Morgunblaðið - 30.04.2005, Side 45

Morgunblaðið - 30.04.2005, Side 45
Vesturholtum II í Þykkvabæ hjá þeim Ármanni Ólafssyni og Bjarn- veigu Jónsdóttur. Í gamla bænum að Vesturholtum I bjuggu Ólafur og Anna foreldrar Ármanns og dóttir þeirra Svanhildur. Í gamla bænum átti ég margar góðar stundir og finnst mér þegar ég hugsa til baka aðdáunarverður óþrjótandi áhugi þeirra á að sitja og spjalla við Reykjavíkurpeyjann sem gat talað út í eitt um allt og ekkert. Í sveitinni kenndi Svana mér réttu handtökin við flokkun á kartöflum og ef henni fannst ég ekki taka rétt á þungum kartöflupokunum fékk maður að finna fyrir öxlinni á henni þegar hún ýtti mér frá og tók á vandamálinu eins og manneskja. Minnisstæður er sá dagur þegar girða átti við Vesturholt en fjar- lægja þurfti eldri girðingarstaura. Eitthvað fór það í taugarnar á Svönu hvernig ég bar mig að verk- inu og vissi ég ekki fyrr en Svana var komin, reif upp gömlu fúnu staurana, nánast með einu handtaki en allt var það nú vel meint. Nánast árlega síðan ég var í sveitinni í Vesturholtum II hef ég heimsótt Ármann og fjölskyldu og hefur það verið fastur liður hjá mér líta inn í gamla bæinn til skrafs og ráðagerða. Þá kosti hafði Svana að hlusta með athygli á allt sem maður hafði að segja og hafði þau áhrif að manni leið vel í návist hennar. Hall- aði hún sér iðulega fram á borðið í eldhúsinu og beið frétta eins og henni var lagið. Á ég hugljúfar og góðar minn- ingar um Svönu, blessuð sé minn- ing hennar. Vil ég að lokum votta ættingjum og vinum innlega samúð mína. Þórólfur Jóhannesson. Við bræðurnir kveðjum í dag föð- ursystur okkar, Svanhildi Ólafs- dóttur. Svana, eins og hún var jafn- an kölluð, bjó alla tíð heima í Vesturholtum og hafði því töluvert af okkur bræðrunum að segja. Það er skrýtið til þess að hugsa að eng- inn búi nú lengur í gamla húsinu í Vesturholtum. Á tæpum sjö árum hafa þau kvatt okkur; afi, amma og Svana. Svana tók sinn þátt í uppeldi okk- ar bræðranna og stundum meira en við kærðum okkur um í þá daga. Hún lagði okkur ósjaldan lífsregl- urnar en oft með litlum árangri. Vildi hún að við töluðum rétta ís- lensku, færum ekki í molakarið og aldrei upp á háaloft. Vegna þessa kastaðist stundum í kekki. Stundir okkar með Svönu voru ekki síst við þau störf sem til falla á stóru sveitaheimili. Þar munaði heldur en ekki um Svönu. Hún var verklagin, dugleg og snyrtileg við það sem hún tók sér fyrir hendur. Naut hún sín sérstaklega vel við sauðburðinn á vorin. Af einlægri umhyggjusemi við litlu lömbin gekk hún t.d. með- fram hverjum skurðinum á fætur öðrum til að ganga úr skugga um að ekkert lambið hefði þar fallið of- an í. Svana var sérstök manneskja í mörgum skilningi þess orðs. Ef við gerðum Svönu greiða þá gaf hún okkur alltaf eitthvað í staðinn. Oft fengum við þó hart tyggjó en það skipti ekki máli því það var hug- urinn sem gilti. Svana átti iðulega miklar tyggjóbirgðir en um dagana sankaði hún að sér ýmsu dóti. Oft án tillits til notagildis. Svana var stálminnug og lét sér mjög annt um frændgarð sinn. Kvöldin fyrir afmælin okkar var t.d. algjör óþarfi að stilla vekjara- klukku. Það mátti treysta því að Svana hringdi með heillaóskir snemma morguns. Skipti þá engu hvort við værum staddir erlendis eða hún á sjúkrahúsi. Við kveðjum þig nú, Svana, og þökkum þér innilega fyrir þau ár sem við áttum saman. Þú varst góð- ur nágranni, umhyggjusöm frænka og munt alltaf skipa sérstakan sess í hugum okkar. Nú siturðu eflaust inni í eldhúsi himnaríkis að spjalla við ömmu. Afi situr í stólnum sínum og hlustar á milli þess sem hann dottar. Hjá þeim naustu þín best. Bræðurnir í Vesturholtum. MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 30. APRÍL 2005 45 MINNINGAR ✝ Eysteinn Geirs-son fæddist á Sleðbrjót í Jökulsár- hlíð 10. maí 1954. Hann lést á heimili sínu hinn 23. apríl síðastliðinn. Foreldr- ar hans voru Geir Stefánsson frá Sleð- brjót, f. 19.7. 1915, d. 11.7. 2005, og Elsa Ágúst Björgvinsdótt- ir frá Ketilsstöðum í Jökulsárhlíð, f. 1.8.1920, d. 30.8. 1977. Systkini Ey- steins eru Stefán, f. 4.2. 1944, Björgvin Vigfús, f. 18.3. 1945, og Björg, f. 3.7. 1950. Eysteinn var kvæntur Guðfinnu B. Hjarðar frá Hjarðargrund á Jök- uldal, f. 20.12. 1957. Þau áttu tvær dætur, Elsu Ágústu, f. 31.3. 1980, og Antoníu Benediktu. f. 11.1. 1990. Eysteinn bjó ásamt fjölskyldu sinni á Sleðbrjót og stundaði þar búskap. Jafnframt starfaði hann sem vörubíl- stjóri. Útför Eysteins fer fram frá Egilsstaða- kirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 14. Jarðsett verður í Sleðbrjótskirkjugarði. Nei, nú er ég ekki hress, Ey- steinn minn. Þú varst vanur að spyrja mig að því með glettni í aug- unum í hvert sinn sem við hittumst. Ég á erfitt með að sætta mig við að þú sért farinn fyrir fullt og allt. Aldrei aftur á ég eftir að taka í þína sterku hönd, heyra innilegan hlátur þinn eða spjalla við þig um heima og geima yfir kaffi á Sleðbrjót. Þú varst minn uppáhaldsfrændi, vinur og félagi. Ég ætla ekki að fara að lýsa þér hér í smáatriðum en þú varst ofurmenni að burðum, hand- laginn og duglegur en fyrst og fremst drengur góður, greiðvikinn og sannur vinur sem talaði ekki illa um aðra. Þú varst góður húmoristi og alltaf léttur í skapi. Þó að lífsins vindar hafi ekki alltaf blásið þér byr í seglin síðustu ár barstu ekki mál þín eða tilfinningar á torg. Ég veit að þér leið ekki alltaf vel þó að það sæi það enginn og ég skamm- ast mín fyrir að hafa ekki getað hjálpað þér, kæri vinur, það hefðir þú gert í minni stöðu. Nú tekur þú þín Grettistök annars staðar og ferð kannski í krók eða sjómann við Svarta-Hall, í mínum huga er eng- inn vafi á því hver myndi hafa bet- ur. Elsku Elsa og Benný, þið voruð augasteinarnir hans pabba ykkar og hann var afskaplega stoltur af ykkur enda mátti hann vera það. Ykkar missir og mömmu ykkar er stór og votta ég ykkur mína dýpstu samúð. Því miður kemst ég ekki til jarðarfararinnar en hugur minn er á Sleðbrjót í dag eins og svo oft áð- ur. Um leið og ég vil þakka frænda mínum fyrir alla gæskuna í minn garð og minnar fjölskyldu, kveð ég hann með sömu orðum og hann kvaddi mig í síðasta sinn: ,,Bless- aður, vinur. Farðu svo bara gæti- lega, gæskur.“ Garðar Smári Björgvinsson. Skjótt skipast veður í lofti í Hlíð- inni enn sem fyrr. Eysteinn, minn gamli félagi, burt kallaður líkt og þegar stormsveipur hrífur með sér laufblað af grein. Ef til vill var þetta brottkall nokkuð í hans stíl og þannig var hans háttur í lifanda lífi. Hann vildi að hlutirnir gerðust snöggt og vann af krafti og snerpu að sínum hugðarefnum strax í æsku, þegar ég kynntist honum fyrst. Ég trúi að mín fyrsta ferð í af- mælisveislu hafi verið í afmæli til Eysteins á Sleðbrjót þann 10. maí. Ekki man ég lengur hvað afmæl- isbarnið var þá gamalt en trúlega að nálgast fyrsta tug ævi sinnar. Fyrir tæpu ári þáði ég svo aftur boð Eysteins og mætti í fimmtugs- afmæli hans, sem jafnframt var fermingarveisla yngri dóttur hans. Þá rifjaðist upp þegar við litlir strákpjakkar vorum að fara heim í helgarfrí úr skóla á Hallgeirsstöð- um síðla hausts. Þangað hafði kom- ið stór og mikill fullorðinn hrútur sem Geir, faðir Eysteins, átti og vildi Eysteinn ólmur taka hann með sér heim. Mér leist ekkert allt of vel á að reka þetta flikki á undan okkur á milli bæjanna en Eysteinn lét hrútinn fljótt skilja hver réði för. Með hann kom strákur í Sleð- brjót þegar komið var fram í rökk- ur. Kappið var oft mikið og ekki skorti aflið þegar taka þurfti til hendinni. Mörg fleiri minningabrot koma upp í hugann nú er leiðir skilja. Flest frá æsku og unglingsárum þegar við áttum saman margar stundir við leik og störf. Allt rifjast þetta upp og vermir um stund. Eysteinn hélt tryggð sinni við heimahagana þó stundum blési þar af norðan og stormur væri í fang. Hann var hvergi banginn við þau átök og undi sér þar best. Hratt og snöggt voru hans ein- kunnarorð og þannig lauk hans lífs- hlaupi. Mér finnst að þessi fimmtíu ár sem hann átti hér með okkur hafi þotið hjá og erfitt til þess að hugsa að þau verði ekki fleiri. Fyr- ir þau og viðkynningu alla vil ég hér þakka. Ég votta Guðfinnu, dætrum þeirra og fjölskyldu Eysteins heit- ins mína dýpstu samúð. Stefán Bragason. EYSTEINN GEIRSSON Vinur minn, Auðunn Sveinbjörnsson, er lát- inn. Fáum dögum áður en hann lést naut ég þess að hann leit inn til mín. Hann vann mig í nokkrum skákum, síðan ræddum við áhugamál okkar og rifjuðum upp sameiginlegar gleði- AUÐUNN KL. SVEINBJÖRNSSON ✝ Auðunn KlemenzSveinbjörnsson fæddist í Reykjavík 12. apríl 1941. Hann varð bráðkvaddur á heimili sínu sunnu- daginn 17. apríl síð- astliðinn og var útför hans gerð frá Bessa- staðakirkju 26. apríl. stundir frá liðnum ár- um. Allar stundir með honum voru gleði- stundir því vinátta hans var traust og gef- andi. Sérstaklega eru mér minnisstæð haust- og miðsvetrarboð hjá Auðuni og Ingibjörgu á heimili þeirra. Það voru stundir sem lýstu upp skammdegið. Það er skammt milli gleði og trega. Ég þakka gleði- stundirnar en votta ekkju Auðuns, börn- um, öðrum ættingjum og vinum innilega samúð. Einar Gíslason. Hjartans þakkir til allra þeirra, sem sýndu okkur samúð, hlýhug og vináttu við útför besta vinar míns og eiginmanns, föður okkar, tengdaföður og afa, JÓNS EIRÍKSSONAR frá Þrasastöðum í Fljótum. Sérstakar þakkir til starfsfólk líknardeildar Landspítalans í Kópavogi fyrir frábæra umönnun. Inger Marie Arnholtz Elín Jóhannesdóttir Arnholtz, Gísli Sigurjón Jónsson, Axel Jónsson, Inga Dóra Hrólfsdóttir, Hilmar Jónsson, María Helga Hróarsdóttir og barnabörn. Elskulegur bróðir okkar, SNORRI PÉTURSSON, til heimilis í Hátúni 10b, lést miðvikudaginn 13. apríl. Útförin fór fram í kyrrþey, föstudaginn 22. apríl, að ósk hins látna. Snorri var jarðsunginn frá Krirkjubæ í Hróars- tungu og jarðsettur í heimagrafreit að Litla Bakka í sömu sveit. Aðalbjörg Pétursdóttir, Margrét Pétursdóttir og aðrir aðstandendur. Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengda- faðir, afi og langafi, GUÐMUNDUR SÆMUNDSSON, Víkurbraut 30, Hornafirði, verður jarðsunginn frá Hafnarkirkju mánu- daginn 2. maí klukkan 14.00. Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir, en þeim, sem vilja minnast hans, er bent á að láta hjúkrunardeild Skjólgarðs njóta þess. Aðalheiður Sigurjónsdóttir, börn, tengdabörn, afa- og langafabörn. Eiginmaður minn, EYJÓLFUR BJARNASON frá Kyljuholti, verður jarðsunginn frá Hafnarkirkju þriðju- daginn 3. maí kl. 14.00. Fyrir hönd fjölskyldunnar, Guðrún Kristjánsdóttir. Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, JÓN B. KRISTINSSON húsasmíðameistari, Nónvörðu 2, Keflavík, lést á dvalarheimilinu Víðihlíð, Grindavík, fimmtudaginn 28. apríl. Jarðarförin auglýst síðar. Halldóra Kristín Björnsdóttir, Loftur Hlöðver Jónsson, Kristján Már Jónsson, Ragnhildur Jónsdóttir, Kristmundur Árnason, Ásta Margrét Jónsdóttir, Sigurður H. Jónsson, Dóra Brynja Jónsdóttir, Hermann Waldorff, barnabörn og barnabarnabörn. Steinsmiðjan MOSAIK Hamarshöfða 4 • 110 Reykjavík • sími 587 1960 • www.mosaik.is MIKIÐ ÚRVAL AF LEGSTEINUM OG FYLGIHLUTUM Sendum myndalista

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.