Morgunblaðið - 30.04.2005, Side 39

Morgunblaðið - 30.04.2005, Side 39
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 30. APRÍL 2005 39 ÚR VESTURHEIMI ÓLYMPÍUSAMBAND fatlaðra í Manitoba í Kanada hélt upp á 25 ára afmæli sitt um liðna helgi og við það tækifæri var íþrótta- frægðarsetur þess stofnað. Vest- ur-Íslendingurinn Dan Johnson, fyrsti framkvæmdastjóri sam- bandsins og helsta driffjöður þess í um 15 ár, var í hópi fjögurra fyrstu sem voru teknir inn í setr- ið, the Special Olympics Manitoba Heroes Hall of Fame. ,,Þetta er mikill heiður og ég er sambandinu sérlega þakklátur,“ segir Dan. Hann var helsti hvata- maður þess að sambandið var stofnað og í byrjun snerist starfið um 125 íþróttamenn í einni grein. Nú sinnir sam- bandið um 1.300 íþróttamönnum í 18 greinum og segir Dan að starfsemin sé eins og hún gerist best í heiminum. Dan hefur mikið látið til sín taka í málefnum íslenska sam- félagsins í Manitoba. Hann hefur séð um og skipulagt árlegt styrkt- argolfmót Lögbergs-Heims- kringlu, Opna íslenska golfmótið, síðan 2001 og var í forsvari nefndarinnar the Falcons Forever Exhibit Campaign, sem stóð að söfnun til að koma upp varanlegri sýningu um íshokkílið Fálkanna en sýningin var opnuð fyrir tveimur vikum í MTS-höllinni í Winnipeg. Dan Johnson í hópi þeirra fyrstu í Ólympíufrægðarsetrið Dan Johnson Áhugi er á að gefa nýlega bókhennar út á íslensku oghún vill gera stuttmyndum fyrstu ferðina til lands- ins sem hún er frá í móðurætt. Það er mikill kraftur í Katrinu Anderson og svo virðist sem hún geri það sem hana langar til að gera hverju sinni. Hún er píanóleikari og lauk háskólanámi í tónlist 1986. Fyrir um 15 árum var hún á meðal stofn- enda sérstaks tónlistarskóla í Tor- onto, Yellow Dog Music, og í fyrra tók hún alfarið yfir reksturinn. Skól- inn veitir henni fjárhagslegt öryggi og því þarf hún ekki að lifa á listinni. Hins vegar hefur myndlistin verið ríkur þáttur í lífi hennar auk þess sem hún hefur skrifað smásögur og kvæði og nýlega kom út eftir hana saga móðurömmu hennar. Hún hefur haldið margar einka- og samsýningar síðan hún útskrifaðist frá York- háskólanum í Toronto, myndskreytt bækur og skífuumslög, og stýrt lista- sýningum. ,,Þegar við byrjuðum með tónlist- arskólann vorum við með fimm nem- endur en nú eru þeir um 170 og rekst- urinn stendur vel undir sér,“ segir hún. ,,Fyrir vikið get ég verið löngum stundum með dóttur minni, Rachael Faith, sem er mjög skapandi eins og mamman. Myndlistin og skrifin veita mér mikla ánægju og það eru viss for- réttindi að geta unnið að listinni að vild án þess að þurfa að hafa áhyggj- ur af því að eiga ekki fyrir salti í grautinn.“ Katrina er frá Winnipeg, en móð- uramma hennar fæddist í Winnipeg Beach, rétt sunnan við Gimli í Mani- toba. Íslenska móðurættin hefur haft meiri áhrif á Katrinu en úkraínska föðurættin en listakonan leggur áherslu á að föðurættin sé henni ekki síður mikilvæg. ,,Samt sem áður tengi ég mig meira við Ísland og það sem íslenskt er,“ segir hún og bætir við: „Það er ekki bara fjölskyldan heldur krafturinn sem kemur frá Ís- landi. Frá Íslandi hafa komið frábær- ir tónlistarmenn og hljómsveitir eins og til dæmis Sigur Rós, og Björk er í algjörum sérflokki. Hún er magnaður listamaður og hefur haft mikil áhrif á mig.“ Athyglisverð bók Fyrir skömmu kom út bókin Bles- sed: Portrait of Asdis Sigrun And- erson, eftir Katrinu. Bókin hefur ekki verið lengi til sölu en hefur fengið góðar viðtökur og góða dóma og þeg- ar hefur verið rætt um að þýða hana á íslensku. David Arnason, yfirmaður íslenskudeildar Manitobaháskóla, sem sjálfur hefur gefið út margar bækur um lífið á sléttunni, ritar for- mála og fer fögrum orðum um Katr- inu. ,,Mér finnst mjög gaman að skrifa en áður en ég skrifaði þessa bók hafði ég aðeins samið ljóð og smásögur,“ segir Katrina. ,,Fyrir um 10 árum var ég í heimsókn hjá ömmu í Winnipeg og sem við sötruðum te og ræddum um þá gömlu góðu daga sagði hún: ,,Ég vildi óska að einhver skrifaði sögu mína.“ Hún vildi að af- komendurnir þekktu söguna og ég ákvað að láta draum hennar rætast. Ég gerði það fyrir hana og fjölskyld- una. Næstu árin flaug ég oft frá Tor- onto til Winnipeg til að hljóðrita sög- ur sem amma sagði mér en það tók mig mun lengri tíma að púsla brot- unum saman en ég gerði mér grein fyrir í byrjun. En erfiðið var þess virði. Ég hef fengið mjög jákvæð við- brögð, jafnvel frá fólki utan fjölskyld- unnar sem hefur aldrei heyrt á okkur minnst. Slík viðbrögð ókunnugs fólks gefa mér byr undir báða vængi og hver veit hvað getur orðið úr þessari litlu sögu. Við sjáum til.“ Notar sérstakt listamannsnafn Katrina er sennilega þekktust sem myndlistarmaður og sérstaklega fyr- ir ,,vínartertukonurnar“ sem ein- kenna mörg verk hennar. Í myndlist- inni gengur hún undir listamannsnafninu Fontana Swing. ,,Nafnið kom ósjálfrátt og það festist þegar við mig. Mér fannst frábært að geta notað annað nafn og mér var skemmt við tilhugsunina um að vera tvær persónur. Auk þess eru málverk mín eitthvað sem mér dettur í hug og mér hefur aldrei fundist rétt að merkja þessi verk, þessar ímyndanir, með eigin nafni.“ Undanfarnar vikur voru hún og bróðir hennar, ljósmyndarinn Craig Koshyk, með samsýninguna ,,Ágætis byrjun“ – a fine beginning – í Paul Thorlakson-sýningarsalnum í ís- lenska bókasafninu í Manitobahá- skóla í Winnipeg. Þau eru farin að undirbúa að setja sýninguna upp í Toronto og síðan er hugmyndin að fara með hana til Íslands og jafnvel meginlands Evrópu. Systkinin eru undir íslenskum áhrifum og ber sýningin þess merki. Nafnið er tekið frá Sigur Rós og Katrina segir að það sé líka táknrænt fyrir samvinnu systkinanna. ,,Þetta er fyrsta samsýning okkar og hún lof- ar góðu. Við viljum halda áfram á þessari braut og höfum verið hvött til þess að fara með hana til Íslands. Við stefnum að því og þar sem við höfum gefið nokkur verk til góðgerðastofn- unar verður sýningin á Íslandi ekki alveg eins. Hún verður líka stærri og næsta skref er að finna sýningarsal í Reykjavík.“ Ísland er ofarlega í huga þessarar kjarnorkukonu og hún hlakkar mikið til að heimsækja landið. ,,Þetta er ekki bara spurning um að fara og setja upp sýningu heldur skrásetning reynslunnar. Ekkert jafnast á við að koma til lands í fyrsta sinn, að ég tala ekki um landið sem þú ert frá, og því er mikilvægt að halda viðbrögðunum til haga. Ég vil tjá þau í myndlistinni og ég vil taka mikið af myndum. Síð- ast en ekki síst vil ég kvikmynda þessa reynslu og búa til stuttmynd um hana. Þetta verður ævintýraferð sem verður aldrei endurtekin sem slík.“ Fjöllistakonan Katrina Anderson segist vera undir miklum áhrifum frá Björk og hefur sett stefnuna á Ísland. Steinþór Guðbjartsson hitti þessa vestur-íslensku konu í Toronto þar sem hún ætlar að setja upp mynd- listarsýningu sem hún vill síðan fara með til Íslands. Björk gefur henni tóninn Morgunblaðið/Steinþór Verk eftir Katrinu á sýningunni. steg@mbl.is_ Katrina Anderson í tónlistarskóla sínum í Toronto. SÓFA- DAGAR Seljum nokkra sýningasófa með allt að 25% afslætti. Grensásvegi 8 108 Reykjavík sími: 517 1020 opið: mán. - föstud. 11-18 laugard. 11-15 15% afsláttur af öllum sérpöntuðum sófum. MÁLÞING UM HÁSKÓLA FRAMTÍÐARINNAR Málþing á vegum Háskólans og Magna Charta-stofnunarinnar um málefni háskóla. Til þingsins koma nokkrir af helstu sérfræðingum Evrópu í málefnum æðri menntastofnana og þinghaldið er liður í stefnumótunarstarfi á þessu sviði. Málþingið er öllum opið og fer fram í Odda, stofu 101. Mánudagur 2. maí kl. 13:30-15:00 VERKEFNI HÁSKÓLA Í BREYTTUM HEIMI Ingjaldur Hannibalsson prófessor við Háskóla Íslands Andrei Marga fyrrv. rektor Háskólans í Cluj-Napoca í Rúmeníu Francisco Naishtat prófessor við Háskólann í Buenos Aires í Argentínu kl. 15:30-18:00 YNGRI FRÆÐIMENN UM MÁLEFNI HÁSKÓLA HORFA TIL FRAMTÍÐARINNAR Henrik Enroth frá Stokkhólmsháskóla Diego Lucci frá Háskólanum í Napólí Guðrún Geirsdóttir dósent við Háskóla Íslands Þriðjudagur 3. maí kl. 13:30-15:00 HUGMYNDIR UM HÁSKÓLA FRAMTÍÐARINNAR Roderick Floud rektor London Metropolitan University á Englandi og varaforseti Samtaka evrópskra háskóla Jón Torfi Jónasson prófessor við Háskóla Íslands Páll Skúlason rektor Háskóla Íslands kl. 15:30-17:00 PALLBORÐSUMRÆÐUR Madeleine Green forstöðumaður Center for Institutional and International Initiatives við American Council on Education í Washington Germain Dondelinger yfirmaður málefna æðri menntunar hjá ráðuneyti menningar og rannsókna í Lúxemborg Roderick Floud rektor London Metropolitan University Kristín Ingólfsdóttir verðandi rektor Háskóla Íslands Hélène Lamicq fyrrv. rektor Université Paris XII í Frakklandi Páll Skúlason rektor Háskóla Íslands Magna Charta-stofnunin var sett á laggirnar árið 1998 á vegum Samtaka evrópskra háskóla (EUA) og Háskólans í Bologna. Hlutverk stofnunarinnar er að fylgjast með fram- kvæmd þeirra meginmarkmiða um skipulag og rekstur háskóla sem skilgreind eru í Magna Charta Universitatum (yfirlýsingu um markmið og forsendur háskóla). Frekari upplýsingar um stofnunina má finna á www.magna-charta.org. Í Háskóla Íslands 2.-3. maí

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.