Morgunblaðið - 30.04.2005, Qupperneq 26

Morgunblaðið - 30.04.2005, Qupperneq 26
Dalvíkurbyggð | Það eru oft fjörugar umræður á bryggjum landsins og þangað leggja margir leið sín, daglega jafnvel til að fylgjast með fréttum af aflabrögðum. Stefán Steinsson hafði hjólað niður að höfn og var þar á spjalli við kallana á Eiði EA þegar ljósmyndari var þar á ferð í vikunni. Hermann Daða- son útgerðarmaður og hans menn, sonurinn Hermann og Árni Helgason voru að þrífa fiskikörin. Þeir stunda drag- nótaveiðar á Grímseyjarsundi, veiða kola og rauðsprettu en aflabrögð hafa verið góð und- anfarna daga. Morgunblaðið/Kristján Ágætt á dragnótinni Bryggjuspjall Akureyri | Árborg | Landið Minnstaður Höfuðborgarsvæðið Brjánn Jónasson, brjann@mbl.is, sími 569-1100. Suðurnes Helgi Bjarnason, helgi@mbl.is, sími 569-1310 og 669-1310. Akureyri Margrét Þóra Þórsdóttir, maggath@mbl.is og Kristján Kristjánson, krkr@mbl.is, sími 461-1600. Vesturland Ásdís Haraldsdóttir, asdish@mbl.is, sími 898-5258. Austurland Steinunn Ásmundsdóttir, aust- urland@mbl.is, sími 669-1115. Árborgarsvæðið og Landið Helgi Bjarnason, helgi@mbl.is, sími 569-1310 og 669-1310 og Guðrún Aðalsteinsdóttir, frett@mbl.is, sími 569-1290. Mínstund frett@mbl.is Fremur er kalt norðan heiða þessa síð- ustu apríldaga. Glænýr snjór niður í miðja Vaðlaheiði og hálf svona hráslagalegt. Aldrei hægt að treysta á þetta veður. Nema það skiptast nokkuð reglulega á skin og skúrir. Samt einhvern veginn eins og hitamálin sem til umfjöllunar eru á hverri kaffistofu, eldhúskrók og kaffihúsi taki úr mönnum mesta hrollinn.    Dalsbraut og hvort hún verður lögð eður ei er voða heitt umræðuefni núna. Þessi stofnbraut í gegnum bæinn hefur verið á skipulagi í rúm 30 ár, en ekki orðið af framkvæmdum. Með uppbyggingu Naustahverfis þar sem þúsundir íbúa verða innan fárra ára verður æ brýnna að ráðast í lagningu Dalsbrautar og létta álagi af Þórunnarstræti. Mikil andstaða er meðal íbúa í nágrenni Lundarskóla sem telja lífsgæði sín skerðast verulega og ör- yggi barna í umferðinni minnka.    Gott og gilt Þannig. Á kaffistofunum spyrja menn hvers börnin í Gerðahverfi eigi að gjalda, að þurfa yfir eina hættuleg- ustu götu bæjarins í skólann, Þingvalla- stræti. Eða litlu skottin í Holtunum, sem gert er að fara yfir þjóðveg, Hörgárbraut- ina, á leið sinni til skóla. Blessuð börnin úr Mýrunum sem byrja í skóla eftir svona fimm ár og er stefnt yfir Þórunnarstrætið með sívaxandi umferðarþunga verða ekki öfundsverð.    Ofbeldi tengt fíkniefnaheiminum er nú rætt sem aldrei fyrr í bænum í kjölfar þess að tvær hrottalegar líkamsárásir hafa ver- ið kærðar til lögreglu nýlega. Aðstandandi eins af piltunum í „Vaðlaheiðarmálinu“ skrifaði grein sem birtist í Morgunblaðinu í gær og hittir naglann á höfuðið þegar hún lýsir þeirri skoðun sinni að allir séu þeir fórnarlömb. Ofurseldir fíkn sinni reynir hver að bjarga eigin skinni, að standa í skilum við þann næsta fyrir ofan til að forða sjálfum sér frá barsmíðum.    Það er ekkert nýtt að harkalegum að- gerðum er oft beitt við innheimtu fíkni- efnaskulda. Meiri neysla, aukið ofbeldi. Segir löggan. Getur verið, en meirihluti svona óhefðbundinna innheimtuaðgerða verður sjaldnast að almæltum tíðindum. Úr bæjarlífinu AKUREYRI Eftir Margréti Þóru Þórsdóttur Iðnaðarsafnið verðuropið á morgun,sunnudaginn 1. maí á verkalýðsdaginn frá kl. 16 til 20. Safnið er til húsa við Krókeyri og var opnað þar fyrir réttu ári, en hafði um nokkurra ára skeið verið starfrækt víða um bæinn. Þar er margt að sjá sem minnir á mikilvægi þeirra starfsmannastétta sem um áratugaskeið hafa fagnað 1. maí hér í bæn- um. „Það var þeirra verk að Akureyri var oft á liðinni öld kölluð iðnaðarbærinn. Enda var þá lagður grund- völlur að mörgu því sem til framfara horfði og sem við öll njótum góðs af,“ segir í frétt frá Iðnaðarsafninu sem verður opið upp á gátt í tilefni dags verkalýðsins. Opið 1. maí Krakkarnir í 6. bekk í Grunnskólanum í Búðardalgengu um þorpið sl. viku með bauka til að safnafyrir hjálparstarfi ABC. Er þau höfðu farið eina umferð fannst þeim ekki nóg komið og fóru annan hring og söfnuðu flöskum sem þau seldu og lögðu í sjóðinn. Alls söfnuðu þau rúmlega 30.000 krónum sem eiga örugglega eftir að koma í góðar þarfir. Til viðmiðunar má nefna það að skólaganga í einkaskóla með mat og læknishjálp kostar 1950 kr. á mánuði fyrir barn í Úganda. Morgunblaðið/Helga H. Ágústsdóttir Hugmyndarík börn Pétur Pétursson velt-ir nöldri fyrir sér:Iðja þeirra er ekki fín, sem uppi róginn bera. Til allra nema sjálfra sín sífellt kröfur gera. Páll Þórðarson í Sauða- nesi orti um nýjan Íslend- ing: Hleypti lífi í hagvöxtinn og hagyrðinga snjalla. Mér finnst það ætti að flytja inn fleiri rugludalla. Pétur Pétursson orti um sölu Símans: Einkavinir Dabba og Dóra djarfir eru í sóknum og næla í bita nokkuð stóra með nýfrjálshyggjukróknum. Friðrik Steingrímsson yrkir af sama tilefni: Símans verður salan glæst svo er von um hagnað góð. Ætli verði ekki næst að einkavæða ríkissjóð. Af Símanum pebl@mbl.is Dalvíkurbyggð | Samþykkt var á aðalfundi Sparisjóðs Svarfdæla að gefa Dalvíkur- byggð upphitaðan og flóðlýstan knatt- spyrnuvöll í tilefni af góðri afkomu sjóðsins á síðasta ári. Um er að ræða völl í spark- vallaátaki KSÍ og rís hann á Dalvík og hefj- ast framkvæmdir nú þegar. Stærð vallarins er 18x33 m og er áætlað að hann verði tilbú- inn um miðjan júní næstkomandi. Samkvæmt samningi við KSÍ mun sam- bandið leggja til gervigras af bestu gerð á völlinn og er það þegar komið til Dalvíkur. Sparisjóður Svarfdæla kostar allt annað við framkvæmdina og hefur þegar samið um framkvæmd verksins. Í heild mun kostnað- ur við verkefnið um 10 milljónir króna. Hagnaður af rekstri á liðnu ári nam 184 milljónum króna og segir Friðrik Friðriks- son sparisjóðsstjóri að sjóðurinn hafi ávallt lagt mikið upp úr að styðja ungu kynslóðina „og það er vel við hæfi að leggja henni lið með þessum hætti í tilefni af góðri afkomu.“ Gefur knatt- spyrnuvöll í tilefni af góðri afkomu Hrunamannahreppur | Ekki verður nein breyting á tilhögun veiða á vatnasvæði Hvítár-Ölfusár í sumar eða á næsta ári. Var það ákveðið á aðal- fundi veiðifélagsins sem haldinn var í Hafsteins- stofu í Þrastarlundi. Magnús Jóhannsson hjá Suðurlandsdeild Veiðimálastofnunar flutti erindi um seiðabú- skap og aflamagn á síð- astliðnu ári. Netaveiði er allnokkuð stunduð á svæðinu. Veiddust alls 3.939 laxar, þar af 2.961 í net. Um 3.600 til 3.700 silungar veiddust, þar af voru skráðir 810 urriðar á stöng. Seiðarannsóknir hafa farið fram síðan 1985 og eru þær taldar marktækar enda veiði í samræmi við þær rannsóknir. Fram kom að seiðabúskapur ánna er slakur, einkum þó í efri hluta Sogsins og Stóru- Laxár. Bleikju- og urriðaseiðum hefur far- ið fjölgandi á síðustu árum. Ágæt klakveiði var síðastliðið haust, á félagið um 213 þús- und seiði og verður hluti þeirra alinn í göngustærð og sleppt næsta vor. Guðmundur Þorvaldsson á Bíldsfelli hef- ur nú tekið við formennsku í félaginu í stað Gauks Jörundarsonar sem lést á sl. ári. Engar breytingar á tilhögun veiða Guðmundur Þorvaldsson ♦♦♦ Stofnfundur Íslensks- indversks viðskiptaráðs Miðvikudaginn 4. maí nk. verður stofnfundur Íslensk- indverska viðskiptaráðsins. Fundurinn verður hjá FÍS á 9. hæð í Húsi verslunarinnar, Kringlunni 7, og hefst kl. 16. Tilgangurinn með stofnun ráðsins er fyrst og fremst að hafa forgöngu um og styrkja verslun og viðskipti milli Íslands og Indlands. Allir áhugasamir eru hvattir til að mæta, en eru vinsamlegast beðnir um að skrá þátttöku á netfangið gudmunda@fis.is eða í síma 588 8910. TIL LEIGU BÍLDSHÖFÐI 14 - verslunarhúsnæði 550 fm húsnæði til leigu. Upplýsingar í síma 898 6377.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.