkjuna „Chez Soir-
ee“, einkaþotu, skartgripi, Rolls
Royce, Lamborghini, málverk eftir
Picasso, Renoir, Chagall og fleiri.
Hann á yfir höfði sér milljarða
sektir sem og 650 ár í fangelsi, að
auki verða persónulegar eigur hans
gerðar upptækar.
Ný hert lög
Ný lög í Bandaríkjunum krefjast
þess að stjórnarformenn fyrirtækja
skrifi undir yfirlýsingu þess eðlis að
þeir persónulega samþykki uppgjör
og áætlanir fyrirtækjanna og að þeir
um leið staðfesti lögmæti bókhalds-
gagna.
Þannig eru þeir sjálfir í ábyrgð
fyrir því að ekki sé verið að „kokka“
bókhald og kynna þannig vænt-
anlegum hluthöfum upplogna og
falsaða mynd af rekstrinum.
Falsanir í bókhaldi þeirra fyr-
irtækja sem hafa verið dæmd eru
fyrst og fremst upplognar tekjur til
þess að sýna meiri hagnað og þá um
leið til þess að auðvelda sölu hluta-
bréfa, og hinsvegar kaup á nýjum
fyrirtækjum til þess að fela bók-
haldsfalsið.
Glæpirnir eru litnir alvarlegum
augum af öllu samfélaginu enda mik-
ið kynntir í fjölmiðlum.
Fjölmiðlar þar í landi eru að vísu á
margra höndum og vald fyrirtækja-
samsteypa og banka gagnvart fjöl-
miðlum er ekki eins mikið og hér á
fákeppnismarkaði.
Aðferðafræðin
Eigur stjórnenda eru frystar um
leið og FBI hefur minnsta grun um
óheiðalega viðskiptahætti.
Rannsókn hefst ef hlutabréf
hækka óeðlilega mikið á skömmum
tíma, grunur leikur á innherja-
viðskiptum og ef ákæruvaldinu ber-
ast einhver haldbær gögn um svindl.
Í flestum tilfellum fjármálasvika
síðustu ára er mönnum haldið í fang-
elsi meðan á grunnrannsókn stendur
og þá um leið settir úr yfirstjórn fyr-
irtækjanna. Eru þeir þannig lamaðir
í að koma eigum sínum úr landi eða í
hendur vina og vandamanna.
Stjórnvöld eru tilbúin að taka á sig
kröfu vegna mála þar sem stjórn-
endur reynast saklausir. Sýknun á
sér stað í afar fáum málum.
„Ef menn stunda
bókhaldsglæpi …“
Jónína Benediktsdóttir fjallar
um bókhaldsfalsanir
’Í flestum tilfellum fjár-málasvika síðustu ára er
mönnum haldið í fang-
elsi meðan á grunnrann-
sókn stendur og þá um
leið settir úr yfirstjórn
fyrirtækjanna.‘
Jónína Benediktsdóttir
Höfundur er framkvæmdastjóri FÍA.
RÁÐNING fréttastjóra á Rík-
isútvarpinu er ekki mál sem er lík-
legt til að velta þungu hlassi, eða
hvað? Eftir því sem útvarpsstjóri
upplýsti í Kastljósi RÚV á mánu-
dagskvöldið þá þarf sá sem gegnir
stöðu fréttastjóra að hafa verið
sölumaður helst sem lengst frá
skerinu til að falla vel að þessu
starfi. Miðaldra fólk sem enn er
svo vitlaust að hafa ekki látið
kaupa sig frá útvarpinu er á engan
hátt gjaldgengt til stjórnunar-
starfa. Enda ekki beinlínis merki
um mikinn þroska að vinna enn
hjá þessari stofnun. Þótt svona af
tilviljun sé viðkomandi staða köll-
uð staða fréttastjóra þá er það
misskilningur að umræddur stjóri
eigi að stjórna einhverju. Það er
Bogi sem á að stjórna nema nátt-
úrlega ekki því sem hann hefur
ekki vit á eins og því hvort einhver
sé hæfur til að sinna starfi frétta-
stjóra, enda starf fréttastjóra
starf sem hvorki á skylt við fréttir
eða stjórnun.
Einhvern veginn svona hljóm-
aði málsvörn Markúsar Arnar
Antonssonar í Kastljósinu. Ég
trúði ekki orði af því sem hann
sagði. Ég sá aðeins embættis-
mann sem í krafti valds ætlar að
þvinga fram ósanngjarna og
óréttláta ákvörðun. Það rann upp
fyrir mér að líklega væri orðið
tímabært að skipta um stjórnend-
ur í landinu. Útvarpsstjórinn er
persónugervingur valdhrokans
sem er orðinn allsráðandi.
Kannski er hann litla þúfan sem
veltir þunga hlassinu. Það hefur
þá gerst fyrr í íslenskum stjórn-
málum.
Hrafnkell A. Jónsson
Þúfan og hlassið
Höfundur er héraðsbókavörður
á Egilsstöðum.
MIKIÐ hefur verið fjallað um
framtíð Þjórsárvera síðustu mánuði
og ár. Víðtæk andstaða
hefur verið við fyr-
irhugaðar fram-
kvæmdir við gerð
Norðlingaölduveitu.
Enn á ný er vegið að
verunum og nú liggja
fyrir skipulagstillögur
sem myndu skerða
verðmæti svæðisins
verulega.
Þjórsárver liggja
suður af Hofsjökli og
eru eitt víðáttumesta
og fjölbreyttasta gróð-
ursvæði á hálendi Ís-
lands. Þýðing Þjórs-
árvera í náttúru Íslands og raunar
alls heimsins er mikil, enda eru
Þjórsárver á Ramsarskrá, sem er al-
þjóðlegur samningur um nátt-
úruvernd og gildir um votlendi sem
hafa alþjóðlegt mikilvægi, aðallega
fyrir vatnafugla. Þjórsárver fóstr-
uðu Fjalla-Eyvind forðum og þar er
eitt mesta heiðagæsavarp í heimi.
Saga þjóðarinnar er samofin okk-
ur, það má ekki slíta úr samhengi
sögu þjóðarinnar og náttúru lands-
ins. Hvers virði er sagan ef búið er
að raska og skemma helstu nátt-
úruperlur þessa lands? Við sem eldri
erum kennum börnum okkar Ís-
landssöguna og að þau eigi að gæta
náttúrunnar og ganga vel um.
Hvernig fyrirmyndir
erum við ef engar
ósnortnar nátt-
úruperlur eru eftir á
hálendi Íslands?
Við þekkjum afleið-
ingarnar, við vitum að
skemmdirnar eru óaft-
urkræfar, okkur ber
skylda til að gæta hags-
muna náttúru landsins
rétt eins og við gætum
og verndum börnin
okkar, því þeirra er
framtíðin.
Það er stutt síðan
það þótti óhugsandi að
framleiða þá orku sem til þarf í stór-
iðju á suðvesturhorninu nema með
gerð Norðlingaölduveitu. Síðan hef-
ur komið á daginn að orkunnar mátti
afla með gufuaflsvirkjun. Því er
þessi knýjandi þörf ekki lengur til
staðar.
Ef til vill verður ekki þörf fyrir
þessa orku í framtíðinni því í ljósi
örrar þróunar á þessu sviði er líklegt
að orkumál verði leyst á umhverf-
isvænni hátt en að sökkva heilu
landsvæðunum undir vatn. Það er
því mín skoðun að Þjórsárver eigi að
fá að njóta vafans og falla eigi frá öll-
um áformum um meiri fram-
kvæmdir á svæðinu.
Ég skora á hlutaðeigandi aðila að
hætta þegar í stað við öll áform um
gerð Norðlingaölduveitu, og skapa
með því þá sátt sem þarf til að hægt
sé að vinna að stækkun friðlandsins í
Þjórsárverum og þar með renna
stoðum undir umsókn um að koma
Þjórsárverum á heimsminjaskrá.
Ég hvet stjórnvöld, sveitarstjórn
og náttúruverndarsamtök til að taka
höndum saman og vinna í samein-
ingu að verndun Þjórsárvera til
framtíðar.
Og síðast en ekki síst vil ég hvetja
almenning til að láta sig málið varða,
við berum öll sameiginlega ábyrgð á
því hvernig farið er með náttúru
landsins.
Verndum Þjórsárver
Kolbrún Haraldsdóttir fjallar
um náttúruvernd ’Ég skora á hlutaðeig-andi aðila að hætta þeg-
ar í stað við öll áform
um gerð Norðlingaöldu-
veitu …‘
Kolbrún
Haraldsdóttir
Höfundur er búfræðingur, nemi á
þroskaþjálfabraut KHÍ og í Áhuga-
hópi um verndun Þjórsárvera.
FÉLAGSÞJÓNUSTA sveitarfé-
laga er einn af hornsteinum vel-
ferðar hér á landi. Stundum er
henni líkt við örygg-
isnet sem styður fólk
þegar það stendur
ekki traustum fótum
í lífinu. Það er því
einkar ánægjulegt að
geta greint frá því að
nýleg könnun meðal
notenda á þremur
borgarhlutaskrif-
stofum Félagsþjón-
ustunnar (Velferð-
arsviðs) í Reykjavík
sýnir að mikil ánægja
er með þá þjónustu
sem þar er veitt.
Niðurstaðan er sú að
78% notenda sögðust
vera ánægð með
þjónustuna hjá Fé-
lagsþjónustunni og
um 80% svarenda
voru ánægð með við-
mót starfsfólks. Tæp-
lega 10% voru
óánægð í báðum til-
vikum. Í þessari
könnun voru fleiri
ánægðir en þegar
sambærilegar kann-
anir voru gerðar árin
1998 og 2000.
Gegn fordómum
Það eru fleiri já-
kvæðar fréttir úr
þessum geira, því ný-
verið fékk Fé-
lagsþjónustan við-
urkenningu frá Alþjóðahúsi fyrir
metnaðarfulla starfsmannastefnu
um málefni innflytjenda.
Í könnun sem gerð var kom
fram að þeir starfsmenn sem eru
af erlendum uppruna og vinna hjá
Félagsþjónustunni eru tiltölulega
ánægðir og ánægðari með sína
stofnun nú en þeir voru fyrir
nokkrum árum.
Það er vegna þess að Fé-
lagsþjónustan hefur sett sér
starfsmannastefnu, sem meðal
annars felur það í sér að erlendir
starfsmenn auki færni sína í ís-
lensku, lögð er áhersla á að efla
menningarlæsi starfsmanna á
báða bóga og vinna gegn for-
dómum og vanþekkingu.
Þetta á bæði við um fræðslu til
starfsmanna Félagsþjónustunnar
af erlendum uppruna og útlenda
notendur þjónustunnar. Starfs-
menn Félagsþjónustunnar eru
tæplega þúsund og er um tíundi
hluti af erlendum uppruna.
Jöfnuður og velferð í öndvegi
Það er markmið Reykjavík-
urlistans að í borginni dafni þrótt-
mikið samfélag þar
sem jöfnuður og vel-
ferð borgarbúa er í
öndvegi. Við viljum
hafa lífsgæði í fyr-
irrúmi með atvinnu-
stefnu, menntastefnu
og þjónustu af ýmsu
tagi, einkum fyrir
yngstu og elstu borg-
arbúana. Við viljum
jafnframt taka vel á
móti því fólki sem vill
flytjast til borg-
arinnar, hvort sem
það kemur úr öðrum
sveitarfélögum eða frá
útlöndum. Hafa ber í
huga að um fjórtán
þúsund heimili, um
fimmtungur borg-
arbúa, fá nú árlega
þjónustu af ýmsu tagi
hjá Félagsþjónust-
unni. Ríflega fimm
milljarðar króna eða
um sjötti hluti út-
gjalda borgarinnar fer
í þennan málaflokk.
Flest heimili sem fá
þjónustu þiggja aðstoð
vegna heimaþjónustu,
húsaleigubóta og fjár-
hagsaðstoðar, en önn-
ur aðstoð tengist m.a.
félagsstarfi, félagslegu
húsnæði, ráðgjöf af
ýmsu tagi, inngripum
barnaverndar og lið-
veislu. Þessir þjón-
ustuliðir mynda félagslegt örygg-
isnet í borginni og hjálpa fólki til
sjálfshjálpar eftir því sem unnt er.
Í upplýsingum sem félagsmála-
ráðherra veitti nýlega á Alþingi
eftir fyrirspurn Jóhönnu Sigurð-
ardóttur kom fram að sú þjónusta
sem Reykjavík veitir á þessu sviði
er í vissum greinum mun um-
fangsmeiri en annarra sveitarfé-
laga á höfuðborgarsvæðinu. Það
segir sína sögu um áherslur borg-
arinnar í þessum efnum. Það má
alltaf betur gera og aldrei verður
hægt að gera öllum til hæfis, en
sú viðurkenning sem starfsfólk
Félagsþjónustunnar hefur fengið
frá Alþjóðahúsi og hinar jákvæðu
niðurstöður kannana á þessu sviða
sýna að okkur hefur miðað fram á
við.
Velferðarþjónusta
í Reykjavík
Stefán Jóhann Stefánsson
fjallar um félagsþjónustu
Stefán Jóhann
Stefánsson
’Sú þjónustasem Reykjavík
veitir á þessu
sviði er í vissum
greinum mun
umfangsmeiri
en annarra
sveitarfélaga á
höfuðborgar-
svæðinu. Það
segir sína sögu
um áherslur
borgarinnar í
þessum efnum.‘
Höfundur er fulltrúi í velferðar-
ráði Reykjavíkur.