Morgunblaðið - 27.05.2005, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 27.05.2005, Blaðsíða 16
16 B FÖSTUDAGUR 27. MAÍ 2005 MORGUNBLAÐIÐ bílar Japan/U.S.A. STÝRISENDAR, SPINDILKÚLUR OG FÓÐRINGAR í jeppa í miklu úrvali Vagnhöfða 7 110 Reykjavík Sími: 517 5000 YKKAR einlægur er einn þeirra u.þ.b. 600 Íslendinga sem fyrstu fimm mán- uði ársins 2005 keyptu mótorhjól. Það var gamalt Yamaha XJ600, sem keypt var hjá mótorhjólasölu í Þýska- landi í gegnum netið. Hjólið er árgerð 1994 og var ekið um 37.000 km, en eins og nýtt á að líta og á nýjum dekkj- um og vel við haldið. Hingað komið kostaði það nálægt 350.000 kr. og hafa nú bæst við um 1.500 km á vega- lengdarmælinn, enda einmuna blíða verið mestallt vorið. Undirritaður er búinn að sporta sig allnokkuð á nýja leiktækinu sínu, sem margir kalla í glensi Gula fiðringinn, með greinilegri vísan í fiðring af öðrum og grárri litarhætti. Skrifari er samt engan veginn undir það búinn að rita lærðar greinar um mótorhjól, hvað þá heila reynsluakstursgrein. Til þess er þekkingin á málefninu allt of brota- kennd. Þess vegna ber að líta á þessi skrif, sem ekki fjalla um Gula fiðring- inn að öðru leyti heldur nýja Yamaha MT-01 ofurhjólið, miklu fremur sem upplifun íturvaxins drengs sem skyndilega kemst í stóran dótakassa og fær að leika sér í honum um stund- arsakir. Þó skal þess getið að Guli fiðring- urinn er með 60 hestafla vél og er fremur létt götuhjól og hefur því alla tíð virkað bara nokkuð sprækt í huga drengsins. En svo bauðst honum að prófa þetta gljáandi nýja Yamaha MT-01 frá Arctic Trucks, umboðsaðila Yamaha, og þá upplaukst fyrir honum splunkunýr og spennandi veruleiki. Spurning um Newtonmetra Komið var með hjólið upp að dyrum seinnipart föstudags og drengnum af- hentur lykillinn. Hjólið var skoðað í andakt í krók og kima. Sumt kom kunnuglega fyrir sjónir, ekki síst að MT-01 er á tveimur hjólum, en annað var framandlegt, eins og tvö púströr af sverustu gerð alveg upp við sætið, eins og á torfæruhjólum, og keðjan sem er hægra megin á hjólinu. Fram- lugtin er líka öðruvísi en aðrar fram- lugtir; blanda af einhvers konar „retro“-hönnun og módernisma. Pústflækjan og stærðin á V2-vélinni er næstum yfirþyrmandi. Og aft- urdekkið er sömuleiðis af sverustu sort. Í svipan rifjaðist upp fréttaflutn- ingur af mótorhjólasýningunni í Tókýó 1999 þegar MT-01 var sýnt sem hug- myndahjól. Þá áttu kannski fæstir von áþví að það yrði nokkurn tíma fram- leitt, eins furðulegt í uppbyggingu og það var. Heim var það samt komið á númerum og fullum tanki af bensíni. Það er nýbúið að setja MT-01 á markað í Evrópu en nokkru áður í Jap- an. Hjólið verður hins vegar ekki mark- aðssett á næstunni í Bandaríkjunum. Þá er gaman að geta þess að Yamaha tók upp allt efni fyrir bæklinga og aug- lýsingar hér á landi í fyrra og má sjá skínandi skemmtilegar myndir í ís- lenskri náttúru á www.mt-01.com. Sumir höfðu spurt skrifara hvort hann treysti sér til þess að hjóla á þessu aflmikla hjóli. Þá kom strax upp íhugann að hjólið er þó ekki „nema“ 90 hestöfl þegar allt kemur til alls, eins og það hefði í raun og veru eitt- hvað með málið að gera. Það sem allt snýst um í MT-01 er nefnilega tog og aftur tog, Newtonmetrar á Newton- metra ofan. Yamaha setti stærstu vél- ina í sínu vopnabúri í þessa glæsilegu mótorhjólagrind – vél sem notuð hefur verið í hörðustu hippana eins og t.d. Warrior, tæpir 1.700 rúmsentimetrar að slagrými, sem sagt stærri vél en t.d. í VW Golf 1.6 FSI. En, nota bene, hjólið er um 920 kg léttara Golfinn. Það var ekki eftir neinu að bíða. Sól- in skein í heiði og kevlar-gallinn hékk óþreyjufullur á herðatré inni í skáp. Setan á hjólinu er þægileg fyrir mann sem kemur af XJ600 og ekki ósvipuð. Lítið mál að stoppa á ljósum. En þegar átti að snúa hjólinu við í þrengslum upp við útidyrnar var það deginum ljósara að hjólið er engin léttavara þrátt fyrir allt. Lyklinum var snúið í svissinum og þrýst á rafstartið. Ætt- ernið leyndi sér ekki í drununum frá vélinni. Þetta er hippahljóð og það finnst fyrir vélinni upp í heiladingul. Grófur víbringur í lausagangi og þrumugnýr í hlustinni. Svo þegar inn- gjöfinni er skyndilega sleppt sprengir vélin, eins og í gömlum átta gata am- erískum kagga. Þvílíkur ruddi! Og svo var brunað af stað út í vorið. Í fyrsta gír og strax kominn á há- markshraða! Í öðrum gír og á 2.500 snúningum á allt öðrum hraða. Hjólið er að skila mesta átakinu í kringum 3.000 snúninga og hljóðið er þungt og djúpt og hröðunin þegar komið er upp ávenjulegan aksturshraða gríðarleg. Um leið er hjólið auðvelt viðureignar; bara að muna að halda fast í stýrið! Undirritaður treysti sér hraðar í beygj- ur á þessum mikla grip en Gula fiðr- ingnum, og það þótt hann væri að prófa MT-01 í fyrsta sinn. Breið aft- urdekkin tryggja mikið veggrip. Það jók líka sjálfstraustið um allan helming að finna hemlunargetuna frá tvöföld- um diskabremsunum að framan. En alltaf þrengir sér inn í vitundina vél- arhljóðið og titringurinn frá vélinni, sem samt er ekki til óþæginda, miklu frekar til áminningar um allt aflið sem er undir ganglimunum. Nýr flokkur í uppsiglingu? Með MT-01 virðist sem Yamaha sé að búa til nýjan flokk mótorhjóla, þar sem allt gengur út á snarpa aksturs- eiginleika en meira tog en hröðun og spennandi að sjá hvort aðrir framleið- endur feta í sömu fótspor. Þetta er svolítill hlunkur en meðfærilegur að flestu leyti. Spurning er hversu mikið vindhlíf myndi spilla útliti hjólsins, en hún er eiginlega nauðsynleg, að mati skrifara, í þessu voru rokbæli. Eini ókosturinn við MT-01 er verðmiðinn; 1,5 milljónir rúmar. En samt er það kannski fyrirgefanlegt fyrir þá ánægju sem hjólið veitir. Guli fiðringurinn og MT-01 gugu@mbl.is Öndunin er líka í lagi á MT-01. Vélin er það sem allt snýst um í MT-01, 1.700 rúmsentimetrar. Framljósin eru afar sérkennileg og setja sterkan svip á hjólið. Stafrænn hraðamælir og hliðrænn snúningshraðamælir. Morgunblaðið/Eyþór Knapi situr frekar hnarreistur í MT-01 og hjólið er meðfærilegt.                           !  " # ! %    %  & # '   (     )   ) * ! +'                             ! "   "     "   ## $%& ' % %(   )*!&! + ,-)   .%/  0 12 3%  - "&"  4 -"&"  % !. " "  )*%& "        )*%&         ! " "     "    "## 5( % ' % $  )*!&! + ,-)   .%/ 0 12 3%  -" &"   4 -" &"  % !. " " 6 7

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.