Morgunblaðið - 19.03.2005, Page 65

Morgunblaðið - 19.03.2005, Page 65
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 19. MARS 2005 65 MENNING THE NORDIC ART SCHOOL IN KARLEBY, FINLAND is a free, intermediate level art school in Scandinavia.The school offers a two-year education in art. The main subjects are draw- ing, painting,contemporary art and art theory. Tuition is also given in video, sculpture, graphic art and installation.The tuition is handled by a director of education and a head teacher. The school is also known for its unique guest teaching programme with 30-35 guest teachers per year, from Scandinavia and other European countries. The teaching languages are Swedish and English. Application in the middle of May. Application form, brochure and information from: The Nordic Art School - Nordiska Konstskolan Borgmästaregatan 32, FIN-67100 Karleby, Finland Phone: +358 6 822 0906, fax: +358 6 831 7421 e-mail: info@nordiskakonstskolan.org www.nordiskakonstskolan.org KYNJAHLJÓÐ munu berast um sali Borgar- leikhússins kl. 15.15 í dag þegar Tinna Þor- steinsdóttir hefur leik sinn á 15:15 tónleikum á Nýja sviðinu. Á tónleikunum mun Tinna leika verk nokk- urra meistara 20. aldarinnar, en þar má telja Sonatas and Interludes eftir John Cage, For Prepared Piano eftir Christan Wolff, Inter- mission 5 og Piano Piece eftir Morton Feldman, Guero eftir Helmut Lachenmann og Quattro Illustrazioni eftir Giacinto Scelsi. Tvö verkanna á efnisskrá Tinnu eru skrifuð fyrir undirbúið píanó (Prepared Piano), sem var hugarfóstur tónskáldsins John Cage, en þar er framandi hlutum eins og skrúfum, boltum, plasti, gúmmíi, strokleðrum og fleira komið fyr- ir milli strengja píanósins til að breyta hljóði þess í eins konar slagverkshljóðheim. „Það er kannski vinnan á bak við það sem er mjög skemmtileg og svolítið langt ferli. Maður þarf að aðlaga sig nýjum hljóðum sem koma út úr hljóðfærinu,“ segir Tinna og bætir við að til- finningin í hljómborðinu breytist einnig töluvert vegna þess að áferðin á strengjunum breytist. „Þá þróar maður líka með sér nýja tilfinningu í fingurgómunum. Þetta breytir tækninni svolítið og tóneyrað breytist í slagverkstóneyra en ekki píanótóneyra. Það eru svolítil viðbrigði fyrir píanóleikara að fá svona allt annað hljóðfæri upp í hendurnar. Maður heyrir þarna slagverks- hljóðfæri, bongótrommur, bjöllur, Gamelan- bjöllur og fleira. Það eru svolítið austræn blæ- brigði yfir þessu. Þetta er líka ofsalega skemmtileg vinna, mað- ur er orðinn sérfræðingur í skrúfum, lengd þeirra, breidd og gerð. Ég lærði að „undirbúa píanó“ á kúrsi í náminu mínu í Boston fyrir nokkrum árum og það tekur um 1 og hálfan tíma að undirbúa píanóið fyrir tónleika í hvert sinn. Verkin á tónleikunum eru mörg hver að kljást við viðfangsefnið hljóðið, en Feldman, Cage og Lachenmann breyttu hljóðheimi píanósins tölu- vert og sýn samtímans á hann.“ Tónlist | Tinna Þorsteinsdóttir leikur á undirbúið píanó á 15:15 tónleikum í dag Ný tilfinning í fingurgómunum Morgunblaðið/Árni Sæberg Undirbúningur píanósins tekur ekki aðeins tíma við uppsetningu þess, heldur þarf píanóleikarinn í raun að læra á hljóðfærið upp á nýtt. OPIÐ hús verður í Klink og Bank í Brautarholti 1 í dag kl. 14-18, en Klink og Bank fagnar einmitt eins árs afmæli um þessar mundir. Af því tilefni munu listamenn Klink og Bank opna vinnustofur sínar fyrir gestum og gangandi og sýna vinnu sína í því formi sem við á; tónlist, myndlist, hönnun kvikmyndagerð, ljósmyndun ofl. Í Græna sal verður horft um öxl og sýnt brot af öllum þeim fjölda at- burða og vinnu sem átt hefur sér stað í Klink og Bank síðasta árið. Á opna deginum verður eitthvað fyrir alla, m.a. verður boðið upp á bíó fyrir börn og fullorðna, barið verð- ur á parabólur, gjörningar kvikna út um allt hús og börnin mega mála á veggi. Þá verða léttar veitingar í boði og allir eru velkomnir. Ljósmynd/Kristinn Ingvarsson Nína Magnúsdóttir, hússtýra Klink og Bank, býður gesti velkomna. Opið hús í Klink og Bank FINNSKA rokktríóið 22–Piste- pirkko mætir til landsins í dag og leika þeir félagar á Nasa í kvöld kl. 21 ásamt sveitunum Brite Light og Singapore Sling. 22– Pistepirkko geta svo sannarlega kallast Íslandsvinir, enda er þetta í þriðja skiptið sem sveitin heim- sækir landið. Sveitin var stofnuð í smábæn- um Utajarvi í N-Finnlandi í kringum 1982 af tveimur bræðr- um og æskuvini þeirra og því má segja að sveitin eigi sér langa sögu. Þeir sendu frá sér sína fyrstu plötu 1987 en alls hafa komið út 8 plötur sem hafa feng- ið lofsamlega dóma. 22–Piste- pirkko er þó einkar þekkt fyrir kraftmikla framkomu á tón- leikum. Nýjasta plata sveitarinnar heit- ir Drops & Kicks sem er plata vikunnar á Rás 2 þessa vikuna. Munu lög af þeirri plötu væntan- lega heyrast í kvöld. Forsala miða er í 12 tónum og hefst á þriðjudaginn. Eftir tónleika 22-Pistepirkko tekur hljómsveitin Í svörtum föt- um við og leikur fyrir dansi. 22–Pistepirkko á NASA í kvöld HLJÓMSVEITIRNAR Kimono og Skakkamanage leiða saman hesta sína á Grand Rokk í kvöld kl. 23 og má því án efa vænta hinnar ágæt- ustu rokkgleði í þeim húsum. Sveitirnar eru nokkuð ólíkar að gerð og upplagi, en leika báðar tón- list sem kenna má við óháðar stefn- ur innan rokksins. „Þetta eru lög sem hafa verið að verða til á síðasta ári,“ segir Svavar Pétur Eysteinsson, gítarleikari og söngvari Skakkamanage, en sveitin hefur nú starfað í rúmt ár. „Tvö laganna koma út á sjötommu í lok mánaðarins, en þeim verður síðan öllum troðið inn á breiðskífu með vorinu.“ Tónlist Skakkamanage er breyti- leg, að sögn Svavars. „Allt frá því að vera lágstemmt artífartípopp upp í graðhestarokk. Það er engin föst stefna, eða þröngar línur. Það fer eftir veðri, en allavegana ekk- ert eftir því sem er að gerast í músík annars staðar í heiminum.“ Kimono og Skakka- manage leika á Grand Rokk í kvöld Morgunblaðið/Sverrir PERSÓNUR úr Ávaxtakörfunni ætla að sýna sig og sjá aðra í Kringlunni kl. 14 í dag og skemmta gestum með leik og söng. Ný geislaplata með lögum úr sýn- ingunni kemur út í dag og af því tilefni árita ávextirnir nýju plötuna fyrir framan verslun Skífunnar. Hverri plötu fylgir litabók með myndum af persónunum í Ávaxta- körfunni. Á morgun munu svo ávextirnir gleðja börnin á Barnaspítala Hringsins. Börnin fá að gjöf geislaplötuna með lögunum úr Ávaxtakörfunni, litabók og bækur eftir höfund Ávaxtakörfunnar Kristlaugu Maríu Sigurðardóttur og síðan glæsilegt páskaegg frá Nóa Síriusi og að sjálfsögðu verða sungin nokkur lög úr sýningunni. Ávextir gefa út plötu og gera víðreist Morgunblaðið/RAX HELGA Sigurðardóttir opnar í dag kl. 14 einkasýningu á vatnslitaverkum í list- sýningarsal Saltfiskseturs Íslands í Grindavík. Aðalviðfangsefni Helgu eru að eigin sögn orkuflæði lands og fjalla, kraftur, stórfengleg fegurð og litadýrð í íslenskri náttúru og umhverfi. Verkin túlka sterk áhrif náttúrunnar en notkun kröftugra lita, mikils flæðis og litasprenginga eru einkennandi í sýningunni. „Innblástur margra verkanna er fenginn frá Snæ- fellsjökli og er hann sýndur í mismun- andi litbrigðum en margar aðrar nátt- úruperlur hafa verið hugmyndahvatar,“ segir Helga m.a. um verk sín. „Snæfells- jökull hefur alltaf heillað mig og síðast- liðið sumar í Langaholti upplifði ég hann á sérstakan hátt. Í verkum mínum reyni ég að túlka þau áhrif sem ég verð fyrir og sýna kraftinn sem fylgir jöklinum. Hann hrífur mig með sér þegar hann rís tignarlegur upp úr sjónum eins og hann sést hér oft á suðvesturhorninu. Þá get ég ekki staðist hann og verð ekki í rónni fyrr en ég næ áhrifunum á blað. Þá er tilganginum náð.“ Helga segir það sama að segja um Jökulsárlón. „Það er sama orkan sem fylgir jökunum í lóninu. Ég hrífst sér- staklega af því hvernig jakarnir brjótast fram og fljóta um í kynngimagnaðri náttúrunni. Þá magnast upp í mér orkan og hugurinn fer á stað. Það er svo auð- velt að túlka þessa upplifun í vatns- litnum þar sem hann flýtur í vatninu og leyfir svo mikið orkuflæði. Þess vegna er vatnsliturinn sá miðill sem ég kýs mér helst. Fossarnir eru eitt af þeim viðfangsefnum sem ég hef tileinkað mér. Gullfoss í klakaböndum hefur verið mér hugleikið verkefni. Þar kemur aftur fram þessi gífurlega orka í íslenskri náttúru þó að þarna sé hún beisluð í klakabönd- um. Þá eru það íshellarnir í Hrafntinnu- skeri. Þeir eru magnaðir og það er sér- stök reynsla að kynnast þessu fyrir- brigði og þar hef ég komist í snertingu við óbeislaða náttúru og glímt við þau verkefni í vatnslitnum.“ Sýningin stendur til 4. apríl nk. og er opin frá kl. 11–18 alla daga. Sterkir náttúrukraftar í Saltfisksetrinu Vöggusæn gur vöggusett PÓSTSENDUM Skólavörðustíg 21 ● sími 551 4050 ● Reykjavík

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.