Morgunblaðið - 30.04.2005, Page 55

Morgunblaðið - 30.04.2005, Page 55
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 30. APRÍL 2005 55 DAGBÓK Frábær viðbrögð ÞAÐ ER nú svo oft sem fólk kvartar en sjaldnar sem fólk lætur heyrast það sem vel er gert. Mig langar að koma á framfæri þakklæti til starfsmanna Bílabúðar Benna (notaðir bílar). Þannig er mál með vexti að ég keypti þar bíl um daginn, 1999 árgerð. Þegar ég var rétt kominn út af planinu hjá þeim sprakk dekk hjá mér. Mér fannst þetta eitthvað skrýtið svo að ég hringdi í þá og bað þá að senda ein- hvern til að líta á þetta hjá mér, það sprakk nefnilega svolítið furðulega dekkið. Þeir sendu mann sem sá strax að það hafði brotnað gormur sem reif dekkið í sundur. Ég var nátt- úrlega frekar reiður og bað um að eitthvað yrði gert í þessu. Það þarf ekki að orðlengja það en þeir óku mér bara í burtu af staðnum, buðu mér annan bíl á meðan ég biði eftir að gert væri við hinn. Svo skiptu þeir um báða gormana, en ekki bara þann sem brotnaði, og umfelguðu fyr- ir mig yfir á sumardekkin. Góð viðbrögð og greinilega menn sem er annt um viðskiptavini sína. Kærar þakkir fyrir mig. Vignir Daði. Fordómar ÉG VAR rosalega ósátt um daginn þegar ég leit í Fréttablaðið, sem er nú annars fínt blað. Ekki nóg með það að daginn áður var viðtal við Gunnar í Krossinum, nú var honum hrósað (aftarlega í blaðinu „Hrósið fær … Gunnar í Krossinum fyrir að hafa húmor fyrir sjálfum sér“). Ég sé ekk- ert athugavert við að hrósa fólki fyrir húmor, en þessi maður hefur lengi reynt að brjóta niður samkynhneigt fólk með því að segja því að það sé öðruvísi. Um tíma vildi hann útskúfa það úr samfélaginu. Hvað er hann að hnýsast í annarra manna líf? Getur hann ekki bara einbeitt sér að sínu lífi? Ég skil vel að fordómar eru eitt- hvað sem allir þurfa að kljást við ein- hvern tímann en þetta finnst mér nú bara fullmikið. Sjálf á ég samkyn- hneigða og tvíkynhneigða vini og þeir eru ekkert öðruvísi en aðrir. 16 ára Reykjavíkurmær. Týnd gleraugu NÚ ER það blint! Sl. laugardag töp- uðust herragleraugu, þau eru með lespunkti og dökkna í sólarljósi. Finn- andi vinsamlegast hafi samband í síma 8221461. Köttur á villigötum UNDANFARNA tvo daga hefur lítil krúttleg kisa mjálmað ámátlega hérna í garðinum hjá mér. Hún er hvít, með gulbrúna flekki og skott – og með gula hálsól. Á hálsólinni er málmspjald með bókstafnum „S“. Ef einhver vill kannast við hana, þá er ég í síma 5511397 og 6981397. Velvakandi Svarað í síma 5691100 kl. 10–12 og 13–15 | velvakandi@mbl.is Við viljum gjarnan gera okkur gildandimeðal þjóða í rannsóknum á ýmsumvísindasviðum og vonumst til, að þærgeti síðan skilað sér út í samfélagið, til dæmis í auknum atvinnutækifærum og einkaleyf- um,“ sagði Rúnar Bachmann en mennta- málaráðherra hefur skipað hann formann í stjórn sérstakrar markáætlunar til fimm ára. Tekur hún annars vegar til rannsókna og þróunar á erfða- fræði í þágu heilbrigðis og hins vegar til rann- sókna á örtækni, svokallaðri nanótækni. Með Rúnari í stjórninni eru þau dr. Þorgeir Þorgeirs- son, líffræðingur hjá Íslenskri erfðagreiningu, og dr. Fjóla Jónsdóttir, dósent við Háskóla Íslands. Hefur ríkisstjórnin ákveðið að verja 200 millj. kr. til þessa verkefnis á næstu tveimur árum. „Markmiðið er að efla rannsóknir og stöðu ís- lenskra vísindamanna í alþjóðlegum vísindarann- sóknum en hvað örtæknina varðar, þá er þar um að ræða svið í mikilli mótun. Forsendurnar eru því dálítið aðrar en í gamalgrónum greinum en markmiðið er ekki síst að treysta rannsókna- grundvöll á þessu sviði hér á landi,“ segir Rúnar. Hvernig nýtist örtæknin? „Hún hefur margar skírskotanir og þvert á hefðbundna skiptingu vísindasviða í dag. Teygir sig inn í læknistækni og efnatækni og að sjálf- sögðu í rafeindaiðnaðinn svo eitthvað sé nefnt. Við þessar rannsóknir nýtist ýmis menntun en í áætluninni er svo líka lagt mikið upp úr vísinda- rannsóknamenntun og umsóknir, sem hafa hana að markmiði öðrum þræði, verða vel séðar. Hvað með tækjabúnað til þessara rannsókna? „Tækjasjóður Vísinda- og tækniráðs mun koma að þeim málum og steig raunar stórt skref í þá átt í þessum mánuði þegar hann úthlutaði 40 millj. kr. til tækjakaupa á sviði örtækninnar,“ sagði Rúnar. „Á hinu sviðinu, erfðatækni í þágu heilbrigðis, er gert ráð fyrir nokkrum breiðum verkefnum góðra vísindamanna hér.“ Hvenær verður verkefnastyrkjum úthlutað? „Umsóknarfrestur er til 10. júní og stefnt er að því að úthluta styrkfénu að mestu í haust. Seinni lotan er frá 2007 til 2009 en óvíst er hvaða fé verður þá til ráðstöfunar. Gefið hefur verið í skyn, að það verði veruleg upphæð en það er þó ekki ákveðið enn.“ Rúnar segir, að markáætlunin nú sé frábrugð- in þeim fyrri í því, að Vísinda- og tækniráð hafi óskað eftir tillögum um hana frá vísindasamfélag- inu. „Við fengum 35 tillögur og urðu þessi tvö svið fyrir valinu. Tillögurnar voru margar mjög áhugaverðar og við vonum, að það eitt að velta þeim upp, muni leiða til aukinna rannsókna á þeim sviðum,“ sagði Rúnar Bachmann að lokum. Vísindi | Markáætlun til fimm ára um eflingu íslenskra vísindarannsókna Þróun í erfðafræði og örtækni  Rúnar Bachmann er fæddur árið 1950, raf- virki að mennt. Síðast- liðin 19 ár hefur hann unnið hjá verk- fræðistofunni Raf- teikningu í Reykjavík. Var hann skipaður stjórnarmaður í Rann- sóknaráði árið 1993 og var í ráðinu þar til það var lagt niður. Á hann nú sæti í stjórn Vísinda- og tækniráðs. Rúnar hefur verið stjórnarmaður í Rafiðnaðarsam- bandi Íslands allt frá árinu 1976 eða í tæp 30 ár. Eiginkona Rúnars er Guðrún Björk Hauks- dóttir hárgreiðslukona. 80 ÁRA afmæli. Í dag, laugardaginn 30. apríl, er áttræð Jóhanna Alexand-ersdóttir. Eiginmaður hennar, Eyjólfur Jónsson, verður áttræður 10. júní nk. Af þessu tilefni er boðið til kaffisamsætis í Seljakirkju í dag frá kl. 15 til 18. Árnaðheilla dagbók@mbl.is Skagstrendingaball! Halló halló! Skagstrendingar ungir sem aldnir! Nú endurvekjum við gömlu góðu stemmninguna með stórdansleik laugardaginn 7. maí kl. 22.00 í Skaftfellingabúð, Laugavegi 178. Hljómsveit Hilmars Sverrissonar sér um fjörið. Óvæntar uppákomur að hætti Skagstrendinga. Mætum öll með góða skapið Nefndin. Valdi Hún sími 894 1388 og Reynir Sig. sími 820 6006 STANGAVEIÐI Stangveiði á vatnasvæði Elliðavatns hefst 1. maí. Veiðileyfi eru seld á Kríunesi og Elliðavatni. Á sömu stöðum geta félagar úr Sjálfs- björgu, unglingar (innan 16 ára ald- urs) og ellilífeyrisþegar úr Reykja- vík og Kópavogi fengið afhent veiðileyfi án greiðslu. 80 ÁRA afmæli. Í dag, laugardag-inn 30. apríl, er áttræð Bjargey Fjóla Stefánsdóttir, Norðurbrú 5, Garðabæ. Íslandsmótið í tvímenningi. Norður ♠D542 ♥K84 A/AV ♦64 ♣ÁKD5 Vestur Austur ♠K ♠G109876 ♥ÁDG97652 ♥10 ♦985 ♦K3 ♣8 ♣G432 Suður ♠Á3 ♥3 ♦ÁDG1072 ♣10976 Þegar neikvæða doblið kom fyrst fyrir alvöru á markaðinn í kringum 1960 þótti það slík bylting í sagntækni að því var líkt við Spútnik-tungl Rússa og nefnt Spútnik-dobl. Sú nafngift hefur glatast í tímans rás, en neikvæða doblið hefur haldið stöðu sinni og vel það – nú orðið spila flestir dobl til úttektar eftir opnun makkers og innákomu millihandar (sem sagt, neikvætt) allt upp í innákomu á fjögur hjörtu. En allt kostar sitt – líka Spútnik-doblið. Spilið að ofan er frá úrslitum Íslands- mótsins. Einhverjir kusu að opna á veikri spaðasögn í austur, en þar sem austur sagði pass í byrjun, fóru sagnir víða í þennan farveg Vestur Norður Austur Suður Guðm. V. Guðm. P Stefán Ásmundur – – Pass 1 tígull 4 hjörtu Dobl * Pass 5 tíglar Pass Pass Pass Ásmundur Pálsson og Guðm. P. Arnarson voru með spil NS gegn Guð- mundi Víði og Stefáni Vilhjálmssyni. Dobl norðurs er neikvætt og þess vegna segir Ásmundur fimm tígla. Fjögur hjörtu fara þrjá niður (800), svo það hefði gefist vel fyrir NS að spila vörnina, en það verður ekki bæði haldið og sleppt. Guðmundur Víðir spilaði út einspilinu í laufi gegn fimm tíglum. Ásmundur drap í borði með ás og svínaði tígul- drottningu. Spilaði svo hjarta að blind- um. Guðmundur tók með ás og spilaði aftur hjarta, kóngur úr borði og Stefán trompaði með tígulkóng. Ásmundur yf- irtrompaði og tók trompin af vörninni. Spilaði svo laufi á kóng og sá leguna. Stakk hjarta heim og spilaði síðasta trompinu. Austur varð að hanga á Gx í laufi, svo hann gat aðeins verið á tveimur spöðum. Ásmundur tók á spaðaás og hugðist senda austur inn á kónginn til að spila laufi í lokin, en spaðakóngurinn kom blankur úr vestrinu, svo innkastið reyndist óþarft. BRIDS Guðmundur Páll Arnarson | dagbok@mbl.is 1. e4 c6 2. d4 d5 3. exd5 cxd5 4. c4 Rf6 5. Rc3 e6 6. Rf3 Bb4 7. Bd3 dxc4 8. Bxc4 0–0 9. 0–0 b6 10. Bg5 Bb7 11. Re5 Bxc3 12. bxc3 Rbd7 13. De2 Dc7 14. Rxd7 Rxd7 15. Hac1 Hfe8 16. Bb3 Dc6 17. Dg4 h6 18. Be3 Rf6 19. Dh3 De4 20. Bd1 Dg6 21. c4 Hac8 22. Be2 Bc6 23. Hfe1 Hed8 24. Hed1 Hb8 25. Bf4 Hb7 26. f3 b5 27. Be5 bxc4 28. Bxc4 Ba4 29. He1 Hb4 30. a3 Hb7 31. Dh4 Hc8 Staðan kom upp á Sigeman-mótinu sem lauk fyrir skömmu en það var að þessu sinni haldið bæði í Málmey og Kaupmannahöfn. Sune Berg Hansen (2.553), hvítt, sneri laglega á Emil Her- mannsson (2.432). 32. Bd3! Dxd3 33. Hxc8+ Re8 34. Dg4 g5 35. De4 Dd2 36. De3 Da2 37. d5! Dxd5 38. h4 Bd7 39. Hc5 Db3 40. Hc3 Db6 41. Bd4 Da5 42. Hc5 og svartur gafst upp. Lokastaða mótsins varð þessi: 1.–2. Jan Timman (2.617) og Krishnan Sasikiran (2.642) 6½ vinning af 9 mögulegum 3. Hikaru Nakamura (2.657) 6 v. 4. Curt Hansen (2.633) 5½ v. 5. Jonny Hector (2.513) 5 v. 6.–7. Viorel Ior- dachescu (2.609) og Davor Palo (2.525) 4 v. 8. Sune Berg Hansen (2.553) 3½ v. 9. Emil Hermannsson (2.432) 2½ v. 10. Tiger Hillarp-Persson (2.533) 1½ v. SKÁK Helgi Áss Grétarsson | dagbok@mbl.is Hvítur á leik. Mikið úrval af fallegum rúmfatnaði Skólavörðustíg 21, Reykjavík, sími 551 4050 ER NEFIÐ STÍFLAÐ? Fæst í apótekum og lyfjaverslunum STERIMAR Skemmir ekki slímhimnu er náttúrulegur nefúði sem losar stíflur og léttir öndun. Fyrir 0-99 ára. VOR 2005 Sölustaðir: sjá www.bergis.is

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.