Morgunblaðið - 19.03.2005, Blaðsíða 10
10 lifun
borðbúnaður
B o r ð f y r i r B j ö r n
Við búum orðið í landamæralausri veröld, manneskjur: hvítar,
svartar, gular og rauðar, langar, stuttar, þykkar og smáar.
Veröldin er eins og bland í poka, ávaxtakarfa í öllum regn-
bogans litum. Þannig veisluborð eru líka áhugaverðust, þar
sem saman fer borðbúnaður úr ólíkum áttum og umburðar-
lyndið ræður ríkjum.
Nýir, gamlir, stórir og smáir hlutir sem hafa örvandi og
skáldleg áhrif á okkur sem njótum þess að eiga samfélag við
matarborðið. Borðið mitt að þessu sinni er blanda af nútíð og
fortíð. Diskurinn á miðju borðsins frá 1954 heitir „Gwendolen
Fairfax“, er hönnun Björn Wiinblad. Hann fæddist í Kóngsins
Kaupmannahöfn árið 1918 og varð þekktur hönnuður á
sjöunda áratugnum fyrir gler, keramik, textíl og silfur. Björn
hannaði mikið fyrir þýska framleiðandann Rosenthal. Margir
kannast einmitt við jóladiskana þeirra frá 1971-1983, nýr
diskur var gefinn út árlega. Ævintýri H.C. Andersens um Hans
klaufa, sem Skjaldborg gaf út 1992, er myndskreytt af
listamanninum.
Könnur að hætti ísdrottningarinnar eru úr Góða hirðinum,
sömuleiðis ísmolafatan, teketillinn og matardiskarnir.
Fylgidiskar ýmiss konar eru skemmtileg skreyting ofan á stærri
diska og þannig má hanna ný matar- og kaffistell, allt eftir því
hvernig vindar blása.
U
m
sj
ó
n
In
g
a
B
ry
nd
ís
J
ó
ns
d
ó
tt
ir
M
yn
d
ir
G
un
na
r
Sv
er
ri
ss
o
n