Morgunblaðið - 30.04.2005, Qupperneq 41

Morgunblaðið - 30.04.2005, Qupperneq 41
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 30. APRÍL 2005 41 UMRÆÐAN UM þessar mundir býr íslenski stórmeistarinn Hannes Hlífar Stef- ánsson (2.573) í Prag, höfuðborg Tékklands. Þar er mun heppilegra að búa fyrir atvinnumann í skák en á Ís- landi. Bæði er þar ódýrara að búa og ferðast á skákmót jafnframt sem flóra öflugra skákhugsuða er þar mun meiri en á sögueyjunni góðu í norðri. Um síðustu helgi tók hann þátt í sterku atskákmóti sem fram fór í Brussel í Belgíu. Alls tóku þar þátt 20 stórmeistarar og 12 alþjóðlegir meistarar. Móts- haldarinn, Benny Åsman, er Svíi sem búið hefur í Belgíu í fjölda ára. Áður fyrr stóð hann fyrir öflugum unglingamótum á hverju ári en það síðasta var haldið árið 2000. Tefldar voru ellefu umferð- ir á þessu atskákmóti og varð Hannes hlutskarpastur á því með 8½ vinning ásamt stórmeisturunum Vladimir Baklan (2.584) og Arkadij Naiditsch (2.626). Lokastaða efstu manna varð annars þessi: 1.-3. Vladimir Baklan, Hannes Hlíf- ar Stefánsson og Arkadij Naiditsch 8½ vinning af 11 mögulegum 4.-9. Ivan Sokolov (2.662), Artur Kogan (2.592), Ulf Anderson (2.579), Arkadij Rotstein (2.511), Robert Fon- taine (2.539) og Nicolai V. Pedersen (2.460) 8 v. 10.-14. Ralf Åkesson (2.461), Milen Vasilev (2.403), Alexandre Dge- buadze (2.534), Florian Handke (2.480) og Mikhail Saltaev (2.485) 7½ v. Í eftirfarandi skák færði Hannes sér í nyt hugmyndir sem komu fram um opna Sikileyjarvörn í fyrirlestr- arröð lettneska stórmeistarans Zig- urds Lanka en hún var haldin hér á landi árið 2002. Andstæðingur hans var enginn aukvisi en rússneski stór- meistarinn Vladimir Epishin (2.605) sem var um árabil aðstoðarmaður Anatoly Karpovs. Hvítt: Hannes Hlífar Stefánsson (2.573) Svart: Vladimir Epishin (2.605) 1. e4 c5 2. Rf3 e6 3. d4 cxd4 4. Rxd4 a6 5. Rc3 b5 6. Bd3 Db6 Þessari uppbyggingu hefur lithá- íski stórmeistarinn Kveinys beitt í gegnum árin en Hannes einmitt starf- aði með honum að skákrannsóknum á síðasta ári. Þetta samstarf komst á fyrir tilstuðlan Margeirs Péturssonar en hann og fyrirtæki hans styrktu ís- lenskt skáklíf myndarlega á síðasta ári. 7. Rb3 Dc7 8. 0-0 d6 9. De2 Be7 10. Bd2 Rc6 11. f4 b4 12. Ra4 Rf6 13. c3 Nauðsynlegur leikur í stöðu sem þessari – hugmynd hvíts er að ná tök- um á c-línunni. 13. – bxc3 14. Rxc3 0-0 15. Hac1 Db8 16. Be3 Rb4 17. Bb1 a5 18. Rd4 Ba6 19. Rdb5 d5 20. e5 Re4 21. a4 Rc5?! Gefur hvítum færi á snjallri fléttu sem hefur í för með sér að hvítur nær hagstæðum uppskiptum og stöðuleg- um yfirburðum. 22. Rxd5! Rxd5 23. Bxc5 Bxc5+ 24. Hxc5 Db6 25. Df2 Rxf4 26. Hfc1! Rg6 27. h4 Bxb5 28. axb5 Hfd8 29. h5 Rf8 30. Be4! Hab8 31. Bc6 Hbc8? Tapleikurinn en staðan var orðin aðþrengd. 31. – h6 hefði þó haldið í horfinu. 32. Be8! Setur hrók svarts á c8 í uppnám og hótar máti með 33. Dxf7+ Kh8 34. Dxf8#. 32. – Hxe8 33. Hxc8 Dxb5 34. H1c7 f5 35. exf6 og svartur gafst upp. Spennandi verður að sjá hvernig Hannesi muni vegna á næstunni en árið hefur hingað til verið honum gjöfult. Barna- og unglingamót Skáksambands Íslands Lyktir urðu í mörgum Íslandsmót- um barna og unglinga um síðustu helgi en teflt var í húsakynnum Skák- sambands Íslands í Faxafeni 12. Fyrst til að nefna varð Laugalækj- arskóli Íslandsmeistari grunnskóla- sveita eftir að hafa lagt Rimaskóla að velli með 5 vinningum gegn 3 vinn- ingum í úrslitaviðureign um titilinn. Sveitin vann sér þar með rétt til að tefla fyrir Íslands hönd á Norður- landamóti grunnskólasveita sem fram fer í haust í Danmörku en Rimaskóli er einmitt núverandi Norðurlandameistari. Verðlaun voru veitt fyrir bestan árangur einstak- linga á mótinu. Jökull Jóhannsson (Húsaskóla) stóð sig best á fyrsta borði, Hjörvar Steinn Grétarsson (Rimaskóla) á öðru borði, Vilhjálmur Pálmason (Laugalækjarskóla) á þriðja borði og Hörður Aron Hauks- son (Rimaskóla) á fjórða borði. Einn- ig fór fram Íslandsmót grunnskóla- sveita í stúlknaflokki og sigraði þar Íslandsmeistarinn frá síðasta ári, Rimaskóli. Sveitin fékk 26 vinninga en Hamraskóli varð annar með 19½ v. og Mýrarhúsaskóli þriðji með 18½ v. Sigríður Björg Helgadóttir (Hamraskóla) fékk borðaverðlaun á fyrsta borði, Júlía Guðmundsdóttir (Rimaskóla) á öðru borði, Ingibjörg Ásbjörnsdóttir (Rimaskóla) á þriðja borði og Hrund Hauksdóttir (Rima- skóla) á fjórða borði. Mótahaldi Skák- sambands Íslands var ekki lokið með þessu því að einnig fór fram Íslands- mót stúlkna. Hallgerður Helga Þor- steinsdóttir (Melaskóla) og Jóhanna Björg Jóhannsdóttir (Salaskóla) unnu afgerandi sigra í sínum flokkum en þær unnu allar sínar skákir. Hall- gerður varð hlutskörpust í eldri flokki (7.–10. bekk) með 7 v. en Elsa María Þorfinnsdóttir (Hólabrekku- skóla) og Sigríður Björg Helgadóttir (Hamraskóla) þurftu að tefla einvígi um silfrið. Elsa María sigraði í einvíg- inu og varð því í 2. sæti en Sigríður Björg í 3. sæti. Í yngri flokki varð Geirþrúður Anna Guðmundsdóttir (Mýrarhúsaskóla) í 2. sæti á eftir Jó- hönnu Björgu og Stefanía B. Stefáns- dóttir einnig úr Mýrarhúsaskóla, í 3. sæti. Keppendur á þessum stúlkna- mótum hafa aldrei verið jafn margir og nú. Það er vísbending um að áhugi stúlkna á skák sé að aukast. Öllum þessum mótum lauk svo með veglegri og sameiginlegri verðlaunaafhend- ingu. Íslandsmót framhalds- skólasveita Menntaskólinn við Hamrahlíð, a- sveit, bar sigurorð af a-sveit Mennta- skólans í Reykjavík í lokaumferðinni á Íslandsmóti framhaldsskóla, sem haldið var í húsakynnum Taflfélags Reykjavíkur sunnudaginn 24. apríl sl. Með sigrinum tryggði MH sér þar með Íslandsmeistaratitilinn og þátt- tökurétt á Norðurlandamóti fram- haldsskóla sem fram fer í Danmörku í september nk. Úrslitaviðureignin endaði með 5½ v.–2½ v. sigri a-sveit- ar MH. Fjórar sveitir kepptu á Ís- landsmótinu, tvær frá Menntaskólan- um við Hamrahlíð og tvær frá Menntaskólanum í Reykjavík. Tefld- ar voru atskákir og var Ólafur H. Ólafsson skákstjóri. Skákþing Norðlendinga 2005 Í sjö áratugi hefur Skákþing Norð- lendinga verið haldið og í ár fer það fram á Siglufirði 6.–8. maí næstkom- andi. Teflt verður í safnaðarheimilinu og keppt verður í fjórum aldursflokk- um, 7–9 ára, 10–12 ára, 13–16 ára og svo opnum flokki sem ætlaður er 17 ára og eldri. Keppni í opnum flokki hefst föstudaginn 6. maí kl. 20 og verða þá tefldar fjórar atskákir. Dag- inn eftir verða tvær kappskákir svo og ein á sunnudeginum en þá lýkur mótinu. Barna- og unglingaflokkarn- ir fara fram á laugardeginum þar sem hver keppandi hefur 10 mínútna umhugsunartíma. Ókeypis er að tefla í þeim en þátttökugjald er 2.000 kr. í opna flokknum. Hægt er að skrá sig í mótið í síma 467 1263 og 899 0278 jafnframt sem hægt er að senda raf- bréf á netfangið saeson@simnet.is. Hannes Hlífar efstur á öflugu atskákmóti Verðlaunahafar á Íslandsmótum barna og unglinga. SKÁK Brussel, Belgíu. AZURA ATSKÁKMÓTIÐ 23.–24. apríl 2005. Helgi Áss Grétarsson daggi@internet.is Hannes Hlífar Dr. Sigríður Halldórsdóttir: Skerum upp herör gegn heimilis- ofbeldi og kortleggjum þennan falda glæp og ræðum vandamálið í hel. Svava Björnsdóttir: „Til þess að minnka kynferðisofbeldi þurfa landsmenn að fyrirbyggja að það gerist. Forvarnir gerast með fræðslu almennings.“ Jóhann J. Ólafsson: „Lýðræðis- þróun á Íslandi hefur, þrátt fyrir allt, verið til fyrirmyndar og á að vera það áfram.“ Pétur Steinn Guðmundsson: „Þær hömlur sem settar eru á bílaleigur eru ekki í neinu sam- ræmi við áður gefnar yfirlýsingar framkvæmdavaldsins, um að skapa betra umhverfi fyrir bílaleig- urnar.“ Guðmundur Hafsteinsson: „Langbesti kosturinn í stöðunni er að láta TR ganga inn í LHÍ og þar verði höfuðstaður framhalds- og háskólanáms í tónlist í landinu.“ Hjördís Ásgeirsdóttir: „Ég er ein af þeim sem heyrði ekki bankið þegar vágesturinn kom í heim- sókn.“ Vilhjálmur Eyþórsson: „For- ystumennirnir eru undantekning- arlítið menntamenn og af góðu fólki komnir eins og allir þeir, sem gerast fjöldamorðingjar af hug- sjón. Afleiðingar þessarar auglýs- ingar gætu því komið á óvart.“ Jakob Björnsson: „Mannkynið þarf fremur á leiðsögn að halda í þeirri list að þola góða daga en á helvítisprédikunum á valdi óttans eins og á galdrabrennuöldinni.“ Aðsendar greinar á mbl.is www.mbl.is/greinar Í KASTLJÓSÞÆTTI þ. 25. þ.m. mættu Össur og Ingibjörg til að ræða formannskjör í Samfylking- unni. Vafalaust hafa einhverjir fylgst spenntir með þættinum í upphafi og vænst þess að fá að heyra haldbærar skýr- ingar og rök fyrir því að nú beri að skipta formanni flokksins út. Þeir hljóta að hafa orð- ið fyrir vonbrigðum. Ingibjörg boðar engin ný tíðindi og hefur ekkert frumkvæði að nýjum lausnum í stjórnmálum, hún býð- ur sig bara fram. Hún hafði engu að bæta við skýrar línur Össurar um næstu skref flokksins; baráttuna í þing- kosningum sem fram undan eru og stjórnarmyndun að þeim loknum. Engin viðbrögð við áherslum Öss- urar í atvinnumálum. Hugmyndin um að styrkja og breikka atvinnu- lífið m.a. með eflingu smáfyrirtækja virtist ekki verðskulda svo mikið sem litla athugasemd frá frambjóð- andanum. E.t.v. hugsar Ingibjörg Sólrún ekki mikið um smáfyrirtæki. Innlegg hennar í þáttinn var ein- ungis almennt tal um gildi jafn- aðarstefnunnar sem allir eru auðvit- að sammála um innan flokksins. Hún kom líka að nauðsyn þess að efla menntun í landinu. Það eru reyndar sannindi sem öllum stjórn- málamönnum eru tungutöm þótt efndir séu misjafnar samanber sveltistefnu ríkisstjórnarinnar gagnvart Háskóla Ís- lands. Nú, svo mætti líka nefna meðferð R- listans á Námsflokkum Reykjavíkur. Hvert er erindið? Af tali Ingibjargar í þættinum virðist helst mega ætla að framboð hennar sé tilkomið vegna þess að „fólk hafi sagt“ að hún eigi að verða formaður flokksins. Sjálf lagði hún það til málanna að hún verði þá að fá að taka við núna, ekki seinna. Þetta er sannarlega veik ástæða til að efna til formanns- slags í flokknum og það þegar gengi hans er með ágætum eins og nú er raunin. Það vantar enn sem fyrr haldbær rök fyrir því að fá Ingibjörgu nú stýrið þegar búið er að leggja flokk- inn á réttan kúrs en vandasöm sigl- ing framundan. Ingibjörg og stuðningsmenn hennar ættu að velta fyrir sér þeirri spurningu hvort lítillega dalandi fylgi Samfylkingarinnar í síðustu könnun sé afleiðing þess að efnt hef- ur verið til formannsslags í flokkn- um. Framtíðarhópurinn Ingibjörg hefur reynt nokkuð að gera út á gagnrýnin ummæli Öss- urar um störf framtíðarhópsins s.k. og heldur því fram að ummælin beinast gegn fjölda flokksmanna. Össur hefur sjálfur svarað þessu en rétt er að benda á að fleiri hafa gagnrýnt bæði vinnubrögðin í hópn- um svo og sjálfa aðferðina, nú síðast varabæjarfulltrúi Samfylking- arinnar í Hafnarfirði, sem kallar vinnubrögðin ólýðræðisleg elítu- stjórnmál. Ingibjörg er ekki óskeikul Raunar er erfitt að sjá að Ingi- björg Sólrún sé sérstakur fulltrúi opinna stjórnarhátta og lýðræðis fram yfir marga aðra stjórn- málamenn. Það er líka ljóst að hún stendur engan veginn undir öllu því lofi sem stuðningsmenn hennar hafa borið hana undanfarið. Ekki má þó lá henni það, slíkt væri varla í mann- legu valdi, svo stórkostlegar hafa lýsingar sumra greinahöfunda verið. En þegar litið er yfir stjórnmálaferil Ingibjargar síðustu árin þá blasir við að hún gerir mistök eins og aðr- ir. Hinsvegar hefur hún komist upp með ýmsa hluti og sloppið furðu vel við gagnrýni. Brotthvarf hennar úr embætti borgarstjóra er ljóst dæmi um þetta. Það ferli allt var eitt risa- klúður og ljóst að borgarstjórinn fyrrverandi reiknaði dæmið alveg kolvitlaust þótt athygli manna hafi ekki mikið beinst að því atriði máls- ins. Saman að settu marki Það er mjög heppilegt að Ingi- björg Sólrún, varaformaður flokks- ins, hefur nú fengið sæti á Alþingi. Vonandi ríkir samheldni og farsælt samstarf jafnt í þingflokki sem flokknum sjálfum að loknu þessu kjöri hver sem úrslit þess verða. Ég vona (og treysti því reyndar) að formaðurinn vinni og haldi þann- ig stöðu sinni því að við erum á réttri leið. Öflugur jafnaðarmanna- flokkur er nú staðreynd í íslenskri pólitík. Það væri í raun stórundarleg ráðstöfun að ýta nú til hliðar, rétt í upphafi kosningaundirbúnings, for- manninum sem stýrt hefur flokkn- um farsællega í hinu stutta en snarpa uppbyggingarferli. Samfylk- ingin þarf að eflast enn frekar og verða fullkomið mótvægi við Sjálf- stæðisflokkinn. Það er eðlilegt og raunhæft markmið. Ekki er hægt að hugsa sér öruggari grundvöll fyrir lýðræðislegum stjórnarháttum í landinu í framtíðinni en einmitt slíka valdajöfnun milli flokkanna. Um hvað snýst formanns- kosning í Samfylkingunni? Haukur Brynjólfsson fjallar um formannskjör Samfylkingarinnar ’Það er mjög heppilegtað Ingibjörg Sólrún, varaformaður flokksins, hefur nú fengið sæti á Alþingi. ‘ Haukur Brynjólfsson Höfundur er rafvirki.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.