Morgunblaðið - 19.03.2005, Side 58
58 LAUGARDAGUR 19. MARS 2005 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Í BLAÐI allra landsmanna eru
dánartilkynningar fyrst birtar áður
en minningargrein fær að líta dags-
ins ljós. Af öðrum fjölmiðlum ólöst-
uðum fær þetta efni veglegastan
sess þar og því er það kannski óhóf
að nálgast önnur viðfangsefni með
sama hætti og þar er gert. Samlík-
ingin er þó nærtæk þegar litið er á
tilkynningu sem gefin var út í síð-
ustu viku um að Garry Kasparov
væri hættur sem atvinnumaður í
skák. Tilkynningunni um skáklegt
,,andlát“ Garrys hefur enn sem kom-
ið er ekki verið fylgt eftir með minn-
ingargrein.
Garry Kimovich Wainshtein
fæddist 13. apríl 1963 í Bakú sem er
nú höfuðborg Azera en var þá hluti
af Sovétríkjunum. Þegar pilturinn
var nýorðinn sex ára vildu foreldrar
hans að hann legði stund á tónlist.
Um kvöldið, þegar ákvörðunin hafði
verið tekin, var sett upp skákþraut á
heimilinu sem birst hafði bæjarblaði
nokkru. Gary varð hugfanginn af
stöðunni og næsta morgun stakk
hann upp á leik til þess að leysa
dæmið. Foreldrar hans stóðu í for-
undran þar eð enginn hafði kennt
honum að tefla. Upp frá því hóf hann
að venja komur sínar á skákklúbba.
Faðir hans lést þegar hann var sjö
ára og það leiddi til þess að hann tók
upp eftirnafn fjölskyldu móður sinn-
ar, Kasparov. Hæfileikar Garry til
að reikna út afbrigði þóttu þá þegar
með ólíkindum og ekki síður ótrúleg
gáfa til að muna afbrigði utan bókar.
Virtur þjálfari að nafni Nikitin, tók
eftir pilti þegar hann var tíu ára og
var hann þá sendur í æfingabúðir
hjá Mikhail Botvinnik, fyrrum
heimsmeistara í skák. Næstu árin
unnu þeir töluvert saman og sá
gamli tók eftir ákafa hans við að
rekja afbrigði og brýndi fyrir honum
að hann mætti ekki lenda í sömu
gryfju og hæfileikaríkir skákmenn á
borð við Taimanov og Larsen. Gryfj-
an sú arna var víst að leika fyrst og
hugsa svo! Ferill Kasparov tók mik-
ið stökk 1978 þegar hann náði að
sigra hvern stórmeistarann á fætur
öðrum og náði 9. sæti á sovéska
meistaramótinu það ár. Allir hinir 17
keppendurnir höfðu meira en 2.450
stig og Mikhail Tal varð efstur en
Garry var enn stigalaus! Hann
komst í flokk bestu skákmanna
heims upp frá því og vann hvern sig-
urinn á fætur öðrum. Heimsmeistari
unglinga varð hann 1980, sovéskur
meistari 1981, Ólympíumeistari
1980 og 1982 en síðarnefnda árið
komst hann áfram í áskorendaein-
vígi heimsmeistarakeppninnar eftir
sigur á millisvæðamóti. Öruggir
sigrar í einvígjum gegn Aleksander
Beljavsky, Viktor Korsnoj og Vas-
sily Smyslov gerðu það að verkum
að árið 1984 stóð hinn 21 árs Ba-
kúbúi fyrir þeirri stóru áskorun að
hrifsa heimsmeistaratitilinn af hin-
um 33 ára Anatoly Karpov. Framan
af hafði heimsmeistarinn tögl og
hagldir í einvíginu og þegar níunda
skákin hafði runnið sitt skeið á enda
var staðan 4-0 fyrir Karpov. Hann
bætti einum sigri við í 27. skákinni
og þurfti eingöngu einn sigur í við-
bót til að ljúka verkinu. Kasparov
beit þá í skjaldarrendur og þegar 48
skákum var lokið hafði hann breytt
stöðunni í 5-3 en þá var sú umdeilda
ákvörðun tekin að binda enda á ein-
vígið. Haustið 1985 hófust þeir kapp-
ar aftur handa og tefldu nú 24 skáka
einvígi þar sem áskorandinn þurfti
12½ vinning til að hreppa titilinn.
Þegar komið var að lokaskákinni
hafði Kasparov 12 vinninga en Kar-
pov 11. Um hreina úrslitaskák var
því um að ræða og tefld var uppá-
haldsbyrjun Kasparovs, Sikileyjar-
vörn.
Hvítt: Anatoly Karpov
Svart: Garry Kasparov
1. e4 c5 2. Rf3 d6 3. d4 cxd4 4.
Rxd4 Rf6 5. Rc3 a6 6. Be2 e6 7. 0-0
Be7 8. f4 0-0 9. Kh1 Dc7 10. a4 Rc6
11. Be3 He8 12. Bf3 Hb8 13. Dd2
Bd7 14. Rb3 b6
Þessi staða hafði komið upp áður í
einvíginu en þá fékk hvítur lítið upp
úr krafsinu. Næsti leikur hvíts legg-
ur spilin á borðið – blásið skal til
mátsóknar.
(Sjá stöðumynd 1)
15. g4 Bc8 16. g5 Rd7 17. Df2! Bf8
18. Bg2 Bb7 19. Had1 g6 20. Bc1!
Hbc8?! 21. Hd3 Rb4 22. Hh3 Bg7?!
Næsti leikur hvíts er dæmigerður
fyrir Karpov en á ekki við í stöðunni.
Sýnt hefur verið fram á að svartur
stæði höllum fæti eftir 23. f5!
23. Be3? He7! 24. Kg1 Hce8! 25.
Hd1! f5! 26. gxf6 Rxf6 27. Hg3 Hf7
28. Bxb6 Db8 29. Be3 Rh5 30. Hg4
Rf6 31. Hh4
Hvítur gat sætt sig við jafntefli
eftir 31. Hg3 en eins og gefur að
skilja var það ekki kostur í stöðunni.
Eftir textaleikinn nær svartur öfl-
ugri gagnsókn.
(Sjá stöðumynd 2)
31. ... g5! 32. fxg5 Rg4 33. Dd2
Rxe3 34. Dxe3 Rxc2 35. Db6 Ba8 36.
Hxd6??
Tapleikurinn.
36. ...Hb7! 37. Dxa6 Hxb3 38.
Hxe6 Hxb2 39. Dc4 Kh8 40. e5
Da7+ 41. Kh1 Bxg2+ 42. Kxg2
Rd4+ og hvítur gafst upp. Kasparov
varði titil sinn í einvígjum við Kar-
pov árin 1986, 1987 og 1990. Hann
vann nánast öll skákmót sem hann
tók þátt í og taflmennskan var glæsi-
leg. Langvarandi útistöður hans við
forystumenn alþjóðlegu skákhreyf-
ingarinnar, FIDE, leiddu ásamt
fleiru til þess að hann og þáverandi
áskorandi hans, Nigel Short, klufu
sig frá samtökunum og tefldu einvígi
um heimsmeistaratitilinn undir
merkjum nýrra samtaka. Þetta var
árið 1993 og verður að teljast mesta
glappaskot Kasparovs. Síðan þá
hafa verið tveir heimsmeistaratitlar
í skák og það hefur valdið sundr-
ungu sem hefur haft í för með sér að
erfiðara hefur reynst að fá fé í grein-
ina. Yfirburðir Kasparovs á skáksv-
iðinu héldust þó áfram og vann hann
Indverjann Viswanathan Anand í
einvígi 1995. Eftir tvö mögur ár náði
hann stórkostlegum árangri árið
1999 og tefldi þá eina bestu skák
allra tíma gegn Veselin Topalov í
Wijk aan Zee. Að loknum 23. leik
svarts kom eftirfarandi staða upp en
Kasparov hafði hvítt.
(Sjá stöðumynd 3)
24. Hxd4!! cxd4?
Síðar var bent á að svartur hefði
ekki átt að þiggja fórnina.
25. He7+! Kb6 26. Dxd4+ Kxa5
27. b4+ Ka4 28. Dc3 Dxd5 29. Ha7
Bb7 30. Hxb7 Dc4 31. Dxf6 Kxa3 32.
Dxa6+ Kxb4 33. c3+! Kxc3 34.
Da1+ Kd2 35. Db2+ Kd1
Svarti kóngurinn hefur farið í
langt ferðalag og endað för sína í
herbúðum andstæðingsins. Kasp-
arov reiðir nú fram enn eina kan-
ínuna úr hatti sínum.
(Sjá stöðumynd 4)
36. Bf1! Hd2 37. Hd7! Hxd7 38.
Bxc4 bxc4 39. Dxh8 Hd3 40. Da8 c3
41. Da4+ Ke1 42. f4 f5 43. Kc1 Hd2
44. Da7 og svartur gafst upp. Kasp-
arov sigraði á hverju mótinu á fætur
öðru eftir þetta en haustið 2000 beið
hann í lægra haldi fyrir Vladimir
Kramnik í heimsmeistaraeinvígi.
Þrátt fyrir þetta áfall hélt hann sér
alltaf hæstum á stigalista FIDE og í
huga flestra skákáhugamanna var
hann kóngurinn. Væntanlega hefur
sérstaða hans haft þau áhrif að of
margir vildu leggja stein í götu hans
svo að hann fengi aftur tækifæri til
þess að ná heimsmeistaratitlinum.
Hann sjálfur hefur einnig ekki verið
þekktur fyrir að sýna af sér auð-
mýkt en slíkt hefði að öllum líkind-
um hjálpað til við að leysa stöðu
mála. Kannski eftir nokkur ár verð-
ur sagt um ákvörðun Garrys í síð-
ustu viku að þetta hafi verið nauð-
synlegt svo að mál í skákheiminum
færðust í betra horf. Hún gerir það
vonandi að verkum að orka manna
fari frekar í að leysa þann vanda sem
uppi er í stað þess að fjargviðrast út í
besta skákmann allra tíma.
Skákferill Kasp-
arovs – minning
SKÁK
Brot úr skáksögunni
Morgunblaðið/Ómar
Á ferli Kasparovs var Karpov hættulegasti andstæðingurinn.
Helgi Áss Grétarsson
daggi@internet.is
Stöðumynd 2
Stöðumynd 3 Stöðumynd 4
Stöðumynd 1
Besti skákmaður allra tíma
ÍSLENSKUM gæðadögum í Nóatúni, sem Samtök
iðnaðarins og aðildarfyrirtæki stóðu fyrir undir yf-
irskriftinni Þitt val skiptir máli, lauk í síðustu viku.
Fjöldi íslenskra framleiðenda tók þátt í þeim, kynnti
nýjar vörur og veittur var afsláttur af völdum
vörum.
Af því tilefni bauðst viðskiptavinum Nóatúns að
setja nafn sitt í pott dagana 3.–10. mars. Margir
freistuðu gæfunnar og svöruðu spurningum og
fengu að launum gjafakörfu frá íslenskum framleið-
endum. Lokadaginn voru síðan dregnir út tveir við-
skiptavinir og hreppti Ólöf Flygenring gjafabréf að
verðmæti 50 þúsund kr. frá Nóatúni og Sigrún Har-
aldsdóttir hlaut gjafabréf frá Flugfélagi Íslands.
Hlaut inneign-
arbréf í Nóatúni
Kristinn Skúlason, markaðsstjóri Nóatúns, afhendir
vinningshafa Íslenskra gæðadaga, Ólöfu Flygenring,
gjafabréf að verðmæti 50 þúsund krónur frá Nóatúni. Til
hægri er Jóhann Ólason, verslunarstjóri Nóatúns í
Smáralind, og fyrir framan dóttir Ólafar, Sigríður Þóra.
EVRÓPSKRI aðgerðaviku gegn
kynþáttafordómum lýkur 21.
mars sem er alþjóðlegur dagur
Sameinuðu þjóðanna gegn kyn-
þáttafordómum.
Í tilefni dagsins standa Mann-
réttindaskrifstofa Íslands og Al-
þjóðahús fyrir málþingi í Nor-
ræna húsinu mánudaginn 21.
mars kl. 17–18.30, um kynþátta-
fordóma þar sem ætlunin er að
ræða fordóma gegn innflytjendum
og útlendingum hér á landi og
þróun íslensks fjölmenningarsam-
félags.
Frummælendur eru: Hulda
Karen Daníelsdóttir, fræðsluráð-
gjafi í nýbúafræðslu, Tatjana Lat-
inovic, formaður Samtaka kvenna
af erlendum uppruna á Íslandi,
Carlos Melgar þjónn og Ingibjörg
Hafstað, forstjóri Fjölmenningar
ehf. Hallfríður Þórarinsdóttir
mannfræðingur stýrir fundi. Að-
gangur er ókeypis og öllum opinn.
Að loknum erindum gefst tóm til
umræðna og fyrirspurna.
Málþing um kynþáttafordóma
AÐALFUNDUR SARK, Samtaka
um aðskilnað ríkis og kirkju, var
haldinn nýlega. Í nýja stjórn SARK
voru kjörin Friðrik Þór Guðmunds-
son (oddviti), Harpa Frankelsdóttir,
séra Hjörtur Magni Jóhannsson,
Magnús Axelsson, Sigurður Hólm
Gunnarsson (varaoddviti/gjaldkeri),
Sóley Gréta Sveinsdóttir (ritari) og
Stefán Friðriksson.
Auk stjórnar gera lög samtakanna
ráð fyrir myndun sérstaks Samráðs
stuðningsfélaga um málefnið, en öll
félög, samtök og flokkar sem styðja
aðskilnað ríkis og kirkju geta tilnefnt
tvo fulltrúa í Samráð. Tæplega 500
manns eru félagar í SARK og voru 22
nýir félagar samþykktir á aðalfund-
inum. Samtökin byggjast á frjálsum
framlögum – engin félagsgjöld eru
innheimt.
„SARK áréttar þá grundvallar-
stefnu sína að aðskilja beri ríki og
kirkju. Samtökin telja aðskilnaðinn
forsendu fyrir jafnrétti og lýðræði í
trúmálum og þá skiptir mestu að af-
nema 62. greinar stjórnarskrárinnar,
en þar segir: „Hin evangelíska lút-
erska kirkja skal vera þjóðkirkja á
Íslandi og skal ríkisvaldið að því leyti
styðja hana og vernda. Breyta má
þessu með lögum.“ Auk þess krefjast
samtökin afnáms allra annarra sér-
réttinda þjóðkirkjunnar í lögum og
hefðum. Samtökin leggja áherslu á
jafnrétti fólks og stofnana, virðingu
fyrir trú og siðum allra og réttinum
til að standa utan allra trúflokka með
óskert mannréttindi. Samtökin eru
andvíg sjálfkrafa skráningu fólks í
trúfélög við fæðingu, einhliða trú-
fræðslu í skólum og andvíg þeirri
mismunun sem ríkir í fjárveitingum
til trúfélaga.
SARK bendir á að kannanir hafa
sýnt ár eftir ár að um það bil tveir af
hverjum þremur landsmönnum eru
fylgjandi aðskilnaði ríkis og kirkju.
Fjölmargt þjóðkirkjufólk telur það
og þjóðkirkjunni fyrir bestu að segja
skilið við ríkið með formlegum hætti.
Um 43 þúsund Íslendingar eru nú ut-
an þjóðkirkjunnar, í ýmsum trúfélög-
um eða utan trúfélaga. Þessi fjöldi,
einn af hverjum sjö landsmönnum,
býr að óbreyttu við þarflausa og
rangláta mismunun. Henni verður að
linna. SARK hvetur stjórnvöld og
þjóðkirkjuna sjálfa til að virða vilja
þjóðarinnar og hefja þegar undirbún-
ing að fullum aðskilnaði ríkis og
kirkju,“ segir í ályktuninni.
Hvetja til aðskilnaðar
ríkis og kirkju