Morgunblaðið - 09.04.2005, Qupperneq 60
ÍSLENSKRI ferðaskrifstofu í Sví-
þjóð tókst að skjóta keppinautum
sínum ref fyrir rass ekki alls fyrir
löngu í hörðum slag um allra
stærsta ferðamannahóp sem kom-
ið hefur hingað til lands. Um er að
ræða 1.400 manna hóp frá Vara í
Vestur-Svíþjóð. Þar eru á ferð allir
starfsmenn sveitarfélagsins sem
fara reglulega utan í starfsmennta-
ferðir. Keppa ferðaskrifstofur um
svo stóran viðskiptamannahóp og
gera sveitarfélaginu girnileg tilboð
sem háð eru ströngum skilyrðum.
Benedikt Kristinsson er eigandi
og framkvæmdastjóri íslensku
ferðaskrifstofunnar Vulkan Travel
Group og mun með samningi sín-
um færa þjóðarbúinu á einu bretti
nærri tíu þúsund gistinætur í
haust.
Benedikt segir sveitarfélagið
Vara vinna mjög markvisst að end-
urmenntun starfsmanna sinna og
hafi verkefnaáætlunin þróast út í
það að starfsmennirnir fóru til
Mallorca á Spáni fyrir þremur ár-
um í þessu skyni. Sú ferð var boðin
út og leikurinn endurtekinn að
þessu sinni. Voru margir um hit-
una eins og nærri má geta. „Útboð-
ið var í nóvember og ferðaskrif-
stofur sendu inn tilboð og tillögur
að ýmiss konar ferðum,“ segir
Benedikt. „Valdar voru tíu ferða-
skrifstofur úr öllum hópnum sem
buðu upp á staði eins og Krít, Tall-
inn, skíðastaði og svo Ísland. Við
kynntum landið mjög vel og tókst
að bjóða upp á mjög samkeppn-
ishæft verð. Á endanum unnum við
útboðið og þetta sýnir að Ísland
getur vel keppt við aðra áfanga-
staði ef viljinn er fyrir hendi.“
Hópurinn frá Vara mun stunda
hér endurmenntun og starfs-
þjálfun í vikutíma en auk þess
ferðast um landið. „Ástæðan fyrir
valinu er sú að þeim þykir Ísland
mjög spennandi land,“ segir Bene-
dikt. Hann hefur verið í ferðaþjón-
ustunni í tvo áratugi og aldrei
heyrt um svo stóran hóp á leið
hingað til landsins.
Tíu starfsmenn vinna á Vulkan
Travel Group og flytja fimm þús-
und ferðamenn til Íslands árlega.
Tíu þúsund gistinætur
pantaðar á einu bretti
Morgunblaðið/Brynjar Gauti
Ferðamenn við leirhverina í Námaskarði bregða á leik.
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040,
ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI 1 LAUGARDAGUR 9. APRÍL 2005 VERÐ Í LAUSASÖLU 220 KR. MEÐ VSK.
UNGIR sem aldnir sækja sundlaugarnar af
krafti. Þegar ljósmyndari Morgunblaðsins
átti leið framhjá Kópavogslaug í gær stund-
aði unga fólkið skólasund en þeir sem eldri
eru syntu sér til heilsubótar. Sumir sýndu
meira að segja nokkur tilþrif í sundíþróttinni
eins og sá sem stakk sér glæsilega í laugina.
Ekki er ólíklegt að sundferðin hafi hjá mörg-
um endað í heita pottinum, enda gott að láta
líða úr sér í heitu vatni og ræða lífið og til-
veruna við aðra lífsins spekinga sem halda til
í pottunum.
Morgunblaðið/RAX
Líf og fjör á sundlaugarbakkanum
TALIÐ er fullvíst að tveir erlendir vísindasjóðir
muni leggja fram 4,2 milljónir dollara, um 260 millj-
ónir króna, til íslenska djúpborunarverkefnisins,
sem unnið er í samstarfi Landsvirkjunar, Orkuveitu
Reykjavíkur, Hitaveitu Suðurnesja og Orkustofn-
unar. Þetta kom fram í ræðu Friðriks Sophussonar,
forstjóra Landsvirkjunar, á samráðsfundi fyrirtæk-
isins sem haldinn var á Hótel Nordica í gær.
Verkefnið hefur staðið yfir í nærri fjögur ár og
hefur það meginmarkmið að finna nýtanlegan há-
hita á allt að fimm kílómetra dýpi. Yrði um margfalt
meiri orku að ræða en hefðbundnar vinnsluholur
gefa í jarðvarma í dag á 2–3 km dýpi. Friðrik sagði
einnig að á síðasta ári hefði einkum verið unnið að
fjármögnun verkefnisins en kostnaður við fyrstu til-
raunaholuna er áætlaður 1,5 til 2 milljarðar króna.
Mikilvægt verkefni
Sagði Friðrik það mikilvægt að ríkið legði veru-
lega fjármuni til verksins ásamt orkufyrirtækjun-
um og öðrum styrktaraðilum. Hér væri um lang-
tímaverkefni að ræða sem varðaði þjóðarhag og
myndi efla jarðhita- og jarðvísindastarfsemi.
Valgerður Sverrisdóttir iðnaðarráðherra vék að
djúpborunarverkefninu í ávarpi sínu á samráðs-
fundinum. Sagði hún þörf vera á samstilltu átaki
allra hagsmunaaðila. Niðurstöður verkefnisins
gætu nýst fjölmörgum ríkjum heims, ekki síst þró-
unarríkjum sem byggju yfir svipuðum háhitasvæð-
um og hin eldvirku íslensku svæði.
„Hér getur því verið um að ræða afar mikilvægt
verkefni fyrir íslensk stjórnvöld að benda á sem
mikilvægt þróunarverkefni á sviði endurnýjanlegra
orkulinda á heimsvísu,“ sagði Valgerður.
Erlendir sjóðir styrkja
djúpborun um 260 milljónir
Sala hafin/30–31
Eftir Björn Jóhann Björnsson
bjb@mbl.is
„TEIKNINGARNAR eru eins og
sólmúsíkin eða frumdjassinn í
Bandaríkjunum, einhvers konar
hjartsláttur í kerfinu sem dælir
blóði í málverkin,“ segir Helgi Þor-
gils Friðjónsson myndlistarmaður.
Helgi opnar tvær sýningar í dag. Í
Listasafni ASÍ eru málverk og
skúlptúrar en í 101 galleríi við
Hverfisgötu eru verk á pappír;
teikningar og rúmlega 50 nýjar
grafíkmyndir sem byggjast á Kenj-
unum eftir Goya, auk skúlptúra.
„Ég held ég myndi ekki þróast
jafnört í málverkinu og mér finnst
vera raunin ef ég væri ekki að sýsla
í hinu líka,“ segir Helgi.
Morgunblaðið/Einar Falur
Opnar tvær
sýningar
Hjartslátturinn/Lesbók
SENA, áður Skífan, mun í sumar
og haust gefa út á ný fjórar sí-
gildar íslenskar dægurplötur og
munu þær innihalda lög sem ekki
hafa heyrst opinberlega áður.
Þetta eru plöturnar Ísbjarnarblús
og Kona með Bubba Morthens,
Geislavirkir með Utangarðs-
mönnum og Sumar á Sýrlandi
með Stuðmönnum. M.a. verður
útgáfa af laginu „Stál og hnífur“
sem Bubbi flutti á Vísnavina-
kvöldi, tveimur tímum eftir að
hann samdi það. Einnig verða
gefin út fleiri lög frá þessum
tíma sem ekki hafa komið út áð-
ur./55
Tveggja tíma
gamalt „Stál og
hnífur“ á plötu
LEIKKONAN Stefanía Thors hefur
á undanförnum árum vakið athygli
í Tékklandi en hún starfar í Prag.
Sýning hennar Tiltölulega friðsæl
tilvera hefur vakið mikla athygli
frá því hún var frumsýnd í fyrra í
leikstjórn Rebekku A. Ingimundar-
dóttur. Stefanía hefur farið víða
með sýninguna en nú hefur eitt
þekktasta leikhúsið í Prag, Palac
Akropolis, boðið henni að sýna þar.
„Palac Akropolis er glæsilegt leik-
hús og tónleikasalur sem Sigur Rós
spilaði í þegar þeir komu hingað til
Prag fyrir rúmum tveimur árum,“
sagði hún í samtali við Morg-
unblaðið./51
Boðið að sýna í
þekktu leikhúsi
LÖGREGLAN á Blönduósi stöðvaði
í gærkvöldi ökumann á þrítugsaldri
vegna ofsaaksturs á Norðurlands-
vegi skammt fyrir ofan Vatnsdals-
hóla. Mældist hann á 162 km hraða.
Hafði lögreglan í nógu að snúast
vegna hraðaksturs ökumanna í gær
og voru stöðvaðir alls 15 ökumenn
vegna hraðaksturs á þremur
klukkustundum í gærkvöldi.
Á 162 km hraða
við Vatnsdalshóla