Mánudagsblaðið


Mánudagsblaðið - 12.11.1962, Blaðsíða 7

Mánudagsblaðið - 12.11.1962, Blaðsíða 7
Mánudagur 12, nóveniber 1962 Mánudagsblaðið 7 Merkilegt ryðvarnarefni Eg sit I biðstofu heiinilislækn isins, bíð eftir lyfseðli. Börnin á heimilinu eru stifluð af kvefi. Biðin er leiðigjörn svo ég fer að blaða í gömlu blaðarusli, sem lig,gur á borði í biðstof- unni. Skyndilega rek ég augun í risafyrirsögn. Eg held á for- síðu Dagens Nyheter frá 30. júní, 1961. Þar stendur efst á blaði, með risaletri: „Bílarnir versna alltaf — Ryðið kostar 320 milljónir árlega“. (Það sam svarar 2672 milljónum ísl. kr.). Undirfyrirsögn í blaðinu er umj fyrstu Atóm-geymflaug Banda-1 ríkjanna, og er í nærri helm- ingi smærra letri. Eg fór að velta því fyrir mér hvað ylli því að blaðið teldi þetta slíka risafrétt að jafnvel frétt um fyrstu Atóm-eldflaug Bandaríkjamanna félli alveg í skuggann Því miður vantaði meirihluta blaðsins, enda hefur það legið þarna í rúmt ár, en þó komst ég að því að fréttin sem fylgdi þessari risafyrirsögn var um nýtt ryðvamarefni, sem nefndst TECTYL, og er amerískt. Eg er einn þeirra ógæfusömu manna sem á mikið ryðgaðan bíl, og þrátt fyrir endalausar K A K A L I Framhald af 4. síðu. Meðal æðstu manna þess- ara mála ætti hver maður, sem þar situr í ábyrgðarstöðu, að krefjast þess, að ljósmynd uð verði fingraför allra lands manna, eins og gert var á Akranesi fyrir nokkrum ár- um. Við getum ekki látið þessar bjánalegu viðbárur tröllríða heildinni. tilraunir, svo sem með kvoðun, áburði þykkrar olíu, o. s. frv., hefur mér ekki tekizt að stöðva stöðugt áframhaldandi ryðgun bílsins. Eg fór því að reyna að afla mér nánari upplýsinga um þetta nýja undraefni TECTYL. Að lokum rakst ég á grein í gömlu eintaki af Politiken, frá 18, október 1961, sem fjallar um þetta ryðvarnarefni, og fer hún hér á eftir í lauslegri þýð- ingu. „Allir nýir bílar frá General Motors eru nú ryðvarðir, bæði að innan sem og undirvagn- inn.“ Loksins, loksins. Við sendum General Motors stóran blóm- vönd fyrir myndarlegt framtak. Þegjandi og hljóðalaust hafa samsetningarverksmiðjurnar General Motors í Aldersrogade, Kaupmannahöfn hafið nýtt pró gram, sem hver einasti bileig- andi mun fagna. Hver einasti nýr bíll verður héðan i frá ryð- varinn m. tvennskonar ryðvarn arefni, er einnig er mjög vatns fráhrindandi (TECTYL). Neðan í hvert holrúm grind- ar og yfirbyggingar er borað smá gat, sem ryðvarnarefninu er sprautað inn um, með mjög háum þrýstingi, þannig að ryð varnarefnið smýgur út um .'-f hverja smá glufu í samsuðunni, sem og út í hvert horn og kima. (1 þessa innri ryðvörn notast efnið TESTYL 89^). Þegar þessu er lokið er allur undirvagninn sprautaður mjög vandlega (TECTYL 506). Ryð- varnarefni þetta þornar á skömmum tíma þannig að það verður að hálfklístrugri húð, sem bítur sig fasta við málm- inn þrátt fyrir steinkast og yatnsaga. Reiknað er með að ryðvörn þessi endist í 2—3 ár, en til öryggis er ráðlagt að athuga undirvagninn árlega, ef efnið skyldi hafa rispast af. Af innri ryðvörninni þarf ekki að hafa frekari áhyggjur. Hún endist svo lengi sem bíllinn sjálfur. Þetta er stórkostleg framför. Sérstaklega er það virðingar- vert að ryðvörnin skuli fara fram á alveg nýjum bílum, því þá er ennþá betri trygging fengin fyrir því að ryðvarnar- efnið komist inn í hvern krók og kima. Hitt er svo annað mál að hver bíleigandi ætti að láta ryðverja bíl sinn með þessu efni, því það varnar ekki aðeins ryðmyndun heidur stopp ar alla frekari ryðmyndun á gömlum bilum, ef það bara nær til ryðsins og málmsins fyrir skít. Já, nú geta bíleigendur jafn vel verið áhyggjulausir fyrir saltflaumnum á götunum, því þetta er bezta saltvörn sem þekkist. Bileigendur sjá nú fram á stór-bætta endingu bíla sinna og þar með hækkandi endur- söluverð. Teoretiskt getur nýr bíll nú enst endalaust, bara ef ryð- vörn er viðhöfð. General Mot- ors vinna’ byrjunai-verkið og ef bileigendur sjálfir gæta þess að viðhalda ryðvörninni á undir- vagninum getur svo farið að að einn góðan veðurdag geti hið danska umboð General Motors ekki selt fleiri bíla — þeim gömlu verði ekki fleigt“! Svo mörg voru þau orð. Það er von mín, að ekki þurfi að líða langur tími þar til einhver framtakssamur Is lendingur getur tekið að sér að ryðverja bíla með þessu niýja efni, því ryðskemmdir hér á landi munu vera margfalt meiri en á hinum Norðurlöndunum. og er sérstaklega seltunni um að kenma. LÆKNADEILAN Framhald af 1. síðu. stjórnarráðsins og annarra op- inberra stofnana eru settir í sama launaflokk og þeir, sem vaka yfir lífi og heilsu þjóðar- inmar, og hinir, sem bera á herðum sér það, sem til er af verklegri og andlegri menningu á þessu landi. B I R G I R Framhald af 1. síðu. borginni en það, sem flokks- stjórnin segir þeim hverju sinni. Æskan er í dag vandræða- fólk, nógu stórt og stæðilo^t, en hins vegar algjörlega aga- laust, allt of vel peningað, og eftirlitsleysi af hálfu borgar- yfirvaldanna er farið að gefa Reykjavík ,,Klondyke“-nafn meðal erl. sjóara og venjulgs ferðafólks, sem skoðar ungu stelpurnar hér á götunum, og á veitingastöðunum, eins og hverjar aðrar vændiskoniir úr skuggahverfum stórborganna. Þótt margar undantekningar finnist, sem betur fer, þá set- ur þessi rumpulýður orðið slík an blæ á skemtanalíf borgar- innar og götulíf hennar á kvöld in, að það er yfirvöldunum, sem kallast eiga ábyrg, til stór- skammar. Birgir ísl. Gunnarsson, full- trúi Sjálfstæðisfíbkksins, 'ætti að skoða sig betur um í „kjör- dæmi“ sínu, áður en hann fer að smjaðra fyrir æskunni á al- gjörlega <% -’fan og óviðeig- ar.di hátt — máske í einhverju misskildu pólitísku skyni. Hér þarf umbætur og eftirlit — ekki smjaður meðalmennsku og hreint út sagt, undirlægju- hátt. GLÆPSAMLEG FRAMKOMA Framhald af 8. síðu lítil von um, að hann geti starf að sem yfirþjónn. Þjónar hvers veitingnstaðar eiga að hafa þjónakaptein og hjálpa til að greiða honum sameiginlega. Þetta verður að fylgja allri þeirri óskaplegu menntun, sem hér er að skapast að sögn beggja aðila. Þjónar ættu að vita það, að eitt af hlutverkum þeirra i lif- inu er að ala upp gesti — eða vice versa. Nýkomið mikið úrval aí amerískum hljómplötum Hljóðfæraverzlun Sigríðar Helgadóttur Vesturveri — Sími 11315 VINARKVEÐIA W ★ Sungið af Hauk Morthens Sungið af Elly Vilhjálms REYKVlKINGAR: — Sjálfstæðishúsið er opið aftur eftir gagngerar breytingar — Húsið er opið. fyrst um sinn á föstudögum, laugardögum og sunnudög- um frá kl. 7 e. h. Fjölbreytfur matur borinn fram — Veitingar einnig í vínstúkunni — Hljómsveit: Kaprltríóið undir stjórn Baldurs Krist- jánssonar. Söngvarar: Colin Porter og Þórunn ÚlafsdóUir. Sjálfstæðishúsið býður aðeins upp á það bezta i mat og þjónustu. — Gerið ykkur dagamun. — !V Skemmtið ykkur í Sjálfstæðishúsinu. i __________________________ ! !

x

Mánudagsblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Mánudagsblaðið
https://timarit.is/publication/313

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.