Morgunblaðið - 08.04.2005, Síða 25
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 8. APRÍL 2005 25
UMRÆÐAN
www.toyota.is
Prius - Framtíðin hefst í dag
Verð: 2.630.000 kr.
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
T
O
Y
27
60
9
0
4/
20
05
Forfeður okkar fundu upp hjólið en nú hefur Hybrid-kerfið verið fundið upp: Lykillinn að umhverfisvænum þægindum í akstri. Með
Hybrid-kerfinu er Prius bæði knúinn bensínvél og rafmagnsvél. Í hægum akstri og þegar numið er staðar ræður rafmagnsvélin ríkjum.
Þetta veldur því að bíllinn er afar hljóðlátur, ótrúlega sparneytinn og með útblástur í lágmarki. Þeir bjartsýnu og framsæknu sjá framtíðina fyrir sér sem
veröld þæginda í heilbrigðu umhverfi. Komdu og reynsluaktu Prius. Hann er framtíðin.
Viltu aka inn í framtíðina?
Grundvöllurinn
Lög Alþingis eru lög valdsins.
Þeim verða menn að hlýða, þau tak-
marka oft svigrúm al-
mennings og ein-
staklinganna og leggja
á þá byrðar og skyld-
ur. Stjórnarskrá Ís-
lands er lög fólksins í
landinu. Þau vernda
réttindi þess og tak-
marka vald Alþingis
og ríkisvaldsins yfir
fólkinu.
Í þeirri umræðu,
sem nú er hafin um
endurskoðun á Stjórn-
arskrá Íslands ber
mest á þeim sjón-
armiðum að stjórnskip-
unarlög eigi fyrst og
fremst að fjalla um
innbyrðis samskipti
stjórnvalda svo og
samskipti stjórnvalda
við almenning og um-
gengni almennings við
stjórnvöld.
Lítið eða ekkert fer
fyrir umræðu um það
hversu frjálsir lands-
menn eiga að vera til þess að hafa
samskipti hver við annan, án af-
skipta eða milligöngu stjórnvalda.
Þvert á móti fjölgar og stækka
þau svið þar sem landsmenn þurfa
að búa við afskipti og eftirlit hins
opinbera, leyfi þeirra, úthlutun og
gjaldtöku.
Þetta er e.t.v. ekki óeðlilegt þar
sem almenningi er haldið utan við
umfjöllun um stjórnarskrármálið
með stuðningi stjórnarskrárinnar,
sem sett var þjóðinni árið 1944.
Íslenska þjóðin er búin að lifa
miklu sældarlífi á síðustu öld og er
orðin sljó fyrir og gleymin á þá bar-
áttu og það ástand
sem stjórnarskrár lýð-
ræðisríkja eru
sprottnar úr. Því er
ekki úr vegi að rifja
upp tilurð stjórn-
arskár lýðræðisríkja
og viðra ýmis sjón-
armið sem þeim við-
kemur.
Stjórnarskráin er
samfélagssáttmáli
landsmanna um það
hvernig eigi að stjórna
landinu. Hvað stjórn-
völdum leyfist og al-
veg sérstaklega um
það hvað þeim leyfist
ekki. Hún á ekki að
vera sáttmáli á milli
stjórnmálaflokka eða
stjórnmálamanna.
Stjórnarskráin er
ekki sáttmáli á milli
stjórnmálamanna og
þjóðarinnar. Stjórn-
arskráin er sáttmáli
fólksins. Stjórn-
málamennirnir eru hluti af þeim
sáttmála.
Stjórnarskráin
– Sígild viðhorf
Jóhann J. Ólafsson fjallar
um stjórnarskrána
’Stjórnarskráiner samfélags-
sáttmáli lands-
manna um það
hvernig eigi að
stjórna land-
inu.‘
Jóhann J. Ólafsson
Höfundur er stórkaupmaður í
Reykjavík.
Meira á mbl.is/greinar
VÍSINDUM hefur verið lýst svo að
þau séu söfnun á áreiðanlegri vitn-
eskju um heiminn. Fyrsta skrefið í
þannig þekkingarleit er að ganga úr
skugga um hvað þegar hefur verið
skrifað um það efni sem fengist er
við. Eina raunhæfa leiðin til þess þeg-
ar þetta er skrifað er að leita í stórum
rafrænum gagnasöfnum og vísinda-
tímaritum. Almenn leit á vef, eins og
til dæmis gegnum Go-
ogle, gefur ekki aðgang
að nema hluta af þessu
efni. Kaupa þarf áskrift
að mikilvægustu
gagnasöfnunum og
tímaritunum. Á Íslandi
er aðgangur að 31
gagnasafni og 8.000
tímaritum í fullri lengd
í landsáskrift. Það þýð-
ir með öðrum orðum að
hægt er að nálgast efni
þessara tímarita og
gagnasafna í hvaða
nettengdri tölvu sem
er á landinu, svo lengi sem hún er
tengd íslenskri netveitu.
Landsáskrift var ekki algeng þeg-
ar farið var af stað með þetta verkefni
á Íslandi og er enn fátíð í heiminum.
Við erum litin öfundaraugum af
mörgum fyrir vikið og íslenskir
námsmenn sem fara til náms í öðrum
löndum þekkja hvernig aðgangur
þeirra er oft miklu takmarkaðri þeg-
ar út er komið. Samningar um
landsáskrift voru meðal annars
mögulegir vegna legu landsins og
skýrra afmarkana þess. Þeir komust
þó fyrst og fremst á vegna þess að
framsýnt fólk sá mögu-
leika sem felast í raf-
rænni áskrift. Rafrænn
aðgangur er ekki jafn-
þægilegur aflestrar og
prentmiðlar en hefur
einn umtalsverðan kost
fram yfir þá: Þar er
hægt að leita fljótt að af-
mörkuðu efni og fá nið-
urstöður rakleiðis í net-
tengda tölvu hvar sem
er á landinu. Vitað var
að mikil spurn væri eftir
þjónustu sem þessari og
hefur aðgangurinn reynst ómet-
anlegur fyrir vísindasamfélagið.
Aukning á notkun vísindalegra
greina hefur numið 50% milli ára síð-
ustu 4 árin. Síðasta ár voru rúmar
480.000 greinar í fullri lengd sóttar úr
vísindatímaritum auk yfir 100.000
leita í Web of Science. Auk þess voru
yfir 120.000 greinar sóttar í fullri
lengd í öðrum gagnasöfnum í lands-
áskrift.
Hvar.is er vefsetur landsaðgangs-
ins. Auk beins aðgangs að gagnasöfn-
um eru þar leiðbeiningar um notkun
safnanna og aðrar upplýsingar um
aðganginn. Þar má einnig finna
gagnasöfn sem eru í ókeypis aðgangi
sem nýtast við hvers kyns fræða-
grúsk. Að lokum eru þar gagnasöfn á
sviði heilbrigðisvísinda og verkfræði
sem eru í landsaðgangi fyrir til-
stuðlan stofnana og fyrirtækja sem
kosta aðganginn fyrir allt landið.
Lengi vel var aðaláherslan á fræði-
leg rit á ensku en í seinni tíð hafa
bæst við áskriftir að gagnasöfnum á
sviði lista og bókmennta auk um-
fangsmikilla gagnasafna á íslensku.
Dýrasti hlutinn er sem fyrr áskriftir
að greinum í vísindatímaritum. Þær
greinar eru ekki afþreyingarefni
heldur nauðsynlegur hluti rannsókna
og þróunarstarfs í landinu. Aðgangur
að þeim gerir kleift að reka smáar
rannsóknar- og háskólastofnanir
hvar sem er á landinu. Fjöldi slíkra
stofnana hefur sprottið upp á síðustu
árum. Þær hafa ekki aðgang að
stórum sérfræðibókasöfnum og væru
illa staddar með öflun gagna ef ekki
væri fyrir landsaðganginn. Á sama
hátt er fjöldi sprotafyrirtækja sem
nýtur þessa aðgangs. Mikilvægast er
þó að hann er stór hluti af gagnanotk-
un stærri stofnana sem einnig styðj-
ast við þjónustu og safnkost stórra
sérfræðibókasafna. Hann er ein af
undirstöðum rannsókna og þróunar í
landinu, geira sem nálgast 4% af
þjóðarframleiðslunni. Aðalkostur
hans er hversu mikill tími sérfræð-
inga sparast. Það kemur í ljós um leið
og þeir þurfa að fara aðrar leiðir til að
ná í greinar.
Það eru bókasöfn landsmanna, og
þá sérstaklega nokkur sérfræði-
bókasöfn, bókasafn Landspítala – há-
skólasjúkrahúss og Landsbókasafn
Íslands – Háskólabókasafn sem gera
þennan aðgang kleifan með fram-
lögum sínum. Allar nánari upplýs-
ingar eru á vefsetri aðgangsins,
http://hvar.is.
Hvar.is – Ein-
stakur aðgangur
Sveinn Ólafsson fjallar
um þekkingarleit ’Hvar.is er vefseturlandsaðgangsins. Auk
beins aðgangs að gagna-
söfnum eru þar leiðbein-
ingar um notkun safn-
anna og aðrar
upplýsingar um aðgang-
inn.‘
Sveinn Ólafsson
Höfundur er umsjónarmaður
landsaðgangsins.