Morgunblaðið - 09.06.2005, Blaðsíða 26
26 FIMMTUDAGUR 9. JÚNÍ 2005 MORGUNBLAÐIÐ
MENNING
FJALLAÐ er um pólitísk jarðarber,
Íslendingasögurnar, biðina eftir líf-
inu og systur í verkum sem sýnd
verða í Borgarleikhúsinu í kvöld en
þá fer fram Dansleikhús/sam-
keppnin 25 tímar.
Þetta er í þriðja sinn sem sam-
keppnin er haldin, en hún er sam-
starfsverkefni Leikfélags Reykja-
víkur og Íslenska dansflokksins.
Fyrir síðustu jól var auglýst eftir
verkum fyrir samkeppnina og voru
níu verk valin til að taka þátt. Höf-
undarnir, sem langflestir koma úr
heimi dans og leiks, hafa 25 klukku-
stundir til að vinna tíu mínútna dans-
leikhúsverk og fá til liðs við sig leik-
ara og dansara.
Markmið Dansleikhús/samkeppn-
innar er að leita að nýjum höfundum,
stuðla að þróun dansleikhúsformsins
og láta reyna á samruna listgrein-
anna. Þessi árlegi viðburður gefur
listafólki tækifæri á að koma hug-
myndum sínum á framfæri.
Parateymin Álfrún Örnólfsdóttir
og Friðrik Friðriksson og Valgerður
Rúnarsdóttir og Vignir Rafn Val-
þórsson eru meðal höfunda dansleik-
húskeppninnar í ár.
Hugmyndin fæddist í bíl
„Hugmyndin að verkinu fæddist í
bíl á Hringbrautinni. Á leið í vinnuna
rétt fyrir klukkan tíu á morgnana
hlustuðum við oft á morgunleikfim-
ina á RÚV og fórum að velta því fyr-
ir okkur hvort fólk væri í raun að
gera þessar æfingar. Ef svo er er
fólk þá kannski saman í hópum eða
eitt heima hjá sér?“ segir Álfrún
Örnólfsdóttir um verk sitt og Frið-
riks Friðrikssonar 9.50 alla virka
morgna. Verkið fjallar um gamalt
fólk og útvarpið. Samskipti fólks við
umheiminn minnka oft þegar það
eldist og útvarpið verður sterkasta
tengingin við þjóðfélagið. Útvarps-
þulurinn skipar einnig stóran sess í
verkinu, raddirnar sem mörg okkar
hafa heyrt svo árum skiptir og eru
orðnar vinalegur hluti af hinu dag-
lega lífi. „Manni finnst maður þekkja
manneskjuna á bakvið röddina en
gerir sér kannski ekki grein fyrir því
að þetta fólk getur hafa átt erfiðan
dag eins og við hin,“ segir Álfrún.
Friðrik segir verkið síðan hafa
farið í lítið ferðalag og þróast og
breyst heilmikið frá hugmynd að
lokaútgáfu.
Þetta er í fyrsta skipti sem Álfrún
og Friðrik taka þátt í Dansleikhús-
inu og segja þetta leikhúsform vera
mjög spennandi. „Það eru engir
skýrir rammar um hvað má og hvað
ekki. Eina krafan er um að setja á
svið tíu mínútna verk þar sem bæði
leikarar og dansarar taka þátt,“ seg-
ir Friðrik. „Þetta er jákvæð sam-
keppni þar sem gamli ungmenna-
félagsandinn er við lýði og mestu
máli skiptir að vera með.“
Íslendingasaga tekin fyrir
„Gunnar is going mad he is killing
people down the river“ heitir verk
Valgerðar Rúnarsdóttur og Vignis
Rafns Valþórssonar. Titillinn kemur
úr kvikmyndinni Viking Saga sem
Valgerður lék í þegar hún var sextán
ára gömul og er setningin önnur af
tveimur sem hún fer með í myndinni.
„Okkur langaði að taka fyrir eina
af Íslendingasögunum, rokka hana
svolítið upp og setja í nýjan búning.
Njálssaga varð fyrir valinu þar sem
hún er þekktust þessara sagna,“
segir Valgerður.
Hvorki meira né minna en tíu leik-
arar og dansarar taka þátt í verkinu
auk tónlistarmannanna Sigtryggs
Baldurssonar og Davíðs Þórs Jóns-
sonar. „Vignir er nemi í Leiklist-
arskólanum og hann fékk félaga sína
þaðan til að taka þátt. Einnig eru
dansarar úr Íslenska Dans-
flokknum, sjálfstætt starfandi dans-
ari og einhverjir vinir okkar, sem
eru áhugafólk um dans og leik, með í
verkinu,“ segir Valgerður.
Í verkinu er stiklað á stóru úr sög-
unni; Gunnar og Hallgerður spila
stór hlutverk ásamt Rangárbardag-
anum og atgeirnum, en hann er túlk-
aður af dansara. „Við leikum svolítið
í kringum frægar setningar og tök-
um fyrir bardagasenurnar sem oft
hljóma ýktar og ótrúlegar,“ segir
Valgerður.
Auk þess að leikstýra sínu eigin
verki tekur Valgerður þátt í tveimur
öðrum verkum í samkeppninni; 9.50
alla virka morgna og Beðið eftir
hverju?
Dansleikhús/ samkeppnin fer
fram á Stóra sviði Borgarleikhússins
í kvöld klukkan 20.00. Veitt verða
þrenn verðlaun ásamt því að áhorf-
endur velja sitt uppáhaldsverk. For-
maður dómnefndar er Sean Feld-
man dansari, kennari, danshöfundur
og fræðimaður.
Sviðslist | Dansleikhús/samkeppnin 25 tímar haldin í Borgarleikhúsinu
Ungmennafélags-
andinn við lýði
Morgunblaðið/Eyþór
Úr verki leikaraparsins Álfrúnar Örnólfsdóttur og Friðriks Friðrikssonar,
9.50 alla virka morgna. Ólöf Ingólfsdóttir dansari faðmar útvarpið.
Morgunblaðið/Eyþór
Valgerður Rúnarsdóttir, dansari Íslenska dansflokksins, og Vignir Rafn
Valþórsson, nemi í Leiklistarskóla Íslands.
Eftir Völu Ósk Bergsveinsdóttur
valaosk@mbl.is
9.50 alla virka morgna eftir
Álfrúnu Örnólfsdóttur og
Friðrik Friðriksson.
Beðið eftir hverju eftir Evu
Rún Þorgeirsdóttur og Höllu
Gunnarsdóttur.
Blank eftir Tinnu Lind Gunn-
arsdóttur.
„Gunnar is going mad he is
killing people down the river“
eftir Valgerði Rúnarsdóttur
og Vigni Rafn Valþórsson.
Integrate eftir Ingvar E. Sig-
urðsson.
Lífsins völundarhús! eftir
Bryndísi Einarsdóttur.
Twelve Points eftir Peter
Anderson.
Örlög systranna eftir Elmu
Lísu Gunnarsdóttur, Halldóru
Geirharðsdóttur og Ólafíu
Hrönn Jónsdóttur.
Jarðarber eftir Vatnadans-
meyjafélagið Hrafnhildi.
Dansleikhús/
samkeppni
ÍTARLEGA er fjallað um Myrka
músíkdaga, tónlistarhátíð Tón-
skáldafélags Íslands, í nýjasta hefti
tímaritsins Nordic Sounds. Tímarit-
ið er málgagn Nomus, norræna tón-
listarráðsins sem starfar á vegum
Norrænu ráðherranefndarinnar að
tónlistarmálum á Norðurlöndum. Ís-
lendingar eiga einn skipaðan full-
trúa í nefndinni, Þorgerði Ingólfs-
dóttur kórstjóra, en Selma
Guðmundsdóttir píanóleikari er
staðgengill hennar.
Það er ritstjóri tímaritsins, And-
ers Beyer, sem ritar greinina, en
hann heimsótti Myrka músíkdaga
þegar þeir voru haldnir í Reykjavík
snemma í vor. Hann rekur þar
nokkra af viðburðum hátíðarinnar
og fer lofsamlegum orðum um heim-
sóknina til Íslands: „Ég hef sagt og
skrifað það áður, og ég víla ekki fyr-
ir mér að endurtaka það: Ísland er
frábært land með gestrisnu fólki,“
segir hann og heldur áfram eftir
stutta umfjöllun um ferð sína í Bláa
lónið: „Þessi texti er ekki ferða-
mannaupplýsingar um helstu staði á
íslandi, og þó hefst hann á lofræðu
um náttúruna og menningu. Það er
vegna þess að það er ekki hægt að
hugsa um íslenska menningu áns
þess að taka náttúruna með í reikn-
inginn.“
Beyer var viðstaddur afhendingu
Íslensku tónlistarverðlaunanna
fyrsta kvöld sitt hér, og verður tíð-
rætt um Björk Guðmundsdóttur og
áhrif hennar á íslenskt tónlistarlíf.
Þegar kemur að umfjölluninni
sjálfri um Myrka músíkdaga segir
hann: „Myrkir músíkdagar eru há-
tíð sem manni finnst frábært að
heimsækja, vegna þess að hún er
staður þar sem hægt er að upplifa
nýja íslenska tónlist í sínu hreinasta
formi.“
Hann telur upp nokkur af þeim
tónskáldum sem áttu verk á hátíð-
inni, bæði eldri og yngri, og telur
stjórnendur hátíðarinnar hafa sýnt
sérstakt hugrekki með því að stilla
upp „nokkuð ósönnuðum kröftum á
borð við ungu tónskáldin í tónlist-
arhópnum Atón“.
Nomus hafði ennfremur sérstöku
hlutverki að gegna á hátíðinni í ár,
en nefndin styrkti tónleika með
nýrri raftónlist eftir Kjartan Ólafs-
son, Indra Rise og Patrick Kosk.
Beyer nefnir verk eftir Þuríði
Jónsdóttur sem flutt var af Sinfón-
íuhljómsveit Íslands á hátíðinni, sér-
staklega og segir að hún skrifi af
„glænýjum ferskleika“ og sé „ekki
hrædd við að vera hávær og leik-
ræn. … Það verður spennandi að
fylgjast með þessu áhugaverða ís-
lenska tónskáldi í framtíðinni.“
Ritstjórinn segir einnig frá sam-
tali sem hann átti við Svanhildi Kon-
ráðsdóttur um fyrirhugað tónlistar-
hús. „Hún lofar nýju tónlistarhúsi
árið 2009,“ skrifar Beyer. „Það á að
opna um mitt ár, og þar verða sæti
fyrir 1.800 manns í stóra salnum og
450 í litla salnum.“
Hefur möguleika
Það er ef til vill í takt við ítarlegar
náttúrulýsingar Beyers í greininni,
en auk Bláa lónsins lýsir hann ferð-
um sínum á Þingvelli, Gullfoss og
Geysi, að hann telur að Myrkir mús-
íkdagar „verði að gera meira til að
fá umhverfið í uppbyggingu sína“
og nefnir tónleikana Frosnir fossar í
Lillehammer í Noregi sem vel
heppnað dæmi.
Hann telur að hátíðin eigi mögu-
leika á að verða alþjóðleg hátíð með
svipað aðdráttarafl og tónlistarhá-
tíðin sem haldin er að hausti í Varsjá
ár hvert, ekki síst ef til kæmu nátt-
úrutónleikar af einhverju tagi: „Með
því að búa til einstaka tónleika – úti í
villtri náttúrunni eins og Björk hef-
ur þegar gert fyrir mörgum árum –
gætu Myrkir músíkdagar orðið
„möst“ fyrir aðdáendur nýrrar tón-
listar.“
Beyer bendir einnig á nokkra
þætti sem verða að vera til staðar
eigi hátíðin að ná alþjóðlegri at-
hygli. Hann segir: „Sem hluti af al-
þjóðleikavæðingu sinni munu Myrk-
ir músíkdagar geta gert áætlanir
fram í tímann. Eins og hlutirnir eru
núna, gerist flest á síðustu mínútu
(þannig er það oft á Íslandi), og
þetta er hamlandi fyrir sterk áhrif.
Hátíðin verður að hafa dagskrá á
ensku og sannfærandi vefsíðu, sem
dæmi séu tekin. Borg og ríki verða á
vita hvernig þau geta stutt hátíðina
umfram hið staðbundna, því það er
við alþjóðlega listamenn sem íslensk
tónskáld og tónlistarfólk verða að
bera sig saman.“
Tónlist | Umfjöllun um Myrka músíkdaga í tónlistartímaritinu Nordic Sounds
Náttúran sé
notuð meira
Morgunblaðið/Jim Smart
Barnaóperan Undir drekavæng var frumflutt á Myrkum músíkdögum í vor.
Eftir Ingu Maríu Leifsdóttur
ingamaria@mbl.is