Morgunblaðið - 09.04.2005, Síða 22
Stuðningsmenn
Samfylkingar!
Takið þátt í uppbyggingu á öflugum stjórnmálaflokki
sem byggir á hugsjónum jafnaðarstefnunnar og gangið í
Samfylkinguna. Nú stendur fyrir dyrum lýðræðislegt
formannskjör sem allir flokksmenn geta tekið þátt í.
Þeir sem vilja taka þátt í kosningunni verða að hafa
gengið í flokkinn fyrir 15. apríl.
Allar nánari upplýsingar á www.samfylking.is
og á skrifstofu flokksins,
Hallveigarstíg 1, 101 Reykjavík, sími 551 1660.
Egilsstaðir | Það er fátt nota-
legra á úrsvölum vordegi en að
fá að setjast í eldhúskrókinn hjá
afa og ömmu og fá heitt kakó til
að ylja sér á. Kristbjörg Mekkín
Helgadóttir, fjögurra ára hnáta
úr Fellunum, fær sérstakar
trakteringar þegar heita kakóið
er annars vegar; blómmynstr-
aðan sparibolla með undirskál
og sérstaka kakókönnu til að
skenkja úr.
Nú liggur snjóþekja yfir Hér-
aði eins og víðar og ungviðið
hefur sjálfsagt ekkert á móti því
að geta enn um sinn bunað
brekkur á þoturassi eða efnt í
góðan snjóbolta.
Morgunblaðið/Steinunn Ásmundsdóttir
Heitt kakó í eldhúshorninu
Notalegt
Höfuðborgin | Akureyri | Suðurnes | Austurland | Landið
Minnstaður
Höfuðborgarsvæðið Brjánn Jónasson, brjann@mbl.is, sími 569-1100. Suðurnes Helgi
Bjarnason, helgi@mbl.is, sími 569-1310 og 669-1310. Akureyri Margrét Þóra Þórsdóttir,
maggath@mbl.is og Kristján Kristjánson, krkr@mbl.is, sími 461-1600. Vesturland Ásdís
Haraldsdóttir, asdish@mbl.is, sími 898-5258. Austurland Steinunn Ásmundsdóttir, aust-
urland@mbl.is, sími 669-1115. Árborgarsvæðið og Landið Helgi Bjarnason, helgi@mbl.is,
sími 569-1310 og 669-1310 og Guðrún Aðalsteinsdóttir, frett@mbl.is, sími 569-1290.
Mínstund frett@mbl.is
Það lyftist brúnin á þeim fjölmörgu veg-
farendum sem fara á milli Selfoss og höf-
uðborgarsvæðisins þegar þau tíðindi bárust
að fjármagn hefði verið veitt til vegabóta á
Suðurlandsvegi um Hellisheiði. Fjárveiting
þessi, 300 milljónir, fyrir árið 2007 er hvergi
nægjanleg til þess að koma til móts við ósk-
ir vegfarenda sem vilja helst sjá tvöfaldan
upplýstan veg til þess að auka umferðarör-
yggi á þessari leið. Miklir toppar í umferð
um helgar allt árið með risatoppum yfir
sumartímann eru staðreynd. Umferðin á
þessari leið vex og þá um leið hættan á
óhöppum eins og raun ber vitni. Lög-
reglustjórinn í Árnessýslu hefur látið þess
getið að það kunni að þurfa að grípa til þess
að takmarka umferð ákveðinna hægfara
ökutækja á vissum tímum. Það er mikil um-
ræða á Selfossi, í Hveragerði og hjá sum-
arbústaðafólki um breikkun og lýsingu Suð-
urlandsvegar. Umræðan nær eðlilega
hæðum þegar óhöpp verða enda margir
hræddir við að fara Heiðina. Þykir mörgum
gæta feimni hjá ráðandi aðilum við að setja
fram stórar óskir til framtíðar um uppbygg-
ingu vegarins, með tvöföldun og lýsingu.
Svona kröfur eru settar fram á Reykjanesi,
Vestfjörðum, Norðurlandi og Austurlandi
og þær ná hljómgrunni ráðherra, komast í
verkferli og verða að veruleika. Sunnlend-
ingar virðast þurfa múrbrjót í málefnum
Suðurlandsvegar.
Selfossbúarylja sér þessa dagana við
góðar minningar frá fyrri tíð og fá sér
gjarnan snúning með sinni heittelskuðu á
dansleikjum hjá sveitaballahljómsveitum
fyrri tíma. Má þar nefna hljómsveitirnar
Lótus og Raflost sem núna fá til liðs við sig
Loga frá Vestmannaeyjum og Ragga
Bjarna með sína ljúfu tóna. Raflost og Log-
ar hafa komið fram öðru hverju en Lótus
hefur ekki spilað opinberlega í 12 ár.
Skólamálin eru hugleikin fólki en á fundi
um nýtt aðalskipulag voru þau orð látin
falla af skipulagshöfundi að rætt hefði verið
um að leggja niður skólahald á Eyrarbakka
og Stokkseyri, flytja mætti börnin á Sel-
foss. Þetta vakti mikla umræðuöldu enda
finnst mörgum þá fokið í flest skjól fyrir
þéttbýlisstaðina við ströndina. Komið hefur
fram að þetta var bara spjall því bæj-
arfulltrúar hafa keppst við að bera þetta til
baka. En þetta sýnir að fara verður varlega
þegar rætt er um hjartans mál íbúanna,
skólann.
Úr
bæjarlífinu
FRÁ SELFOSSI
EFTIR SIGURÐ JÓNSSON FRÉTTARITARA
Húnvetningar ogAustfirðingarreyna með sér í
lomber í dag, laugardag, í
Hótel Vin að Hrafnagili í
Eyjafirði frá kl. 13 til 19.
Er það í fyrsta sinn svo
vitað sé sem tveir lands-
hlutar mætast og keppa í
hinu forna spili. Yfir 20
manns verða í hvoru liði.
Vinsældir lombers voru
mestar hér á landi á fyrri
helmingi 20. aldar og var
það vinsælt fjárhættuspil í
Reykjavík um skeið. Það er
spilað á nokkrum stöðum á
landinu, m.a. í Húnaþingi
og á Austurlandi. Stofnun
Gunnars Gunnarssonar á
Skriðuklaustri hefur staðið
fyrir námskeiðum síðustu
ár, en Gunnar Gunnarsson
skáld var einn þeirra sem
spiluðu lomber af mikilli
ástríðu.
Lomberslagur
Ársþing Héraðssambands Suður-Þingeyinga varhaldið um helgina og voru þar ungir íþrótta-menn heiðraðir eins og venja er. Glímumaður
árið 2004 var Pétur Þórir Gunnarsson frá ungmenna-
félaginu Mývetningi, en sundmaður HSÞ var Ásgerður
Ólöf Ásgeirsdóttir Völsungi. Þá var íþróttamaður árs-
ins kjörinn Þorsteinn Ingvarsson ungmennafélaginu
Einingu í Bárðardal.
Anna Sigrún Mikaelsdóttir, sem verið hefur formað-
ur HSÞ í átta ár, lét nú af störfum og við tók Arnór
Benónýsson.
Morgunblaðið/Atli Vigfússon
Glímumaður og
sundmaður HSÞ
Óttar Einarssondvaldi eina rign-ingarviku í sum-
arbústað á Flúðum og
orti:
Aftur hingað austur
fer
ekki nokkur maður.
Hrunamannahreppur
er
hræðilegur staður.
Jón Ingvar Jónsson
svaraði:
Una glaður Óttar má
oss þó regnið svekki.
Löngu horfið hárið á
honum blotnar ekki.
Bjarni frá Gröf orti
sígilda vísu um rign-
inguna:
Hér er bölvuð ótíð oft
og aldrei friður;
það ætti að rigna upp
í loft
en ekki niður.
Íslenska
veðrið
pebl@mbl.is
Ísafjörður| Bæjarstjórn Ísafjarðarbæjar
samþykkti samhljóða á fundi sínum í vik-
unni ályktun þar sem lýst er yfir miklum
vonbrigðum með fyrirhugaðar vegafram-
kvæmdir í samgönguáætlun fyrir árin
2005-2008 sem Sturla Böðvarsson sam-
gönguráðherra og fyrsti þingmaður Norð-
vesturkjördæmis lagði fram á dögunum. Í
ályktuninni kemur m.a. fram að malarveg-
ir þeir sem nú þarf að aka í Djúpi og á
Ströndum séu því sem næst ónýtir og orðn-
ir flöskuhálsar í umferð en um þjóðvegina
fari næstum allir þungaflutningar nú.
Algengt er að þungatakmarkanir séu á
þessari leið og þar með verður flutnings-
kostnaður mjög hár. „Eigi að aka þessa
vegi í fjögur til sex ár til viðbótar, hvort
sem er um Strandir eða Ísafjarðardjúp,
þarf að fara í kostnaðarsamt viðhald á
þeim, sem hægt er að komast hjá ef fjár-
magn verður aukið í leiðina um Djúp og
Arnkötludal.“
Þá kemur fram að Ísafjörður sé skil-
greindur sem byggðakjarni fyrir Vestfirði
og samgönguáætlun þurfi að taka mið af
því að samgöngur að og frá byggðakjörn-
um séu góðar. Vonast bæjarstjórn til að
ráðherra og þingmenn Norðvesturkjör-
dæmis
beiti sér fyrir hækkun fjárveitinga til
vegaframkvæmda í Ísafjarðardjúpi og um
Arnkötludal, svo að unnt verði að ljúka
þeim á árinu 2008.
Vonbrigði
með sam-
gönguáætlun
Húnavatnssýsla | Sameiningarnefnd hef-
ur sent lokatillögur um breytta sveitarfé-
lagaskipan í Húnavatnssýslu og var fjallað
um það á vefnum blonduos.is.
Nefndin komst að samhljóða niðurstöðu
um að gengið yrði til kosninga um samein-
ingu Áshrepps, Blönduósbæjar, Höfða-
hrepps og Skagabyggðar.
Verði af sameiningu þessara sveitarfé-
laga verður til sveitarfélag með um 1.700
íbúum. Er þessum sveitarfélögum gert að
tilnefna tvo fulltrúa, hvert, í samstarfs-
nefnd sem annist undirbúning atkvæða-
greiðslu tillögunnar og gerð kynningarefn-
is. Gert er ráð fyrir að atkvæðagreiðslur
um tillögur
sameiningarnefndar fari víðast fram 8.
október nk.
1.700 íbúar
♦♦♦
AUGLÝSINGADEILD
netfang: augl@mbl.is eða sími 569 1111