Morgunblaðið - 30.04.2005, Blaðsíða 15

Morgunblaðið - 30.04.2005, Blaðsíða 15
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 30. APRÍL 2005 15 ÁRSFUNDUR LANDSPÍTALANS HLUTFALL heildarútgjalda rík- isins sem Landspítala – háskóla- sjúkrahúsi (LSH) er ætlað á hverju ári hefur lækkað síðustu fimm árin. Árið 2004 var 9,06% af heildar- fjárlögum ríkisins varið til reksturs spítalans en 9,32% á árinu 2000. Þetta kom fram í máli Önnu Lilju Gunnarsdóttur, framkvæmdastjóra fjárreiðna og upplýsinga LSH, er hún gerði grein fyrir ársreikningi spítalans á ársfundi LSH í gær. „Ætla mætti þegar horft er til fjölgunar þjóðarinnar, fjölgunar aldraðra og tækniframfara og það að Landspítali – háskólasjúkrahús er eina sjúkrahús sinnar tegundar á landinu, að hlutfallslega séu sífellt meiri fjármunir að fara frá ríkinu til reksturs spítalans. En það er öðru nær, hlutfallið hefur lækkað síðustu fimm árin, og mun enn lækka á þessu ári samkvæmt rekstraráætlun spítalans og fjárlögum ársins.“ Sagðist hún í þessu sambandi vara við að ganga svo nærri spítalanum að hann ætti erfitt með að sinna hlutverki sínu sem þekkingar- og þjónustustofnun í þágu almennings. Rekstrarkostnaður staðið í stað Anna Lilja leit yfir farinn veg frá sameiningu sjúkrahúsanna í Reykja- vík árið 2000 í erindi sínu. Sagði hún að kostnaður við rekstur LSH hefði staðið í stað frá sameiningu, eða í fimm ár, en til að auðvelda sam- anburð milli ára dró hún í útreikn- ingum sínum frá S-merkt lyf og byggingu Barnapítalans. Á sama tíma hefði íbúum landsins fjölgað um rúmlega 10.000 og öldruðum yfir 67 ára fjölgað um 6,5%. Í ársreikningi kemur fram að upp- safnaður rekstrarhalli samkvæmt efnahagsreikningi var 1.032 m.kr. um áramótin. Skammtímakröfur voru 644 milljónir og skamm- tímaskuldir rúmir tveir milljarðar. „Greiðslustaða spítalans er því afar erfið sem gerir það að verkum að spítalinn þarf að greiða umtalsverða fjármuni í dráttarvexti vegna van- skila við birgja,“ sagði Anna Lilja.    )'*++,- .'(/'0'1234.'5 6+* 74 (,. . ,2+8 ! (34,2+8 $ (4'+1 491 (934 6.'9'5*6+8 :,2+8'; <+.41++3+ '= 4*  % *5 ! 5   5' $%*5 >     ;':,2+8'0 '$ (4'+1,'9'% 3?)4+ 3 '2 5!2$ !%2 ** %5 $%! > $ 2 *%%% !'%% '  2*5 $' > $ % *2$ !2! * 52 $'! > $5' *$! !55! 5'* *$' $'$* >     !"# # Hlutfall LSH af heildar- útgjöldum ríkisins lækkað MAGNÚS Pétursson mun nú taka við starfi sínu sem forstjóri Land- spítala – háskólasjúkrahúss á nýjan leik en hann hefur undanfarna mán- uði verið við nám í Bandaríkjunum. Jóhannes M. Gunnarsson, sem settur var forstjóri í hans stað, mun að nýju taka við starfi lækninga- forstjóra sjúkrahússins. Í erindi sem Magnús hélt á árs- fundi LSH í gær ræddi hann m.a. um tækniframfarir og læknavísindi og þær sið- fræðispurningar sem vaknað hafa við samspil þessara þátta. „Læknum og hjúkrunarfólki er kennd sú siðfræði að gera skuli allt til að lækna sjúkling og viðhalda lífi hans,“ sagði Magnús. Hann sagði hertar kröfur um réttindi sjúklinga oft gera læknum erfitt fyrir með að rækta þessar skyldur. Nútímatækni gerði það að verkum að hægt væri að halda lífi í sjúklingum lengur en áður. Læknar og ættingjar hefðu ekki alltaf sömu skoðun á því hvort halda bæri læknismeðferð sjúk- lings áfram eða ekki, eins og nýleg dæmi erlendis frá sönnuðu. „Tækniframfarir í læknavísindum eru okkur til hagsbóta án nokkurs efa. Hins vegar þurfum við stundum að spyrja okkur hvort við höfum gefið þeirri siðfræði lækninga sem af tækniframförum leiðir, nægan gaum. Getur verið að sú áhersla sem lögð hef- ur verið á að viðhalda lífi sé gengin of langt og við ættum að horfa meira til tilgangs og gæði lífs? Ég hallast að því að umræður um siðfræði lækninga þurfi að vera meiri en við höfum leyft okkur til þessa.“ Þurfum meiri umræðu um siðfræði lækninga Magnús Pétursson „HRAÐI breytinga sjúkrahúsþjón- ustu hefur að öllum líkindum aldrei verið meiri en nú og því mikil þörf fyrir sveigjanleika í húsnæði svo hægt sé að mæta þörfum starfsem- innar,“ sagði Jóhannes M. Gunn- arsson, sem undanfarna mánuði hef- ur sinnt starfi forstjóra Land- spítalans, á ársfundi LSH í gær. „Nærfellt allur húsakostur spítalans er hins vegar gamall orðinn og mjög viðhaldsfrekur. Húsin henta ekki nútíma sjúkrahúsrekstri og nauð- synlegar breytingar eru kostn- aðarsamar.“ Skilvirkni í starfi LSH getur hins vegar aukist enn frekar þegar starf- semin verður öll komin á afmarkað landsvæði, að mati Jóhannesar. „Fullur árangur sameiningar spít- alanna næst ekki án þess að starf- semi háskólasjúkrahússins sameinist á einum stað, í nýjum húsakynn- um. Þessi var sú sýn sem starfs- menn hinna ólíku stofnana náðu sátt um.“ Jóhannes sagði einn þátt oft vilja gleymast í um- ræðum um ný við- horf í heilbrigð- isþjónustu. Það væru aukin réttindi og kröfur sjúklinga. „Þessar kröfur eru í takt við væntingar okkar allra um að okkur sé sýnd virðing og mannhelgi okkar virt og því til marks eru meðal annars lög er varða réttindi sjúklinga og persónu- vernd. Þessum lögum er nánast ógjörningur að framfylgja í því hús- næði sem LSH hefur til umráða. Starfsfólk sem vinnur við þær að- stæður að þurfa að ganga gegn bæði eigin siðferðistilfinningu og lands- lögum fyllist vanlíðan og þessar að- stæður stuðla að óánægju sjúklinga. Þessi breyttu viðhorf gætu jafnvel ein sér orðið ærið tilefni til end- urgerðar sjúkrahúsbygginga.“ Rakti Jóhannes nýhugsun í bygg- ingu og hönnun spítala og sagði að rannsóknir hefðu leitt í ljós að spít- alabyggingar eins og við þekktum þær stuðluðu að alvarlegum með- ferðarmistökum. „Nýtt sjúkrahús verður að rísa. Við megum ekki láta þetta tækifæri ganga okkur úr greipum heldur vinna samhent og fumlaust að upp- byggingunni. Samstaða innan spít- alans um verkefnið skiptir öllu. Trú- verðugleiki spítalans gagnvart þjóð og þingi veltur þar á,“ sagði hann. Nýtt sjúkrahús verður að rísa Jóhannes M. Gunnarsson
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.