Morgunblaðið - 20.06.2005, Blaðsíða 1
STOFNAÐ 1913 164. TBL. 93. ÁRG. MÁNUDAGUR 20. JÚNÍ 2005 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS mbl.is
Myndir í
hálfa öld
Sigurgeir Jónasson á orðið
milljónir mynda úr Eyjum 10
Atvinna | Vorið nýtist til að mála úti Góð nýting við Trölla-
teig Minnisblað kaupenda Íþróttir | Dagur hættir í landslið-
inu Campbell sigraði á opna bandaríska meistaramótinu
VEL á annað þúsund manns minnt-
ist þess á baráttufundi á Þingvöllum í
gær að níutíu ár voru liðin frá því að
konur, sem náð höfðu fertugsaldri
öðluðust kosningarétt og kjörgengi
til Alþingis.
Árni Magnússon félagsmálaráð-
herra sagði frá því á́ fundinum að
hann hefði í gær undirritað bréf til
allra fyrirtækja og stofnana í land-
inu, með yfir 25 starfsmenn, þar sem
hvatt er til launajafnréttis.
Í bréfinu er jafnframt hvatt til
þess að skoðað verði hvort hugsan-
lega sé fyrir hendi óútskýrður kyn-
bundinn launamunur. Með bréfinu
fylgir veggspjald, sem ætlast er til að
verði hengt upp á áberandi stöðum,
þar sem spurt er: Skiptir skeggrótin
máli?
Vigdís Finnbogadóttir, fyrrver-
andi forseti Íslands, sagði m.a. í
ávarpi sínu að margt hefði áunnist í
sögu kvenna síðastliðin níutíu ár.
Minna hefði þó miðað en væntingar
stóðu til. | Miðopna
Morgunblaðið/Sverrir
Baráttuhátíð á Þingvöllum
ÞÝSKA landsliðið í knattspyrnu kvenna varð í gær Evrópumeistari þegar
það vann Noreg, 3:1, í úrslitaleik á Ewood Park í Blackburn í Englandi.
Þetta er fjórða Evrópumótið í röð þar sem þýska liðið stendur uppi sem
sigurvegari en alls hafa Þjóðverjar hampað Evrópumeistaratitlinum sex
sinnum síðan fyrst var keppt um hann. | Íþróttir
Reuters
Þjóðverjar fögnuðu sigri
Reykingabann
í Bretlandi?
London. AFP. | Breska stjórnin
hyggst setja lög um að banna reyk-
ingar alfarið á opinberum stöðum,
þ. á m. krám og veitingastöðum. Áð-
ur hafði verið talið að krár þar sem
ekki væri seldur matur yrðu undan-
skildar. En niðurstaða Patriciu
Hewitt heilbrigðisráðherra mun
hafa orðið að auðveldara og ódýr-
ara yrði að framfylgja lögunum án
slíkra undanþágna.
Að sögn blaðsins Observer verður
skýrt frá tillögunni í dag en stjórn
Tonys Blairs forsætisráðherra
skýrði frá því í maí að kynnt yrðu
fljótlega lög um reykingabann.
Stjórnin hefur fylgst vel með lög-
um um víðtækt reykingabann sem
sett hafa verið á Írlandi og í Noregi.
Þau voru í upphafi umdeild en
kannanir hafa sýnt að þau njóta
mikilla vinsælda, einkum á Írlandi.
TONY Blair, forsætisráðherra Bret-
lands, hyggst beita sér af alefli fyrir
því að Evrópusambandið afnemi nið-
urgreiðslur og annan beinan stuðning
við landbúnað í sambandinu fyrir árið
2010, að sögn breska dagblaðsins
Guardian. Notar Blair m.a. þá rök-
semd að Afríkuríki muni aldrei geta
rifið sig upp úr fátæktarbaslinu nema
þau geti selt matvæli og fleira á evr-
ópskum mörkuðum sem ekki sé búið
að loka að mestu með beinum og
óbeinum styrkjum til innlendra fram-
leiðenda eins og reyndin er nú.
Ráðamenn átta helstu iðnríkja
heims, G-8-hópsins, hafa samþykkt að
auka fjárhagsaðstoð við Afríkulönd,
einkum með því að fella niður skuldir
þeirra. Breska stjórnin hefur lagt
mikla áherslu á aðstoð við Afríku og
vill Blair nú að ríkar þjóðir opni mark-
aði sína.
Leiðtogum ESB mistókst í liðinni
viku að ná samkomulagi um fjárlög
fyrir sambandið á tímabilinu 2007-
2013 og var styrkjakerfið í landbúnaði
sambandsins, sem nefnt er CAP, einn
af helstu ásteytingarsteinunum. Blair
neitaði að sætta sig við að sérstakur
afsláttur sem Bretar hafa fengið á
greiðslum í sameiginlega sjóði ESB
yrði lagður af og sagði að fyrst yrði að
breyta styrkjakerfinu í landbúnaðin-
um.
Ákveðinn að nýta
sér formennskuna
Segja bresk blöð að ástæðan fyrir
ósveigjanleika Blairs hafi verið að
hann sé staðráðinn í að nýta sér for-
mennsku Breta í ESB seinni helming
ársins til að reka áróður fyrir kerf-
isbreytingum. Blair vill að styrkja-
kerfið verði stokkað algerlega upp en
um 40% allra sameiginlegra útgjalda
ESB fara til málaflokksins. Er nú um
að ræða liðlega 30 milljarða evra ár-
lega, nær 2.500 milljarða króna. Þar
af renna 17 milljarðar evra til Frakka.
Sir Digby Jones, formaður breska
verslunarráðsins, er að sögn Guard-
ian sammála stefnu ríkisstjórnarinn-
ar. Hann segir það helbera hræsni að
tala um fátækt í Afríku en tengja mál-
ið ekki við landbúnaðarstyrkina.
„Leiðin til að efla viðvarandi hagvöxt,
styrkja heilsugæslu og menntun [í
Afríku] er að Evrópuríkin leggi CAP
á hilluna,“ sagði Jones.
Vilja afnema
landbúnaðar-
styrki ESB
Bretar segja styrkjakerfi Evrópu-
sambandsins valda fátækt í Afríku
AP
Afrakstur landbúnaðarstyrkja
ESB: Frönsk verðlaunakýr.
Eftir Kristján Jónsson
kjon@blm.is
Beirút. AFP, AP. | Flest benti til þess í
gærkvöldi að andstæðingar Sýrlend-
inga í Líbanon hefðu unnið mikinn
sigur í fjórðu og síðustu hrinu þing-
kosninganna sem var í gær. Var talið
að þeir hefðu tryggt sér meirihluta á
þinginu í Beirút. Kosið var að þessu
sinni um 28 sæti í norðanverðu land-
inu.
„Talningunni er næstum því lokið
og tölurnar sýna að þjóðin hefur feng-
ið vilja sínum framgengt. Hún hefur
sagt að hún vilji breytingar og við
hvetjum til breytinga,“ sagði Saad
Hariri, sonur Rafiks Hariris, fyrrver-
andi forsætisráðherra, er myrtur var
fyrr á árinu. Bandalag undir forystu
sonarins þurfti að fá 21 af sætunum
28 til að fá þingmeirihluta, 65 sæti, og
virðist það hafa tekist.
Helsti leiðtogi drúsa, Walid Jum-
blatt, er í bandalagi við Hariri og
sama er að segja um suma kristna
leiðtoga. Öflugasti leiðtogi kristinna,
Michel Aoun, hefur hins vegar gert
bandalag við flokka sjía-múslíma sem
njóta stuðnings Sýrlendinga og
klerkastjórnarinnar í Íran.
Bandalag
Hariris sigraði
Andstæðingar Sýrlendinga líklega
með meirihluta á þingi Líbanons
MARGIR ráku upp stór augu þegar
þeir litu styttur bæjarins í gær því
þær voru margar hverjar skrýddar
bleikum borðum. Að sögn Rósu Er-
lingsdóttur, verkefnisstjóra hátíða-
haldanna á Þingvöllum í tilefni 19.
júní, var það sannkallaður hulduher
sem stóð á bak við uppátækið. „Þetta
er hópur kvenna sem kallar sig The
Pink Guerillas eða Bleiku skærulið-
ana sem var á ferð um bæinn í dag-
renningu. Við fengum fregnir af
þessu austur á Þingvöll með bar-
áttukveðjum.“ Spurð hvað hún telji
Bleiku skæruliðunum ganga til seg-
ist Rósa sannfærð um að verið sé að
vísa til þess hversu hægt jafnréttis-
baráttunni miði. Segir hún það m.a.
endurspeglast í tilfinnanlegum
skorti á styttum af merkum kven-
skörungum Íslandssögunnar.Morgunblaðið/ÞÖK
Hvar eru
konurnar?
Atvinna og Íþróttir í dag