Morgunblaðið - 08.04.2005, Side 2
2 FÖSTUDAGUR 8. APRÍL 2005 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
FJÖLMIÐLATILLÖGUR
Fjölmiðlanefnd mennta-
málaráðherra skilaði sameiginlegri
tillögugerð fulltrúa allra flokka um
fjölmiðla í gær. Tillögur nefnd-
arinnar eru í sjö liðum um nauðsyn-
leg viðbrögð vegna þeirra aðstæðna
sem uppi eru í fjölmiðlaumhverfinu.
Somerfield opnar bókhald
Stjórn Somerfield ákvað í gær að
opna bækur sínar fyrir tilboðs-
gjöfum í fyrirtækið, en meðal þeirra
eru Baugur Group. Bækurnar verða
opnaðar í dag, en ekki liggur fyrir
hve lengi þær verða opnar.
Útför páfa í dag
Útför Jóhannesar Páls páfa II fer
fram í Róm í dag. Verður meg-
inathöfnin úti fyrir dyrum Péturs-
kirkjunnar og var áætlað að hún
myndi taka þrjár klukkustundir.
Átti hún að hefjast klukkan tíu að
staðartíma en átta að íslenskum.
Talið var í gær að aðkomumenn í
Róm, sem þangað voru komnir til að
kveðja páfa, væru um fjórar millj-
ónir og meðal þeirra voru um 200
frammámenn, forsetar, forsætisráð-
herrar, konungar og fulltrúar ým-
issa trúarbragða.
Talabani forseti Íraks
Jalal Talabani var í gær kjörinn
forseti Íraks og er það í fyrsta sinn,
sem Kúrdi skipar svo hátt embætti í
landinu. Hans fyrsta verk var að út-
nefna Ibrahim Jaafari, einn helsta
leiðtoga kosningabandalags sjíta,
sem forsætisráðherra.
Ofbeldi gegn öldruðum
Ljóst er að ofbeldi gegn öldruðum
á sér stað í nokkrum mæli hér á
landi, þrátt fyrir að það sé vel falið.
Léleg heilsa og skert líkamleg geta
er áhættuþáttur þar sem fólk getur
ekki varið sig eða leitað hjálpar.
Y f i r l i t
Í dag
Sigmund 8 Bréf 27
Fréttaskýring 8 Forystugrein 28
Úr verinu 12 Viðhorf 30
Viðskipti 13 Minningar 30/38
Erlent 14/15 Myndasögur 42
Minn staður 16 Dagbók 42/44
Landið 17 Staður og stund 42
Höfuðborgin 18 Leikhús 46
Akureyri 18 Af listum 52
Austurland 20 Bíó 50/53
Daglegt líf 20/22 Ljósvakamiðlar 54
Menning 23 Veður 55
Umræðan 24/27 Staksteinar 55
* * *
Morgunblaðið Kringlunni 1, 103 Reykjavík. Sími 5691100 Innlendar fréttir frett@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson, aðstoðarfréttaritstjóri, aij@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, aðstoðarfréttaritstjóri, sisi@mbl.is Erlendar fréttir Ásgeir Sverrisson, fréttastjóri,
asv@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Agnes Bragadóttir, fréttastjóri, agnes@mbl.is Úr verinu Hjörtur Gíslason, fréttastjóri, hjgi@mbl.is Daglegt líf Guðbjörg Guðmundsdóttir, gudbjorg@mbl.is Menning menning@mbl.is Orri Páll Ormarsson, ritstjórnarfulltrúi,
orri@mbl.is Skarphéðinn Guðmundsson, skarpi@mbl.is Umræðan|Bréf til blaðsins Magnús Finnsson, fulltrúi ritstjóra, magnus@mbl.is Guðlaug Sigurðardóttir, gudlaug@mbl.is Minningar minning@mbl.is Hilmar P. Þormóðsson, Stefán Ólafsson Dagbók|Kirkju-
starf Ellý H. Gunnarsdóttir, elly@mbl.is Íþróttir sport@mbl.is Sigmundur Ó. Steinarsson, fréttastjóri, sos@mbl.is Útvarp|Sjónvarp Auður Jónsdóttir, dagskra@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is
!
"
#
$
%&' (
)***
TEKJUR ríkissjóðs jukust um fjórð-
ung á fyrstu tveimur mánuðum árs-
ins miðað við sama tímabil í fyrra og
námu tæpum 61 milljarði króna. Það
er aukning um 12 milljarða króna frá
sama tímabili í fyrra, sem að stærst-
um hluta má rekja til stóraukinna
skatttekna fyrstu mánuði ársins,
bæði af beinum og óbeinum sköttum.
Útgjöld ríkissjóðs á sama tíma voru
þremur milljörðum króna hærri en
áætlað var.
Samkvæmt upplýsingum um
greiðsluafkomu ríkissjóðs á fyrstu
tveimur mánuðum ársins námu
skatttekjur rúmum 57 milljörðum
króna. Það jafngildir 25,6% hækkun
frá fyrra ári, sem er 20,5% meiri inn-
heimta að raungildi. Skattar á tekjur
og hagnað námu 22,8 milljörðum
króna og hækkuðu um 27,5% frá
fyrra ári og skattar á vöru og þjón-
ustu hækkuðu um 22,4% sem er
17,5% raunhækkun. Þar ber hæst að
innheimta virðisaukaskatts hækkaði
um 23,2% og innheimta vörugjalda
af ökutækjum jókst sem nam 88,9%,
en nýskráningar ökutækja fyrstu tvo
mánuði ársins slaga upp í það að
vera tvöfalt fleiri en á sama tíma í
fyrra.
5 milljarðar í tryggingagjald
Þá kemur fram að innheimta
tryggingagjalda nam 5 milljörðum
króna á fyrstu tveimur mánuðum
ársins og hækkaði um tæplega 24%.
Tryggingagjald er greitt af launum,
en launavísitala Hagstofu Íslands
hækkaði um 6,7% á tímabilinu og al-
mennt verðlag um 4,2%.
Í frétt frá fjármálaráðuneytinu af
þessu tilefni kemur fram að þar sem
uppgjörið nái einungis yfir tvo mán-
uði sé samanburður við fyrri ár háð-
ur ákveðinni óvissu vegna tilfærslu
tekna og gjalda milli einstakra mán-
aða.
Gjöld ríkissjóðs á tímabilinu námu
tæpum 48 milljörðum króna sem er
þremur milljörðum króna umfram
áætluð útgjöld. Tæpan helming þess
eða 1,3 milljarða króna má rekja til
heilbrigðismála, 900 milljónir til
menntamála og 500 milljónir króna
til vaxtagjalda.
Stórauknar tekjur af beinum og óbeinum sköttum á fyrstu mánuðum ársins
Aukningin tólf milljarðar
SAMTÖK ferðaþjónustunnar sam-
þykktu á aðalfundi sínum í gær að
ganga til viðræðna við stjórnvöld um
að reykingar verði bannaðar á veit-
inga- og skemmtistöðum frá og með
1. júní 2007. Það voru hótel- og veit-
ingamenn sem báru fram tillögu
þessa efnis og hlaut hún samhljóða
samþykki aðalfundar.
Í tillögunni segir meðal annars að
miklar breytingar hafi orðið síðustu
árin á reykingavenjum fólks og til-
litssemi aukist til muna. Hótel- og
veitingamenn innan samtakanna hafi
í fjölmörg ár unnið að því að reyk-
lausum svæðum yrði fjölgað og nú sé
svo komið að um 80 veitingastaðir
séu alveg reyklausir og fjölmargir
staðir til viðbótar leyfi ekki reyk-
ingar í matsölum. Þá hafi miklar um-
ræður verið síðustu árin um starfs-
umhverfi þeirra sem vinna í
reykmettuðu lofti og hafi nokkur
lönd því bannað reykingar á veit-
ingastöðum, sem og öðrum vinnu-
stöðum.
Bann óhjákvæmilegt
Erna Hauksdóttir, fram-
kvæmdastjóri Samtaka ferðaþjón-
ustunnar, segir eftirspurn gesta eftir
reyklausum svæðum og herbergjum
hafa aukist gríðarlega mikið. „Maður
sem rekur stórt hótel úti á landi var
að segja okkur áðan að þegar hann
byrjaði var hann með tíu reyklaus
herbergi af sjötíu, en nú er hann með
tíu herbergi þar sem reykingar eru
leyfðar,“ segir Erna. „Við höfum
fylgst með þeim umræðum sem hafa
átt sér stað bæði hérlendis og erlend-
is, hvað varðar starfsaðstæður fólks
og vinnuvernd. Í ljósi þeirrar þróun-
ar var það niðurstaða veitingamanna
að taka upp viðræður við stjórnvöld
um að reykbann verði sett á, en ekki
fyrir 1. júní 2007, til að gefa mönnum
svigrúm til að aðlagast. Það verður
ekki litið fram hjá því að það fylgir
mikið af vandamálum þessum breyt-
ingum, þannig að það er mjög merki-
legt að veitingahúsin skuli ganga
fram fyrir skjöldu og móta sér stefnu
í þessu máli.“
Morgunblaðið/Kristinn
Veitingamenn leggja til
reykingabann 2007
Eftir Svavar Knút Kristinsson
svavar@mbl.is
KVIKMYNDAEFTIRLIT ríkisins
hefur sent Ísleifi Þórhallssyni,
skipuleggjanda kvikmyndahátíðar-
innar Iceland International Film
Festival 2005, bréf þess efnis að sýn-
ing á mynd Svíans Lucas Moodysons
Ett hål i mitt hjärta (Gat í hjarta
mínu) sé leyfð með mjög ströngum
skilyrðum.
Mælist Kvikmyndaeftirlit til þess
að myndin verði einvörðungu sýnd í
tilefni Kvikmyndahátíðar og þess
sérstaklega gætt í þessu tilviki að
börn eigi ekki aðgang að myndinni.
Þá er mælst til þess að sérstakur
starfsmaður gæti aðgangs að mynd-
inni. Ennfremur bendir Kvikmynda-
eftirlit á það að sýningar á myndinni
gætu varðað við 210. grein hegning-
arlaga um birtingu klámefnis og
gætu sýnendur átt von á kæru á
þeim grundvelli.
Ísleifur segir aðstandendur kvik-
myndahátíðarinnar vissulega munu
virða tilmæli Kvikmyndaeftirlitsins,
enda sé alls ekki ætlunin að myndin
standi viðkvæmum sálum til boða.
„Ég er fegnastur því að myndin fer í
sýningu á morgun og fólk fær þá að
draga eigin ályktanir,“ segir Ísleifur.
„Það hefði verið mjög óskemmtilegt
ef Íslendingum hefði ekki verið leyft
að sjá þessa mynd og gera upp sinn
eigin hug. Þetta er einn virtasti leik-
stjóri samtímans og þarna er hann
bara að tjá sig um eitthvert ástand í
nútímasamfélagi sem honum finnst
ekki mjög gæfulegt. Þetta er auðvit-
að ekki þægilegt en honum finnst
hann þurfa að fara þessa leið, að gera
mynd sem fólki finnst óþægilegt að
horfa á.“
Kvikmyndahúsagestir í Svíþjóð
hafa gengið út af sýningum mynd-
arinnar sem frumsýnd var þar í landi
17. september.
Sýningin leyfð með
ströngum skilyrðum
ALGENGASTA verð á 95 oktana
bensíni hækkaði um nær 4% eða
tæpar fjórar krónur hjá Skeljungi,
Olís og Esso í gær og er nú 102,50
en algengasta verð á dísilolíu í
sjálfsafgreiðslu hjá olíufélögunum
þremur er nú 49 krónur fyrir lítr-
ann.
Skeljungur reið á vaðið og hækk-
aði verð á eldsneyti í gær en ástæð-
an er hækkun á heimsmarkaðsverði
á olíu að sögn félagsins. Esso og Ol-
ís fylgdu síðan í kjölfarið og hækk-
uðu verð hjá sér.
Verð á eldsneyti hjá Atlantsolíu
hækkaði hins vegar ekki í gær.
Verð á eldsneyti
hækkar um 4%
ELSA Waage
kontraalt-
söngkona syngur
hlutverk Erdu í
uppfærslu á óp-
erunni Siegfried
eftir Richard
Wagner á
listahátíð í
Mexíkóborg,
Festival de Méx-
ico en el Centro Histórico. Alls
verða fjórar sýningar á óperunni,
sú fyrsta hinn 17. apríl næstkom-
andi. Með titilhlutverkið fer aust-
urríski tenórinn Peter Svensson.
„Þetta er listahátíð sem haldin er
árlega og er ein stærsta listahátíð í
S-Ameríku. Það er ýmislegt á boð-
stólum, djass, ballett og fleira, og
undanfarin ár hefur Niflungahring-
urinn verið á dagskrá. Nú er þriðja
óperan sett upp, Siegfried,“ segir
Elsa, sem fer með hlutverk jarð-
arinnar sjálfrar, eða Erdu.
Syngur Wagner
í Mexíkó
Elsa Waage
Hlutverk/46