Morgunblaðið - 19.03.2005, Page 55

Morgunblaðið - 19.03.2005, Page 55
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 19. MARS 2005 55 MINNINGAR okkur mjög vel, traustur, heiðarlegur og jákvæður, talaði aldrei illa um fólk og hlustaði eftir öllu jákvæðu. Hann var alltaf góður og hugsunarsamur við okkur öll sex systkinin á Sólbergi og börnin okkar og lagði sig sérstak- lega fram um að spjalla við okkur, þegar við fórum að koma í smiðjuna, hvort sem var í heimsókn eða til að vinna. Það lýsir Erni vel, að í hans stutta en erfiða veikindastríði hafði hann sjálfur stjórnina allan tímann og lét vita af því, hvað hann vildi í sambandi við meðferð og þjónustu, sem honum bauðst, þó hann ætti orðið erfitt með að tjá sig. Við sendum þér, elsku Björg, okk- ar innilegustu samúðarkveðjur, og sömuleiðis strákunum og þeirra fjöl- skyldum. Guð veri með ykkur og gefi ykkur styrk. Björg og Jón Guðni á Sólbergi. Þegar ég nú kveð þennan góða vin minn og samstarfsfélaga til margra ára er margs að minnast og ótrúlegt að hann skuli vera farinn yfir móðuna miklu. Fyrir tæplega þremur mánuðum breyttist líf hjónanna á Höfðastíg 8, þegar húsbóndinn Örn greindist með alvarlegan sjúkdóm, sjúkdóm sem læknavísindin stóðu máttvana frammi fyrir, ekkert hægt að gera, aðeins bíða æviloka hans. Við þessar aðstæður reynir mjög á makann, börnin, barnabörnin, aldraðan föður, bræður og vini og allir bíða og biðja um líkn hinum sjúka til handa. Ótrúlegur styrkur eiginkonunnar, Bjargar, var og er fjölskyldunni sem akkeri í ólgusjó, en hún mildaði sárs- aukann svo sem hún best gat og veitti nánustu aðilum huggun. Kynni okkar Arnar hófust fyrst fyrir alvöru þegar við störfuðum saman í bæjarstjórn Bolungarvíkur og sérstaklega eftir að hann varð for- maður bæjarráðs og hafnarstjórnar Bolungarvíkur sem hann var samfellt í átta ár, eða frá árinu 1994 til ársins 2002, en í bæjarstjórn Bolungarvíkur sat hann í sex ár sem varamaður og fjórtán ár sem aðalmaður. Fátt er bæjarstjóra mikilvægara en eiga trúnað og traust samstarfs- manna sinna, hvort heldur þeir skipa meirihluta eða minnihluta, en Örn var traustur samstarfsmaður, hafði mikinn metnað til góðra verka fyrir bæjarfélagið, var með ákveðnar skoðanir þar um, en tók ávallt tillit til skoðana annarra og lagði sig fram um að ná samstöðu um lausn mála. Hann var vandur að virðingu sinni og lagði mikla vinnu í öll þau störf sem honum var trúað fyrir. Þau ár sem hann gegndi stöðu formanns bæjarráðs áttum við nánast daglega saman viðræður. Það var venja okkar að hittast með góðum fyrirvara fyrir vikulega bæjarráðsfundi og fara saman yfir dagskrána og móta eða gera tillögu um afgreiðslu þeirra mála er fyrir lágu. Ég sé hann nú fyrir mér – koma inn á bæjarstjóraskrifstofuna – með kaffikrúsina í hendi, bjóða glaðlega góðan daginn, léttan í lund og tilbú- inn að takast á við verkefni fundar- ins. Áhugi hans var mikill fyrir bæjar- málum, sérstaklega atvinnumálum, stöðu Bolungarvíkurhafnar og hafði hann sem formaður bæjarráðs og hafnarstjórnar alla tíð mikil áhrif á uppbyggingu þeirra mikilvægu mála- flokka sem undir hafnarstjórn og bæjarráð heyra. Ákvarðanir bæjar- ráðs og tillögugerð til bæjarstjórnar móta ramma fjárhagsáætlunar ár hvert, svo sem fjárfestingar, fram- kvæmdaröð og fjárframlög til félaga- samtaka og annarra almennra þjón- ustuþátta bæjarfélagins. Honum var alla tíð meinilla við að fresta ákvarð- anatöku og draga mál á langinn en vildi þess í stað láta verkin tala. Erni var ungum sýndur mikill trúnaður af hálfu Bolvíkinga. Árið 1976 var hann kosinn í stjórn Lífeyr- issjóðs Bolungarvíkur og sat þar til dauðadags. Í stjórn Sparisjóðs Bol- ungarvíkur var hann kjörinn sem fulltrúi Bolungarvíkurkaupstaðar ár- ið 1994 og var þar enn stjórnarmaður við andlátið. Örn var mikill félagsmálamaður og tók m.a. virkan þátt í starfi Sjálfstæð- isfélagsins Þjóðólfs, í fulltrúaráði sjálfstæðisfélaganna í Bolungarvík og gegndi forystuhutverki þar um árabil. Fas hans allt var rólegt, yfirbragð hlýlegt, stundum nokkuð stríðnislegt og stutt var í brosið þegar gamanmál bar á góma og gáski hljóp í menn á gleðistundum. Hann var ekki mikið fyrir að láta bera á sér og vann oft við undirbún- ing verka sinna í kyrrþey, var skipu- lagður í vinnu allri og verkstjórn, en hann var verkstjóri um árabil í Vél- smiðju Bolungarvíkur þar sem hann naut mikils trausts samstarfsmanna sinna og viðskiptavina fyrirtækisins. Bolvíkingar hafa nú misst mikinn mannkostamann, en missir fjöl- skyldu hans er þó öllu meiri. Ég vil hér og nú þakka honum liðn- um vináttu liðinna ára, heiðarlegt samstarf, traust og trúnað um leið og leyfi mér að færa honum þakkir Bol- víkinga fyrir óeigingjörn störf að vel- ferðarmálum Bolungarvíkur. Elsku Björg. Við Lillý færum þér og fjölskyldu allri innilegar samúðar- kveðjur og vonum að góður Guð styrki ykkur á þessum óvæntu tíma- mótum. Ég veit að söknuður og ljúfar minningar hríslast nú um huga ykk- ar, sem og okkar vina hans, við andlát og útför þessa elskulega, hægláta og góða drengs. Þá vottum við öldruðum föður Arn- ar, Jóhanni og bræðrum Arnar og öðrum nánustu vinum djúpa samúð. Blessuð sé minning Arnar Jó- hannssonar. Ólafur Kristjánsson. Sunnudaginn 13. mars barst sú harmafregn að góður samborgari okkar Bolvíkinga, Örn Jóhannsson, vélvirki og fv. bæjarfulltrúi, væri lát- inn. Þó svo að vitað væri um erfiða sjúkdómslegu hans – sem var ótrú- lega stutt – kemur andlátsfregn ávallt á óvart, einkum og sér í lagi þegar menn andast um aldur fram, en Örn hefði orðið 62 ára 18. sept- ember á þessu ári. Árið 1978 tók Örn fyrst sæti á framboðslista D-listans í Bolungar- vík fyrir hönd sjálfstæðisfélaganna í Bolungarvík. Seta hans síðan í bæj- arstjórn Bolungarvíkur urðu fjöl- mörg ár, eða sex ár sem varamaður og 14 ár sem aðalmaður. Hann naut og mikils trausts sem stjórnarmaður í Lífeyrissjóði Bol- ungarvíkur frá árinu 1976 og í stjórn Sparisjóðs Bolungarvíkur frá árinu 1994, en í þessum stjórnum sat hann til dauðadags. Síðustu átta árin eða frá árinu 1994–2002 var hann formaður bæj- arráðs Bolungarvíkur og hafnar- stjórnar Bolungarvíkur. Þá sat hann í fjölmörgum öðrum nefndum á veg- um bæjarfélagins sem ekki verða hér frekar upp talin. Oft þurfti hann ásamt félögum sínum í bæjarstjórn að taka afdrifaríkar ákvarðanir á erf- iðum umbrotatímum í Bolungarvík sem ekki verður rakið hér, en víst er að hann markaði mörg djúp fram- faraspor sem urðu Bolungarvík til heilla. Sjálfstæðisfélögin í Bolungarvík færa honum látnum miklar þakkir fyrir störf hans, bæði innan félag- anna sem og að framfaramálum fyrir bæjarfélagið. Eftirlifandi eiginkonu hans, Björgu Kristjánsdóttur, börnum og nánustu niðjum vottum við djúpa samúð um leið og við blessum minn- ingu Arnar Jóhannssonar. F.h. fulltrúaráðs sjálfstæðisfélag- anna í Bolungarvík, Ólafur Jens Daðason. Tæplega tvítugur að aldri kom Örn Jóhannsson til Bolungarvíkur. Hann ætlaði sér aðeins að hafa hér stutta viðdvöl. Árin í Víkinni urðu hins veg- ar tæplega 42. Örn lést á Fjórðungs- sjúkrahúsinu á Ísafirði, langt um ald- ur fram, eftir snarpa baráttu við banvænan sjúkdóm. Hann kom til Bolungarvíkur árið 1963, ásamt stórum hópi manna frá Landssmiðjunni til að reisa síldar- verksmiðju fyrir fyrirtæki Einars Guðfinnssonar. Verksmiðjan reis á mettíma og var gangsett sex mánuð- um eftir að framkvæmdir hófust. Á verktímanum kynntist Örn eftirlif- andi eiginkonu sinni, Björgu Krist- jánsdóttur. Vélvirkjanum unga leist ekki verr á staðinn en svo að hann réð sig í vinnu hjá Vélsmiðju Bolungar- víkur. Frá þeim tíma bjó Örn í Bol- ungarvík, utan skamms tíma er hann lauk sveinsprófi sínu í vélvirkjun haustið 1964. Framkvæmdastjóri Vélmiðjunnar, Guðmundur Bjarni Jónsson, áttaði sig fljótt á dugnaði og mannkostum Arnar. Ekki leið langur tími þar til Örn var hækkaður í tign og gerður að verkstjóra hjá Vélsmiðjunni. Því starfi gegndi Örn allt til ársins 2000, eða þar til breytingar urðu á högum fyrirtækisins. Örn var ekki einungis flinkur í iðn sinni, heldur var hann einstaklega traustur starfsmaður og var afar metnaðarfullur fyrir hönd þess fyrirtækis sem hann starfaði hjá. Þegar litið er til baka er í raun með ólíkindum hve flókin og stór verkefni Vélsmiðja Bolungarvíkur tókst á við á sínum tíma. Þar munaði ekki síst um kunnáttu Arnar og hæfi- leika. Með þeim Erni og Guðmundi Bjarna Jónssyni tókst mikil og traust vinátta. Guðmundur var einn af for- vígismönnum Sjálfstæðisflokksins í Bolungarvík og sat í hreppsnefnd og bæjarstjórn um áratugaskeið. Örn fylgdist því vel með þjóðmálaumræð- unni og ekki síður með gangi bæj- armálanna. Og Guðmundur Bjarni hafði lag á að hrífa menn með sér. Það leið ekki langur tími þar til Örn hóf virka þátttöku í starfi Sjálfstæð- isflokksins. Hann var m.a. formaður Þjóðólfs, félags sjálfstæðismanna í Bolungarvík, um margra ára skeið. Örn naut mikils trausts samferða- manna sinna og var valinn til marg- víslegra trúnaðarstarfa. Hann hóf virka þátttöku í bæjarmálum í Bol- ungarvík er hann tók sæti á fram- boðslista Sjálfstæðisflokksins fyrir bæjarstjórnarkosningarnar árið 1978. Frá þeim tíma sat hann sem bæjarfulltrúi eða varabæjarfulltrúi allt til ársins 2002, utan eitt kjörtíma- bil. Hann sat í stjórn Lífeyrissjóðs Bolungarvíkur frá árinu 1976 og í stjórn Sparisjóðs Bolungarvíkur frá árinu 1994. Ég átti þess kost að starfa með Erni Jóhannssyni um langt skeið. Í tvö kjörtímabil vorum við í meiri- hlutasamstarfi í bæjarstjórn Bolung- arvíkur. Síðar sátum við um árabil saman í stjórn Lífeyrissjóðs Bolung- arvíkur. Þegar Örn hætti störfum hjá Vélsmiðju Bolungarvíkur vorið 2000 kom hann til starfa hjá okkur í Gná hf. Þar stjórnaði hann viðhaldi og verklegum framkvæmdum. Hann endaði því starfsævi sína í verksmiðj- unni sem hann kom til að reisa fyrir rúmum fjörutíu árum. Við sem höfum alið allan okkar ald- ur í litlu samfélagi eins og Bolung- arvík höfum oft orðið vitni að því að fólk hafi flutt hingað, búið hér um nokkurt skeið, tekið mjög virkan þátt í athafna- félags- og menningarlífi, en horfið á braut eftir nokkurra ára bú- setu. Mikil eftirsjá hefur oft orðið þegar slíkir einstaklingar og fjöl- skyldur hafa flutt frá okkur. En sem betur fer hafa jafnframt margir sest hér að, fest hér rætur og jafnvel orðið „meiri“ Bolvíkingar en þeir inn- fæddu. Örn Jóhannsson var í þeim hópi. Þegar hann hafði ráðið sig til starfa og stofnað hér fjölskyldu var teningunum kastað. Hér haslaði hann sér völl og tók virkan þátt í að berjast fyrir byggðarlag sitt og fyrir hag íbúanna eins og áður er rakið. Þrátt fyrir erfiðleika sem gengu yfir í atvinnulífinu og snertu hann per- sónulega kom aldrei til greina að flytjast á brott. Hann var enda fastur fyrir, gafst ekki upp þótt á móti blési og hann var ekki gefinn fyrir að breyta mikið til. Þannig voru vinnu- staðir hans aðeins tveir í Bolungarvík á þeim 42 árum sem hann starfaði hér. Það var gott að starfa með Erni Jó- hannssyni. Hann var einstaklega traustur og heiðarleiki var honum í blóð borinn. Hann setti sig vel inn í mál og talaði fyrir skoðunum sínum af hógværð og festu. Hann var sann- gjarn og réttsýnn og óttaðist ekki að eiga þátt í „óvinsælum“ ákvörðunum ef hann taldi þær óhjákvæmilegar. Örn hafði sig ekki mikið í frammi op- inberlega. Hann lét frekar verkin tala. Það var hans stíll. Við Bolvíkingar eigum Erni Jó- hannssyni margt að þakka. Í áratugi vann hann af heilum hug að ýmsum framfaramálum í Bolungarvík, byggðarlaginu til framdráttar og íbú- unum til heilla. Hjá Gná hf. sjáum við nú á bak ein- um okkar mikilvægasta og besta starfsmanni. Örn hafði yfirburða- þekkingu á öllum vélbúnaði verk- smiðjunnar. Hann var ekki aðeins þátttakandi í að reisa verksmiðjuna árið 1963, heldur stjórnaði hann og sá um marga þætti við meiriháttar end- urbyggingu hennar, fyrst árin 1977– 1978, þá árið 1985 og nú síðast á ár- unum 1994–1997. Störf sín vann hann öll af mikilli samviskusemi, trúnaður hans og tryggð gagnvart fyrirtækinu og samstarfsmönnum var einstök. Við samstarfsmenn hans söknum nú allir vinar í stað. Örn steig mikið gæfuspor þegar hann kvæntist eftirlifandi eiginkonu sinni Björgu Kristjánsdóttur. Þau reistu sér hús við Höfðastíginn þar sem þau hafa átt sitt smekklega heimili í nær 40 ár. Það hefur vakið aðdáun hvernig hún, synirnir fjórir og reyndar fjölskyldan öll umvafði Örn síðustu vikurnar, eftir að hann greindist með ólæknandi sjúkdóm í desember sl. Sjálfur mætti Örn ör- lögum sínum af þeirri karlmennsku og hugarró sem hann bjó yfir. Að leiðarlokum er ég þakklátur fyrir að hafa átt Örn Jóhannsson að samstarfsmanni og vini í áratugi. Við Guðrún og synir okkar sendum Björgu og fjölskyldunni allri innileg- ar samúðarkveðjur, við ótímabært fráfall Arnar Jóhannssonar. Guð blessi minningu hans. Einar Jónatansson. Það var Bolvíkingum mikil gæfa þegar svo réðust hlutir að Örn Jó- hannsson flutti vestur. Þau Björg Kristjánsdóttir felldu hugi saman sumarið 1963, þegar hann vann að uppbyggingu síldarverksmiðjunnar og þar með voru örlögin ráðin. Þar hófst hin farsæla og ástríka sambúð og síðar hjónaband þeirra. Það var líka táknrænt að hann kom vestur í upphafi til uppbyggingarstarfa, því einmitt öll hans verk voru til upp- byggingar samfélaginu, sem hann unni og hafði svo mikinn metnað fyr- ir. Í öflugu sjávarplássi er vélsmiðjan lífæð. Bátarnir þurfa að róa og mikl- ar kröfur eru gerðar til þeirra sem sinna viðhaldi og viðgerðum. Örn Jó- hannsson var í þessu hlutverki ára- tugum saman sem verkstjóri Vél- smiðju Bolungarvíkur. Hann þurfti að kunna á öllu skil. Enda vissum við sem kölluðum eftir þjónustu hans alla daga og næstum hvenær sem var sólarhringsins, að þar væri ekki kom- ið að tómum kofunum. Hann var sér- fræðingur á sínu sviði og sérfræði- kunnátta hans laut að öllu því mikla gangverki sem flókinn tækni- og vél- búnaður nútímafiskiskipa er. Örn hafði ég þekkt frá fyrstu tíð er hann kom vestur. En í um áratug hafði ég við fáa menn meiri samskipti en einmitt hann, vegna starfa okkar og áhugamála. Daglega kom ég við hjá honum og við ræddum saman oft á dag. Samstarf okkar var náið, en þó við ynnum oft undir miklu álagi, að ábyrgðarmiklum verkum, minnist ég þess aldrei að okkur hafi orðið sund- urorða. Í viðbót við okkar daglegu störf kom svo pólitíkin. Þar vorum við nán- ir samherjar og vinir, enda mátti reiða sig á Örn í þeim verkum sem öðrum. Ég man hve okkur þótti það mikið happ þegar Örn fékkst til þess að fara á framboðslista til bæjar- stjórnar. Þar vissum við öll að traust- ur maður færi, sem nyti virðingar samborgaranna. Hann hitti marga, meðal annars vegna starfs síns og fann hvernig straumar mannlífsins lágu. Á fundum var hann enginn mál- skrafsmaður, þó létt ætti um mál, en undantekningarlaust hlustuðu menn vel þegar hann kvaddi sér hljóðs. Það munaði því vel um hann í baráttu- sveitinni Og mikið óskaplega var nú alltaf gott að vinna í nálægð hans, með honum og þiggja góðu ráðin hans. Það vissu ekki allir, að hann kom til vinnu sinnar daglega kl. 4–5 árdegis, til þess að vinna upp það vinnutap sem bæjarstjórnarstarfið skapaði honum. Þetta lýsir trú- mennsku hans. Hann bætti einfald- lega nokkrum klukkustundum við langan vinnudaginn til þess að geta rækt hvort tveggja; samfélagslegt skylduverk í bæjarstjórninni og ábyrgðarmikið hlutverk í starfi. En nú er lífsdagur hans að kveldi kominn. Hin skyndilegu veikindi buguðu hann, þennan hrausta og öfl- uga mann sem hefði getað komið svo mörgu í verk enn, þó lífsstarf hans hafi verið mikið og gott. Við vinir hans kveðjum hann með virðingu og sárum trega. Hugur okkar dvelur hjá fjölskyldunni allri sem nú grætur góðan fjölskylduföður, sem genginn er langt um aldur fram. Björgu, sem nú sér á bak ástríkum eiginmanni, sonum, tengdadætrum, barnabörn- um og fjölskyldunni allri sendum við Sigrún okkar einlægustu samúðar- kveðjur. Guð blessi minningu Arnar Jóhannssonar. Einar K. Guðfinnsson. Laugardaginn 12. mars s.l. lést Örn Jóhannsson eftir stutt en erfið veikindi en hann sat í stjórn Spari- sjóðs Bolungarvíkur. Ekki grunaði mig, að þegar Örn kom til mín í Sparisjóðinn fyrstu dag- ana í janúar sl. og sagði mér að hann væri að fara í læknisrannsókn til Reykjavíkur, að það yrði síðasta skiptið sem hann kæmi inn í Spari- sjóðinn. Hann sat í stjórn Sparisjóðs Bol- ungarvíkur frá árinu 1994, fyrst sem fulltrúi Bolungarvíkurkaupstaðar til ársins 2002 en eftir það var hann einn af fulltrúum stofnfjáreigenda. Örn var áhugasamur um velferð Sparisjóðsins og kynnti sér rekstur hans vel. Hann var tillögugóður og var vakinn og sofinn yfir velferð Sparisjóðsins, var annt um að ákvarðanir kæmu bæjarfélaginu til góða og talaði máli sjóðsins þegar að- stæður leyfðu. Sömu trúmennsku gegndi hann fyrir Lífeyrissjóð Bol- ungarvíkur, þar var hann í stjórn frá 1976, en Sparisjóðurinn sér um rekstur Lífeyrissjóðsins. Það voru ekki margir stjórnar- fundirnir sem hann mætti ekki á og reyndi hann ávallt að hagræða at- vinnu sinni þannig að hann gæti mætt á fundina. En síðustu skiptin sem ég kom heim til hans og greindi honum frá gangi mála í Sparisjóðnum voru erfið fyrir okkur báða, sérstaklega fyrir Örn sem ekki gat tjáð sig. Um leið og Erni eru þökkuð mikil og góð störf í þágu Sparisjóðsins og Lífeyrissjóðsins, færi ég, fyrir hönd stjórnar og starfsfólks þessara stofn- ana, eiginkonu hans Björgu, börnum, fjölskyldum þeirra og öldruðum föð- ur hans innilegar samúðarkveðjur. Blessuð sé minning Arnar Jó- hannssonar. Ásgeir Sólbergsson. Mig langar að minnast vinar míns Arnar J. Jóhannssonar með nokkr- um orðum. Við kynntumst fyrst 1976 þegar ég fluttist vestur með fjöl- skyldu mína og hóf störf í Vélsmiðju Bolungarvíkur sem átti aðeins að vera eitt sumar en urðu rúm fjögur ár. Með okkur Erni tókst strax gott samstarf er leiddi til þeirrar vináttu sem hefur varað allar götur síðan. Vinátta er ekki sjálfgefin það þarf rækta hana og virða. Örn og Björg hafa sannarlega gert það í gegnum árin og alltaf hefur verið jafn gott að koma í heimsókn á Höfðastíginn, sem er á fimm stjörnu skalanum og þarf ekki fleiri orð um það. Ekki hvarflaði það að okkur hjón- um að ferðin um páskana í fyrra yrði sú síðasta sem Örn var við fulla heilsu. Þá meðal annars fórum við á tónleika á Ísafirði, „Aldrei fór ég suð- ur“. Það má segja um Örn að hann fór heldur aldrei suður eftir að hann kynntist Björgu, og þá varð ekki aft- ur snúið. Það má með sanni segja að það eru fáir jafn miklir Vestfirðingar og hann. Við hjónin þökkum fyrir að hafa fengið að njóta þeirra forréttinda að fá að kallast vinir Arnar og Bjargar. Sú vinátta endist vonandi til æviloka. Hvíl þú í friði, kæri vinur. Sævar Pálsson.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.