Morgunblaðið - 08.04.2005, Blaðsíða 15
arinnar, Fiumicino, minnkaði um 30
af hundraði. Lögreglan í Róm sagði
að umferð einkabíla yrði bönnuð í
allri borginni í fyrsta skipti í nútíma-
sögu hennar. Öllum opinberum
skrifstofum og skólum var einnig
lokað vegna útfararinnar.
Skyttur á bak við styttur
Yfir 10.000 her- og lögreglumenn
verða á varðbergi í Róm, þeirra á
meðal allt að 1.000 skyttur sem verða
á mikilvægum stöðum í borginni, til
að mynda á bak við styttur við Pét-
urstorgið, að sögn ítalska dagblaðs-
ins La Repubblica.
Auk her- og lögreglumanna eiga
um 8.000 sjálfboðaliðar og 20.000
starfsmenn borgarinnar að aðstoða
við að vernda opinberu gestina og
mannfjöldann á götunum. Notaðir
verða hundar til að leita að hugsan-
legum sprengjum og lögreglan
hvatti fólk til að vera ekki með neina
poka á götunum til að auðvelda ör-
yggisgæsluna.
Flugskeytum til að granda flug-
vélum hefur verið komið fyrir í út-
jöðrum Rómar vegna hugsanlegrar
árásar flugræningja. Atlantshafs-
bandalagið tekur einnig þátt í að-
gerðunum og hefur sent AWACS-
eftirlitsvélar og orrustuþotur af
gerðinni F-16 til að halda uppi eft-
irliti í lofthelginni.
Innanríkisráðherra Ítalíu, Beppe
Pisanu, sagði þetta í fyrsta skipti
sem gripið væri til svo umfangsmik-
illa öryggisráðstafana í landinu á
friðartímum en neitaði því að hættu-
ástand hefði skapast vegna mann-
mergðarinnar.
Umdeildir gestir
Um 200 forsetar, konungar, for-
sætisráðherrar og trúarleiðtogar
verða við útförina og koma tveggja
forsetanna til Rómar olli misklíð.
Kínversk stjórnvöld sögðust hafa
ákveðið að senda ekki fulltrúa í Páfa-
garð vegna þess að forseta Taívans,
Chen Shui-bian, var boðið að vera við
athöfnina. Páfagarður er eina ríkið í
Evrópu sem hefur stjórnmálasam-
band við Taívan.
Robert Mugabe, forseti Zimb-
abve, verður einnig við útförina þrátt
fyrir bann Evrópusambandsins við
því að hann ferðist til aðildarlanda
þess vegna umdeildra kosninga í
Zimbabve 2002. Mugabe fór lofsam-
legum orðum um páfa og hægt var
að túlka þau sem sneið til annarra
þjóðarleiðtoga við útförina. Hann
sagði að boðskapur Jóhannesar Páls
II ætti sérstaklega erindi til „leið-
toga sem beita sér fyrir stríði, sýna
fátækum enga miskunn eða ræna
auðlindum annarra þjóða“.
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 8. APRÍL 2005 15
ERLENT
BERGSTAÐASTRÆTI 37 • SÍMI: 552 5700 • FAX: 562 3025
E-MAIL: holt@holt.is • http://www.holt.is
Ekki missa af þessum einstaka viðburði.
Margir urðu frá að hverfa í mars og þess vegna bjóðum
við þennan glæsilega afmæliskvöldverð út apríl.
Upplýsingar og borðapantanir í síma 552 5700.
Vinsælustu eftirréttirnir
Holtsvagninn
Þrír góðir saman
Tónar hafsins
Lambahryggsvöðvi „ tranche“ og turnbauti með fondant-kartöflu,
rótargrænmeti, villisveppasósu og Bearnaise (á matseðli 1970-1980)
• Graflax með ristuðu brauði og Víkingssósu (á matseðli síðan 1966)
• Frönsk lauksúpa (á matseðli 1969-1985)
• Sniglar í skel með hvítlauks-Pernodsmjöri (á matseðli 1969-1995)
Valdir sjávarréttir með austurlensku kryddi, grænmeti og hrísgrjónum,
steikt í koníaki (einn vinsælasti réttur Holtsins á árunum 1966-1996)
Fimm rétta matseðill fyrir 5.900 kr.
• Marsipan-ísrúlla með volgri súkkulaðisósu (á matseðli 1986-1993)
• Crêpes Suzette (öðru hverju á matseðli síðan 1966)
• Holtsís með Cherry Heering
Glóðarsteiktur humar í skel
(á matseðli síðan 1966)
„Stúlkur við síldarsöltun“ eftir Jón Þorleifsson, einn af fjölmörgum gimsteinum
íslenskrar myndlistar sem prýtt hafa húsakynni hótelsins frá upphafi.
Hótel Holt í 40 ár
Afmæliskvöldverður í apríl
TYRKINN Mehmet Ali Agca, sem
reyndi að ráða Jóhannes Pál II af
dögum árið 1981, verður ekki við-
staddur útförina í Páfagarði í dag
eins og hann hafði viljað. Tyrknesk
yfirvöld synjuðu beiðni hans um að
fá að fara úr fangelsi í nokkra daga
til að geta verið við útförina, að
sögn fréttastofunnar AFP í gær.
Agca sagði í skriflegri yfirlýs-
ingu á mánudag að hann syrgði
páfa og lýsti honum sem „andlegum
bróður“ sínum.
Agca var 23 ára þegar hann
hleypti af byssu á páfa á Péturs-
torginu. Páfi særðist alvarlega og
Agca sat í fangelsi á Ítalíu næstu
nítján árin.
Jóhannes Páll II heimsótti Agca
þangað og fyrirgaf honum.
Verður ekki
við útförina
Forsætisráðherra þess hluta Kasm-
írs sem Pakistanar ráða, Sardar Sik-
nadar Hayat Khan (t.h.), fagnar hér
Kasmírbúa frá indverska hluta
Kasmírs í gær við varðstöð í Cha-
kothi, um 58 km sunnan við borgina
Muzaffarabad, í gær. Fyrstu rútu-
ferðir milli héraðshlutanna tveggja í
meira en 50 ár voru farnar í gær og
var mikil viðhöfn vegna þessara
tímamóta. Þykja ferðirnar táknræn-
ar fyrir þann árangur sem náðst hef-
ur í friðarviðleitni milli Indverja og
Pakistana síðustu mánuðina.
Reuters
Táknræn rútuferð
að Darfur-málið
væri prófraun og
þótt nú hefði ver-
ið sent afrískt
friðargæslulið á
vettvang hefðu
samtökin brugð-
ist of seint við
ástandinu þar.
Annan sagði að
brýnt væri að
koma á fót nýrri mannréttindastofn-
un innan SÞ til að hægt væri að
draga úr þjáningum fólks um allan
heim. „Við erum komin að þeim
punkti þar sem efasemdir um áreið-
anleika nefndarinnar eru farnar að
varpa skugga á uppbyggingu Sam-
einuðu þjóðanna í heild sinni,“ sagði
Annan.
Genf. AFP. | „Nýtt skeið baráttu fyrir
mannréttindum er nú hafið og tími
yfirlýsinga er að víkja fyrir fram-
kvæmdinni, eins og vera ber,“ sagði
Kofi Annan, framkvæmdastjóri
Sameinuðu þjóðanna, í ræðu á fundi
mannréttindanefndar SÞ í Genf í
gær. Þá sagði hann mannréttinda-
nefndinni, sem nú starfar, hafa mis-
tekist að ná markmiðum sínum eins
og glöggt sæist á stöðu mála í Darf-
ur-héraði í Súdan.
Talið er að tugþúsundir óbreyttra
borgara hafi fallið í Darfur fyrir
hendi vígamanna sem ríkisstjórn
Súdans styður á bak við tjöldin. Alls
er talið að um 300.000 manns hafi lát-
ið lífið í héraðinu og um tvær millj-
ónir manna neyðst til að flýja heimili
sín undanfarin tvö ár. Sagði Annan
Annan gagnrýnir
mannréttindanefnd
Kofi Annan