Morgunblaðið - 12.05.2005, Blaðsíða 21

Morgunblaðið - 12.05.2005, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 12. MAÍ 2005 21 MENNING Listasalur Mosfellsbæjar Umsóknir um afnot af Listasal Mosfellsbæjar Bókasafn Mosfellsbæjar auglýsir eftir aðilum sem áhuga hafa á að halda listasýningar, flytja tónlist eða standa fyrir öðrum menningartengdum viðburðum. Listasalur Mosfellsbæjar er áfastur nýju húsnæði Bókasafns Mosfellsbæjar í Kjarna í Mosfellsbæ og er salurinn hannaður sem fjölnota listasalur fyrir myndlist, tónlist og talað orð. Hægt er að sækja um leigu á salnum vegna m.a. myndlistarsýninga, tónlistarflutnings, fræðslufunda og annarra menningartengdra viðburða. Umsóknir vegna myndlistarsýninga á næsta starfsári (sept. 2005-júní 2006) verða að berast menningarmálanefnd fyrir 1. júní 2005. Umsóknareyðublöð, starfsreglur og nánari upplýsingar er hægt að fá í Bókasafni Mosfellsbæjar á Torginu í Kjarna, Þverholti 2. Upplýsingar í síma 566 8434. KRISTINN Sigmundsson söngvari var í gær útnefndur heiðurs- listamaður Kópavogs árið 2005. Kristinn er einn af þekktustu söngv- urum Íslands í hinum alþjóðlega tónlistarheimi og ferðast víða um heim vegna starfs síns, en hann hef- ur átt heimili í Kópavogi undanfarin 10 ár. „Þá flutti ég frá Þýskalandi og beint hingað,“ útskýrir Kristinn, sem hefur oftsinnis komið fram á tónleikum ásamt Jónasi Ingimund- arsyni píanóleikara. Hann segir það mikinn heiður vera útnefndur heiðurslistamaður bæjarins. „Mér þykir mjög vænt um að taka við þessari nafnbót,“ segir hann og bætir við að það sé gott að búa í Kópavogi, sem sé mikill menn- ingarbær. „Maður er stoltur af því að búa í bæ sem hefur þann metnað að vera fyrsta bæjarfélagið á land- inu sem byggir yfir tónlist. Það er ómetanlegt, alveg hreint.“ Í kvöld og annað kvöld kl. 20 kem- ur Kristinn síðan fram á tónleikum í Salnum ásamt Jónasi Ingimund- arsyni. Tónleikarnir marka upphaf tónleikaferðar þeirra um Norð- urlönd á næstu dögum, en tvímenn- ingarnir hlutu á dögunum styrk úr Norræna menningarsjóðnum til far- arinnar. Á efnisskrá tónleikanna, líkt og í ferðinni, eru íslensk lög frá ýmsum tímum, söngvar eftir Schu- bert og óperuaríur. Kópavogur | Kristinn Sigmundsson út- nefndur heiðurslistamaður Kópavogs „Þykir mjög vænt um að taka við þessari nafnbót“ Morgunblaðið/Sverrir Kristinn Sigmundsson, bæjarlistamaður Kópavogs. stíga sín lokaskref á braut listahá- skólans en þess má vænta að margir haldi í frekara nám erlendis þegar BA-náminu hér er lokið. Myndlist- arumfjöllun um nemendaverk er hæpin því mikill hluti þessara tilvon- andi listamanna er stutt á veg kom- inn og hefur ekki náð að móta list sína. Áhugaverðara er að velta fyrir sér tíðaranda og stefnu þeirrar kyn- slóðar sem hér er að ljúka námi en verk einhverra þeirra eigum við eft- ir að sjá í sýningarsölum og söfnum bæjarins síðar meir. Þegar verk myndlistardeildar eru skoðuð vekur það einna mesta at- hygli hvað myndbönd eru mörg og misjafnleg. Það kemur kannski ekki á óvart, en vekur upp þá spurningu hvort ekki sé orðið tímabært að inn- leiða einhvers konar kvikmynda- eða stuttmyndadeild við skólann, svo mikill er áhuginn, en úrvinnslan ekki að sama skapi jafnáhugaverð. Hér stóð verk Kristínar Bjarkar Krist- jánsdóttur upp úr hvað varðar fram- setningu, tök á miðli og skýrt mark- mið. Myndbandið er sjónrænn miðill NEMENDUR í arkitektúr, hönnun og myndlist sýna nú lokaverkefni sín á Kjarvalsstöðum á árlegri útskrift- arsýningu Listaháskólans. Mynd- listarnemar sem útskrifast eru 25 talsins, í hönnun og arkitektúr eru þeir 44. Það eru því verk eftir 69 ein- staklinga sem fylla báða sali og gang listasafnsins, og eins og gefur að skilja margt að sjá. Áhorfendur eiga auðvelt með að átta sig á hinum mis- munandi deildum, húsnæði Kjar- valsstaða hentar sýningunni eins og hún er í ár vel. Þar er auðvitað einn- ig um að þakka sýningarstjórn þeirra Sigríðar Ólafsdóttur í mynd- list og Sólveigar Berg Björnsdóttur og Ásdísar H. Ágústsdóttur í hönn- un og arkitektúr. Þeir sem hér sýna eiga það allir sameiginlegt að vera nemendur að sem býður upp á margvíslega mögu- leika en fæstir kunna að nýta sér þá og það er synd þegar svona mikill áhugi er fyrir hendi. Á eftir mynd- bandinu voru ljósmyndir einnig vin- sælar og af ýmsum toga, hljóð fylgir mörgum listaverkum en skúlptúrar eða málverk voru sjaldséð. Í heildina er tilfinningin fyrir sjálfsskoðun þeirri sem hefur átt mjög upp á pallborðið í listum und- anfarin ár einna sterkust í þessum lokaverkum. Sjálfsskoðun gerir þær kröfur til listamannsins að hann nái að yfirstíga nánd sína og birta við- fangsefni sitt á máta sem nær að vekja áhuga áhorfandans, en það getur verið snúið. Það sem einnig vekur athygli er að hin sjónræna hlið myndlistarinnar er hér á und- anhaldi og spurning hvort nem- endur séu ekki að missa af einhverju þegar þeir takast að svo takmörk- uðu leyti á við myndræna framsetn- ingu verka sinna. Framsetning, lit- ur, efni, allt er þetta hluti af hugmyndinni og það sem oft nær að miðla henni einna sterkast til áhorf- andans. Undanhald hins sjónræna er tilhneiging sem er athyglisverð og þess virði að velta fyrir sér hvaða áhrif þetta hefur á myndlistina og birtingarmyndir hennar í samfélag- inu, hvort þær eigi eftir að breytast og hvort myndlistin eigi eftir að renna meira saman við aðrar list- greinar á borð við kvikmyndir, tón- smíðar eða ritstörf. Mér virðist við lifa á tímum þegar hin mikla fjöl- hyggja innan listanna með öllum sín- um grensutilfæringum milli list- greina er farin að hafa grundvallaráhrif á myndlistina og hlutverk hennar, áhrif sem verður að fara að taka með í reikninginn t.d. við stefnumótun listasafna, skipu- lagningu listasýninga, staðsetningu þeirra o.s.frv. Getur ekki verið að myndlist dagsins í dag sé farin að rekast illa innan þess hefðbundna sýningarforms sem myndlist gær- dagsins hefur búið henni? Þessum spurningum verður auðvitað ekki svarað hér, en þetta er kannski eitt- hvað til að spá í. Fatahönnunardeild útskrifar þó nokkra nemendur í ár og verk þeirra taka sig vel út á ganginum. Nem- endur arkitektúrdeildar sýna hug- myndir að byggingum á Landakots- túni og var mjög gaman að sjá hugmyndir þeirra. Hönnunardeildin var jafnfjölbreytt og nemendur eru margir en eftirtektarvert að hér líkt og í myndlistinni er það nánasta um- hverfi sem unnið er með, sem ein- kennist að nokkru leyti af íslenskum allsnægtum. Nokkrir unnu með börn eða barnslega hluti. Líkt og virðist uppi á teningnum hjá mörg- um í myndlistinni er leitast er við að skapa á barnslegan máta verk sem tengjast e.t.v. á einhvern hátt hugs- un sem minnir á leik. Útskriftarsýningin er vissulega skemmtileg og fjölbreytt að vanda en að allri þessari skemmtilegu sköpun ólastaðri auglýsi ég hér með eftir listrænum hugsjónum og eftir sýn á einstaklinginn sem hluta af stærri heild, bæði í samfélagslegum, alþjóðlegum og sögulegum skilningi. Fjölbreytt en vekur upp spurningar MYNDLIST Kjarvalsstaðir Til 29. maí. Kjarvalsstaðir eru opnir alla daga frá kl. 10–17. Útskriftarsýning Listaháskólans Morgunblaðið/Eyþór „Útskriftarsýningin er vissulega skemmtileg og fjölbreytt að vanda en að allri þessari skemmtilegu sköpun ólastaðri auglýsi ég hér með eftir listrænum hugsjónum og eftir sýn á einstaklinginn sem hluta af stærri heild, bæði í samfélagslegum, alþjóðlegum og sögulegum skilningi,“ segir Ragna Sigurðardóttir m.a. í umsögn sinni um sýningu útskriftarnema LHÍ á Kjarvalsstöðum. Ragna Sigurðardóttir SAMSÝNINGIN Skyndikynni (á ensku Brief Encounter) er samsýn- ing í flokki svokallaðra Þaksýninga, en þær hafa áður verið haldnar í New York og London. Hugmyndin er að fá listamenn til að sýna í kvöldbirtunni í eftirminnilegu umhverfi. Staðsetn- ingin uppi á þaki ýjar að opnun, með endalausan himingeiminn fyrir ofan. Fast land undir fótum og nálægt um- hverfi skapa á hinn bóginn mörk um sýninguna. Í ár býður Ólöf Björnsdóttir þrem- ur listamönnum sem staðsettir eru í Lundúnum að sýna í rými Reykjavík- urAkademíunnar á Hringbraut 121, Reykjavík, ásamt 9 íslenskum lista- mönnum. Tveir þessara erlendu lista- manna eru upphaflega frá Þýskalandi og einn frá Brasilíu. Fyrirhugað er að sýna gjörninga og aksjón-tengd verk eina langa kvöldstund og sýna síðan heimildir um kvöldið í rýminu í 3 vik- ur á eftir. Opnunarkvöldið er í kvöld. Menningartengdar venjur Þaksýningar hafa fjallað um og nýtt sér breytileika þessara marka. Fyrsta sýningin var haldin í sept- ember 1999 uppi á þaki í West Vill- age, New York. Í framhaldinu hafa tvær þaksýningar verið haldnar ofan á byggingu við ána Thames í London. Að þessu sinni beinist athyglin að menningartengdum venjum. Þetta er tilraun til að sjá hvað gerist þegar listamenn, sem eru ekki endilega vanir að gera staðbundin verk, koma á stað þar sem þeir þurfa að bregðast skyndilega við framandi menningu og umhverfi. Hlutverk óljósra frétta og fregna á mörkum lista og fjölmiðla verður kannað við undirbúning sýn- ingarinnar og notað í sumum verk- unum, en óljóst „jaðareðli“ sýning- arinnar gerir þetta mögulegt. Ólöf vann nýlega „Ullarvettlinga“ Myndlistarakademíu Íslands. Þátttakendur í Skyndikynnum eru Anna Júlía Friðbjörnsdóttir, Björk Guðnadóttir, Brynja Sif Björnsdóttir, Camila Sposati, Caroline Achaintre, Hrafnkell Sigurðsson, Johannes Ma- ier, Karlotta Blöndal, Kristján Guð- mundsson, Kristín Elva Rögnvalds- dóttir, Ólöf Björnsdóttir, Marta María Jónsdóttir og leynigestur. Myndlist | Skyndikynni í ReykjavíkurAkademíunni Brugðist við framandi menningu og umhverfi

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.