Morgunblaðið - 03.06.2005, Qupperneq 8
liðu áður en hann hófst
handa við að taka hann í
sundur í þeim tilgangi að
gera hann upp. Erlingur
kláraði nokkra hluta upp-
gerðarinnar á árabilinu
1993-95 en seldi þá Stein-
grími E. Snorrasyni bílinn.
Steingrímur, ásamt Ragnari
Geirdal Ingólfssyni, hélt
áfram við ýmsa hluti sem
gera þurfti upp, m.a. lausa
boddýhluti, rúðuvindur o.fl.
Árið 1999 lét Steingrímur
þennan bíl sem greiðslu upp
í hluta kaupverðs á 1959
Mercedes-Benz 180a sem
allur hafði verið tekinn í
gegn af Rúnari Sigurjóns-
syni sem er núna eigandinn
að þeim bíl sem greinin fjallar um.
Það var honum erfið ákvörðun að
hefjast handa við að gera upp þennan
bíl, svo illa var hann farinn. Rúnar
hefur samt nýlega nær lokið erfiðri
og flókinni uppgerð á honum og var
bíllinn fyrst sýndur á skoðunardegi
Fornbílaklúbbsins í maí byrjun. Rún-
ar hefur haldið úti heimasíðu um
uppgerðina, www.stjarna.is/1955/, og
er hægt að sjá þar hversu mikil vinna
getur farið í svona verkefni.
BÍLLINN, Mercedes-Benz 180,
1955 árgerð, var upphaflega fluttur
inn nýr fyrir konu sem hét Olga
Magnúsdóttir. Hafði hún fengið
mænuveiki um fermingu og uppskar
lömun í fótum, þá sérstaklega þeim
vinstri. Hún átti erfitt með gang og
var mjög stirð sökum lömunar sinn-
ar. Á þrítugsaldri fór hana að langa
til að eignast bíl svo hún gæti ferðast
og farið sinnar leiðar án þess að vera
upp á aðra komin. Hún fékk vinnu við
símsvörun og önnur tilfallandi störf
og með starfi þessu gafst henni tæki-
færi til að safna sér peningum til þess
að kaupa bíl, en hún afþakkaði alla
aðstoð í þeim málum sem henni var
boðin. Svo kom að sjóðir hennar voru
nægir til að velja sér bíl. Eftir mikla
skoðun á því sem í boði var, valdi hún
þessa gerð af bíl á fyrstu bílasýningu
sem haldin var á Íslandi í KR heim-
ilinu við Frostaskjól árið 1954. Eitt-
hvað vantaði smá af aurum
til viðbótar og svo fór því að
bíllinn var ekki pantaður
fyrr en snemma árs 1955.
Bíllinn var upphaflega grár
að lit og er samkvæmt upp-
lýsingum úr bifreiðaskrá ný-
skráður þann 13. júní 1955.
Hann á því fimmtugsafmæli
um þessar mundir.
Sérútbúinn frá Þýskalandi
Bíllinn var fáanlegur sér-
útbúinn fyrir hana frá
Þýskalandi og kom upphaf-
lega þannig útbúinn til
landsins. Hún lærði að keyra
eftir að bíllinn var kominn,
og þá á hann sjálfan, enda
gat hún ekki ekið öðrum bíl-
um. Hún notaði bílinn mjög
mikið, fór á honum til vinnu og einnig
nokkrar ferðir norður í land. Átti hún
þennan bíl allt til þess dags er hún
féll frá árið 1977. Eignaðist þá systir
hennar bílinn, en hún vissi aldrei
hvað hún ætti að gera við hann, enda
ekki með bílpróf, og gat því ekki not-
að hann. Ákvað hún að henda bílnum
því að þá færi hann sömu leið og syst-
ir hennar, þ.e.a.s. yfir móðuna miklu
og fékk hún menn til að fjarlægja
hann. Það kom henni síðan mjög á
óvart á vordögum árið 2002 þegar
fyrst var haft samband við hana
vegna sögu bílsins að bíllinn skyldi
ennþá vera til, því hún stóð alla tíð í
þeirri meiningu að honum hefði verið
fargað. Á síðustu stundu, sem betur
fer, bjargaði Erlingur Ólafsson
blómabóndi í Mosfellsdal bílnum og
kom honum í hús. Upphaflegur til-
gangur hans var að hirða bílinn og
rífa hann í varahluti. Erlingur
geymdi bílinn lengi. Nokkuð mörg ár
SÍGILDAR SJÁLFRENNIREIÐAR
Verður bíll einhvern tímann ónýtur?
Rúnar Sigurjónsson er eigandi Mercedes-Benz 180, árgerð ’55.
Þeir voru glæsilegir gömlu Benzarnir og eru það enn.
Hver hefði trúað að bjarga mætti þessu flaki og gera úr bíl?
8 B FÖSTUDAGUR 3. JÚNÍ 2005 MORGUNBLAÐIÐ
bílar
TOPPBÍLAR, FUNAHÖFÐA 5,
SÍMI 587 2000 • toppbilar.is
Toyota Landcruiser 100 VX Diesel
05/2004 ssk, ekinn 17þkm, leður, sóllúga,
stillanleg fjöðrun, krókur, bakkskynjarar,
litafilmur. Verð 6.890.000. Skipti
möguleg á ódýrari.
Lexus RX-3 00 EXE
09/2004, sjálfskiptur, ekinn 12þkm, leður,
sóllúga, skriðvörn, hraðastillir ofl. Verð
5.150.000. Skipti möguleg á ódýrari.
Toyota Landcruiser 80 VX Diesel
06/1992, sjálfskiptur, ekinn 295þkm,
7 manna, 33" dekk, smurbók.
Verð 1890.000. TILBOÐ 1.590.000.
Skipti möguleg á ódýrari.
Toyota Landcruiser 90 LX Diesel
05/2000, sjálfskiptur, ekinn 74þkm,
16" felgur, brettakantar, krókur,
smurbók, einn eigandi. Verð 2.790.000.
Skipti möguleg á ódýrari.
Ford F-350 Lariat 6.0 Diesel 2005
NÝR BÍLL, sjálfskiptur, leður, sóllúga,
rafm. í öllu, glussaúrtak, 2 alternatorar,
Tork shift skipting, lok á palli ofl. Verð
4.600.000. Skipti möguleg á ódýrari.
Porsche Cayenne S 08/2003, 8cyl,
sjálfskiptur, ekinn 35þkm, leður,
skriðvörn, Bose hljómkerfi, loftkæling.
Verð 6.950.000.
Skipti mögulegá ódýrari.
Ford Transit Rivera húsbíll, 2.5, diesel,
ekinn 135þkm, loftpúðar, eldavél,
ísskápur, WC, sturta, svefnaðstaða
fyrir 4, ný tímareim, algjört toppeintak.
Verð 2.390.000.
Skipti mögulegá ódýrari.
Ford Explorer Eddie Bauer 4.6
04/2003, sjálfskiptur, leður, DVD, rafm. í
öllu, Dual miðstöð, bakkskynjari.
Verð 4.290.000. TILBOÐ 3.980.000.
Skipti möguleg á ódýrari.
VW Golf 4Motion 11/2001, 5 gíra,
ekinn aðeins 30þkm, fjórhjóladrif,
gullfallegur bíll. Verð 1.490.000.
Skipti möguleg á ódýrari.
Mercedes Benz SLK Kompressor
1999, sjálfskiptur, ekinn 75þkm, leður,
toppeintak, frábær bíll fyrir sumarið.
Verð 2.390.000.
Skipti mögulegá ódýrari.
MMC L-200 Double cab 2.5 diesel
turbo, 12/2002, 5 gíra, ekinn 91þkm,
dráttarkúla, smurbók, ný tímareim.
Verð 1.790.000.
Volvo XC-90 Diesel turbo 02/2003,
sjálfskiptur, ekinn 68þkm, álfelgur,
öryggispúðar, spólvörn, leður, hraðastillir.
Verð 4.350.000.
Skipti möguleg á ódýrari.
BMW 540 05/1999, sjálfskiptur, ekinn
145þkm, álfelgur, M-Sportfjöðrun, loft-
kæling, sóllúga, xenon ljós, regnskynjari,
bakkskynjari. Verð 2.380.000.
Skipti möguleg á ódýrari.
VW Passat 1.6 01/1999, 5 gíra,
álfelgur, CD, rafm. í rúðum, vindskeið.
Verð 1.090.000. TILBOÐ 950.000
stgr. Skipti möguleg á ódýrari.
Toyota Landcruiser LX 07/1999,
sjálfskiptur, ekinn 125þkm, álfelgur,
dráttarkúla, filmur, fjarstart.
Verð 2.290.000.
Skipti möguleg á ódýrari.
Bmw 520IA 1997, sjálfskiptur, ekinn
175þkm, sóllúga, ABS. Verð 1.490.000
TILBOÐ 990.000 stgr.
Skipti möguleg á ódýrari.
Audi A-3 Ambition 03/2000,
sjálfskiptur, ekinn 62þkm, ABS, rafm. í
rúðum. Verð 1.090.000.
Skipti möguleg á ódýrari.
Mercedes bens CLK-500 2003,
sjálfskiptur, grátt leður, sóllúga, álfelgur,
bíll hlaðinn aukabúnaði. Verð 5.990.000.
Skipti möguleg á ódýrari.
BMW 745i NEW 06/2002, sjálfskiptur,
ekinn 40þkm, bíll hlaðinn búnaði, sjón er
sögu ríkari. Verð 7.490.000.
Skipti möguleg á ódýrari.
Mercedes ML-270 06/2004,
sjálfskiptur, ekinn 8þkm, leður, sóllúga,
leiðsögukerfi, hraðastillir, ESP
stöðuleikakerfi. Verð 6.500.000.
Tilboð 6.100.000 stgr.
MARKAÐSHLUTDEILD stóru bíla-
fyrirtækjanna GM og Ford í Banda-
ríkjunum hélt áfram að rýrna í nýliðn-
um maímánuði. Sala nýrra bíla hjá
Ford dróst saman um 3,9% í apríl
miðað við sama mánuð í fyrra og hjá
GM dróst hún saman um 4,4%. Af
bráðabirgðatölum um söluna í maí-
mánuði má ráða að ástandið versnaði
enn. Í frétt frá Ford segir að salan í
maímánuði hafi verið nálægt því sem
gert hafi verið ráð fyrir en sam-
dráttur hafi vissulega orðið í maí.
Samdrátturinn er að miklu leyti
vegna þess að eftirspurn eftir stórum
pallbílum hefur hrunið. Markaðs-
fræðingar benda á mjög hátt bens-
ínverð sem veigamikla ástæðu þessa,
en segja að það sé þó ekki eina
ástæðan. Ekki síður veigamikil
ástæða sé að risastóru pallbílarnir
séu einfaldlega dottnir úr tísku, fólk
nenni hreinlega ekki lengur að skrölta
um á þeim og sækist eftir liðlegri og
liprari bílum. Auto Motor & Sport hef-
ur eftir Robert Barry, bílamark-
aðsfræðingi hjá Goldman Sachs, að
GM muni draga úr framleiðslu um
10% á seinni helmingi ársins og Ford
um tæp sjö prósent.
Risapallbílar
úr tísku
Morgunblaðið/RAX
Vestanhafs kjósa menn orðið liprari bíla en risapallbílana.