Morgunblaðið - 19.03.2005, Side 54

Morgunblaðið - 19.03.2005, Side 54
54 LAUGARDAGUR 19. MARS 2005 MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR ✝ Örn J. Jóhanns-son fæddist í Reykjavík 18. sept- ember 1943. Hann lést á Fjórðungs- sjúkrahúsinu á Ísa- firði 12. mars síðast- liðinn. Foreldrar hans voru hjónin Sesselja Sigurðar- dóttir, húsmóðir, f. 30. júní 1916, d. 19. sept. 1989, og Jóhann H. Valdimarsson, vél- virki, f. 18. feb. 1923. Núverandi sambýlis- kona Jóhanns er Her- dís Sigurjónsdóttir, húsmóðir, f. 12. ágúst 1922. Bræður Arnar eru Sigurður H., flugvirki, f. 19. apríl 1952, maki Bryndís Arnfinnsdótt- ir, f. 25. okt. 1951, og Valdimar, vélstjóri, f. 1. júní 1961, maki Ingi- björg Unnur Ragnarsdóttir, f. 29. ágúst 1961. Hinn 25. desember 1964 kvænt- ist Örn Björgu Kristjánsdóttur, verslunarmanni, f. 10. feb. 1945. Foreldrar hennar voru Ketilríður Jakobsdóttir, húsmóðir, f. 22. des. 1921, d. 24. nóv. 1982, og Kristján Karl Júlíusson, kennari, f. 17. júní 1913, d. 7. júní 1973. Örn og Björg eignuðust fjóra syni. Þeir eru: 1) Kristján, fiskverkandi, f. 13. nóv. 1964, maki Anna Guðrún Ed- vardsdóttir, deildarstjóri, f. 17. nóv. 1960. Börn: A) Þorbjörn, f. 12. apríl 1987. B) Óskar, f. 29. okt. 1993. 2) Jóhann, íþróttakennari, f. 14. nóv. 1965, maki Auð- ur Smith, læknir, f. 25. feb. 1966. Börn: A) Oktavía, f. 21. feb. 1993. B) Karólína, f. 30. jan. 1995. 3) Gest- ur Þór, verkstjóri, f. 19. apríl 1971, maki Inga Berglind Sig- urðardóttir, ritari, f. 13. nóv. 1972. Barn, Hlynur Örn, f. 21. feb. 1996. 4) Rúnar, leiðbeinandi, f. 16. ágúst 1973, maki, Auður Finnbogadóttir, forstöðu- maður, f. 23. nóv. 1979. Börn: A) Finnbogi Örn, f. 12. nóv. 2001. B) Bríet Björg, f. 28. júlí 2004. Örn lærði vélvirkjun í Lands- smiðjunni í Reykjavík. Hann flutt- ist til Bolungarvíkur 1963 og vann í Vélsmiðju Bolungarvíkur frá árinu 1963–2000, þar af verkstjóri í þrjá áratugi og hjá Fiskimjöls- verksmiðjunni Gná frá 2000 til dauðadags. Örn gegndi ýmsum trúnaðarstörfum fyrir Bolungar- víkurkaupstað og félagasamtök; sat í bæjarstjórn frá 1978 til 2002, í stjórn Sparisjóðs Bolungarvíkur frá árinu 1994 til dauðadags og í stjórn Lífeyrissjóðs Bolungarvík- ur frá 1976 til dauðadags. Útför Arnar fer fram frá Hóls- kirkju í Bolungarvík í dag og hefst athöfnin klukkan 16. Að kvöldi laugardagsins 12. mars lést á Fjórðungssjúkrahúsinu á Ísa- firði faðir minn, tengdafaðir og afi, Örn J. Jóhannsson, eftir stutta sjúk- dómslegu. Um þrír mánuðir eru síð- an hann kenndi sér fyrst meins af þeim sjúkdómi sem nú hefur lagt hann að velli, rúmlega sextugan. Fjölskyldan, eiginkona hans, synir, tengdadætur og barnabörn, hafa staðið hjá, fylgst með þeirri baráttu og reynt að leggja sitt af mörkum til að honum liði sem best og gæti verið sem lengst heima. Fyrir viku síðan var hann fluttur á sjúkrahúsið á Ísafirði og gerðum við okkur þá ljóst að leikurinn var tap- aður og stutt væri eftir, hversu erfitt sem okkur öllum þótti að sætta okkur við þann blákalda raunveruleika. En eftir stendur minning um góð- an og hlýjan mann, traustan og tryggan sem bar hag fjölskyldu sinn- ar fyrir brjósti og fylgdist náið með fjölskyldum sona sinna, mikinn afa- kall sem átti það til að koma í heim- sókn eða hringja, bara til að spjalla við afabörnin. Þar sem við búum í sama bæjar- félaginu var mikill samgangur á milli okkar og eru ófá skiptin sem við komum á Höfðastíginn í kaffi og spjall. Þá spunnust oft líflegar um- ræður um allt milli himins og jarðar, en aðallega snerust umræðurnar um Bolungarvík og með hvaða hætti mætti auka hag bæjarfélagsins. Á því hafði hann ákveðnar skoðanir og átti það verkefni hug hans allan en hann var bæjarfulltrúi kaupstaðarins um árabil. Örn átti fáa en góða vini og var vin- ur vina sinna. Með þeim og fjölskyldu sinni stóð hann eins og klettur ef eitt- hvað bjátaði á og ef hann sá að hann gat aðstoðað á einhvern hátt þá gerði hann það. Við söknum hans sárt en erum jafnframt þakklát fyrir þær góðu minningar sem eftir lifa en þær munu ylja okkur um ókomin ár og vera okk- ur styrkur í framtíðinni. Við viljum að lokum þakka starfs- fólki Heilbrigðisstofnunar Bolungar- víkur og Fjórðungssjúkrahússins á Ísafirði fyrir frábæra umönnum og stuðning í veikindum hans. Hvíl í friði. Kristján, Anna, Þorbjörn og Óskar. Það voru slæm tíðindi sem okkur bárust í byrjun nýs árs, Örn mágur hafði greinst með alvarlegan sjúk- dóm. Þessi tíðindi virtust hafa miklu verri áhrif á alla sem þau heyrðu en hann sjálfan. Hann tók þeim með miklu æðruleysi og jafnaðargeði og hefur í þeim anda barist við veikindin sem nú hafa lagt þennan góða dreng að velli. Örn var góður vinur vina sinna, traustur og úrræðagóður, hann hlustaði ef maður þurfti að tala um hluti sem maður sagði ekki hverj- um sem var. Alltaf var gott að koma á heimili þeirra hjóna, þar hittumst við systkinin gjarnan yfir kaffibolla þar sem málin voru rædd og oftar en ekki voru umræðurnar kappsfullar og sjónarmiðin mörg. Örn gat verið fast- ur fyrir og hafði ákveðnar skoðanir á flestum málefnum. Hann gerði mikl- ar kröfur, bæði til sjálfs sín og ann- arra, um vönduð vinnubrögð og þá var sama hvort verkin voru stór eða smá. Hann var maður sem margir treystu enda gegndi hann mörgum trúnaðarstörfum í bæjarfélaginu og sat í bæjarstjórn Bolungavíkur, var í stjórn Sparisjóðsins og í stjórn Líf- eyrissjóðs Bolungavíkur og rækti öll störf sín af trúmennsku, hver sem þau voru. Við hjónin eigum margar góðar minningar sem við yljum okkur við. Þegar við vorum í tilhugalífinu kom- um við oft í heimsókn á heimili þeirra hjóna í Völusteinsstrætinu og sóttum okkur þann góða anda sem þar var. Seinna hjálpuðumst við að við að byggja húsin okkar, fyrst þeirra á Höfðastígnum og síðar okkar bæði við Þjóðólfsveg og Hjallastræti. Á þeim tíma sem við bjuggum í Dan- mörku fórum við til Hollands og dvöldum með þeim í sumarhúsi í vikutíma og áttum saman góðar stundir. Þau komu einnig í heimsókn til okkar og þá fórum við í helgarferð til Hamborgar á gamla Volvónum okkar. Í þeirri ferð biluðu bremsurn- ar á bílnum og var þá skipt um bremsuborða undir styrkri stjórn vélvirkjans á bílastæði í miðri Ham- borg. Það er erfitt að sætta sig við svo skyndilegt fráfall góðs vinar, en við vitum að það er einn sem ræður lífi og dauða, við hin lifum áfram og eigum minningar um góðan dreng. Elsku Björg systir og fjölskylda, Jóhann og fjölskylda, megi góður Guð styrkja ykkur í sorg ykkar. Aðalsteinn og Guðmunda Ólöf. Elsku afi minn, nú ertu farinn frá mér til guðs þar sem þér líður vel. Það er gott því að þá finnur þú ekki lengur til í höfðinu þínu. Ég sakna þín mjög mikið en því miður þurftir þú að fara frá okkur. Í staðinn ertu orðinn engillinn minn og ég veit að þú verð- ur alltaf hjá mér. Ég skal passa ömmu fyrir þig og vera alltaf góður drengur. Þinn Hlynur Örn. Orðin hugrekki, æðruleysi og traust koma mér í hug þegar ég skrifa um Örn bróður. Af hverju þessi orð? Hugrekkið stendur fyrir að mæta því sem maður ekki veit. Æðruleysi er að láta sýna fram á að ekkert sé að óttast og traustið stendur fyrir að vera alltaf til staðar. Í þessum þremur setningum lýsi ég bróður best. Öddi bróðir og Björg mágkona voru órjúfanleg alveg frá því ég man fyrst eftir þeim. Ég langyngstur bræðranna og í miklu uppáhaldi hjá þeim hjónum frá fyrstu tíð. Ungur kom ég til þeirra vestur í Bolungavík og fengu þau þá frumraun sína í upp- eldi ungs snáða. Þau þurftu að venja mig af pela og taka á móti ýmsum kvörtunum af róló. Alltaf var ég vel- kominn til þeirra og seinna starfaði ég eitt sumar með Erni í Vélsmiðju Bolungavíkur. Líklega hefur þessi dvöl mín m.a. mótað framtíðarstarf mitt. Eftir að ég eignaðist sjálfur börn fengu þau að koma og dvelja hjá þeim í Bolungavík. Eiga þau góðar minn- ingar um dvölina hjá Erni og Björgu sem þau líta reyndar á sem ömmu og afa. Það sem Öddi hafði fram yfir aðra var hversu rólyndur, yfirvegað- ur og stundvís hann var. Örn var virkur í starfi Sjálfstæðisflokksins og trúr sínum skoðunum. Hann hafði gengið í gegnum skóla bæjarstjórna- mála, og gegndi ýmsum öðrum trún- aðarstörfum. Örn unni hag sínum best í Bolungavík. Hann kom ungur þangað, kynntist konuefni sínu þar og hefur búið þar síðan. Þrátt fyrir að við byggjum sinn í hvorum landshlut- anum fylgdist hann vel með lífi og starfi fjölskyldu minnar. Örn hringdi reglulega og kom alltaf í heimsókn þegar hann var í bænum. Honum var annt um ættingjana unga sem gamla. Þegar hugsanir leita til Ödda bróður er Björg aldrei langt undan. Talandi í síma við þau hjón voru samræður við þau bæði í einu. Gestrisni þeirra voru engin takmörk sett. Eitt sinn hafði ég ráðgert að heimsækja þau að sumri til og slógust tengdaforeldrar mínir óvænt í hópinn. Það var ekki annað tekið í mál enað þau gistu líka hjá þeim. Seinna kom ég með stóran hóp göngumanna og ekkert var sjálfsagð- ara en að greiða götu þeirra. Enginn var traustari en bróðir, hann var kletturinn í hafinu sem allt- af var hægt að leita til. Ég átti símtal við Örn í febrúar þar sem ég var staddur erlendis. Þar kom hugrekki, æðruleysi og traust hans vel í ljós eft- ir að hafa fengið fréttir um endalok sín. Það símtal líður mér ekki úr minni. Ráðleggingar hans munu nýt- ast mér um ókomin ár. Örn bróðir er nú kallaður á enn einn fundinn. Fund á meðal forfeðra sinna þar sem hann vissi að gott fólk beið eftir honum. Hann var dáður og elskaður af öllum sínum, en endurfundirnir verða nú brýnni hinum megin. Hafðu þökk fyrir allt. Ég votta Björgu mágkonu, sonum, tengdadætrum og barnabörnum samúð mína. Valdimar Jóhannsson. Örn mágur minn og vinur átti stranga en stutta baráttu við illvígan sjúkdóm. Vissulega er það reiðarslag að hraustum manni á besta aldri er kippt út úr þessari jarðnesku tilvist. Það var fljótt ljóst hvert stefndi eftir að greining lá fyrir í janúar. Örn tók þeim fregnum með miklu æðruleysi. Hann átti þá ósk að hann þyrfti ekki að berjast lengi, en heim vildi hann fara. Björg systir mín hefur haft ein- hvern yfirnáttúrulegan kraft meðan á þessari baráttu stóð, sem og syn- irnir og fjölskyldur þeirra. Á meðan þau dvöldu fyrir sunnan hittumst við oft. Það varð ekki hjá því komist að sjá hve hratt dró af honum sem var mjög erfitt fyrir alla sem í kring um hann voru, ekki síst fjölskylduna. Örn fékk að vera heima eins lengi og hægt var þar til fyrir viku að hann var fluttur á sjúkrahúsið á Ísafirði. Ég heimsótti Ödda vestur fyrir stuttu. Það var ljóst að það var kveðjustund. Örn fluttist til Bolungavíkur upp úr 1960 vegna vinnu sinnar. Hann undi hag sínum vel þar og vildi hvergi annars staðar vera. Með okkur tókst mikil vinátta fyrir utan fjölskyldu- böndin. Það var sama hvað maður bað hann um, hann var alltaf boðinn og búinn. Örn gegndi mörgum trúnaðarstörfum í samfélaginu, sat í bæjarstjórn, stjórnum Lífeyrissjóðs- ins og Sparisjóðsins. Öll trúnaðar- störf sem honum voru falin leysti hann af mikilli trúmennsku. Vinnu- veitendum sínum var hann ætíð til mikils sóma. Við störfuðum saman í bæjarmálum og öðrum félögum eins og JC hreyfingunni. Einkar minnis- stætt var ferðalag sem við fórum á Landsþing JC, fyrir þær sakir hvern- ig við fórum og baslið við að komast þangað. Ég átti því láni að fagna að eiga heimili hjá foreldrum Ödda á meðan ég var í námi. Það styrkti fjölskyldu- böndin við fjölskyldu hans enn frek- ar. Ég kveð Örn með miklu þakklæti fyrir vináttu og það mikla traust sem hann hefur sýnt mér og minni fjöl- skyldu alla tíð. Missir Bjargar, strák- anna og fjölskyldna þeirra er mikill, svo og Jóhanns föður hans og bræðra. Ég votta þeim öllum mína dýpstu samúð. Góður Guð veiti fjöl- skyldunni styrk. Benedikt Kristjánsson. Nú er maðurinn sem heillaði Björgu systur mína allur, en minn- ingin lifir. Örn Jóhannsson kom til Bolung- arvíkur ungur fullnuma vélvirki til að taka þátt í að byggja Síldarverk- smiðju Einars Guðfinnssonar. Það var góð sending. Víst er að það var honum ekki auð- velt að koma inn í fjölskylduna á Vita- stíg, þar sem meðal annarra mættu honum fimm bræður brúðarinnar til- vonandi, herskáir og fundu sér ógnað í meira lagi. En sem betur fer lét hann það ekki aftra sér þó bræðurnir auðvelduðu honum ekki „brúðarrán- ið“ neitt sérstaklega. Með sannfæringarkrafti sínum og vitneskju sem aðeins gat fengist í höfuðborginni, benti hann eldri bræðrunum á að brilljantín væri mál- ið og hið snarasta yrði að skipta út Old Spice rakspíranum, sem gamlar frænkur höfuð gefið í fermingargjöf í því magni að dugað hefði í áratug, fælingarmáttur þessa vinsæla rak- spíra væri þvílíkur að vonlaust væri með öllu að nokkur stúlka léti heillast. Með slíkum ábendingum ávann hann sér traust okkar bræðranna. Það kom ekki á óvart að hann vann sér traust samborgara sinna til að gegna ýmsum trúnaðarstörfum er árin liðu, það gerði hann á sinn hljóð- láta hátt og af þeirri trúmennsku sem honum var eðlislæg. Örn varð strax mikill Bolvíkingur og hafði meiri áhuga á velferð bæj- arins en margir sem þar eru fæddir og uppaldir. Það var okkar lán. Að leiðarlokum ber að þakka kær- leiksríka vináttu og samferð á lífsins vegi. Blessuð sé minning hans. Hallgrímur Kristjánsson. Nú er komið á leiðarenda hjá Ödda afa. Þótt ég hafi aðeins þekkt hann í tæplega 12 ár voru þetta góð ár sem ég gleymi aldrei. Nú er afi laus við veikindin sem hann hefur þurft að upplifa á nokkr- um mánuðum. Vona og veit að þér líður vel. Oktavía. Elsku Öddi afi. Vonandi líður þér vel núna. Það var alltaf skemmtilegt að koma í heimsókn til Bolungarvík- ur en ekki jafngaman án þín. Við áttum margar góðar stundir saman og þeim gleymum við aldrei. Ég vona að þú getir gert margt núna sem þú gast ekki áður. Öllum hér þykir mjög vænt um þig og allir sakna þín. Þín að eilífu, Karólína. Elsku Öddi frændi. Ekki grunaði mig að þú myndir fara svona fljótt. Þetta er allt eins og ein stór lygasaga. Ég held ég sé ekki alveg búinn að átta mig á því að ég á aldrei aftur eft- ir að taka upp símann og ræða við þig um daginn og veginn, hvernig mér gangi í skólanum, hvernig gangi á skíðunum og að sjálfsögðu að stað- festa enn einu sinni að þú værir uppá- halds frændinn. Þú passaðir alltaf upp á alla og hafðir yfirsýn yfir hvað allir voru að bralla. Þær stundir sem ég átti með þér og Björgu voru kannski ekki margar en þær eru dýr- mætar. Ég hafði alltaf gaman af því að koma til ykkar og eitt eftirminni- legasta sumar sem ég hef átt var ég hjá ykkur á Bolungavík. Það var allt- af dálítið ævintýri að koma í heim- sókn, skoða tómatatrén og fá að horfa á Heilsubælið af gömlu Beta-spólun- um. Ég treysti á það, að hvar sem þú ert þá haldir þú áfram að fylgjast með okkur öllum og passir upp á okk- ur. Hvíl þú í friði. Þinn frændi Jóhann Valdimarsson. Örn Jóhannsson hóf störf hjá Vél- smiðju Bolungavíkur h.f. árið 1963, en upphaflega kom hann til Bolung- arvíkur á vegum Landssmiðjunnar til að vinna við að reisa nýja síldar- verksmiðju. Þá var hann tvítugur að aldri og í vélvirkjanámi. Í Bolungar- vík kynntist hann ungri stúlku, Björgu Kristjánsdóttur, og eftir það varð ekki aftur snúið. Þau giftu sig og stofnuðu heimili í Bolungavík og eftir það vildi hann hvergi annars staðar vera. Hann var orðinn Bolvíkingur. Örn vann hjá Vélsmiðju Bolungar- víkur til ársins 2000, þannig að hann var þar mestan sinn starfsaldur eða í 37 ár. Hann var stundvís með af- brigðum, duglegur, ósérhlífinn, gerði ekki síður kröfur til sjálfs sín en ann- arra, hafði óbilandi kjark og mikla fagþekkingu, hvort sem var við vél- virkjun eða smíðaverkefni. Hann tók fljótlega við verkstjórn, fleytti fram verkþekkingu og tækni í fyrirtækinu. Það er ekki spurning, að þegar hann settist að í Bolungavík, þá var hann réttur maður á réttum tíma á réttum stað. Honum leið illa, ef ekki var nóg að gera. Hann hafði sterka réttlæt- iskennd, var útsjónarsamur, stóð fast á sínu og hvikaði hvergi. Það þykir ekki sjálfsagt í dag að vinna svona lengi á sama vinnustað, en þarna vildi Örn vera. Hann batt tryggð við sinn vinnustað og okkar fjölskyldu á Sólbergi, sem haldist hefur fram á þennan dag. Hann bar óskaplega hlýjan hug til foreldra okkar, þó sérstaklega pabba okkar, Guðmundar B. Jónssonar, sem veitti vélsmiðjunni forstöðu lengst af, þannig að hann var yfirmaður Arnar í vinnunni og hafði mjög mótandi áhrif á þennan unga mann. Hefur Örn oft talað um það, að hann liti á pabba sem nokkurs konar fóstra sinn, enda samdi þeim alltaf sérstaklega vel. Þeir höfðu brennandi áhuga á lands- málum og byggðamálum og beittu sér báðir á því sviði og þá sérstaklega í Bolungavík, enda ærin verkefni, þar sem í hönd fór ótrúlegt uppbygging- arskeið byggðarlagsins. Oft voru þeir mættir korter fyrir sjö, Hannes, pabbi og Örn, til að ræða málin, fiskirí, útgerðarmálin og allt það sem lífið snýst um í sjávarplássi. Svo byrjaði vinnutíminn hálfátta. Örn skrifaði alltaf dagbók og þar með við hvað hann var að vinna hvern dag, þannig að í dagbókum hans má lesa um stóran hluta af atvinnusögu Bol- ungavíkur í marga áratugi. Í kaffi- og matarhléum var hann alltaf glaður. Í mörg ár kom hann með Rúnari í morgunkaffi á skrifstof- una til Bjargar og Siggu. Þar var Neskaffi og matarkex og mikið spjallað um lífið og tilveruna, kom- andi sumarfrí og ferðalög. Þegar kaffistofan var komin yfir bílaverk- stæðið, þá var alltaf spilaður rakki og ekkert gefið eftir. Hann gaf mönnum ekki frið til að borða nestið sitt, dreif spilamennskuna áfram. Þegar árshá- tíðir og annar mannfagnaður, s.s. menningarferðir, voru á vegum smiðjunnar var Örn alltaf glaður og kátur og þá ekki síður hún Björg hans. Sem vinnufélagi reyndist hann ÖRN JÓHANNSSON

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.