Morgunblaðið - 08.04.2005, Side 45
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 8. APRÍL 2005 45
DAGBÓK
Staðurogstund
http://www.mbl.is/sos
Félagsstarf
Aflagrandi 40 | Bingó alla föstudaga
og ýmsar uppákomur. Vinnustofa og
baðstofa opnaðar kl. 9, allir velkomn-
ir.
Árskógar 4 | Bað kl. 8–14. Handa-
vinna kl. 9–12. Smíði/útskurður kl.
13–16.30. Bingó kl. 13.30.
Bólstaðarhlíð 43 | Almenn handa-
vinna, hárgreiðsla, böðun, fótaað-
gerð, spiluð félagsvist kl. 13:30.
Dalbraut 18–20 | Kl. 9–11 kaffi og
dagblöð, kl. 9–12 baðþjónusta, kl. 9–
16.45 hárgreiðslustofan opin, kl. 10–
13 námskeið, kl. 11,15–12,15 matur, kl.
14–15 söngstund, kl. 14.30–15.30
kaffi.
Dalbraut 18–20 | Kl. 9–11 kaffi og
dagblöð, kl. 9–12 baðþjónusta, kl. 9–
16.45 hárgreiðslustofan opin, kl. 10–
13 námskeið, kl. 11.15–12.15 matur, kl.
14–15 söngstund, kl. 14.30–15.30
kaffi.
Félag eldri borgara í Kópavogi | Fé-
lagsvist í kvöld kl. 20.30 í Gjábakka.
Félag eldri borgara í Kópavogi |
Brids í Gjábakka í dag kl. 13.15.
Félagsstarf aldraðra, Garðabæ |
Slökunarjóga og teygjur kl. 10.30 og
11.30. Fótaagerðastofa, tímapantanir
í síma 899 4223. Opið í Garðabergi
frá 12.30 til 16.30.
Félagsstarf Gerðubergs | Kl. 9–
16.30 vinnustofur opnar. Kl. 10.30
létt ganga um nágrennið. Frá hádegi
spilasalur opinn. Veitingar í hádegi
og kaffitíma í Kaffi Bergi.
Hraunbær 105 | Kl. 9 almenn handa-
vinna, bútasaumur. Útskurður. Hár-
greiðsla. Kl. 10 fótaaðgerð. Kl. 12 há-
degismatur. Kl. 14 bingó. Kl. 15 kaffi.
Hraunsel | Moggi, rabb og kaffi frá
kl. 9, leikfimi í Bjarkarhúsinu kl. 11.30,
brids kl. 13 og boccia kl. 13.30.
Hvassaleiti 56–58 | Frjáls aðgangur
að opinni vinnustofu, postulínsmáln-
ing. Böðun virka daga fyrir hádegi.
Fótaaðgerðir.
Hæðargarður 31 | Félagsstarfið er
öllum opið. Betri stofa og Lista-
smiðja 9–16. Handverk og myndlist.
Gönuhlaup 9.30. Brids 13.30. Skrán-
ing á 6 vikna framsagnarnámskeið
sem hefst 11. apríl. Kennari Soffía
Jakobsdóttir, leikkona og aðjúnkt í
KHÍ. Skráning hafin á þæfing-
arnámskeið. Uppl. 568 3132.
Norðurbrún 1, | Kl. 9–12 myndlist, kl.
10 Boccia, kl. 9 opin hárgreiðslu-
stofa, kl. 14 leikfimi.
Vesturgata 7 | Kl. 9–16 hárgreiðsla
og fótaaðgerðir, kl. 9.15–14.30 hann-
yrðir, kl. 11.45–12.45 hádegisverður,
kl. 13.30–14.30 sungið v/flygilinn, kl.
14.30–15.45 kaffiveitingar, rjóma-
pönnukökur. Kl. 14.30–16 dansað í að-
alsal.
Vitatorg, félagsmiðstöð | Smiðja kl.
8.45, leirmótun og hárgreiðsla kl. 9,
morgunstund og fótsnyrting kl
10.30, leikfimi kl. 10, Bingó kl. 13.30,
allir velkomnir.
Kirkjustarf
Breiðholtskirkja | Foreldramorgunn
alla föstudaga kl. 10–12. Kaffi og létt
spjall. Allir velkomnir.
Hvítasunnukirkjan Fíladelfía |
Kirkja unga fólksins, samkoma kl.
19.30. Bænastund kl. 19, G. Ólafur
Zóphoníasson talar, Þóra Gísladóttir
leiðir lofgjörð. Allir velkomnir.
www.filo.is.
Kirkja Jesú Krists hinna síðari
daga heilögu, mormónar | Í dag,
föstudaginn 8. apríl kl. 19, heldur
Líknarfélag Kirkju Jesú Krists hinna
síðari daga heilögu hóf í kapellunni
að Ásabraut 2, Garðabæ.
Árnaðheilla
dagbók@mbl.is
90 ÁRA afmæli. Í dag, 8. apríl, erníræð Anna Þorsteinsdóttir
frá Heydölum, Furugerði 1, Reykja-
vík. Eiginmaður hennar er Kristinn
Hóseason, fyrrv. prófastur.
85 ÁRA afmæli. Í dag, 8. apríl,verður 85 ára Björn Hall-
dórsson frá Nesi í Loðmundarfirði.
Björn dvelur á Hrafnistu í Reykjavík
en verður að heiman á afmælisdaginn.
70 ÁRA afmæli. Í dag, föstudaginn8. apríl, er sjötugur Eyjólfur
Eysteinsson, verslunarstjóri Vínbúðar
í Keflavík. Hann og kona hans, Þor-
björg Pálsdóttir, húsmóðir og f.v. lag-
erstjóri, verða ekki heima en nánasta
fjölskylda heldur hátíð með þeim fjarri
heimili þeirra sem er að Suðurgötu 5,
Keflavík.
70 ÁRA afmæli. 10. apríl nk. ersjötug Elínborg Ósk Elísdótt-
ir, Hlíðarvegi 56, Njarðvík. Eigin-
maður hennar er Kristinn Sigurjón
Antonsson. Þau taka á móti gestum
laugardaginn 9. apríl eftir kl. 15 í sal
Frímúrara á Bakkastíg í Ytri-
Njarðvík.
50ÁRA afmæli. Í dag, 8. apríl,erfimmtug Auður Þorgeirsdóttir.
Hún er að heiman og dvelur í Prag.
60ÁRA afmæli. Sunnudaginn 10.apríl verður sextug Bára Guð-
mundsdóttir frá Ólafsvík, Boðagranda
2, Reykjavík. Af því tilefni tekur hún, og
fjölskylda hennar, á móti ættingjum og
vinum kl. 19 laugardaginn 9. apríl í Ver-
sölum, Hallveigarstíg 1.
50 ÁRA afmæli. Mánudaginn 11.apríl verður fimmtug Rán
Gísladóttir, Reykjabraut 20, Þorláks-
höfn. Af því tilefni tekur Rán, og fjöl-
skylda hennar, á móti vinum og kunn-
ingjum í dag, föstudaginn 8. apríl í
Ráðhúsi Þorlákshafnar kl. 19–23.
50 ÁRA afmæli. Þriðjudaginn 12.apríl verður Inga María Ingv-
arsdóttir, leikskólastjóri 50 ára. Í til-
efni afmælisins mun hún og eigin-
maður hennar, Gunnar Þór Jónsson,
taka á móti ættingjum og vinum í golf-
skálanum í Leiru föstudagskvöldið 8.
apríl kl. 19.00.
70 ÁRA afmæli. Í dag, 8. apríl, ersjötug Clara G. Waage, fyrr-
verandi kaupmaður, Kríunesi 6,
Garðabæ. Hún dvelur á afmælisdaginn
í Mexíkó.
8. apríl
Kerlingar og vörður
yfir víðáttuna ber.
Eyrarrósin drúpir hógvær
höfði fyrir þér,
en hrísrunnarnir kræklóttu
hlæja að mér.
Hvarflar máni skarður
fyrir skýjamynd á svig.
Heillavænleg stjörnumerki
stara á þig,
en spegilmynd í hylnum kalda
horfir á mig.
Erlendur Jónsson (f. 1929): úr Spegilmynd og mýraljós
Önnur afmælisbörn dagsins:
Sigurður Bjarnason 1841
Ólína Jónasdóttir 1885
Walentin Chorell 1912 (Finnland)
Barbara Kingsolver 1955 (Bandaríkin)
Árbók bókmenntanna
Í tilefni af viku bókarinnar 19.–25. apríl mun Félag íslenskra bóka-
útgefenda gefa út bók sem bóksalar munu afhenda viðskiptavinum
sínum að gjöf þessa daga. Bókin nefnist Árbók bókmenntanna og er
skipt niður á alla daga ársins og er birt ljóð eða tilvitnun í einn eða
fleiri höfunda sem afmæli eiga þann dag. Ritstjóri bókarinnar er
Njörður P. Njarðvík. Morgunblaðið mun birta tilvitnun dagsins til
loka viku bókarinnar.
SÍÐASTA sýning á leikriti Harolds
Pinter, Svik, verður á laugardags-
kvöldið í Borgarleikhúsinu.
Leikritið segir frá klassískum ást-
arþríhyrning, nema hvað sagan er
sögð aftur á bak í tíma og hefst á
endalokum sambandsins og vinnur
sig aftur að fyrsta stolna kossinum.
Leikendur í Svikum eru Hilmir
Snær Guðnason, Jóhanna Vigdís
Arnardóttir og Ingvar Sigurðsson.
Leikstjóri er Edda Heiðrún Back-
man.
Svik er unnið í samstarfi við Leik-
félag Akureyrar, Sögn ehf og Leik-
hópinn Á senunni.
Morgunblaðið/Sverrir
Svik á enda
HLJÓMSVEITIN
Groundfloor spilar á
Kaffi Rósenberg í
kvöld kl. 22.
Groundfloor hefur
verið starfandi í að
verða eitt og hálft
ár. Í upphafi voru
aðeins tveir með-
limir, Ólafur Tómas
gítarleikari og
söngvari og Har-
aldur Ægir kontra-
bassaleikari. Fljót-
lega fengu þeir til
liðs við sig trommu-
leikarann Þorbjörn
Emilsson, trompetleikarann Jóhann
Böðvar og söngkonuna Hörpu Þor-
valdsdóttur.
Tónlist Groundfloor er ekki auð-
skilgreind. En hljómsveitin sækir
áhrif sín víðsvegar, t.d. í popp, djass,
rokk og kántrý.
Ólafur segir að Kaffi Rósenberg
sé frábær tónleikastaður og sér-
staklega notalegt andrúmsloft þar
inni. „Rósenberg er án efa einn af
okkar uppáhalds tónleikastöðum til
að spila á og hlusta á aðra,“ segir
hann.
„Við vissum upphaflega ekki hvað
við vorum að gera þegar Óli kom
með kassagítarinn til mín og spilaði
fyrir mig nokkur lög sem hann hafði
verið að semja,“ segir Haraldur.
„Svo fórum við að kryfja þetta
nótnalega og smátt og smátt fóru að
myndast lög.“
Ólafur bætir við að þeir hafi verið
fljótir að sjá að svona fjölbreytileg
tónlist – og eins og þeir setja hana
fram – hefur ekki verið áberandi hér
heima. „Þó get ég ekki fullyrt það
því að ég hef ekki séð og heyrt í öll-
um hljómsveitum landsins,“ segir
Ólafur. „Þetta eru bara kassagít-
arlög sem ég fór með heim til Halla
og hann setti í blönduna smá djass
og síðan blönduðu allir saman sínum
uppáhalds þáttum úr tónlist og úr
því varð fínasta súpa.“
Aðgangseyrir í kvöld er 500 kr.
Morgunblaðið/Sverrir
Groundfloor leikur
á Kaffi Rósenberg
HVAÐ er að gerast hjá íslenskum
málurum um þessar mundir? Hvað
eru þeir að mála? Á sýningunni Þver-
skurður af málverki í Hoffmannsgall-
eríi í ReykjavíkurAkademíunni geta
forvitnir áhugamenn um málaralist
kynnt sér það.
Sýningin verður opnuð í dag klukk-
an 16 og verða þar verk eftir u.þ.b. 30
listamenn og er hópurinn mjög fjöl-
breyttur, enda er sýningin hugsuð
sem þverskurður af málverkinu eins
og það er um þessar mundir. Hann
nær þó ekki yfir allt sviðið, það varð
að velja úr m.a. vegna hins takmark-
aða húsrýmis í Hoffmannsgalleríi.
Hugmyndin er að sýningin geti gefið
mynd af þeim möguleikum sem mál-
verkið hefur uppá að bjóða í nútíman-
um. Vegna fjölda verka, verður henni
skipt í tvö tímabil og verður helm-
ingur verkanna sýndur fyrst. Að því
búnu verður skipt um verk sem verða
sýnd á síðara tímabilinu.
Meðal þeirra sem eiga verk á sýn-
ingunni eru Didda H. Leaman, Egg-
ert Pétursson, Guðmundur Thorodd-
sen, Guðrún Tryggvadóttir,
Hafsteinn Michael, Helgi Þorgils
Friðjónsson, Húbert Nói Jóhann-
esson, Kristín Gunnlaugsdóttir.
Hoffmannsgallerí er samstarfs-
verkefni Myndlistarskólans í Reykja-
vík og ReykjavíkurAkademíunnar.
Sýningin er opin alla virka daga frá 9
til 17 og stendur yfir til maíloka.
Hvað eru
þeir að mála?
Fréttir á SMS