Morgunblaðið - 19.03.2005, Side 52

Morgunblaðið - 19.03.2005, Side 52
52 LAUGARDAGUR 19. MARS 2005 MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR ✝ Hjalti Þórðarsonfæddist á Reykj- um á Skeiðum 18. mars 1920. Hann lést á hjúkrunarheim- ilinu Ljósheimum á Selfossi laugardag- inn 12. mars síðast- liðinn. Foreldrar hans voru hjónin Guðrún Jónsdóttir, f. í Sandlækjarkoti í Gnúpverjahreppi 19.2. 1879 og Þórður Þorsteinsson, f. á Reykjum á Skeiðum 9.7. 1877, ábúendur á Reykjum á Skeiðum. Systkini Hjalta eru: Margrét, f. 1907, látin, maki Einar Ásgeirsson, látinn; Jón, f. 1909, látinn, maki Laufey Stefánsdóttir, látin; Þorsteinn, f. 1910, látinn, maki Unnur Jó- hannsdóttir, látin; Ingigerður, f. 1912, maki Þorsteinn Bjarnason, látinn; Sigríður, f. 1913; Bjarni, f. 1914, látinn, maki Sigurlaug Sig- urjónsdóttir; Laufey, f. 1915, d. 1916; Vilborg, f. 1916, d. 1919; Laufey Ása, f. 1917, látin; Ey- steinn, f. 1918, d. 1919; Ingvar, látinn, maki Sveinfríður Hersilía Sveinsdóttir; Vilhjálmur, f. 1923, maki Ingibjörg Guð- mundsdóttir. Eiginkona Hjalta er Ingibjörg Jóns- dóttir, f. á Hofi á Eyrarbakka 27.12. 1919. Foreldrar hennar voru hjónin Hansína Ásta Jó- hannsdóttir, f. á Hofi á Eyrarbakka 1902 og Jón B. Stefáns- son, verslunarmað- ur, f. í Merkigarði á Eyrarbakka 1889. Hjalti lauk prófi frá Héraðsskólanum á Laugarvatni með ágætisein- kunn og lærði síðan járnsmíðir bæði hérlendis og í Danmörku. Hann var lengi verkstjóri á járn- smíðaverkstæði Kaupfélags Ár- nesinga og einnig hjá Selfossbæ. Hjalti var mikill tónlistarmaður, spilaði bæði á píanó og harmoníku og tók mikinn þátt í kórastarfi. Hjalti og Ingibjörg bjuggu alla sína búskapartíð á Selfossi en þau héldu upp á 60 ára brúðkaups- afmæli sitt 17. október sl. Útför Hjalta fer fram frá Sel- fosskirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 11. Frændi minn og fóstri, Hjalti Þórðarson, er fallinn frá. Hjalti var kvæntur afasystur minni og nöfnu, Ingibjörgu Jónsdóttur, í rúm 60 ár. Þau hjón voru alla tíð ákaflega sam- rýnd en varð því miður ekki barna auðið. Móðir mín dvaldi þó hjá þeim langdvölum sem barn. Hjalti frændi var að vísu ekki blóðskyldur mér, en ein af mínum uppáhaldspersónum samt. Minning- arnar hrannast upp: Hjalti að vinna en komandi heim í hádeginu til að borða góða matinn hennar Imbu. Hjalti að leggja sig í fimm mínútur í hádeginu. Að hlaða batteríið eins og hann sagði. Hjalti var nefnilega spakur maður, námsmaður í skóla lífsins, eins og hann sagði. Ótrúlega vinnusamur en samt sem áður vel meðvitaður um að allir verða að fá sína hvíld. Listasmiður, einkum á járn. Hann var menntaður járn- smiður og hans stóru og sterku fingur bjuggu til ótrúlegustu lista- verk. Skóhorn og kertastjakar, hlið- ið í Reykjarétt og Strandakirkju. Músíkant af guðs náð. Spilaði á harmonikku og píanó alveg eftir eyranu. Eftirsóttur í veislum og á böllum. Hrókur alls fagnaðar. Hjalti með vindil í bílskúrnum að smíða, Hjalti að spila við mig Marías, Hjalti að lauma til mín Tópas þegar Imba frænka sá ekki til. Minningarnar vekja hjá mér ljúfsárt bros. Hjalti var ekki bara góður og gegn maður, sem helst keypti ekki bensín annar staðar en hjá Essó. Hann var mann- og dýravinur í raun. Ég veit að hann hefði helst viljað vera bóndi. Hann elskaði garðyrku og garður þeirra hjóna á Engjaveginum vann til ýmissa verð- launa. Hjalti hélt kindur langt fram eftir aldri. Sérlegur áhugamaður um liti íslensku sauðkindarinnar; flekkóttar, hálsóttar, botnóttar eða hvað það nú allt heitir. Litirnir voru hans áhugamál. Að ekki sé nú talað um ungviðið, hvort sem þar voru á ferð börn, lömb, folöld eða fuglsung- ar. Fuglavinurinn Hjalti, maríuerlan þín á eftir að sakna vinar í stað í vor. Barnavinurinn Hjalti, alltaf átti ég hjá þér eina kind, alltaf var hún eins á litinn og alltaf hét hún Gibba. Ótrúlega öldruð rolla – eftir á að hyggja sennilega endurnýjuð öðru hvoru. Elskulegi Hjalti frændi minn, með þessum fátæklegu orðum kveð ég þig. Margt hef ég ekki minnst, á eins og óteljandi veiðiferðirnar okk- ar í Veiðivötn. Eða allar bænirnar sem þú kenndi mér. Elsku nafna, mundu að nú er hann Hjalti alheill á himnum, í fylgd með gengnum ást- vinum. Ingibjörg Ingvadóttir. Nú þegar Hjalti er fallinn frá þá rifjast upp góðar minningar frá æsku okkar systkina. Imba frænka systir pabba var í okkar huga Imba og Hjalti og segir það kannski mest um samband þeirra hjóna og hvernig við upp- lifðum það í okkar uppvexti. Imba og Hjalti voru alltaf partur af stórfjölskyldu okkar á Selfossi og reyndar svo mikill partur að við systkinin gengum þar út og inn nán- ast eins og á okkar eigin heimili. Þau bjuggu á Tryggvagötu 16 en við á 22 svo steinsnar var þar á milli. Hjalti var hvers manns hugljúfi og sérstaklega barngóður, aldrei leiddist okkur í návist hans og voru margar stundirnar við skemmtilega hluti og öðruvísi athafnir en við átt- um að venjast. Hjalti spilaði á píanó og nikku og tók gjarnan syrpur fyr- ir okkur krakkana. Tölum nú ekki um stóra grammófóninn sem hann átti og var stofumubla. Plöturnar voru 78 snúninga og þvílík upplifun að fá að þeyta plötur og hlusta á tónlistina en slíkir grammófónar voru ekki á hverju strái. Hjalti hélt lengi kindur á blett- inum hjá sér og eyddum við þar ómældum stundum við heyskap og í að horfa á lömbin. Var Hjalti óþreytandi við að sinna okkur. Við fengum tveir bræðranna tækifæri til að starfa með Hjalta á þeim árum sem hann vann hjá Sel- fossbæ og aftur sannaðist að þar fór góður maður, vandur að virðingu sinni og góður félagi. Hjalti var hagleikssmiður, sér- staklega á járn enda lærður í þeirri iðju og eru þau ófá skóhornin sem við systkinin höfum dreift til að tryggja okkur nothæft skóhorn þar sem við komum. Á seinni árum upplifðum við Hjalta sem heimsmann sem á undan sinni samtíð ferðaðist með Imbu um allan heim og sýndi okkur að lífið er ekki bara streð heldur líka til þess að njóta þess að lifa. Við systkinin vottum Imbu frænku okkar dýpstu samúð og megi góður guð gefa henni styrk til að takast á við þann missi sem hún hefur orðið fyrir og styrkja hana í að endurheimta mátt og heilsu. Blessuð sé minning Hjalta. Jón B., Gísli, Sigmundur, Hansína Ásta, Anna Björg og Dóra Sjöfn Stefánsbörn og fjölskyldur. Hann Hjalti hennar Imbu er dá- inn. Hjalti og Imba móðursystir voru einn af máttarstólpunum í æsku minni. Móðurfjölskylda mín var afar náin og bjó þétt saman á Selfossi. Á meðan ég var lítil stelpa var þetta allt eins og ein stór fjöl- skylda og gaman að vera til. Það er svo margs að minnast úr æskunni en nú virðist svo ósköp langt síðan að Hjalti tók mig með sér í fjárhúsið sitt að gefa rollunum, eða þegar þau Imba fluttu jólatréð sitt fram á mitt stofugólf, svo að við krakkarnir gætum dansað í kring- um það á meðan Hjalti spilaði og söng jólalögin við píanóið. Hús Imbu og Hjalta stóð mér og frændsystkinum mínum alltaf opið og þangað var alltaf gott að koma. Oft sótti ég þangað og var mér alltaf tekið opnum örmum og ef þannig stóð á beið mín uppábúinn dívan og ilmandi kökur með mjólk fyrir svefninn. Mér þótti gott að vera einni með Hjalta og Imbu, þar ríkti friður, samheldni og ró. Hjalta féll aldrei verk úr hendi, hann var lista- smiður og það lék allt í höndunum á honum. Á sumrin blómstruðu blóm- in og trén, alltaf fallegust í garð- inum hjá Imbu og Hjalta. Eftir að ég varð fullorðin var alltaf gott að koma austur á Selfoss og heim- sækja þau. Ég minnist þess sérstaklega nú á þessari kveðjustundu þegar við Ís- leifur heimsóttum Imbu og Hjalta er við vorum á Íslandi fyrir rúmum tveimur árum. Þetta var um jól og okkur var tekið opnum örmum eins og alltaf. Imba lagði mávastellið á borð í borðstofunni og töfraði fram kökur úr stömpum í búrinu. Hjalti sýndi Ísleifi stoltur vinnustofuna sína í skúrnum. Við áttum góða stund saman, rifjuðum upp gamla tíma og spáðum í nýja. Við ræddum trjárækt og grænmetisrækt. Hjalti settist niður við píanóið og spilaði, mér hlýnaði um hjartaræturnar. Það er þessi hlýja og jákvæða lífssýn, elsku Hjalti minn, sem ég vil þakka þér sérstaklega fyrir. Ég trúi því að þú spilir nú himneska tónlist með hinum englunum. Svala Ólafsdóttir. Hann Hjalti föðurbróðir var mik- ill uppáhaldsfrændi. Aðeins var árið á milli hans og pabba, svo nánir voru bræðurnir að þegar rifjaðar voru upp æskuminningarnar sögðu þeir aldrei ég, heldur alltaf við. Þeir þóttu fjörháir, sagt var að heyrst hafi til þeirra upp á Sandlækjarholt þegar mest gekk á. Sögurnar sem þeir sögðu frá bernsku sinni voru krassandi og skemmtilegar. Hjalti flutti ungur á Selfoss og bjó þar allan sinn búskap. Hann fylgdist samt alltaf vel með því sem var að gerast á Reykjum og var gjarnan mættur í bítið þegar eitt- hvað stóð til, glaður og kátur og hvatti fólk til dáða. Hann var sjálf- sagður í allar réttir og smala- mennskur, enda átti hann kindur í mörg ár. Honum var létt um að hjálpa til, hafði gaman af hvers kyns verklegum framkvæmdum og höf- um við sannarlega notið þess systk- inabörn hans. Hjalti var sérlega góður járn- smiður, kertastjakar, skóhorn og fleiri góðir gripir úr smiðju hans prýða mörg heimili. Tónlistin var snar þáttur í lífi Hjalta. Hann fékk tilsögn í orgelspili sem ungur maður og naut þess alla ævi, trúlega hefur varla liðið sá dagur að ekki væri tekið í píanóið. Þegar hann kom í sveitina sópaði hann krakkahrúg- unni að gamla orgelinu hennar ömmu og þandi hljóðfærið og söng þá hver sem betur gat. Hjalti var einstaklega geðgóður maður, aldrei urðum við vör við að hann skipti skapi. Hann var skoð- anafastur en ávallt var grunnt á glettninni og stutt í stríðnina. Þetta varð til þess að oft var tekist á um ýmis málefni og hafði hann gaman af þegar okkur hitnaði í hamsi. Við vorum þó aldrei í vafa um hve annt honum var um okkur. Hjalti giftist henni Imbu sinni, fallegri stúlku frá Eyrarbakka. Þau voru einstaklega glæsileg og sam- rýmd hjón. Þau ferðuðust saman um heiminn og eignuðust í þeim ferðum góða félaga sem þau héldu tryggð við alla tíð. Marga ferðina fóru þau inn á hálendið í veiði og var Hjalti kappsamur við veiðina eins og annað sem hann tók sér fyrir hendur. Hann sagði þó að Imba væri meiri veiðikló. Svo samrýmdir voru þeir pabbi og Hjalti að þeir dóu í sama rúminu úr sama sjúkdómi með stuttu milli- bili. Missir Imbu er mikill og er aðdáunarvert hvernig hún tekur breyttum aðstæðum. Við sjáum á eftir kærum frænda og söknum þess að eiga ekki lengur von á þeim hjónum í sunnudags- heimsókn í sveitina. Við trúum því að pabbi hafi tekið á móti Hjalta bróður sínum, þar hafa orðið fagn- aðarfundir. Við sendum Imbu okkar innileg- ustu samúðarkveðjur. Systkinin frá Reykjahlíð. Síðastliðinn laugardag lést á Sel- fossi Hjalti Þórðarson, Engjavegi 43 þar í bæ. Hann vantaði sex daga upp á að ná 85 ára aldri. Hjalti fæddist á Reykjum á Skeiðum og ólst þar upp, ellefti í röð þrettán systkina. Þrjú þeirra dóu á unga aldri en þau sem til fullorðins- aldurs komust urðu annálað dugn- aðar- og myndarfólk. Eins og geta má nærri ólst Hjalti upp við öll algeng sveitastörf og vandist snemma á hagsýni og vinnu- semi enda enginn hægðarleikur fyr- ir foreldra hans að ala upp stóran barnahóp á kreppuárunum. Sú tíð er nú að mestu gleymd og kemur vonandi aldrei aftur. Hjalti fór til náms í Héraðsskól- ann að Laugarvatni og reyndist framúrskarandi námsmaður. Ég hygg að hugur hans hafi staðið til þess að verða bóndi en örlögin hög- uðu því þannig að hann nam járn- smíði og varð meistari í þeirri grein og verkstjóri við smiðjur Kaup- félags Árnesinga um árabil. Eins og fjölmargir af Reykjaætt var Hjalti hreinn völundur við allt handverk og var hrein unun að fylgjast með honum við vinnu. Mátti með sanni segja að hann var verkglaður, verk- hygginn og vinnusamur svo að af bar. Í heimsóknum til vina og vandamanna átti hann óumbeðinn iðulega til að grípa til nánast allra verka sem hann sá að fyrir lágu, jafnvel í sparifötunum. Þetta gat verið gróðursetning, pípulögn, smíði hvers konar eða bara tiltekt ef ekk- ert annað var á boðstólum. Og það munaði sannarlega um handtökin hans, það fékk ég margoft að reyna. Á Selfossi kynntist Hjalti eftirlif- andi eiginkonu sinni Ingibjörgu Jónsdóttur frá Hofi á Eyrarbakka. Ekki varð þeim hjónum barna auðið en í skjóli þeirra ólst upp að veru- legu leyti bróðurdóttir Ingibjargar, Hansína Ásta Björgvinsdóttir, sem þau tóku að vonum miklu ástfóstri við. Með sanni má segja að þau hjónin voru samrýnd í besta lagi enda yf- irleitt ekki nefnd sitt í hvoru lagi heldur bæði í einu. Ég steig það gæfuspor að ganga að eiga Hansínu Ástu og verða þar með tengdasonur Imbu og Hjalta. Má með sanni segja að þau hjón hafa nánast borið mig og fjölskyldu mína á höndum sér alla tíð. Hjalti Þórðarson var glæsilegur maður, hár vexti, bjartur yfirlitum og hraustur vel. Á yngri árum var hann ágætur íþróttamaður og fáir hygg ég að hafi lagt hann í glímu. Hann var framúrskarandi músík- alskur og lék vel á harmoníku, orgel og píanó. Engin var sú fjölskylduhá- tíð sem talandi var um að Hjalti væri ekki til kvaddur að spila og halda uppi fjöldasöng þegar við átti, sem var oft. Og hann var eftirsóttur til að halda uppi fjörinu á alls kyns mannamótum nánast til hinstu stundar. Ekki má gleyma söng- áhuga hans en hann söng árum saman sem tenór í kórum á Selfossi og hélt sinni björtu rödd alla tíð. Einn er sá þáttur í lífi Imbu og Hjalta sem ekki má verða út undan en það eru fjölmargar ferðir þeirra í Veiðivötn. Þær voru farnar í hart- nær fjörutíu ár og aflabrögð þeirra hjóna voru annáluð. Örnefnið Hjalt- eyri á bakka Nýjavatns segir sína sögu. En það var ekki eingöngu veiði, heldur ekki síður náttúrufeg- urðin og félagsskapurinn í ferðun- um sem heillaði. En nú er síðasta ferð Hjalta að baki. Drjúgu og heillavænlegu ævistarfi er lokið. Glæstar veiðilendur handan við sól og mána bíða hans. Það verður ekki amalegt að hitta hann þar í fyllingu tímans. Ingvi Þorkelsson. Hann Hjalti frændi er dáinn. Hann var mikið hreystimenni, allra manna duglegastur og við systkinin hreinlega héldum að hann yrði 100 ára. Lífið er óútreiknanlegt og á einu augabragði í haust veiktist Hjalti mikið og eftir það var hann hvorki heill né hálfur maður. Hjalti var kvæntur henni Imbu frænku og urðum við þeirrar gæfu aðnjótandi að njóta frændrækni þeirra í ríkum mæli en þeim hjónum varð ekki barna auðið. Það eru svo margar skemmtileg- ar og góðar minningar sem við eig- um tengdar Imbu og Hjalta og þess ber að geta að það er varla hægt að tala um annað þeirra í einu því þau voru hreinlega alltaf saman, svo samrýnd voru þau hjón. Á jólum voru þau Imba og Hjalti heima í Kópavoginum hjá mömmu og pabba á meðan heilsan leyfði. Um páska fórum við svo austur á Selfoss og fengum að sjálfsögðu besta lamba- kjöt í heimi, ættað frá Reykjum á Skeiðum, matreitt af Imbu frænku með öllu tilheyrandi. Þess ber einn- ig að geta að Ingibjörg systir dvaldi hjá þeim Imbu og Hjalta á hverju sumri við gott atlæti. Til gamans skal geta þess að eitt sinn trúði Hjalti góðri frænku sinni fyrir því að það væri eiginlega þrennt sem hann tryði á í heim- inum, nefnilega íslenska lambakjöt- ið, kaupfélagið og Framsóknar- flokkurinn. Já, hann Hjalti var framsóknarmaður fram í fingur- góma og alltaf tók hann bensín hjá Essó og aldrei steig hann fæti inn í Bónus. KÁ, Kaupfélag Árnesinga, var hans búð á meðan það var og hét. Hjalti var mikill veiðimaður og það voru ófáar ferðirnar sem þau Imba fóru í upp í Veiðivötn ásamt mömmu, pabba og okkur systkinun- um. Þar var mikið veitt enda miklir aflakóngar með í för og má þar helst nefna í því sambandi Hjalta, pabba, Björgvin og Ingibjörgu systur. Þetta eru og voru allt saman hörku- góðir veiðimenn og það er erfitt að ímynda sér Veiðivatnaferð án Hjalta. Elsku Imba frænka. Við biðjum góðan guð að styrkja þig og okkur öll í sorginni og taka vel á móti Hjalta, lífsförunauti þínum og stoð- inni og styttunni í þínu lífi. Við sendum systkinum Hjalta og fjöl- skyldum þeirra samúðarkveðjur. Sem betur fer eigum við huggun í óteljandi góðum minningum um hann Hjalta, minningar sem munu hlýja okkur um ókomin ár. Anna Sólveig Ingvadóttir og Björgvin Ingvason. Það var fyrir nokkrum árum að við fjölskyldan fluttum okkur um set á Selfossi og fluttum á Engja- veginn. Við þekktum til nágranna okkar á 43, þeirra Hjalta og Imbu, og vissum að þar fengjum við góða granna. Það átti heldur betur eftir að koma í ljós. Við vorum varla búin að koma okkur fyrir þegar Hjalti og Imba komu yfir til okkar og buðu okkur velkomin. Hjalti hafði gaman af að fylgjast með framkvæmdum okkar hjónanna við nýja heimilið. Hann sagði að gaman væri að sjá fólk vinna við að byggja upp og bæta í kringum sig. Sjálfur var hann mikill hagleiksmaður á járn og ófáir smíð- isgripirnir sem urðu til í bílskúrnum hjá honum, allt frá skóhornum til fallegra kertastjaka og ljósakróna. Sól var ekki fyrr farin að hækka á lofti en Hjalti var kominn út í garð, HJALTI ÞÓRÐARSON Legg ég nú bæði líf og önd, ljúfi Jesús, í þína hönd, síðast þegar ég sofna fer sitji Guðs englar yfir mér. (Hallgrímur Pétursson.) Ingvi Þór, Þorkell og Jón Jökull Þráinssynir. HINSTA KVEÐJA

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.