Morgunblaðið - 27.06.2005, Blaðsíða 30
Grettir
Smáfólk
Kalvin & Hobbes
Hrólfur hræðilegi
Gæsamamma og Grímur
Úthverfið
Kóngulóarmaðurinn
HUNDAR REYNA ALLT OF MIKIÐ Á
SIG ÞEGAR ÞEIR ERU AÐ SLÆPAST
AHA!
ÞARNA ER EFNILEGUR
SKAUTAFÉLAGI ÉG ÆTLA AÐ RENNA MÉRTIL HENNAR OG SPYRJA HANA
Á VIÐEIGANDI HÁTT
HÆ SÆTA,
EIGUM VIÐ AÐ
RENNA
OKKUR
GOTT AÐ VIÐ ERUM KOMIN
Á LEIÐARENDA
ÞVÍLÍK ÞOLRAUN AÐ SITJA
ÁTTA KLUKKUTÍMA Í BÍL MEÐ
OFVIRKUM
SEX ÁRA KRAKKA
NÚ GETUR KALVIN
HLAUPIÐ OG ÖSKRAÐ EINS
OG HANN VILL. EN
YNDISLEGUR STAÐUR
PABBI
HVENÆR
FÖRUM VIÐ
HEIM!
Á ÉG AÐ
SÝNA ÞÉR
HVERNIG
AKKERI
VIRKAR
ÞÚ SLEIST
SNOOPY
VÖÐVANN ÞINN
ÞEIR ERU EKKI TILBÚNIR AÐ VEITA
OKKUR FRAMFÆRSLUBÆTUR FYRIR
KÚNA OG ENDURNAR
AF HVERJU
EKKI?
DÝRIN ÞURFA AÐ
TREYSTA Á OKKUR ÞEGAR
ÞAÐ KEMUR AÐ MAT
OG HÚSASKJÓLI
NÚ ER KOMINN TÍMI TIL AÐ
LEYFA ÞEIM AÐ KYNNAST
ÞEIR
VIRÐAST
VARKÁRIR
NEI, NEI, ÞEIR
ÞURFA BARA SMÁ
TÍMA TIL AÐ ÁTTA SIG
ÁÐUR EN ÞEIR FARA
AÐ LEIKA SÉR
KANNSKI
EKKI
ÞURFIÐ ÞIÐ
FLEIRI
SANNANIR?
JÁ, OG
ÞESSI
VERÐUR
AÐ VERA
GÓÐ
TRÚIR ÞÚ MÉR NÚNA?
JÁ, ÉG
TRÚI ÞÉR.
ÞAÐ ER EINS GOTT,
ÞVÍ ÉG SKILDI
SKILRÍKIN EFTIR Í
HINUM BÚNINGNUM
Dagbók
Í dag er mánudagur 27. júní, 178. dagur ársins 2005
Stærri fyrirtækin áÍslandi hafa í
seinni tíð verið að
koma sér upp svoköll-
uðum þjónustuverum,
nú lendir viðskiptavin-
urinn semsé oftast nær
í því að þurfa að hlusta
á símsvara er hann
hringir eftir aðstoð. „Í
augnablikinu eru allar
línur uppteknar, sím-
tölum verður svarað í
réttri röð,“ segir sím-
svarinn gjarnan og oft-
ar en ekki tekur við-
skiptavinurinn þann
kostinn að bíða róleg-
ur. Það þarf nú ekki alltaf að bíða svo
lengi og fullkomlega eðlilegt að koma
einhverju skipulagi á þá aðstoð sem
veitt er í gegnum símann.
Víkverji veltir því samt fyrir sér
hvort þessi framþróun, sem er jafnan
kölluð svo, hafi ekki í raun þýtt verri
þjónustu. Víkverji þurfti til dæmis
nýlega að segja upp síma – hann var
að hefja sambúð, þá þurfti að segja
upp símanum á gamla stað kærust-
unnar – og hugðist gera það í gegnum
símann.
Í fyrra skiptið sem hann hringdi
sagði símsvari þjónustuvers Lands-
símans að hann væri númer nítján í
röðinni. Við svo búið skellti Víkverji
á; vissi sem var að ef
nítján voru á undan
honum í röðinni gat lið-
ið hálftími eða meira
þar til honum yrði
sinnt.
Víkverji lét samt
ekki hugfallast heldur
mat stöðuna þannig að
mikið væri að gera ein-
mitt þá stundina,
kannski fáir á vakt í
þjónustuverinu. Ákvað
með sér að hringja aft-
ur síðar.
Sem hann svo gerði.
Vikunni á eftir reyndi
hann enn á ný. Hvað
sagði símsvarinn honum þá? „Þú ert
númer tuttugu og eitt í röðinni.“
Og aftur skellti Víkverji á. Tíminn
er of dýrmætur. Það er ekki þess
virði að ergja sig á því að sitja í sím-
anum og hlusta á símsvara í fjörutíu
og fimm mínútur.
Seinna þurfti Víkverji á aðstoð bil-
anaþjónustu Símans að halda. Þar
var biðröðin engan veginn svona
löng; raunar sagði símsvarinn Vík-
verja í tíma og ótíma að hann væri
númer eitt í biðröðinni. Samt þurfti
hann að bíða í næstum fimmtán mín-
útur eftir því að einhver kæmi honum
til aðstoðar.
Svona er Ísland í dag.
Víkverji skrifar... | vikverji@mbl.is
Leifsstöð | Sól og sumarylur tók á móti hinum skuggalega Dave Mustaine og
félögum hans í bandarísku þungarokksveitinni Megadeth við komuna til lands-
ins í gær. Sveitin er stödd á Íslandi til að halda tónleika í kvöld í Nasa við Aust-
urvöll. Eins og fram kemur í viðtali annars staðar í blaðinu mun hin fornfræga
íslenska sveit Drýsill hita upp en þessar sveitir eiga sér marga dygga unnend-
ur hér á landi þótt lítið hafi borið á þeim síðustu árin. Ekki bar á öðru en að
þeim rokkurum líkaði vel við Ísland – í það minnstu þessi sólríku fyrstu kynni.
Ljósmynd/Atli Már Gylfason
Megadeth mætt
MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍMAR: Skiptiborð: 569 1100. Aug-
lýsingar: 569 1111. Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329, fréttir 569
1181, íþróttir 569 1156, sérblöð 569 1222, auglýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811,
gjaldkeri 569 1115. NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.600 kr. á mánuði
innanlands. Í lausasölu 220 kr. eintakið mánudaga til laugardaga. Sunnudaga 350 kr.
Ef vér lifum, lifum vér Drottni, og ef vér deyjum, deyjum vér Drottni.
Hvort sem vér þess vegna lifum eða deyjum, þá erum vér Drottins.
(Róm. 14, 8.)