Morgunblaðið - 19.03.2005, Blaðsíða 62

Morgunblaðið - 19.03.2005, Blaðsíða 62
Grettir Smáfólk Kalvin & Hobbes Risaeðlugrín © DARGAUD SJÁÐU HVAÐ SKÝJIN ERU FALLEG. ÖLL ÞESSI MISMUNANDI FORM. ÉG GÆTI HORFT Á ÞAU Í ALLAN DAG OG ÞAÐ ER HÆGT AÐ SPÁ Í VEÐRIÐ OG ÁRSTÍÐIRNAR Í MEÐ ÞVÍ AÐ SKOÐA LÖGUN ÞEIRRA NEI JÚ NEI JÚ NEI JÚ JÚ!! TIL DÆMIS EF ÞÚ SÉRÐ SKÝ SEM LÍTUR ÚT EINS OG LIRFA EN BREYTIST Í VINDINUM... ÞANGAÐ TIL ÞAÐ ERORÐIÐ EINS OG FIÐRILDI, ÞÁ ER VORIÐ AÐ KOMA NEI... Ö... ÉG MEINA... VÁ! OG EF ÞÚ SÉRÐ SKY SEM LÍKIST SOFANDI RISAEÐLU ÞÁ ER SUMARIÐ Í NÁND KAMELLJÓN SEGIR TIL UM BREYTINGU Í VEÐRI ÉG SKIL. AF ÞVÍ ÞAÐ BREYTIR UM LIT EN KÝR? HVAÐA KÝR? ÞESSIÞARNA! GETTU! NE AF HVERJU ERU KETTIR SVONA DULARFULLIR? LEYFIÐ MÉR AÐ TJÁ YKKUR ÁSTÆÐUNA MEÐ DANSI VEISTU UM EINHVERN SEM ER GLAÐUR? OG ER SAMT EKKI ORÐINN KLIKKAÐUR... AF HVERJU ERTU AÐ NUDDA HANDLEGGINN Á MÉR MEÐ ÞESSARI BÓMULL? ÆTLARÐU AÐ SETJA BLÓÐSUGU Á MIG? ÆTLARÐU AÐ LÁTA SJÚGA ÚR MÉR ALLT BLÓÐIÐ? ÞÚ ÆTLAR EKKERT AÐ TAKA HÖNDINA AF ER ÞAÐ? HVAÐ VAR ÞETTA?!? VAR ÞETTA SPRAUTA?!? HÚN FÓR ALLA LEIÐ Í GEGN!!! AAAAAHHHH!!! ÉG ÆTLA AÐ VONA AÐ ÞÚ SÉRT TRYGGÐUR FYRIR LÆKNAMISTÖKUM, SKOTTULÆKNIRINN ÞINN! MAMMA!!! Dagbók Í dag er laugardagur 19. mars, 78. dagur ársins 2005 Sumir telja aðknattspyrna sé spurning um líf og dauða. Þetta eru mikil vonbrigði. Ég get sannfært ykkur um að hún er miklu, miklu mikilvægari en svo,“ sagði Bill Shankly, goðsögnin sem var við stjórn- völinn enska knatt- spyrnuliðsins Liver- pool á gullaldartíma- bili þess. Víkverja varð hugsað til þess- ara orða Shanklys gamla á dögunum. Þannig er nefnilega mál með vexti að Víkverji hefur talsverða unun af því að horfa á „sína menn“ í enska boltanum etja kappi við kollega sína þar í landi. Hann hefur stutt „sína menn“ dyggilega áratugum saman, missir varla úr leik, en hefur þó aldr- ei viljað taka jafn djúpt í árinni og gamli Shankly. Fótbolti er jú bara leikur. En nú er það svo að „menn“ Vík- verja hafa ekki staðið sig sem skyldi innan vallar síðasta áratuginn eða svo. Víkverji hefur samt sem áður reynt að bera sig mannalega og minnt sjálfan sig á að það er margt annað í tilverunni sem skiptir meira máli en fótbolti. Samt sem áður verður hann fyrir ólýsanlegum von- brigðum í hvert ein- asta skipti sem „hans menn“ tapa leik og það gerist alltof oft þessa dagana. Víkverji verð- ur afar niðurdreginn, vart viðræðuhæfur og hefur allt á hornum sér. Ekki bæta háðs- glósur félaganna úr skák. En sérstaklega verður hann pirraður yfir því hversu pirr- aður hann verður. Af hverju í ósköpunum ætti honum ekki að standa á sama um hvernig ofdekraðir unglingar í Englandi standa sig í leikfimi? Eftir hvern einasta tapleik heitir Víkverji því að nú sé nóg komið, hann hafi margt betra við tímann að gera en að liggja fyrir framan sjónvarpið til að glápa á 22 karlmenn í stuttbuxum sparka á milli sín svínsleðri. Pirring- urinn endist hins vegar ekki lengur en fram að næsta leik. Þá nær Vík- verji að sannfæra sig um að nú sé fram undan betri tíð með blómum í haga og nú fari „hans mönnum“ að ganga allt í haginn. Það skyldi þó ekki vera að Shankly gamli hafi haft eitthvað til síns máls? Víkverji skrifar... | vikverji@mbl.is        Reykjanesbær | Gallerí Suðsuðvestur er fersk viðbót í menningarflóru Suðurnesja, en þar er stefnan að hýsa sýningar gagnrýnna listamanna. Í dag kl. 17 afhjúpar myndlistarmaðurinn Ásmundur Ásmundsson nýjan skúlptúr, „Into the firmament“, þar sem hann endurskapar kampavínspíramída með olíutunnum og steinsteypu. Ásmundur gaf ljósmyndara örlítið forskot á sæluna þegar hann átti leið hjá í gær, en allt í allt verður píramídinn fimm hæða hár og gríðarþungur, enda munu allar tunnurnar fyllast af steinsteypu. „Into the Firmament“ er minnisvarði til heiðurs siðmenningarinnar, ekki síst afkima hennar þar sem myndlist ræður ríkjum. Með því að setja píramídann í varanlegt form stein- steypunnar er augnablik hamingjunnar fryst í sinni hreinustu mynd. Víkurfréttir/Hilmar Bragi Ólystugt kampavín MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍMAR: Skiptiborð: 569 1100. Aug- lýsingar: 569 1111. Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329, fréttir 569 1181, íþróttir 569 1156, sérblöð 569 1222, auglýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 569 1115. NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.400 kr. á mánuði innanlands. Í lausasölu 220 kr. eintakið mánudaga til laugardaga. Sunnudaga 350 kr. Allt er mér falið af föður mínum, og enginn veit, hver sonurinn er, nema faðirinn, né hver faðirinn er, nema sonurinn og sá sem sonurinn vill opinbera hann. (Lúk. 10, 22.)
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.